Morgunblaðið - 03.03.1998, Síða 49
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 49
um saman margar ferðir út á land
til vinnu. Ég vildi alltaf hafa Kalla
með mér, því hann var mjög góður
smiður og sérstaklega afkastamik-
ill við öll störf. Ekki minnkaði vin-
áttan er hann kynntist og giftist
Stellu sinni. Kalli var mikill nátt-
úruunnandi og ferðuðumst við mik-
ið saman um óbyggðir landsins og
byggðum ásamt fleirum hús við
Fjallabaksleið, „Höll“ í Kílingum
austan Landmannalauga. Kalli var
í átta manna hópi sem fyrstur fór
nyrðri Fjallabaksleið á bílum og
sumarið 1996 fórum við með 6 eft-
irlifandi félaga sömu leið en þá
voru 50 ár liðin síðan þeir bókstaf-
lega drógu bílana með talíum og
tilheyrandi þessa erfiðu leið. Við
eignuðumst báðir jeppa sem við
notuðum við svaðiifarir uppá há-
lendið og eftir að við urðum fjöl-
skyldufeður ferðuðumst við með
alla fjölskylduna margar ógleym-
anlegar ferðir um allt land. Við átt-
um sumarbústað við Hafravatn og
keyptu Kalli og Stella sér einnig
bústað þar og áttu fjölskyldur okk-
ar þar líka góðar stundir.
Við minnust Kalla sem skemmti-
legs og góðs félaga, hans verður
sárt saknað. Kalli var ótrúlega
handlanginn og vandvirkur og eru
til margir fagrir smíðisgripir eftir
hann sem bera þess merki.
Við sendum Stellu, Dóru, Sollu
og fjölskyldum þeirra innilegar
samúðarkveðjur og þökkum þá vin-
áttu og tryggð sem við höfum notið
öll þessi ár.
Guð blessi minningu þína, hvíl í
friði.
Davíð, Inga og fjölskylda.
Haustið 1946 hófu 28 ungir
sveinar nám í Vélskóla Islands, nú
eru 10 dánir úr þessum hópi, síðast
Karl Magnússon. Þar hittumst við
Karl fyrst, hann úr Reykjavík, ég
frá Keflavík. Tilviljun réð því að
leiðir okkar Karls lágu mikið sam-
an eftir nám. Við lentum saman í
að sækja m.s. Arnarfellið nýtt til
Svíþjóðar og sigldum á því um
tíma, hættum svo á því samtímis og
hófum störf hjá Rafmagnsveitu
Reykjavíkur. Ég starfaði lengst af
í varastöðinni en Karl í næsta húsi,
gömlu stöðinni við Elliðaár, þar
sem hann var stöðvarstjóri síðustu
starfsár ævinnar. Við gengum
vaktir og auðvitað atvikaðist það
þannig að við áttum vaktir og frí-
vaktir á sama tíma. Við vorum til-
tölulega nýgiftir og höfðum áhuga
fyrir að koma okkur upp eigin hús-
næði, til að nýta okkur sameigin-
lega afbrigðilega írftíma ákváðum
við að byggja húsnæði saman á
Rauðalæk 25, þar sem við höfum
búið á sitthvorri hæðinni síðan
1958. Við lögðum mikið á okkur til
að koma upp þessu húsnæði, unn-
um öll fagstörf sjálfir með góðri til-
sögn vina og kunningja. Þá kom
sér vel að faðir Karls, Magnús
Jónsson, var byggingameistari og
ráðhollur okkur viðvaningunum.
Það var fróðlegt að ræða við Karl
um þær miklu framfarir sem orðið
hafa í hans lífstíð, sem sköpuðust
aðallega með tilkomu sprengimót-
ors og rafmagns, en lífsstarfið var
að annast þessi tækniundm’. Hann
kynntist margs konar störfum um
ævina, var ungur í sveit á sumrin,
þar sem hann vann t.d. við upp-
byggingu þjóðvega með því að
handmoka möl á hestvagna. Þegar
bygging frystihúsa hófst var Karl
við iðnnám og tók þátt í að vinna
við uppsetningu vélbúnaðar í þau.
Það sama endurtók sig þegar
bygging fiskimjölsverksmiðja hófst
þar sem hann vann við uppsetn-
ingu á eldþurrkurum, sem orðinn
er úreltur vélbúnaður í dag. Nú er
þessu öllu lokið og hann fer í gröf-
ina með alla sína starfsreynslu sem
er mikið meiri en hér hefur verið
minnst á. Að lokum vottum við
Jónínu Lilju, dætrum þeirra
Jónínu og Karls, Kristínu Dóni og
Sólveigu Ástu og öðrum aðstand-
endum okkar dýpstu samúð.
Árni Valdimarsson,
Dómhildur Guðmundsdóttir.
JÓHANNA MARGRÉT
SIGURRÓS
BJÖRGVINSDÓTTIR
+ Jóhanna Margrét
Sigurrós Björg-
vinsdóttir fæddist á
Raufarhöfn 15. maí
1917. Hún lést á
Dvalarheimilinu Hlíð
á Akureyri 24. febrú-
ar síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Björgvin Jóhannsson
frá Rifi á Melrakka-
sléttu og Dýrfinna
Kristín Sveinsdóttir
frá Hafnarfirði.
Jóhanna giftist 6.
júlí 1946 Þórhalli
Ágústssyni, vélstjóra
frá Eskifirði, f. 5. september
1918, d. 24. október 1953. Þau
Elsku amma mín.
Núna ert þú búin að fá hvíldina.
Þó svo að þú hafir verið fegin hvfld-
inni er alltaf erfitt að kveðja. En ég
veit að þér líður vel núna í faðmi
hvítu englanna sem þú sagðir mér
frá þegar ég var lítil.
Margs er að minnast þegar ég
hugsa um minningamar um þig.
En efst í huga mér eru þó sam-
verustundimar sem við áttum sam-
an á Skinnastað, þar sem afi var
prestur til margra ára.
Við, bamabörnin þín, stóri
stelpnahópurinn, eigum allar góðar
minningar þaðan. Við þrjár elstu,
ég og Þórhalla og Ingibjörg,
frænkur mínar, vorum samt mest
hjá ykkur afa á Skinnastað.
Það var mikið „brallað" hjá ykk-
ur. Við áttum „bú“ fyrir neðan eld-
húsgluggann þar sem við gátum
leikið okkur tímunum saman og
„bakað“ kökur! Stundum leyfðir þú
okkur meira að segja að fá hveiti
og matarlit. Það var sko toppurinn!
Þegar kökurnar vom tilbúnar,
skreyttar sóleyjum, steinum o.fl.,
komu þið afi stundum út til okkar
og þóttust smakka á þeim. Þegar
þú kallaðir á okkur inn, máttum við
ekki koma inn „sparidyramegin"
eins og þú kallaðir það, heldur átt-
um við að fara inn bakdyramegin.
Það var vegna þess að þú sagðir að
við vissum aldrei hvenær kæmu
gestir. Við hlýddum þér oftast, en
ég man eftir því þegar við óhlýðn-
uðumst þér. Við fórum inn á
skítugum stígvélunum og úlpunum
var hent á gólfið. Þegar við vorum
nýkomnar inn í eldhús til þín
heyrðum við í bfl fyrir utan. Það
voru komnir gestir! Mér brá svo
mikið að ég hljóp fram í forstofu og
tók allt upp úr gólfinu og gekk frá
því á sínum stað! Þú gast ekki ann-
að en hlegið, hvað varst þú búin að
segja við okkur?! Eftir þetta fórum
við aldrei inn „sparidyramegin".
Það var fastur liður hjá þér eftir
kvöldmatinn að „gefa okkur á disk“.
Þá fengum við nammi á disk og auð-
eignuðust tvær dæt-
ur: 1) Steinunn
Ágústa, f. 23. mars
1948. 2) Þórhalla, f.
5. aprfl 1953.
Jóhanna giftist
seinni manni sínum,
Sigurvini Eh'assyni,
14. október 1961. Sig-
urvin er ftá Hell-
issandi á Snæfellsnesi,
f. 9. janúar 1918, og
er hann fyrrverandi
sóknarprestur á Rauf-
arhöfn og á Skinna-
stað í Öxarfirði.
Útför Jóhönnu fer
fram frá Akureyrarkirkju í dag
og hefst athöfnin klukkan 13.30.
vitað með einhverju hollu! Þetta
holla var oftast Cheerios eða hringh-
eins og þú kallaðir það. Þetta var
alltaf svo skemmtilegt, við biðum
alltaf með eftirvæntingu þegar þú
fórst inn í búr að setja á diskana.
Skemmtilegasta við það þegar
þú varst að hjálpa okkur í rúmið á
kvöldin, var þegar þú þvoðir á okk-
ur tæmar í „handlauginni". Þá var
sko mikið hlegið og örugglega oft
mikil læti!
Það voru ekki ófáar bænimar
sem þú kenndir okkur og á kvöldin
þuldir þú þær alltaf í sömu röð með
okkur. Við, elstu stelpumar þínar,
þurfu að rifja þessar bænir upp
saman og finna réttu röðina á
þeim.
Þegar afi fór að messa hvort sem
það var á Raufarhöfn, Kópaskeri
eða annars staðar í nágrenninu,
fengum við alltaf að koma með.
Þetta vom skemmtilegar ferðir.
Alltaf sátum við jafn prúðar og
stilltar í kirkjunni. Þú og afi vomð
líka mjög stolt af okkur, þið
hrósuðuð okkur eftir hverja ein-
ustu „kirkjuferð“.
Ekki gleymi ég heldur þegar ég
fékk að fara með ykkur afa til Sví-
þjóðar til Steinunnar frænku! Og
það tvö sumur í röð! Samvem-
stundirnar sem við áttum þar sam-
an vora yndislegar og munu aldrei
gleymast.
Élsku amma, ég þakka þér fyrir
allar þær stundir sem við áttum
saman og fyrir allt það sem þú
kenndir mér. Elsku afi minn,
mamma og Steinunn, guð styrki
ykkur og okkur öll í sorginni. Að
lokum vil ég láta fylgja með eina af
kvöldbænunum sem amma kenndi
mér:
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessan þinni,
sitji guðs englar saman í hring
sænginniyfirminni.
Þín
Þórlaug Þorfinnsdóttir.
t
Ástkær eigimaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
MAGNÚS RAFN MAGNÚSSON,
Miroslav R. Mikulcák,
Meðalholti 2,
Reykjavfk,
verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju í dag,
þriðjudaginn 3. mars, kl. 15.00.
Elín Jóna Ólafsdóttir,
Anna Kristine Magnúsdóttir,
Ingunn Magnúsdóttir, Trausti Bragason,
Elísabet Magnúsdóttir, Jón Ágúst Eiríksson,
Björg Magnúsdóttir, Þorsteinn Guðmundsson,
Magnús Jaroslav Magnússon, Hugrún Linda Guðmundsdóttir,
Dagmar Magnúsdóttir
og barnabörn.
+
Útför móður okkar, tengdamóður, ömmu,
langömmu og systur,
SEMONU CHRISTIANSEN,
Krummahólum 41,
Reykjavík,
fer fram frá Fella- og Hólakirkju á miðviku-
daginn 4. febrúar kl. 15.00.
Fyrir hönd aðstandenda,
Judith Elísabet Christiansen,
Gunnar Christiansen, Hólmfríður Kristinsdóttir,
Súsanna Sveinsdóttir,
Sigurður Yngvi Sveinsson,
Anton Sveinsson,
Sveinn Júlían Sveinsson,
Elfsabet Anna Christiansen,
barnabarnabörn og systkini.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, bróðir og afi,
ÞÓRARINN B. ÓLAFSSON
yfirlæknir,
Smáragötu 10,
Reykjavík,
verður jarðsunginn frá Hallgrímskirkju miðviku-
daginn 4. mars kl. 15.00.
Þeim, sem vilja minnast hans, er bent á líknarstofnanir.
^ Björg Ólafsson,
Oddrún Kristín Þórarinsdóttir,
Geir Þórarinn Þórarinsson,
Erla Þórarinsdóttir,
Þóra Þórarinsdóttir, Oddur Hermannsson,
Guðmundur Helgi Þórarinsson, Laufey Sveinbjörnsdóttir,
Þóroddur Þórarinsson,
Skúti Ólafsson,
Etísabet Ólafsdóttir Pálsson
og barnabörn.
+
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
VALGERÐUR STEFÁNSDÓTTIR,
Hrafnistu, Hafnarfirði,
(áður Efstaleiti 14),
verður jarðsungin fró Bústaðakirkju fimmtu-
daginn 5. mars kl. 10.30.
Þeim sem vilja minnast hennar er vinsam-
legast bent á að láta Hrafnistu Hafnarfirði njóta þess
Stefán Gunnarsson, Agla Marta Marteinsdóttir,
Guðlaug Konráðsdóttir,
Þórhíldur Gunnarsdóttir, Magnús Jónsson,
Gunnar Gunnarsson,
Valgerður Gunnarsdóttir, Stefán Ólafsson,
Árni Gunnarsson, Guðrún Dfs Jónatansdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
STEFÁN GUÐNASON
fyrrv. tryggingayfirlæknir,
sem andaðist 22. febrúar sl. verður jarðsung-
inn frá Fossvogskirkju á morgun miðviku-
daginn 4. mars kl. 13.30.
Ólöf Stefánsdóttir, Karl Ómar Jónsson,
Guðrún Stefánsdóttir, Baldur Jónsson,
Svava Stefánsdóttir.
+
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
MAGNEA KRISTÍN SIGURÐARDÓTIR
frá Hóli,
er lést á dvalarheimilinu Hlíð, miðvikudaginn
25. febrúar, verður jarðsungin frá Akureyrar-
kirkju föstudaginn 6. mars kl. 13.30.
Sigurður Jónsson, Helgi Jónsson,
Jakob Jónsson, Marinó Jónsson
og fjölskyldur.