Morgunblaðið - 03.03.1998, Síða 33
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 33
LISTIR
Morgunblaðið/ Ásdís
FRA kynningarfundi um minnisvarða um Fjalla-Eyvind og Höllu: Guðni
Ágústsson, Hjálmar Jónsson, Magnús Tómasson og Hjöi-tur Þórarinsson.
Fangar frelsisins
á Hveravöllum
Múkkinn hefur
mannsaugu
Fjalla-Eyvindarfélagið hefur látið
gera minnisvarða um Fjalla-Ey-
vind og Höllu og verður hann af-
hjúpaður á Hveravöllum í ágúst í
sumar. Minnisvarðinn er eftir
Magnús Tómasson myndhöggvara
og ber heitið Fangar frelsisins.
Ögmundur Jónsson bóndi í Vorsa-
bæ í Ölfusi átti hugmyndina.
Guðni Ágústsson alþingismað-
ur, formaður Fjalla-Eyvindarfé-
iagsins, sagði þegar Morgunblað-
ið leitaði til hans að saga þeirra
Eyvindar og Höllu væri róman-
tísk ástarsaga olnbogabarna þjóð-
félagsins og ævintýri líkust. Tími
væri kominn til að reisa konungi
öræfanna minnisvarða. Eyvindur
hefði verið langt á undan sinni
samtíð. Það hefði komið til tals á
sínum tíma að hann yrði gerður
að leiðsögumanni og mætti hugsa
sér að þá hefði betur farið fyrir
Reynistaðabræðrum og öðrum á
öræfum landsins. „Eyvindur Iifir í
sögum og sögnum og skáldskap“,
sagði Guðni Agústsson, „en í bók-
um sýslumanna og Alþingistíðind-
um eru skjalfestar heimildir um
glímuna við þau Eyvind og Höllu,
en margt vissulega hulið sögu- og
ævintýraljóma."
Auk minnisvarðans hefur félag-
ið efnt til ritgerðarsamkeppni
meðal grunnskólanemenda í Ár-
nessýslu og Húnavatnssýslu, fyr-
irhuguð er ráðstefna á Flúðum og
meðal hugmynda er að í framtíð-
inni rísi hálendismiðstöð helguð
þeim Eyvindi og Höllu.
LEIKLIST
Logaland
UMF REYKDÆLA
eftir Jökul Jakobsson. Leikstjóri: Val-
geir Skagfiörð. Leiktjöld: Hópurinn.
Búningar: Elísabet og Sigríður Harð-
ardætur. Leikendur: Ásgeir Ásgeirs-
son, Steinunn Garðarsdóttir, Ilrund
Olafsdóttir, Ásdís Ármannsdóttir,
Þorvaldur Jónsson, Jón Eyjólfsson,
Þór Þorsteinsson. Frumsýning: Fé-
lagsheimilinu Logalandi, Reykholts-
dal, 27. febrúar.
ÞAÐ VAR hlýtt inni í Logalandi í
kuldakastinu á föstudagskvöldið.
Að vísu kunna að vera áhöld um
hversu lengi þetta lúna hús getur
bægt norðangúlpinum frá sér, en
þarna um kvöldið var vetrargaiTan-
um úthýst úr hugum áhorfenda á
meðan Leikfélag Reykdæla yljaði
þeim um hjartaræturnar með því
að setja mannleg örlög í brennidep-
il um stund.
Leikrit Jökuls Jakobssonar njóta
talsverðrar (og verðskuldaðrar)
hylli meðal landsmanna þessi miss-
erin. Þau eru sett upp jafnt af at-
vinnu- sem áhugaleikhúsum og fara
um sjónvarp inn í hvers manns
rann.
Sjóleiðin til Bagdad er leikrit
sem fjallar um vonir sem bresta (og
mun því seint verða gert að banda-
rískri kvikmynd). Þetta er krefj-
andi verk og á köflum grimmt, en
þótt undiraldan sé þung glittir víða
í húmór höfundar, einkum í per-
sónusköpun, og angurværðin er
sjaldnast langt undan, minningin
um betri tíma og það sem hefði get-
að orðið.
Leikhópurinn, vel samæfður
undir stjórn Valgeirs Skagfjörð,
sníður sér stakk eftir vexti með því
að leggja sérstaka rækt við þessa
þætti verksins og gerir það með
ágætum. Þarna nýtur sín t.d. Stein-
unn Garðarsdóttir prýðilega sem
eiginkonan, mamman og amman
Þuriður. Steinunn hefur örugga
sviðsframkomu, skýra framsögn og
er auðheyrilega hagvön í húmorn-
um. Hrund Ólafsdóttir fer með
snöggtum erfiðasta hlutverkið,
Signýju, gerir það sómasamlega og
á örugglega eftir að lifa sig betur
inn í harm þessarar ógæfusömu
konu þegar á líður. Asdís Armanns-
dóttir er örugg og þokkafull í
Lólítuhlutverki Hildar, þeirrar
eggjandi ungmeyjar, og Ásgeir As-
geirsson fyndinn sem Mundi, faðir
hennar. Þá fer Þorvaldur Jónsson
vel með hlutverk Eiríks, drykk-
fellda draumóramannsins sem fer
hvergi vegna þess að enginn getur
farið frá sjálfum sér. Þór Þorsteins-
son er bæði sakleysislegur og gæf-
ur sem saklausi sjóarinn, sem siglt
hefur um heimsins höf.
I heild er þessi sýning vel unnin,
af metnaði og talsverðri kunnáttu.
Reykdælingar kunna augsýnilega
að ylja áhorfendum um hjartaræt-
urnar, jafnvel þótt það setji að þeim
hroll andspænis öriögunum.
Guðbrandur Gíslason
Fyrirlestur
um hernað
norrænna
manna
PRÓFESSOR Jean Renaud, frá
háskólanum í Caen í Normandí í
Frakklandi, heldur fyrirlestur í
húsakynnum Alliance frangaise,
Austurstræti 3, miðvikudaginn 4.
mars kl. 20.30.
Fyrirlesturinn nefnist „La france
face aux Vikings", Frakkland and-
spænis víkingunum, og fjallar um
hernað norrænna manna í Frakk-
landi á níundu öld og viðbrögð þar-
lendra við þeirri ógn.
Víkingar frá Norðurlöndum herj-
uðu víða um Vesturlönd á þéssum
tíma og stofnuðu meira eða minna
langæ ríki á Bretlandseyjum. Þeir
komu einnig til Frakklands, sigldu
m.a. upp Signu og ógnuðu Parísar-
borg og veldi Karlunga, sem var þá
konungsættin í Frakklandi. Þessu
ástandi lauk með friðarsáttmála
sem geður var 911, en með honum
eftirlét konungur Göngu-Hrólfi
víkingahöfðingja stórt hérað norð-
an og vestan við París. Það hét þá
Neustría en fékk nú nafnið Norm-
andí vegna þess að þar bjuggu nú
norrænir menn.
Prófessor Jean Renaud er yfir-
maður norrænu deildarinnar í Caen
í Normandí, doktor í íslenskum
miðaldabókmenntum, og hefur m.a.
rannsakað non-ænt landnám í
Normandí og skrifað um það bæk-
ur og fjölda greina. Fyrirlesturinn
verðm- fluttur á frönsku en þýddur
jafnóðum á íslensku.
Ferð á milli
lífssýna
KVIKMYIVDIR
S a m b í ó i n
SEVEN YEARS IN TIBET ★★★
Leikstjóri: Jean-Jacques Annaud.
Handrit: Becky Johnston eftir bók
Heinrich Harrers. Aðalhlutverk:
Brad Pitt, David Thewlis, Jumyang
Jamtsho Wangchuk og Lhakpa
Tsamchoe. Mandalay. 1997.
HEINRICH Harrer var hroka-
fullur og sjálfselskur maður sem
flúði til fjalla þegar einkalífið hent-
aði honum ekki. Þar fann hann það
sem hann sóttist eftir; einfaldleik-
ann í djúpri og máttugri nærveru
lífsins. Aðeins í nærveru Dalai
Lama fann hann aftur þessa sömu
tilfinningu.
Sjö ár í Tíbet fjallar um sann-
sögulegt ferðalag Harrers milli
heimsálfa, milli menninga, milli
lífssýna. Árið 1939 skildi hann
barnshafandi konu sína eftir í
Austurríki og stefndi á Himalaya-
fjöllin. Hann komst ekki á leiðar-
enda því heimstyrjöldin seinni
braust út og hann og félagarnir
voru sendir í fangabúðir. Eftir vel-
heppnaða flóttatilraun endar hann
í Tíbet ásamt leiðangursstjóran-
um. Þeir setjast að í hinni heilögu
borg Lhasa þar sem Dalai Lama
býr, og verður Heinrich brátt sér-
legur vinur hins andlega meistara
sem er einungis 14 ára gamall.
Hér er á ferðinni mikil örlaga-
saga sem er komið til skila á sér-
lega smekklegan hátt og tekst að
virka hvetjandi fyrir andann.
Handritið er ansi gott; sögu Har-
rers eru gerð góðs skil, persónu-
leiki hans og hugarástand verða
mjög skýr, það hefur sögulegt og
mannfræðilegt gildi auk þess sem
spenna, húmor og ástin eiga sinn
sess í því. Það er kannski helst að
hefði mátt kafa dýpra í andlegu
hliðina fyrst sagan gefur einstakt
tækifæri tfi þess, því myndin á það
til að virka örlítið yfirborðskennd.
Leikstjóranum Annaud hefur
haft einfaldleikann að leiðarljósi
við gerð myndarinnar. Allir þættii-
kvikmyndarinnar vinna saman að
því að koma þessu andlega ferða-
lagi til skila á sem raunsæjastan
hátt. Kvikmyndatakan er einstak-
lega falleg; einföld, stöðug og nýtir
töfra náttúrunnar til fullnustu.
Tónlistin er hógvær kvikmynda-
tónlist sem aðallega tjáir andlega
líðan aðalsöguhetjunnar. Það sama
má segja um leikinn, hann er yfir-
leitt góður en alltaf látlaus.
Mest reynir á Brad Pitt sem
leikur Heinrich Harrer. Sæti
strákurinn frá Missouri hefur
sannað að hann hefur meira en út-
litið með sér, og bætir nú enn einu
hlutverkinu í safn sitt, en hann
hefur valið sér skemmtilega ólík
og oft krefjandi hlutverk. Túlkun
hans á hrokagikknum Harrer er
ansi sannfærandi í heildina. Það er
þó stundum eins og hann falli í þá
gryfja að detta úr hlutverki og
vera hann sjálfur. Stöðugri í leik
sínum er David Thewlis sem leikur
leiðangursstjórann. Hann skilar
sínu hlutverki með snilld sem
skarpskyggn og jarðbundinn ná-
ungi. Fjöldinn allur af óreyndum
leikuram fer með hlutverk í mynd-
inni og standa sig allir ágætlega.
Það er helst að nefna Jamyang
Jamtsho Wangchuk sem leikur
Dalai Lama 14 ára. Hann er mjög
skemmtilegur og er samleikur
þeirra Pitt bæði sannfærandi og
heillandi.
í heildina er þetta falleg og vel
gerð mynd sem hefði mátt kafa
dýpra, en nær því samt að vera
góð skemmtun og vekja mann til
umhugsunar.
Fullkominn svefn, góð hvíld
Fullkominn svefn sem veitdr góða hvíld, er eitt af lífsins gæðum. Málið er samt ekki svona
einfalt. Hvenær vaknaðir þú til dæmis fúllkomlega endumærður eftir nætursvefninn?
Hafirðu vaknað þreyttur og aumur í morgun er hugsanlegt að þig vanti betri rúmdýnu
til að styðja við hrygglengjuna þannig að þú haldist í eðlilegri steDingu þegar þú sefur.
Hörð rúmdýna, sveigja á hryggnum !
Lin rúmdýna, sveigja á hryggnum!
Sofið á DUX-dýnu með beina hryggsúlu!
Þetta er auðskilið.
Þegar likaminn slakar á og endumærist verður
maður betur fyrir kallaður að morgni. Rannsóknir
sýna að til þess að sofa vel og njóta stuðnings við
við bakið verður rúmdýnan að gefa eftir við axlir og
mjaðmir. Dýnan þarf líka að stiðja vel við
mjóhrygginn.
Tilaðuppfyllaalltþettahérofanskráð, þarffrábæra
rúmdýnu. DUX rúrnið!
Fullkomin lausn!
Frá því árið 1926 hefur DUX rannsakað leiðir til
að sameina hin mestu þægindi og heilbrigðan svefn.
DUX rúmið, sem er hm fullkomna lausn, fæst
aðeins í DUXIANA Armúla 10.
Hvers vegna ekki að prófa DUX- rúmið?
Aumir hryggjaliðir og þreyttir bakvöðvar hafa grátbænt um það!
Hringdu í síma 568 9950
■ og pantaðu myndabæklinga »
lS*«8SlliHlil9IS8lill
Ármúla 10 108 Reykjavík Sími 568 9950
Hildur Loftsdóttir