Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJl/DÁGIJR 3. MÁIÍZ 1998
Fallega
TðlMTilST
Langholtskirkja
KÓRSÖNGUR
GRADUALEKÓRINN
undir stjórn Jóns Stefánssonar flutti
íslenska ojj erlenda söngtónlist. Ein-
söngvari: Arný Ingvarsdóttir og und-
irleikari Lára Bryndís Eggertsdóttir.
Sunnudagurinn 1. mars. 1998.
Á SAMA hátt og ýmsir frábærir
einleikarar kölluðu tónskáld til
átaka við gerð nýrra tónverka, fyrr
200 ára af-
mælis Sig-
urðar Breið-
fjörð minnst
RITHÖFUNDASAMBAND
Islands ætlar að minnast þess
að 200 ár eru liðin frá fæðingu
Sigurðar Breiðfjörð, í dag 4.
mars, en hann var fæddur árið
1798. Dagskráin verður með
tvennum hætti: KI. 12 verður
stutt minningarstund við
bautastein hans í kirkjugarðin-
um við Suðurgötu. Síðan verð-
ur kvöldvaka kl. 20.30 í Gunn-
arshúsi, Dyngjuvegi 8. Þar
flytur Hjörtur Pálsson erindi
um Sigurð, skáldskap hans og
stöðu í bókmenntum; Þórarinn
Eldjárn hyllir afmælisbamið;
Ragnheiður Tryggvadóttir les
úr kvæðum Sigurðar og
kvæðamenn úr kvæðamanna-
félaginu Iðunni kveða vísur.
mótaður
á árum, hefur gróskan í kórsöng á
Islandi ýtt mjög við tónskáldum en
einmitt gerð söngtónlistar stóð í
stað um árabil, meðan spengingin í
hljóðfæratækni var hvað öflugust.
Nú eru kórar og einsöngvarar
kröfuharðastir, enda er nú starf-
andi drjúgur hópur vel kunnandi
söngvara, sem hafa náð slíkum ár-
angri, að til þess er tekið víða um
heim. Kórar eru nú mun kröfu-
harðari um kunnáttu í tónfræðum
og söngtækni og jafnvel frumþjálf-
unarstofnanir, eins og Gradu-
alekórinn, eru skipaðar töluvert vel
kunnandi börnum.
Efnisskrá Gradualekórsins var
tvískipt og var fyrri hlutinn saman-
settur af íslenskri tónlist og mátti
þar heyra lög eins og Úr útsæ rísa
Islands fjöll, eftir Pál ísólfsson, Þú
álfu vorrar yngsta land, eftir Sigfús
Einarsson, Eg bið að heilsa, eftir
Inga T. Lárusson, sem allir voru
sannkallaðir frumkvöðlar í tónsmíði
hér á landi. Þessi vinsælu lög voru
sérlega vel sungin og sama má
segja um tvær þjóðlagaraddsetn-
ingar á lögunum Krummi krunkar
úti og Móðir mfn í kví, kví, þó
Krummavísan væri ef til vill of
hröð. Maístjarnan og Máríuvers
Páls ísólfssonar voru bæði vel flutt
og íslenska þættinum lauk með
nýrri verkum eftir Oliver Kentish
og Jón Nordal.
Ave Maria, eftir Oliver Kentish,
er samin við hina hefðbundnu Mar-
íubæn, og sérstaklega tileinkuð
Gradualekómum. Ritháttur verks-
ins er tónall en sums staðar er tón-
ferlið dálítið bratt, sérstaklega þó á
milli tónhendinga. Vera má að kór-
inn þurfi lengri aðlögunartíma og
syngja verkið oftar en í heild er
þessi innilega bæn fallega tónsett af
Oliver Kentish. Salutatio Marie eft-
LISTIR
söngur
ir Jón Nordal hefur þegar unnið sér
sess sem klassik og var þetta krefj-
andi verk mjög vel flutt af Gradu-
alekómum.
I erlenda hlutanum vora vinsæl
lög eins og Ef þig langar að syngja,
Dagur er risinn, Lati sígauninn,
Vem kan segla förutan vind, Óska-
steinar og Suð býflugunnar, en
þetta píanóverk eftir Korsakov var
hér flutt í umritun söngstjórans. Öll
vora þessi lög voru vel flutt, þó vel
megi finna að of miklum hraða í
Lata sígaunanum, sem var svo
hraður, að varla var um neina tón-
myndun að ræða í söng bamanna.
Suð býflugunnar er sniðuglega út-
fært og var býsna vel skilað af kóm-
um.
Þrjú síðustu erlendu verkin vora
af alvarlegri gerðinni, Tantum ergo,
eftir Faure, tveir þættir úr „Bama-
messu“ eftir Rautavaara og
Hósanna eftir Nystedt. Tantum
ergo er falleg tónsmíð, sem vai-
mjög fallega flutt. Bamamessuna
þyrfti að flytja í heild en þessir tveir
fyrstu þættir messunnar eru tölu-
vert margslungin tónlist, sérstak-
lega Glorian, þar sem Árný Ingv-
arsdóttir var einsöngvari. Glorian
var of hröð í flutningi, svo að sam-
fléttun einsöngsraddarinnar og
kórsins var á köflum nokkuð ragl-
ingsleg, og hvorki kór né einsöngv-
ari nutu sín í þessu vandasama
verki. Hosanna eftir Nystedt var á
sama hátt of hratt sungin, sem get-
ur verið bagalegt fyrir tónmyndun-
ina. Hvað sem þessu líður, var söng-
ur kórsins mjög vel mótaður, bæði
raddlega og hvað varðar túlkun og
auk þess verður að geta þess, að
töluverður þokki var yfir samleik
Lára Bryndísar Eggertsdóttur á pí-
anóið.
Jón Ásgeirsson
MORGUNBLADIÐ
Morgunblaðið/Golli
GERRIT Schuil og Loftur Erlingsson koma fram á tónleikum
í Gerðubergi í kvöld.
Perlur á bandi
LOFTUR Erlingsson baríton-
söngvari heldur sína fyrstu Ijóða-
tónleika á söngferlinum í Gerðu-
bergi í kvöld kl. 20.30. Gerrit
Schuil leikur með á píanó en á efn-
isskrá eru sönglög eftir Robert
Schumann, Henri Duparc, Hugo
Wolf og Ralph Vaughan Williams.
„Það er ekkert sérstakt þema á
þessum tónleikum. Markmiðið var
bara að velja falleg og skemmtileg
lög - raða perlum á band,“ segir
Loftur og bætir við að lög þessara
tónskálda séu sjaldan sungin á tón-
leikum hér á landi, sé Schumann
undanskilinn.
Hafa ljóð Wolfs, Michaelangelo-
ljóðin þijú, sérstöðu, að því er
fram kemur í máli Lofts, þar sem
þau eru samin sérstaklega með
bassasöngvara eða bassbaríton-
söngvara í huga og því yfirleitt
ekki sungin af hærri röddum.
Hollenski píanóleikarinn, hljóm-
sveitar- og óperusljórinn Gerrit
Schuil hefur verið áberandi í ís-
lensku tónlistarlífi hin síðari miss-
eri. Loftur starfar nú með honum í
fyrsta sinn og ber honum vel sög-
una. „Gerrit er frábær listamaður
sem býr yfir mikilli reynslu. Það
hefur verið virkilega gaman að
vinna með honum og vonandi verð-
ur framhald á okkar samstarfi!“
Og Loftur vonar einnig að fram-
hald verði á tónleikahaldi hjá sér í
nánustu framtíð - alltaf sé gaman
að glíma við ljóðið.
Loftur lagði stund á ffamhalds-
nám í söng í Englandi en hefur
starfað hér heima frá því hann lauk
námi, árið 1996. Hefur hann tekið
þátt í flutningi á ýmsum óratoríum
og messum, auk þess að syngja
nokkur hlutverk við Islensku óper-
una. Má þar nefna Andann í
Galdra-Lofti Jóns Ásgeirssonar,
Guglielmo í Cosi fan tutte eftir
Mozart og Belcore í Ástardrykkn-
um eftir Donizetti, sem nú er á fjöl-
unum. Þá söng Loftur hlutverk
Kalmanns í Tunglskinseyjunni eftir
Atla Heimi Sveinsson, sem frum-
sýnd var f Peking á liðnu ári.
1