Morgunblaðið - 03.03.1998, Side 45

Morgunblaðið - 03.03.1998, Side 45
MöKGtMBtAÖlB ÞRIÐJUDAGUR'S. MARZ 1998 45 AÐSENDAR GREINAR Uppáskríftir Háskólans SJÓMENN vilja að allur afli fari á markað og verði seldur hæsta verði. En eins og for- maður LÍÚ segir t.d. í sjónvarpinu. „Það sam- ræmist ekki landslögum að banna mönnum að vinna eigin afla.“ Hann hefur nú fengið Háskól- ann til að skrifa upp á þessa fráleitu fullyrð- ingu sína, rétt eins og fískihagfræðiprófessor Háskólans hefur skrifað upp á 60% hagræðingu gjafakvótakerfisins þó að tölur Fiskifélagsins sýni minna en alls enga. Viðar Már Matthíasson hefur skrif- að langa álitsgerð um lögfræðileg álitaefni tengd löggjöf um sölu- skyldu þ.e. að allur sjávarafli verði seldur á opinberum uppboðsmark- aði. Hann nefnir í stuttu sögulegu yf- irliti úrskurðarnefnd og áformuð lög frá 1960 um að sjómenn fengju hlut sinn reiknaðan af því verði sem útvegsmenn fengju fyrir fisk- inn. En sjómenn svöruðu með verkfalli alla vertíðina og samning- ar tókust loks 1961 um þátttöku sjómanna í samningum um fisk- verð. Níðst á útgerðarmönnum? Sjálf álitsgerðin hlýtur síðan að teljast ein sú hlutdrægasta sem fyr- ir mín augu hefur borið því hvergi er þar vikið svo mikið sem einu orði að sjómönnum, hlut þeirra og hluta- skiptum, hagsmunum, réttindum eða einu sinni skyldum en kvartað og kveinað um friðhelgan eignarrétt útgerðarmanna, atvinnufrelsi þeirra, takmarkanir þær, skyldur og skerðingar sem á þá eru lagðar o.s.frv. ad nauseum. Niðurstaðan er því: Söluskylda brýtur ekki í bága við EES-samn- inginn en hún brýtur jafnræðisreglu stjóm- arskrárinnar, ennfrem- ur ákvæðið um frið- helgi eignarréttarins og atvinnufrelsis- ákvæðið sem vemdar rétt útvegsmanna til að fá að stunda vinnslu á þeim sjávarafla sem skip þeirra veiða. Hvaða tal er þetta um atvinnufrelsi út- gerðarmanna? Hver er að banna þeim að stunda vinnslu á þeim sjávarafla sem skip þeirra veiða? Málið snýst um greiðslu til sjó- mannanna fyrir þann afla, réttlát laun fyrir vinnu þeirra og ekki eitt- hvert sjálfdæmi útgerðarmanna. Hvað er sjálfsögð krafa sjómanna um þátttöku í fiskverðsákvörðun- um búin að kosta mörg verkföll síð- an 1960? Hvað segir stjórnarskráin um atvinnufrelsi sjómanna? Nú geta þeir bara ráðið sig í vinnu hjá þeim sem veiðileyfin eiga. Sjó- mönnum eru allar aðrar bjargir bannaðar. Og öll þessi umræða um jafnræð- isregluna. Hvaða máli skiptir það hvemig sjómenn vinna afla sinn? Hvort þeir blóðga hann, gera að honum, hausskera hann, slógdraga, ísa, kassa, salta, flaka, frysta, snyrta, skera eða pakka. Sjómenn- irnir eiga sinn hlut í aflanum þar til þeir selja hann og fá greitt hæsta verð fyrir hann. Verndar ekki stjórnarskráin þann eignarrétt eða er það e.t.v. aðalatriðið hvort sjó- menn raða fiskinum í sína eigin kassa, í kassa útgerðarmanna eða kassa frystitogaraeigenda? Stjórnarskrárvernduð viðskipti Það er ekki annað en þjófnaður ef útgerðirnar selja sjálfum sér afia sjómannanna fyrir eina krónu og greiða sjómönnunum sinn hlut af henni en selja síðan aftur aflann einhverjum öðrum á 100 kr. og stinga í eigin vasa. Þeim sem heldur að stjórnarskráin vemdi slík við- skipti ætti ekki að leyfast að kenna lögfræði við Háskóla íslands. Mjög algengt er að útgerðin selji sjálfri sér aflann en ég tek þó fram að þetta dæmi er einungis tilbúið til að sýna fáránleika fullyrðinga LIÚ formannsins og lagaprófessorsins. Ég hef ég aldrei heyrt um það að nokkur útgerð hafi reynt að selja sjálfri sér afla sjómannanna á eina krónu, en það væri gaman að fá það á hreint hversu lítið ef þá nokkuð, útgerðarmenn þurfa að greiða fyrir afla sem þeir segjast eiga hvort eð er? Tíu króna skiptaverðmæti er al- talað og hinn dýrkeypti þjóðarvandi er nú sjómannaverkfall því að það nægir ekki útgerðarmönnum að hafa tekið allan óveidda fiskinn frá réttbornum eigendum hans heldur vilja þeir nú hirða líka allan veidda fiskinn frá eigendum hans. Allt vald spillir, sagði einhver, og algjört vald algjörlega. En nú hlýtur yfirráðherra að vera búinn að ákveða að stöðva verkfallið í fyrramálið því í kvöld er hann allt í einu orðinn alveg á móti lögum á sjómenn þó að hann segi að það gangi bara afturábak í samn- ingunum. Það væri freistandi að afgreiða álitsgerðina sem ekki pappírsins virði. Hætt er þó við að hún sýni því miður ekki bara forkastanleg vinnu- brögð dáðlauss Háskóla heldur einnig í hnotskurn réttarfarið í landinu. Rekist hagsmunir og rétt- indi tveggja aðila á þá, skal þá að- eins gætt réttinda og hagsmuna annars aðilans? Skýrslan sýnir íyrst og fremst álit prófessorsins á því hvernig dómstólar landsins mundu dæma Haldi sjómenn áfram að styðja kvótakerfið, segir Einar Julíusson, verða þeir að taka af- leiðingunum. veiðiskylduna ef til þeirra kasta kæmi. Dómsmálaráðherra verður víst ekki skotaskuld úr því þegar þörf krefur að fá dómstóla landsins til að dæma það út frá stjómar- skránni að útgerðarmenn eigi allan fiskinn óveiddan sem veiddan og að sjómenn sem aðrir megi bara þakka fyrir þá brauðmola sem af borðum þeirra hrjóta. Sjómenn hafa illu heilli stutt það gjafakvótakerfi sem komið hefur verið á. Enn vilja þeir vinna að lag- færingum á'því í stað þess að vinna gegn því. Þeir era ekki á móti kvótakerfi, segja þeir, bara kvóta- braski. En hvernig er hægt og því skyldi það borga sig að banna mönnum að leigja eða selja það sem þeir eiga? Sjómenn eru leiguliðar en útgerðarmenn sægreifar, því að þeim einum voru gefin öll fískimiðin en ekki af því að þeim leyfist að leigja það sem þeim var gefið. Það er kvótakerfið en ekki kvóta- braskið sem gerir suma að sægreif- Einar Júlfusson um og aðra að leiguliðum. Sjómenn vilja veiðiskyldu en hvað ætli veiði- skylda hjálpi sjómönnum hér. Því skyldu sjómenn verða minni leigu- liðar ef þeir þurfa ekki bara aújp leigja kvótana til að fá að veiða fisk- inn heldur þurfa líka að leigja þau skip er mega veiða kvótana. Hækk- uð veiðiskylda breytir ekkert kvóta- verðinu og kemur litlu til leiðar öðru en verðhruni kvótalausra skipa. Meiri eignatilfærslu til sæ- greifanna. Laun heimsins eru vanþakklæti Formaðurinn furðar sig á því að sjómenn skuli ekki þakka fyrir að fá að leigja viðbótarkvóta handa út- gerðarmönnum sem búnir eru með sinn kvóta, fremur en að hætta veið^ um og mæla götumar eða bíða næsta kvótaárs með hendur í skauti. Sjá sjómenn ekki að þetta er allt fyrir þá gert? Hvaða máli skipt- ir það þótt sá kvóti sem þeim er af gjafmildi leigður á 80 krónur kílóið sé tekinn bótalaust frá öðrum sjó- mönnum? Haldi sjómenn áfram að styðja kvótakerfið verða þeir að taka af- leiðingunum og búa sig undir að hlutaskiptakerfið verði lagt af. Kannski er það sjálfgefið að fyrst útgerðarmennimir einir eiga allan fiskinn í sjónum geta sjómennirnir ekki átt neinn hlut í afla þeirra eins og formaðurinn orðar það þó að álitsgerðin passi sig á því að kalla'' það alltaf „afla þeirra eigin skipa“. Það verður auðvelt að fá uppáskrift Háskólans fyrir því að hlutaskipta- kerfi samræmist ekki jafnræðis- sjónarmiðum og stjómarskárvernd- uðum eignar- og atvinnuréttindum útgerðarmanna. Það hlýtur líka eins og söluskyldan að takmarka mögu- leika þeirra til að nýta eignir sínar og fjárfestingar með hámarksá- góða, og það skiptir mestu máli, segir Jón Viðar Matthíasson. Höfundur er eðlisfræðingTir. Range Rover Vogue ‘88, ss., Blár. Ekinn 110 þús. km. Verð kr. 1.090.000. ra STW ‘96,1800, Ekinn 26 þus. km. .000. MMC Lancer STW ‘97,1600, ss., 5 d. Rauður. Ekinn 23 þús km. Verð kr. 1.350.000. Renault 19 RN ‘96,1400, 5 g., 4 d. Silfur. Ekinn 29 þús. km. Verð kr. 980.000. Opel Corsa ‘97, 1400, ss., 3 d. Blár. Ekinn 15 þús. km Verð kr. 1.140.000. VW Golf CL STW ‘96,1400, 5 g 5 d. Grænn. Ekinn 55 þús. km. Verð kr. 1.170.000. Hyundai Accent GLS ‘96,1500, ss., 4 d. Silfur. Ekinn 15 þús. km. Verð kr. 990.000. Jeep Grand Cherokee Lando ‘95, V8, ss., 5 d. Grænn. Ekinn 76 þús. km. Verð kr. 3.090.000. Skoda Felicia LX ‘96,1600, 5 g., 5 d. Blár. Ekinn 29 þús. km. Verð kr. 590.000. V/SA m Hyundai Elantra GLS ‘93, 1600, 5 g., 4 d. Vínrauður. Ekinn 49 þús. km. Verð kr. 750.000. MMC 1-300 sendibfll ‘91, 2000, 5 g., 5 d. Hvítur. Ekinn 104 þús. km. Verð kr. 590.000. Toyota Corolla XL ‘92, 1300, ss., 5 d. Brúnn. Ekinn 80 þús. km. Verð kr. 690.000. Nissan Micra ‘94, 1300, ss., 5 d. Silfur. Ekinn 99 þús. km. Verð kr. 640.000. Honda Civic GL ‘87, 1500, ss., 4 d. Gullsans. Ekinn 150 þús. km. Verð kr. 390.000. VW Golf ‘87, 1600, 5 g., 5 d. Silfur. Ekinn 188 þús. km. Verð kr. 260.000. MMC Lancer 4x4 ‘91, 1800, 5g„ 5d. Blár. Ekinn111 þús. km. Verð kr. 690.000. Lada Samara ‘94, 1500, 5 g„ 4 d. Blár. Ekinn 68 þús. km. Verð kr. 290.000. Suzuki Swift ‘94, 1500, 5 g„ 4 d. Blár. Ekinn 68 þús. km. Verð kr. 390.000. BMW 518i ‘87, 5 g„ 4 d. Blár. Ekinn 148 þús. km. Verð kr. 390.000. Bílalán til allt að 60 mánaða. Visa Euro Raðgreiðslur til allt að 36 mánaða. Hyundai H-100 ‘97, disel, 5 g„ 4 d. Rauður. Ekinn 34 þús. km. Verð kr. 1.390.000. Peugeot 205 ‘95,1100, 5 g„ 5 d. Rauður. Ekinn 58 þús. km. Verð kr. 630.000. Hyundai Sonata GLS ‘92, 2000, ss,. 4 d. Svartur. Ekinn 29 þús. km. Verð kr. 890.000. B&L notaðir bílar • Suðurlandsbraut 12 • Sími: 575 1200

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.