Morgunblaðið - 03.03.1998, Page 37
r
MORGUNB LAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 37
og auk þess vafasamt að nokkui't for-
lag treysti sér til að bjóða Major betri
samning, en hann mun hafa fengið um
20 milljónir króna í fyrirframgreiðslu
fyrir bókina.
Öll spjót hafa undanfarna daga stað-
ið á yfirmanni Stuarts Proffitts, Eddie
Bell, stjórnarformanni HarperCollins í
London. Ólíklegt er þó annað en að
Bell standi af sér þennan byl. Hann er
hörkutól frá Glasgow og vann sig upp
innan fyrirtækisins í markaðsdeild-
inni, en ekki ritstjórnardeildinni. Það
er hefð fyrir því í bókaútgáfu að þeir
sem vinna við ritstjórn bóka hafa hæfi-
lega skömm á samstarfsmönnum sín-
um í markaðsdeildinni, en Eddie Bell
lætur slíkt ekkert á sig fá og gerir rit-
stjórnarliðinu oft lífið leitt með því að
bregða fyrir sig glasgowsku eins og
hún gerist óskiljanlegust.
Sumir telja raunar að með
fjaðrafokinu útaf bók Pattens sé verið
að gera úlfalda úr mýflugu. Gamall
góðkunningi íslendinga úr þorska-
stríðunum, Austin Mitchell, þingmað-
ur Verkamannaflokksins fyrir Grims-
by, sem m.a. hefur stjórnað skemmti-
legum umræðuþætti á Sky News sjón-
varpsstöðinni ásamt Norman Tebbitt,
hefur t.d. sagt að öllum ætti að hafa
verið fullljóst að Rupert Murdoch væri
viðkvæmur fyrir sjónai'miðum kín-
verskra yfii-valda og einnig hafi allir
vitað að Murdoch setti ávallt við-
skiptahagsmuni sína öðrum hagsmun-
um ofar. Ef Chris Patten sætti sig
ekki við það, geti hann sem hægast
fundið sér annan útgefanda.
amtíðarmöguleika sjónvarpsmarkaðarins í Suðaustur-Asíu og stefnir að því
na yfir gervihnattasendingum sjónvarps í þeim heimshluta.
akklandi, þar sem hann er búsettur
eð óþreyju eftir endurkomu hans í
num þar forystuhlutverk.
jölmiðlakóngsius Ruperts Murdochs
>ykir harður stjórnandi.
stjóra Breta í Hong Kong. Þar reyndi
Patten að koma á lýðræðisumbótum
áður en til fyrirhugaðrar yfirtöku Kín-
verja á Hong Kong kæmi, en mætti
harðri andstöðu frá Bejing. Kínverskir
ráðamenn réðust mjög harkalega
gegn fyrirætlunum Pattens og jusu yf-
ir hann persónulegum svívirðingum.
T.d. töluðu kínverskir embættismenn
um Patten ýmist sem „slefandi fábján-
ann“ eða „svikulu hóruna"!
Ýmsum þykir sem Murdoeh sýni
með ákvörðun sinni óþarfa viðkvæmni,
því enn er t.d. á markaðnum bók um
ríkisstjóratíð Chris Pattens í Hong
Kong (The Last Góvernor) eftir
breska fréttamanninn Jonathan
Dimbleby, þai- sem ekki er farið dult
með mannréttindabrot stjórnarinnar í
Bejing, og sú bók er nú í þriðja sæti á
metsölulistanum í Kína. En Murdoch
hefur að líkindum viljað sýna ráða-
mönnum í Bejing hvað hann er reiðu-
búinn að taka á sig til að þóknast þeim
og mun áreiðanlega ætlast til að fá
eitthvað í staðinn.
Chris Patten hefur nú höfðað mál
gegn HarperCollins fyrir samnings-
rof. Hann segir að handrit sitt hafi í
einu og öllu fylgt þeim efnislínum sem
samningur hans við HarperCollins
hafi byggst á. Hann bendir auk þess á
að í slíkum tilvikum sé gangurinn jafn-
an sá að gera tillögur um úrbætur á
handritinu og gefa höfundinum þannig
tækifæri til að bæta það. Áætlað var
að gefa bók Pattens (East and West)
út í september nk. í sama mund og
BBC sjónvarpið hyggst sjónvarpa
heimildamynd í 4 hlutum sem byggð
er á frásögn Pattens.
Uppistandið nú hefur reynst hin
besta auglýsing fyrir Patten, en hann
hefur þegar gert samning með sömu
skilmálum (um 15 milljónh' ki'. fyrir-
fram) við Macmillan forlagið - og er
þess nú beðið með eftirvæntingu
hvaða ummæli hans það voru sem fóru
svo mjög fyrir brjóstið á Rupert Mur-
doch. Ekki er þó víst að þar hafi verið
um að ræða einhver sérstök ummæli,
heldur hafi Murdoch einfaldlega litið
svo á að Kínverjum mislíkaði að fyrir-
tæki í hans eigu skyldi gefa út þessa
bók og hann þannig ætla sér að hagn-
ast á óhróðri um Kínastjóm.
HarperCollins
Þetta fjaðrafok þykir hafa skaðað
mjög orðspor HarperCollins. Sumir
höfundai' forlagsins hafa brugðist reið-
ir við fregninni af riftun samningsins
um bók Pattens, m.a. fræðimaðurinn
Peter Hennessey sem ski'ifað hefur
fræga bók um bresku stjórnsýsluna
(Whitehall). Ekki er samt líklegt að
það bresti almennur flótti á höfundalið
HarperCollins, nema önnur forlög taki
að keppa um að yfirbjóða höfunda
þess, þótt trúlegt sé að þeh' höfundar
sem Stuart Proffitt hefur unnið mest
með muni vilja fylgja honum til annars
forlags. Einn höfundur, blaðamaður-
inn og ævisöguhöfundurinn Simon
Heffer, sem vinnur nú að ævisögu
Enochs Powells, hefur þegar lýst því
yfii' að hann muni endurgreiða
HarperCollins með vöxtum
um 15 milljón kr. fyrirfram-
greiðslu vegna hneykslunai’
á framkomunni gagnvart
Chris Patten. Þess ber þó
að geta að Heffer hefur
unnið mikið fyrir Telegraph-sam-
steypuna, sem er í eigu Conrads
Blacks, og hefur háð hefur hai'ða sam-
keppni við Murdoch-pressuna í Bret-
landi á undanfórnum ái'um.
Augu manna hafa beinst að endur-
minningum Johns Majors, fyrrverandi
forsætisráðherra, sem nú er unnið að
á vegum HarperCollins, en Major er
góðvinur Pattens. Samningur Majors
og HarperCollins þykir þó skotheldur
Áhyggjur af veldi Murdochs
Afskipti Murdochs af málinu hafa þó
reynst vatn á myllu fjölmargra and-
stæðinga hans í Bretlandi sem ógnar
veldi hans á breskum fjölmiðlamark-
aði. Murdoch hefur t.d. um alllangt
skeið selt Lundúnablaðið Times á tíkall
á mánudögum og um skeið einnig hina
daga vikunnar. Þetta hefur hann getað
gert í krafti hagnaðar af annarri starf-
semi veldis síns og hafa önnur blöð
orðið að bregðast við þessari sam-
keppni með stórfelldum niðurskurði.
Möi'gum ógnar jafnframt að svo
voldugur maður skuli telja sig nauð-
beygðan til að sýna harðstjóminni í
Bejing slíkan undirlægjuhátt. Einkum
hafa menn áhyggjur af því ef Murdoch
getur með sama hætti stjómað frétta-
flutningi á þeim fjölmiðlum sem eru í
eigu hans, t.d. á Sky-sjónvarpsstöðinni
eða í blöðum sínum. Það er vitað að
Murdoch ræður þeim fréttaáherslum
sem hann vill ráða á blaðinu Sun í
Bretlandi, en hann á erfiðara með að
þvinga t.d. ritstjóra Times og Sunday
Times í London til hlýðni, því að heiður
blaðanna til margra áratuga er í veði.
Blaðamaðurinn kunni, Max
Hastings, fyrrverandi ritstjóri Daily
Telegraph, sem nú er ritstjóri Lund-
únablaðsins Evening Standard, réðst
ótæpilega á Murdoch í ritstjómar-
gi'ein í síðustu viku. Hann kallar hann
miskunnarlausan og harðbrjósta lýð-
skrumara og talar um skammarlegar
tilraunir hans til að eyða samkeppni á
breskum blaðamai'kaði.
En Hastings álítur enn ískyggilegra
hvernig Murdoch hefur hreiðrað um
sig í því alþjóðlega viðskiptaumhverfi
sem nú ríkir. Með margvíslegum
klækjabrögðum - sem öll munu innan
ramma laganna - hefur Murdoch tek-
ist að koma fyrirtækjum sínum hjá þvl
að borga skatta þar sem þau eru nið-
urkomin, með því að færa hagnað milli
landa. Hastings segir að stjórnvöld í
þeim löndum þar sem Murdoch rekur
starfsemi hafi reynst ófær um að hafa
nokkra stjórn á umsvifum hans og
sum, þ.á m. ríkisstjórn Tony Blairs í
Bretlandi, sýnist óttast mjög vald
hans og kappkosta að styggja hann
ekki og telji það augsýnilega hina
mestu upphefð að fá að sækja hirð
hans þegai' honum þóknist að sýna sig
í löndum þeirra. Hastings telur
HarperCollins málið mjög alvarlegt,
því ef rétt sé hermt hafi
Murdoch reynt að koma í
veg fyrir að fjandsamleg
ummæli um útlenda harð-
stjórn, sem hann eigi í við-
skiptasambandi við, birtist
á prenti í Bi'etlandi. Útlend harðstjórn
hafi því fyrir tilstilli Murdochs bein
áhi'if á málfrelsi í lýðfrjálsu ríki.
Hastings segir að hér séu svo miklir
almanna hagsmunir að veði að breskir
þingmenn eigi að gefa HarperCollins
málinu sérstakan gaum, en í þinginu
er nú m.a. til umræðu frumvarp að
nýjum samkeppnislögum sem gæti
reynst veldi Murdochs í Bretlandi
skeinuhætt.
Aðför
að mál-
frelsinu?
Krefst 25,5 millj.
kr. í bætur vegna
tjóns af völdum
fjárdráttar
Nathan & Olsen hf. hefur stefnt endurskoð-
unarfélaginu Coopers & Lybrand - Hag-
vangi hf. og Gunnari Sigurðssyni, löggiltum
endurskoðanda, til greiðslu á skaðabótum að
fjárhæð rúmar 25,5 milljónir króna vegna
tjóns sem fyrirtækið varð fyrir vegna fjár-
dráttar fyrrum gjaldkera þess.
STEFNA Nathans & Olsens,
sem lögð verður fram í Hér-
aðsdómi Reykjavíkur síðar í
þessum mánuði, byggist á
því að bæði fagleg endurskoðunar-
vinna Gunnars og annarra starfs-
manna endurskoðunarfélags hans
og önnur þjónusta sem þeir hafi
látið Nathan & Olsen í té hafi ekki
uppfyllt lágmarkskröfur sem gera
verði til slíkrar vinnu. Þá liggi fyrir
að stefndu hafi beinlínis blekkt
stjórn og hluthafa fyrirtæksins
með bréfum til stjórnarinnar um
innra eftirlit þess og athugasemda-
lausum áritunum og með því þver-
brotið ákvæði laga um endurskoð-
endur.
Gestur Jónsson hæstaréttarlög-
maður, lögmaður Coopers & Ly-
brand - Hagvangs hf. og Gunnars
Sigurðssonar, sagði í samtali við
Morgunblaðið að stefna hefði verið
móttekin í málinu, en hann og
stefndu teldu að ástæða tjóns Nat-
hans & Olsens hf. stafaði af allt öðru
en því sem rakið verði til endur-
skoðandans og því hafi allri bóta-
skyldu verið hafnað. Að öðru leyti
sagðist hann ekki vilja tjá sig um
málið á þessu stigi.
Stórkostlegt
gáleysi
Nathan & Olsen byggir jafnframt
kröfu sína á því að Gunnar hafi per-
sónulega og sem starfsmaður
Coopers og Lybrand - Hagvangs
hf., og sem kosinn endurskoðandi
Nathans & Olsens hf., valdið félag-
inu tjóni af stórkostlegu gáleysi.
Beint orsakasamband sé á milli
vanrækslu Coopers og Lybrand -
Hagvangs hf. og Gunnars og hins
fjárhagslega tjóns Nathans & 01-
sens hf.
Ef störf og þjónusta stefndu hefði
verið unnin á fullnægjandi hátt og í
samræmi við grundvallaratriði end-
urskoðunar samkvæmt ákvæðum
laga, reglugerða og samkvæmt leið-
beiningum í Handbók Félags lög-
giltra endurskoðenda hefði fjár-
drátturinn komist upp strax haustið
1992 eða í síðasta lagi við endur-
skoðun reikninga þess árs á fyrri-
hluta ársins 1993. Þá hefði verið
unnt að koma í veg fyrir allt það
tjón sem síðar varð, auk þess sem
fyrir liggi að greiðslugeta gjaldker-
ans hafi verið slík að hann hafi getað
endurgreitt það fé sem hann hafði
þá dregið sér.
Dró sér fé
í flmm ár
Gjaldkerinn viðurkenndi verknað-
inn og játaði að hafa dregið sér fé úr
sjóðum félagsins á tímabilinu apríl
1992 til júlí/ágúst 1996 án þátttöku
eða vitundar annarra starfsmanna
félagsins. Leiddi ítarleg rannsókn á
bókhaldi Nathans & Olsens hf., sem
meðal annars var framkvæmd af
þeim sem skaðabótakrafan beinist
að, í ljós að fjárdráttur gjaldkerans
á tímabilinu 1992 til 1996 nam sam-
tals 32.037.325 kr. Gjaldkerinn var
| ákærður fyrir fjárdráttinn og féll
dómur í málinu 13. mars 1997 og var
gjaldkerinn dæmdur í tveggja ára
fangelsi. Jafnframt var hann dæmd-
ur til að endurgreiða það fé sem
hann hafði dregið sér, en hann hafði
þá greitt um sjö milljónir króna inn
á kröfuna. Aðför reyndist árangurs-
laus og var því óskað gjaldþrota-
skipta á búi gjaldkerans. Engar
eignir fundust í búinu og þvi þykir ,
allt benda til þess að skuldin sé glöt-
uð.
Viðhöfðu ekki
nauðsynlegar aðgerðir
Gunnar Sigurðsson, löggiltur end-
urskoðandi hjá endurskoðunarfélag-
inu Endurskoðunarmiðstöðinni -
Coopers & Lybrand ehf., sem nú
heitir Coopers & Lybrand - Hag-
vangur hf., var áratugum saman
kjörinn endurskoðandi Nathans &
Olsens hf. í stefnunni kemur fram
að verkefni hans hafi auk þess verið
að láta fyrirtækinu í té ýmsa ráð-
gjafarþjónustu í tengslum við bók-
hald félagsins og bókhaldskerfi,
innra eftirlit, ársreikninga og við-
skipti, svo sem áætlanagerð, hag-
kvæmnisathuganir varðandi fyi-ir-
tækjakaup og fleira því tengt. Gunn-
ar hafði verið kjörinn endurskoð-
andi félagsins fyrir árið 1996, en
hann lauk ekki því verki. I stefnunni
segir að trúnaðarbrestur milli fé-
lagsins og endurskoðandans hafi
orðið algjör á síðari hluta ársins
1996 og annar löggiltur endurskoð-
andi verið kosinn endurskoðandi
Nathans & Olsens hf. um áramótin
1996/1997 og hafi hann séð um end-
urskoðun reikningsársins 1996.
Fram kemur að þegar fullreynt
hafi þótt að engar greiðslur væri að
fá frá gjaldkeranum umfram þær
sjö milljónir sem þegar hefðu verið
mótteknar hefði verið leitað eftir því
að semja við stefndu um bóta-
greiðslur. Því hafi verið tekið fjarri
en sæst á að leita óskuldbindandi
álits tveggja tilkvaddra sérfróðra
óvilhallra manna um það verkefni að
greina orsakir þess að umræddur
fjárdráttarferill komst ekki upp fyrr
en raun varð á. Til þessa starfa völd-
ust tveir löggiltir endurskoðendur *
sem skiluðu skýrslu um málið 9.
febrúar síðastliðinn.
í stefnunni segir að efnislegt inni-
hald niðurstöðukafla skýrslunnar sé
á þá lund að stefndu hafi treyst á að
starfsmenn Nathans & Olsens hf.
veittu hvor öðrum aðhald og eftirlit,
en stefndu hafi ekki unnið það verk
sjálfir enda þótt þeir væru til þess
kosnir/ráðnir, og þrátt fyrir að
stefndu hafi verið kunnugt um veikt
innra eftirlit fyrirtæksins hafi þeir
ekki viðhaft nauðsynlegar aðgerðir
til að bæta úr þeim veikleika eða '
mæta honum með aukinni gagna-
skoðun. Segir í stefnunni að það hafi
reyndar verið starfsmenn Nathans
& Olsens hf. sem komið hafi upp um
fjárdráttinn og hann hafi blasað við
starfsmönnum fyrirtækisns þegar
þeir þurftu að fara inn í störf gjald-
kerans á meðan hann var í sumar-
leyfi sumarið 1996.