Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 64
64 ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRÉTTUM
„ÞESSI mynd var tekin
í Soller á Mallorca þeg-
ar konur voru að halda
upp á nokkurs konar
frelsisbaráttudag. Þær
telja sig hafa bjargað
þessu þorpi frá glötun
þegar sjóræningjar
heijuðu á það fyrr á
öldum. Þær halda upp á
þennan dag sem heilag-
an konudag og klæða
sig allar upp. Baráttan
er sett á svið árlega þar
sem sjóræningjar gera
atlögu að þorpinu."
SIGURGEIR Siguijónsson með
dótturson sinn Benjamín Liam.
Morgunblaðið/Sigurgeir Siguijónsson
„MYNDIN er tekin fyrir fyrirtæki í Oregon í Bandaríkjunum sem heit-
ir Northern Gas Company. Þeir vildu fá mann í heitu laugarumhverfi
og ég tók myndina í heitum Iæk sem var í Oskjuhlíð. Myndin var notuð
í kynningarbæklingi fyrirtækisins."
Úr myndaalbúmi Ijósmyndara
Haldið í
fortíðina með
myndum
SIGURGEIR Siguijónsson hefur starfað sem ljós-
myndari um árabil og starfrækti lengi Svipmyndir
á Hverfísgötu. „Ég er aðallega að vinna við auglýs-
ingaljósmyndun. Svo hef ég verið að gefa út þessar
íslandsbækur. Ég er að koma með eina núna í vor
sem heitir „Amazing Iceland" og á næsta ári ætla
ég að gefa út bók sem heitir Þjóðgarðar Islands en
þá er ég hættur að taka landslagsmyndir. Þá er ég
búin að strika yfir þetta og búinn að gera þetta,“
segir Sigurgeir ákveðinn. Hann hefur á undanförn-
um árum sent frá sér nokkar ljósmyndabækur sem
notið hafa vinsælda og sumar verið gefnar út á
mörgum tungumálum.
„Stundum langar mig áð breyta til og fara að
gera eitthvað annað. Maður má ekki festast í ein-
hveiju ákveðnu. Þegar ég byijaði ætlaði ég aldrei
að taka landslagsmyndir en tók svo að mér að
mynda dagatal fyrir Eimskip. Eftir sjö slík átti ég
ágætt safn af landslagsmyndum og bókahugmyndin
varð til.“
Sigurgeir segist ekki fylgja ákveðnum reglum
eða hugmyndafræði þegar Ijósmyndun er annars
vegar. Hann lærði ljósmyndun í Stokkhólmi í tvö ár
og var auk þess eitt ár í Bandaríkjunum. „Maður er
„ÞETTA er tekið á Prado í Madrid á
Velasques-sýningu. Það er bannað að
mynda þarna inni og þá langar mann svo
rosalega til að mynda. Ég var með hljóð-
láta vél og ekkert flass. Það er einhver
stemmning í þessari mynd sem virkar."
alltaf að halda í fortíðina með myndum. Þegar fjöl-
skyldan er á ferðalagi reynir maður að mynda hana
í bak og fyrir því maður er svo hræddur um að
þetta hlaupi allt frá manni og vill eiga eitthvað til
minningar.
Ég fékk svo góðan ljósmyndaskóla í upphafi að
minn smekkur liefur ekkert breyst síðan. Svo ólst
ég upp með góðu fólki hérna heima sem hafði fína
sýn á ljósmyndun, myndlist og annað. Það er mest
gaman að mynda þegar maður getur leikið sér og
er ekki beinlínis að vinna fyrir ákveðinn viðskipta-
vin. En lífið er ekki bara leikur og dans á rósum,“
segir Sigurgeir að lokum.
„ÞETTA er konan mín og kötturinn okkar. Það er svo falleg morgun-
stemmning í myndinni. Þetta var nokkuð óvænt. Hún var að koma úr
baði og kötturinn var nálægur. Það er fallegt ljós í henni, sumarbirta
sem kemur inn um gluggann."
„ÞETTA er kotbóndi sem heitir Sigurjón Jóhannsson. Myndin er 18 ára gömul og var tekin á heimili hans á
Rangárvöllum. Við Gunni Örn málari vorum að þvælast upp á Heklu og fundum bæ sem hét Kot og fannst
við vera komnir þónokkur ár aftur í tfmann."