Morgunblaðið - 03.03.1998, Side 32
32 ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Reuters
Kreutzer
JOANNE Hewson, sérfræðingnr
við tónlistardeild Christie’s upp-
boðshaldarans í London, sýnir
Kreutzer-fiðlu sem Antonio Stra-
divari smíðaði á 18. öld. Kreutzer
á uppboð
verður boðin upp 1. apríl og er
búist við að hún seljist á allt að
850 þúsund sterlingspund, eða
ríflega 100 milljónir íslenskra
króna.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
FRÚ Catherine Eyjolfsson og Torfi H. Tulinius með heiðursorðu
frönsku akademíunnar. Á milli þeirra er sendiherra Frakklands á ís-
landi, Robert Cantoni.
Sæmd franskri heiðursorðu
CATHERINE Eyjolfsson
frönskukennara og Torfi H. Tul-
inius, dósent í frönsku við HI,
voru sæmd heiðursorðu frönsku
akademíunnar föstudaginn 27.
febrúar sl. Það var sendiherra
Frakklands, Robert Cantoni, sem
sæmdi þau orðunni og hlutu þau
hana fyrst og fremst fyrir
kennslustörf og að stuðla að
kynningu á franskri menningu
og tungu.
Hitablásarar
PÓR HF
Reykjavík - Akurayri
Reykjavík: Ármúla 11 - sími 568-1500
Akureyri: Lonsbakka - sími 461-1070
Morgunblaðið/Golli
INGIBJÖRGU Pálmadóttur var afhent fyrsta eintak bókarinnar í Lista-
safni Kópavogs, Gerðarsafni. Með henni á inyndinni eru Óskar Hansen
frá Kaupseli, Ástþóra Kristinsdóttir, formaður Ljósmæðrafélags Is-
lands, og Ulla Rode, hjúkrunarfræðingur hjá SCA Mölnlycke A/S.
Nýjar bækur
• MEÐGANGA, fæðing, ungbarnið,
dönsk bók í íslenskri þýðingu Boga
Arnars Finnbogasonar. Bókin er
uppflettirit með upplýsingum um
flest sem verðandi foreldrar þurfa að
vita um meðgönguna og fæðinguna.
I fréttatilkynningu frá Ljós-
mæðrafélagi Islands segir að bókin
hafi verið gefin út í 27 ár í Dan-
mörku og að dönsku útgefendurnir
hafi stöðugt endurbætt innihald bók-
arinnar og aðlagað upplýsingarnar
að breyttum tímum. Markmiðið er
að gera hið sama hér á landi og
verður bókin gefin út á hverju ári og
endurbætt eftir þörfum.
Umsjón með útgáfunn hafði Ást-
þóra Kristinsdóttir, formaður Ljós-
mæðrafélags Islands. Bókin er gefin
út í 5.000 eintökum hér á landi og
verður dreift af Ljósmæðrafélagi ís-
lands. Hægt er að nálgast bókina á
heilsuverndarstöðvum um allt land
og öðrum stöðum sem annast al-
mennt ungbarnaeftirlit. Bókinni
verður einnig dreift til bókasafna.
Bókin er gefín út af danska fyrir-
tækinu SCA Mölnlyeke A/S í sam-
vinnu við Kaupsel hf. og Ljós-
mæðrafélag Islands. Bókin er 139
bls. að stærð og er prýdd tjölda lit-
mynda og skýringamynda. Verðandi
mæður fá bókina að gjöf við fyrstu
mæðraskoðun.
Píanó- og sellóleikur
á Háskólatónleikum
HÁSKÓLATÓNLEIKAR verða í
Norræna húsinu miðvikudaginn 4.
mars og hefjast kl. 12.30. Þá leika
þeir Gunnar
Kvaran sellóleik-
ari og Kristinn
Öm Kristinsson
píanóleikari
Sónötu fyrir
selló og píanó í
F-dúr op. 99 eft-
ir Jóhannes Bra-
hms.
Gunnar Kvar-
an er fæddur í
Reykjavík og hóf
12 ára gamall
nám í sellóleik
við Tónlistar-
skólann í
Reykjavík hjá
Einari Vigfús-
syni. Hann
stundaði fram-
haldsnám í
Kaupmannahöfn
hjá Erling Blon-
dal-Bengtson við
Konunglega Tónlistarháskólann.
Þar vann hann tónlistarverðlaun
kennd við danska tónskáldið Gade
og einnig verðlaun legatssjóðs Tón-
listarháskólans. Gunnar Kvaran er
deildarstjóri strengjadeildar Tón-
listarskólans í Reykjavík og kennir
þar sellóleik og kammertónlist.
Kristinn Öm Rristinsson nam pí-
anóleik við Tónlistarskólann á
Akureyri m.a. hjá Philip Jenkins.
Hann stundaði framhaldsnám í pí-
anóleik í Bandaríkjunum bæði við
Southern Illinois University hjá
Ruth Slenczynska og St. Louis
Conservatory of Music hjá Joseph
Kalichstein. Eftir að hann kom
heim frá námi var hann fyrst yfir-
kennari við Tónlistarskólann á
Akureyri en frá 1990 hefur hann
gegnt starfi kennara og skólastjóra
við Tónlistarskóla íslenska Suzuki-
sambandsins og starfar einnig sem
meðleikari við Tónlistarskólann í
Reykjavík. Hann hlaut starfslaun
listamanna árið 1997.
Verð aðgöngumiða er 400 kr.
Ókeypis fyrir handhafa stúdenta-
skírteina. Dagskrá Háskólatónleika
má nálgast á vefnum. Slóðin er:
http://www.rhi.hi.is/~gunnag/ton-
list/tonleikar.html
Nýjar bækur
• FJÖLSKYLDAN og réttlætið er í
ritstjórn Jóns Á. Kalmanssonar,
Magnúsar D. Baldurssonar og Sig-
ríðar Þorgeirsdóttur. Bókin er safn
greina þai’ sem tekist er á við ýmsa
knýjandi siðferðilegar spurningar
um gerð fjölskyldunnar, stöðu og að-
búnað í samfélagi nútímans.
í fréttatilkynningu segir að greina-
höfundar, sem nálgast viðfangsefnið
ýmist irá heimspekilegu eða félags-
vísindalegu sjónarhomi, fjalli m.a. um
tilui’ð nútímafjölskyldunnar og rót-
tækai’ breytingar á hugmyndum
manna á síðari tímum um eðli hennai’.
Jafnframt segir að þeir fjalli einnig
um þá miklu togstreitu sem einkenn-
ir líf hennar nú á dögum - sem birtist
t.d. í spennu milli vinnu og heimilis-
lífs, karla og kvenna, kröfunnar um
helgi einkalífsins og réttinda barna,
og miUi hugsjóna réttlætis og kær-
leika - togstreitu sem má að ein-
hverju leyti rekja til þess að pólitísk
stefnumótun um aðbúnað fjölskyld-
unnar hefur ekki fylgt eftir þeim
miklu breytingum sem fjölskyldan
hefur tekið. Þannig varpi greinahöf-
undar ljósi á vanda fjölskyldunnar í
samfélagi okkar en jafnframt á mikil-
vægi hennar og möguleika.
Siðfræðistofnun og Háskólaútgáf-
an hafa gefíð út bókina. Bók-
in er218 bls. og kostar 2.490 kr. Há-
skólaútgáfan sér um dreifíngu.
Gunnar
Kvaran
Kristinn Örn
Kristinsson
Nýjar bækur
• SÁL aldanna - íslcnsk bókasöfn í
fortíð ognútíð er í ritstjórn dr. Sig-
rúnai’ Klöru Hannesdóttur prófessor
og Guðrúnai’ Pálsdóttur bókasafns-
fræðings. Titill ritsins er sóttur í til-
vitnun eftir Thomas Carlyle: „í bók-
unum liggur sál aldanna" og minnir
á það mikilvægi sem bækur og bóka-
söfn hafa haft í íslenskri menningar-
sögu. Tilefni þess að ritið var tekið
saman er að nýlega var haldið upp á
40 ára afmæli kennslu í bókasafns-
og upplýsingafræði við Háskóla Is-
lands, og er fyrsta rit sinnar tegund-
ar, segir í fréttatilkynningu.
í bókinni er safn greina um ís-
lensk bókasöfn og skyld efni eftir
rúmlega 30 höfunda. Fjallað er um
flestar tegundir bókasafna, skjala-
söfn og handritasöfn, en auk þess
eru greinar um sögu íslenskrar
bókaútgáfu, um lestrarfélög, mennt-
un í bókasafnsfræði og ýmsa þjón-
ustuaðila sem starfa á þessu sviði.
Útgefandi er Háskólaútgáfan.
Bókin er 450 bls. og kostar 2.900 kr
Háskólaútgáfan sér um dreifíngu.
Skemmtilegt
LEIKLIST
Möguleikhúsið
T r i p i c c h i o, U n d e r 1 a n il
& co.
K.M.K.K. (KLÚÐUR MEÐ
KLEMMUR OG KLÆÐI)
Leiksfjóri: Anders Sundstedt. Leikar-
ar: Anita Tripicchio og Niels Pcter
Underland. Undirleikari: Solfrid Mol-
land. Leikmynd og búningar: Hege
Paalsrud. Möguleikhúsið, 28. febrúar
NORSKIR gestir voru á ferð í
Möguleikhúsinu við Hlemm sl. laug-
ardag og sýndu, við góðar undirtekt-
ir áhorfenda, gaman-einþáttung fyr-
ir börn og fullorðna. Þetta voru leik-
ararnir Anita Tripicchio og Niels
Peter Underland (sem hafa einu
sinni áður komið í leikferð tii ís-
lands) ásamt undirleikara sínum Sol-
frid Molland, sem lék á hljómborð.
Þau Tripicchio og Underland eru
hið skemmtilegasta par: hann langur
og mjór eins og þráður, hún stutt í
annan endann og ágætlega vaxin á
þverveginn. Þau minna þannig helst
á klassísk gamanleikarapör á borð
við þá félaga Gög og Gokke. Leikur
þeirra byggist einnig á svipuðu
formi; ýktum hreyfingum, klúðri og
kómík af ýmsu tagi. Söngur og
sprenghlægileg dansspor (Anítu,
sérstaklega) setja svo punktinn yfir
i-ið. Hljómborðsleikur Sólfríðar Mol-
land var nauðsynlegur bragðbætir
við söng og sprell leikaranna.
Sýningin sem þrenningin bauð
leikhúsgestum upp á síðastliðinn
laugardag bai’ nafnið Klúður með
klemmur og klæði og er verkið eftir
þau sjálf ásamt leikstjóranum Ander
Sundstedt. Það fjallar í stuttu máli
um skondið par, þau Tom og
Nikolettu sem eru launhrifin hvort
af öðru en eiga ósköp bágt með að
tjá það - enda mikið um klúður og
alls kyns vandræðagang í samskipt-
um þeirra. Þetta var ósköp notaleg
og skemmtileg sýning, leikararnir
tveir sköpuðu bráðsniðugar persón-
ur sem náðu að heilla alla sem á
horfðu.
par
Tripicchio, Underland og Molland
hyggjast heimsækja nokki’a leik-
skóla á höfuðborgarsvæðinu og
skemmta þar börnum og leikskóla-
kennurum, en íleiri sýningar verða
víst ekki fyrir almenning. Takk fyrir
komuna og skemmtunina.
Soffía Auður Birgisdóttir
--------------
Bútasaumur í
Handverki &
Hönnun
SÝNING á bútasaumi úr ýmsum
áttum eftir íslenskar konur verður
opnuð þriðjudaginn 3. mars í í galler-
íi Handverks & Hönnunar, Amt-
mannsstíg 1.
Sýningin er opin þriðjudaga til
fóstudaga kl. 11-17, laugardaga kl.
12-16 og sunnudaga kl. 14-17. Sýn-
ingunni lýkur 8. mars. Aðgangur er
ókeypis.