Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 43 *
Sjávarútvegurinn og
r flokkur allra stétta
LANDSMENN hafa
ekki farið j varhluta af
þrætum og átökum inn-
an sjávarútvegsins á
íslandi. í dag standa
menn frammi fyrir
þeim sannindum að Ai-
þingi íslendinga og rík-
isstjóm íslands hafa,
með inngripi sínu í átök
útgerðarmanna og sjó-
manna á dögunum,
varpað skýrara ljósi á
að ríkjandi er meingall-
að kerfi í sjávarútvegi.
Endurspeglast þetta í
þvi ástandi sem nú rík-
ir.
Endurskoðun laga
Það kerfi sem deilan hefur staðið
um er kvótakerfíð, kerfi sem þarf að
laga að nýjum tíma. Þörf er fyrir
kerfi sem heftir sókn í takmarkaða
auðlind, auðlind sem þjóðin lifir á.
Það liggur þó ljóst fyrir að lög nr.
38 um stjórn fiskveiða frá árinu
1990 vernda fiskinn í hafinu en virð-
ast ekki vemda þær starfsstéttir
sem vinna í sjávarútvegi. I ljósi
þessa tel ég að Sjálfstæðisflokkur-
inn og þá sérstaklega þingmenn
flokksins eigi að horfa til þeirra
gmndvallaratriða sem þeir hafa
gengist undii’ sem sjálfstæðismenn.
Að setja lög á verkfall sjómanna,
eða að huga að slíkum leiðum, er
einfaldlega aðför að einni stétt í
landinu og stangast bersýnilega á
við þær ályktanir sem sjálfstæðis-
menn og fulltrúar þeirra á Alþingi
íslendinga hafa samþykkt á lands-
fundi flokksins. Hins
vegar tel ég að menn
vilji vel með því að
bjarga því sem bjargað
verður, en þeir verða
þó að stuðla að því að
lögin séu skýr og
verndi hagsmuni allra
sem þau heyra til.
Hagsmunir sjómanna
verði virtir
í 12. mgr. sama
landsfundar segir m.a. í
ályktun um sjávarút-
vegsmál: „Eðlilegast er
að bein afskipti ríkisins
af sjávarútveginum
verði sem minnst en
hlutverk stjórnvalda hverju sinni
ætti að vera að skapa almennan
efnahagslegan ramma fyrir sjávar-
útveginn.“
Þegar inngrip hins opinbera á sér
stað, t.d. með setningu laga á verk-
fall sjómanna, er ljóst að fulltrúar
þess virðast ekki horfa til þessara
sjónarmiða. Vissulega verður að
grípa til aðgerða þegar þjóðarhags-
munir eru í húfi. Auðvitað verða
ekki allir sáttir við setningu laga til
að stöðva verkfóll og því síður þeir
valdhafar sem grípa til slíkra ör-
þrifaráða. Hins vegar er ljóst að í
þeirri deilu sem nú er ríkjandi hefur
ekki verið reynt til hins ýtrasta með
samningaumleitanir og útgerðar-
menn virðast geta hér eftir sem
hingað til gert ráð fyrir lögum á
verkfall sjómanna.
Sjaldan er ein báran stök í þess-
um efnum og það er einfaldlega
Sjálfstæðisflokkurinn á
að vera sáttaafl í ís-
lenskum stjórnmálum.
-------------7---------
Sveinn Oskar
Sigurðsson telur
að honum sé best
treystandi til að leysa
sj ómannadeiluna.
ekki hollt fyrir útgerðarmenn að
geta gert ráð fyrir þessum við-
brögðum hins opinbera æ ofan í æ.
Því verður Alþingi að grípa inn í og
sjá til þess að deiluaðilum sé ekki
att saman vegna gallaðra laga.
Vinnufriður á að ríkja og það er
hinu opinbera, deiluaðilum og allri
þjóðinni til heilla.
í 8. mgr. landsfundar Sjálfstæðis-
flokksins segir einnig í ályktun um
sjávarútvegsmál: „Frelsi við verð-
lagningu og markaðssetningu á fiski
er sjávarútveginum til framdráttar
og gerir nýjar kröfur til þeirra sem
starfa í greininni. Fiskmarkaðir
hafa gegnt sívaxandi hlutverki í
frjálsri verðmyndun og framþróun
sjávarútvegs. Mikilvægt er að efla
þessa þróun enn frekar og stuðla
þannig að aukinni fullvinnslu og
sérhæfingu innlendrar fiskvinnslu."
Þegar þessi ályktun er skoðuð
nánar er ljóst að lög um stjómun
fiskveiða fullnægja ekki þeim skil-
yrðum sem verða að gilda innan
sjávarútvegsins. Lögin virðast ekki
Sveinn Óskar
Sigurðsson
loka fyrir þá óeðlilegu verslun með
kvóta sem oftast hefur gengið undir
nafninu kvótabrask. Slík mál virðist
ekki vera hægt að semja um því lög-
in halda ekki utan um hagsmuni sjó-
manna í þessu efni. I stað breytinga
á gölluðum lögum má ljóst vera að
valdhafar láti útvegsmenn og sjó-
menn hártogast um þessi mál.
Undarleg atburðarás
Hinn 7. janúar 1994, fyrir fjórum
árum, afhentu samtök sjómanna
forsætisráðherra tillögur sínar til
lausnar kjaradeilu sem þá hafði
staðið frá áramótum. Allar þessar
tillögur byggðust á lagabreytingum
og voru í fjórum liðum. I frétt
Morgunblaðsins 8. janúar 1994 seg-
ir m.a.: „Loks er tillaga um að út-
gerðarmaður skuli sjá til þess að
afli sé seldur á löggildum uppboðs-
og fjarskiptamarkaði. Sé afli ekki
seldur á fiskmarkaði skal verð ein-
stakra tegunda í aflanum vera
ákveðinn hundraðshluti af meðal-
verði markaða innanlands."
Daginn eftir að frétt Morgun-
blaðsins birtist kallaði sjávarút-
vegsráðherra deiluaðila á sinn fund
og að loknum fundi sagði hann eng-
in rök fyrir því að setja lög á sjó-
menn og að það þjónaði engum til-
gangi að banna verkfall sjómanna
með lögum. Fáum dögum síðar lýsti
forsætisráðherra því yfir að hann
útilokaði ekki lagasetningu á sjó-
menn, enda væru miklir hagsmunir
í húfi. Hinn 14. janúar 1994, fimm
dögum frá yfirlýsingu sjávarútvegs-
ráðherra, var búið að ákveða að
setja lög sem stöðva skyldu verk-
fallið til 15. júní sama ár.
Þetta er grátbrosleg staðreynd
og mætti halda að þetta hefði gerst
nú að undanfömu, hins vegar eru
fjögur ár liðin frá þessum atburð-
um. Ekki fór á milli mála að sjó-
menn mótmæltu þessu framferði
stjómvalda á þessum tíma. I vinnu
nefndar átti að taka á kvótabraski
og Alþingi átti síðan að taka á mál-
inu, ekkert gerðist og vandinn
óleystur. Arið eftir eða 9. maí 1995
stranda svo deilur þessara aðila aft-
ur á verðmyndunarmálum. Miðlun-
artillaga ríkissáttasemjara var felld^
eftir mánuð og málið komið í hnút.
Reynslan kallar
á brejdingar
Reynslan sýnir stjómvöldum að
þessi mál leysast ekki nema með
breytingu á lögum nr. 38. frá 15.
maí 1990. Ásteytingarsteinli deilu-
aðila er að sjómenn viija fiskinn á
markað. Vissulega em deiluefnin
fleiri og viðamikil. Hins vegar er
fullljóst að lögin taka ekki á þessu
máli á skýran hátt. Því verða þing-
menn Sjálfstæðisflokksins að taka á
þessu máli, þeim er best treystandi
til þess að taka á erfiðum og flókn-
um málum með hugrekki og fram-
sýni.
Frjáls verðmyndun á fiski verður
að ríkja í sjávarútvegi og á meðan
allur fiskur fer ekki á markað er
fullljóst að verð hans á mörkuðum í
dag endurspeglar ekki markaðsverð
heildaraflans. Menn sem íylgjandi
em frelsi í efnahagsmálum eiga að
sjá að sú verðmyndun, sem á sér
stað í sjávarútvegi í dag, fullnægir
ekki þeim skilyrðum sem gilda eiga
á frjálsum markaði. Á meðan þetta
ástand er ríkjandi ná laun sjómanna
aldrei að endurspegla það verðmæti
sem þeir sækja úr sjó og því verðuiw
hlutaskiptakerfið ónýtt.
Eg vil sjá sjálfstæðismenn taka á
þessum málum af dugnaði og hug-
rekki en láta ekki viristri minnihlut-
ann, eða samstarfsmenn sína í ríkis-
stjóm, ná forystu í þessu efni. Þetta
er einfaldlega spuming um hvort
Sjálfstæðisflokkurinn verði áfram
sáttaafl í íslenskum stjómmálum og
flokkur allra stétta.
Höfundur er með BA-gráðu íheim-
speki og hagfræði og fv. sljórnar-
maður i Sambandi ungra sjálfstæð- ' -
ismanna.
^arðarfcaupa
VALUESI
ahoays
Aðstandendur (Qrmwm
(áður í Borgarkringlu)
verða á staðnum kl 2-6
alla daga.
tlressa viku kynnum við í IBMmmmM vriM Sfygfttím
nýjar vörurfrá JÁSÖN, framleiðanda Aíim& Wíbww,
Alltfrábœrar náttúruvörur. Meðal annars
sjampó og hárnceringu unna úr olíu ástralska
tetrésins. Einnig sérstakt sjampó fyrir böm.