Morgunblaðið - 03.03.1998, Page 21

Morgunblaðið - 03.03.1998, Page 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 21 VIÐSKIPTI "lil.Mili •*••**» 20% hlutabréfa í Air France komin í sölu París. Reuters. FRANSKA ríkið mun koma um 20% hlut í ríkisflugfélaginu í sölu í sumar, en samgönguráðherra kommúnista neitaði því að um einkavæðingu væri að ræða. „Þetta er ekki einkavæðing,“ sagði Jean-Claude Gayssot sam- gönguráðherra á blaðamannafundi ásamt Dominique Strauss-Kahn fjármálaráðherra. Hann sagði að rfldð mundi halda meirihluta sínum í fyrirtækinu til frambúðar. Starfsmenn Air France eiga að fá 3% af þeim 20% af hlutabréfum fyr- irtækisins, sem verða sett í sölu. Rfldð verður að seija nokkur hlutabréf Air France í kauphöllinni í París til að mynda markað fyrir hlutabréf, sem starfsmenn eiga beint eða óbeint. Starfsmenn hafa fengið hlutabréf og aðra pappíra gegn því að samþykkja launastöðv- anir. Markaðsverðgildi Air France mun koma í ljós þegar hlutabréfun- um verður komið í sölu. Félagið reynir að afla fjár til að geta staðið undir 40 milljarða franka, fimm ára fjárfestingaáætlun, meðal annars til að endumýja flugvélaflota sinn, að sögn Gayssots. Hann sagði að félagið mundi fjölga langfleygum flugvélum í 97 úr 70 og flugvélum á meðallöngum leiðum í 139 úr 125. Þriggja milljarða dala virði Sérfræðingur SBC Warburg, Andrew Barker, telur að Air France kunni að vera þriggja millj- arða dollara virði með hliðsjón af kostnaði við endumýjun flugvéla- flota félagsins. Auk takmarkaðrar einkavæðing- ar á Air France í viðræðum við flug- menn og aðra hálaunaða starfs- menn um að þeir eignist 10% hlut í viðbót ef þeir samþykkja 15% launalækkun næstu þrjú ár. Hlutur franska rfldsins nú er 94% og getur minnkað í 53% eftir fyrir- hugaða sölu hlutabréfa. Blaðið Les Echos segir að Air France muni skýra frá hagnaði upp á 1,5-2 milljarða franka á 12 mánuð- um til marzloka. Franska stjómin hyggst einnig selja CIC bankafyrirtækið og fá ný fyrirtæki til samstarfs við her- gagna- og raftækjafyrirtækið Thomson-CSF. Warner og Canal Plus semja Burbank, Kaliforníu. Reuters. WARNER bræður og franska greiðslusjónvarpið Canal Plus hafa samið um samvinnu um fjórar til sex kvikmyndir á ári frá kvik- myndaframleiðandum Steven Reuther, sem er meðal annars frægur fyrir Pretty Woman og Face/Off. Wamer, sem er kvikmyndavers- armur Time Wamer Inc., mun dreifa kvikmyndunum til allra fjöl- miðla í heiminum nema í Frakk- landi og Þýzkalandi, þar sem Canal Plus mun sjá um dreifingu. Reuther mun stofna nýtt fram- leiðsluíyrirtæki til að standa við samninginn. Fjögur undanfarin ár hefur hann verið aðalfgram- kvæmdastjóri Constellation Films. Fymir tæpum tveimur mánuðum gerði Wamer svipaðan samning við ástralska kvikmyndagerðarfélagið Village Roadshow um gerð 20 kvimynda fimm fyrstu árin. Samkvæmt samningnum fær Wamer einkarétt á dreifingu í heiminum, nema í Astralíu og Nýja Sjálandi. Pan Am hygg- ur á leiguflug Miami. Reuters. PAN AM Corp hyggst taka upp leiguflug í þessari viku, en heftir ekki undirritað samning um 10 milljóna dollara skuldbreytingu til að geta tekið upp áætlunarflug að nýju. Ráðagerðir um skuldbreytingu em þvi í óvissu og Pan Am ræðir við fleiri hugsanlega fjárfesta. Til greina getur komið að fjármálamað- urinn Carl Icahn verði bjargvættur Miami-flugfélagsins með heims- fræga nafninu. Glaxo og SB funda með hluthöfum London. Reuters.^ TAUGASTRÍÐ helztu lyfjafyrir- tækja Bretlands, Glaxo Wellcome Plc og SmithKline Beecham Plc, hefur harðnað vegna þess að fyrir- tækin hafa lagt mál sín fyrir hlut- hafa sína. Samkvæmt heimildum í Glaxo mun stuðningur fjárfesta hafa úr- slitaáhrif á það hvaða leið fyrirtæk- ið fer í ljósi þess að viðræður Glaxo og hins ensk-bandaríska keppinaut- ar þess fóm út um þúfur í síðustu viku. BMW ógnar Audi á bílasýn- ingu Genf. Reuter. ÞEGAR Bayerische Motoren Werke AG (BMW) afhjúpar nýja 3- röð sína á bflasýningunni í Genf í þessari viku verður enginn keppi- nautur eins órólegur og Audi AG. Sérfræðingar telja nýja 3-bflinn vel í stakk búinn til að svipta BMW forystunni í þessum flokki og draga enn meir úr sölu Audi. Ui3 bjóðum þér að fara med uidskipti þin annad Það reynist oft vel í viðskiptum að skoða hlutina frá nýju sjónar- horni. Þess vegna viljum við benda þér á Funda- og framkvæmdadaga (slandsflugs víðs vegar um landið. Þessl þjónusta okkar býður /. fyrirtækjum og einstaklingum I flug ffam og til baka, bílaJeigubíl, 1 fundaraöstöðu, málsverði og gistingu á einu hagstæðu verði* — í einum pakka. Hugsaðu lengra þegar þú skipuleggur næstafund. Það eru góð viðskipti. Upplýsingar og bókanir í síma 570 8090. ISLANDSFLUG Sf&rir fl&irum fmrt að fíjú&a Funda- og tramkvæmdadagar fslandsflugs eru I hverrl viku tll 30. april nk. og gilda frá priöjudegl tll flmmtudags. Athugiö, allt verö eru per. mann og miðast viö að fjórir séu (hóp, aö lágmarki. Reykjavík - Akureyri Rug framogtil baka, bilaleigubíll (einn dag, fundaraöstaöa f elnn dag á Fosshótel KEA og hádegismatur. Samlals:W.330,- (Aukalega: kr. 4.900,- gfeöng I dna nótt. morgunverðor og jxiróttaöur kvóWrtföur.) Reykjavik - Isafjörður Rug fram og til baka, bílaleigubfll í einn sóiarhrfng. fundaraðstaöa f einn dag ásamt gistingu á Hótel Isafirði meö morgun-, hádegis- og kvöldveröi. Samtals: 15230,- Reykjavik - Egilsstaðir Rug fram og til baka, bílaleigubfll f elnn sófaíhring, fundaraðstaða f einn dag ásamt glstingu á Hótei Héraði meö morgun-, hádegis- og kvöktveröi. Samtals: 15.530,- Reykjavik - Vestmannaeyjar Rug fram og til baka, bðaleigubíll f einn sólarhring, fundaraöstaöa I einn dag ásamt gistingu á Hótel Bræðraborg með magun-, hádegis- og kvöldveröi. Samtals: 13.930,- Akureyri - Reykjavík Rug fram og til baka, bílaleigubfll í einn dag, fundaraðstaða í einn dag á Fosshótei Lind og hádegismatur. Samtals: 10.330,- (Aukalega: kr. 4.900,- fllsting I eina nótt, morgunverðcr og þrtréttaöur kvöidveröur.) (safjörður - Reykjavík Rug fram og til baka, bflaieigubill i eirm sóiarhring, fundaraðstaða f einn dag ásamt gistingu á Fosshótef Lind með morgun-, hádegis- og kvötíverði. Samtals:15230,- Egilsstaðir - Reykjavik Rug fram og tll baka, bílaleigubíll f einn sóiartiring, fundaraðstaða í einn dag ásamt gistingu á Fosshótel Lind með morgun-, hádegis- og kvötóverði. Samtals: 15.530,- Vestmannaeyjar - Reykjavík Rug fram og bl baka, bflaieigubill I sólarhring, fundaraðstaða f einn dag ásamt gisttígu á Fosshótef Und með morgun-, hádegis- og kvöfdverði. Samía/s: 13.930,- * Mta tfflroð gMir ti 30. aprfl 19UL Við bjóðum tarþegum frá Vesturbyggft, Sauftárkröki, Siglufirfti og Gjftgri Funda- og framkvœmdadaga í Reykjavík. Nánari upptýsingar i síma 570 8090.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.