Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 66
66 ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
A
Ert þú
áskrifandi ?
EIÐFAXI
TÍMARIT HESTAMANNA
Áskriftarsími 5882525
Thiessen
áfram í
Beverly Hills
► LEIKKONAN Tiffani-Amber
Thiessen hefur skrifað undir
samning um að leika í þáttaröð-
inni „Beverly Hills 90210“ í haust
og áskilur sér rétt til að leika í
fleiri þáttum í framtíðinni.
Thiessen hafði íhugað að
hætta í þáttunum og byrja með
eigin þáttaröð, en nú lítur út fyr-
ir að hún sé að hefja nýjan feril í
kvikmyndum. Hún skrifaði fyrir
skemmstu undir samning um að
fara með aukahlutverk í mynd-
inni „Texas Blood Money“, sem
er framhald af vampírumynd-
inni From Dusk Till Dawn“.
Falleg oggagnleg fermingargjöf
Fæst hjá öllum bóksölum
Ensk-íslensk orðabók
34.000 ensk uppflettiorð
íslensk-ensk orðabók
35.000 íslensk uppflettiorð
2.200 blaðsíður
Saman í fallegri gjaöskju
á aðeins kr. 3.990
Gagnleg og glæsileg fermingargjöf,
sem nýtist vel í nútíð og framtíð
Oröabókaútgáfan
Flutt á
sjúkrahiís
á afmælis-
daginn
ELIZABETH Taylor var flutt á
sjúkrahús í Los Angeles síðasta
fóstudag eftir að hún datt á heimili
sínu og marðist á mjöðmum og baki
nokkrum klukkutímum áður en hún
hugðist fagna 66
ára afmæli sínu.
Að sögn kynn-
ingarfulltrúa
stjörnunnar,
Shirine Ann
Coburn, voru
meiðslin ekki al-
varleg og búist
við því að Taylor
Eiízabeth i0sni af sjúkra-
Taylor húsinu innan
fárra daga. „Hún beygði sig til að
ná í eitthvað úr náttborðinu og datt
þegar hún reisti sig upp,“ sagði
Coburn og neitaði fregnum um að
Taylor hafi misst meðvitund eftir
fallið eða brotið bein.
Elizabeth Taylor gekkst undir
skurðaðgerð fyrir ári þegar fjar-
lægja þurfti góðkynja heilaæxli.
Sjúkrahússaga leikkonunnar er orð-
in ansi löng því hún hefur lengi ver-
ið bakveik auk þess sem skipt var
um báða mjaðmaliði hennar fyrir
nokkrum árum. í september 1995
var leikkonan lögð inn á sjúkrahús
vegna óreglulegs hjartsláttar og ár-
ið 1990 var hún við dauðans dyr
vegna öndunarerfiðleika og dvaldi á
sjúkrahúsi í þrjá mánuði.
Björk aflýsir
tónleikum með
Radiohead
BJÖRK Guðmundsdóttir hefur hætt við að
koma fram á femum tónleikum með bresku
sveitinni Radiohead og gefið þá skýringu að
margbrotinn og flókinn sviðsbúnaður sveit-
anna tveggja hefði skapað of mörg vandamál,
áð sögn talsmanns hennar.
„Báðar hljómsveitimar em með sviðsbúnað
sem er mjög umfangsmikill," sagði Joel Am-
sterdam hjá Elektra, útgáfufyrirtæki Bjarkar
í Bandaríkjunum. „Þær þurfa báðar flókinn
tæknibúnað og áhorfendur hefðu því þurft að
bíða of lengi milli atriða."
Aætlað hafði verið að Björk kæmi fram
með Radiohead 12. apríl í Maple Leaf Gar-
dens í Toronto, 13. apríl í Molson Centre í
Montreal, 15. apríl í Worcester Centram í
Worcester og 17. apríl í Radio City Music
Hall í New York.
Bæði Amsterdam og Jenny Bendel, fjöl-
miðlafulltrúi Radiohead, voru sammála um að
ef Björk hefði farið með í tónleikaferðina
hefði biðin milli atriða verið um klukkutími og
fannst bæði Björk og meðlimum Radiohead
að það væri óviðunandi. Bendel sagði að
rokksveitin Spiritualized, sem þegar átti að
hita upp fyrir Radiohead á níu tónleikum,
myndi leika á öllum 13 tónleikum ferðarinnar.
Þetta er í annað sinn á þremur mánuðum
sem Björk þarf að aflýsa tónleikum í Banda-
ríkjunum. Hún þurfti að aflýsa tónleikaferð
til Bandaríkjanna í desember vegna nýrna-
sýkingar.
Amsterdam sagði að Björk hefði orðið fyrir
sárum vonbrigðum því hún héldi mikið upp á
Radiohead og hefði viljað koma fram á tón-
leikunum. Hún bætti við að óljóst væri
hvenær Björk myndi fara í tónleikaferð um
Bandaríkin.
I NÝJASTA hefti tímaritsins Vox er Björk £ nítjánda
sæti af tuttugu yfir „eftirsóttustu" konur ársins
1998. Hún er ekki í amalegum félagsskap því með
henni á listanum eru konur á borð við Madonnu,
sem er í efsta sæti, Courtney Love, Spice Girls, kd
lang, Erykah Badu, Tori Amos, Sinéad O’Connor,
Skin og Polly Harvey.
Rafrænn
■ t : :
JL r ffcaiirTi ÓÐINSVÉ Hringiðan Intemetþjónusta
^„SÍNWIRKINN
irwfii iMtii
TmCveitingahúsid m&Ste H.J WATCH HERMANN JONSSON
iJQJI© BOOK'S MENSWEAR RfAD THE MESSAGE
Þessi fyrirtæki veita öllum sem
greiða með VISA kreditkorti
rafrænan afslátt
Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt
FRIÐINDAKLUBBURINN
www.fridindi.is • www.visa.is
Stutt