Morgunblaðið - 03.03.1998, Page 59
MORGUNBLAÐIÐ
BREF TIL BLAÐSINS
ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998 59
Eiga bændur í hefðbundn-
um búgreinum sóknarfæri?
Stærsta
skattheimtan
Frá Halldóri Gunnarssyni:
NYR búvöi-usamningur í mjólkur-
framleiðslu til 7 ára og fyrirliggj-
andi framkvæmd á búvörusamn-
ingi í sauðfjárframleiðslu frá 1995,
sem endar árið 2000, ætti að gefa
bændum í þessari framleiðslu
möguleika á að hefja sókn til að
geta lifað af.
Það skiptir sköpum íyrir þjóð
okkar að bændur í hefðbundinni
landbúnaðarframleiðslu missi ekki
kjarkinn og takist á við aðrar úr-
lausnir en þær sem beinast liggja
við, að yngri bændur selji allt af
jörðum sínum og síðast jörðina, til
að geta flutt í þéttbýlið og eignast
þar íbúð og atvinnuöryggi, ásamt
því að geta menntað börnin sín í
góðum skólum. Og ef það yrði, þá
sitja eldri bændur eftir eins lengi
og fært er, með því að lifa á af-
skriftum búa sinna og treysta á að
vélar bili ekki og ekki þurfi að end-
urnýja íbúðarhús eða útihús.
Hvers vegna er svona komið?
Upp úr 1970 var fyrst farið að
takast á við umframframleiðslu og
útflutning landbúnaðarafurða sem
engin skynsemi var í og með nýjum
búvörulögum 1985 voru útflutn-
ingsbætur afnumdar og árlegur
styrkur ríkisins til hefðbundinnar
landbúnaðarframleiðslu minnkaður
um 4 milljarða. Eftir sem áður var
framleiðslan of mikil miðað við
verðlag og birgðir hljóðust upp,
sem varð að afsetja á kostnað
bænda, en samningurinn 1995 tók
á kjötbirgðavanda, þannig að nú
eru engar umframbirgðir þar og
afurðasöluiyrirtæki eru tilbúin að
taka á móti aukinni framleiðslu
bænda í sauðfjárframleiðslu til út-
flutnings á sambærilegu verði og
fæst innanlands án beingreiðslna.
Mjólkurframleiðslan er í jafnvægi
við innanlandsneyslu með stjórn
framleiðsluréttarins, sem seldur er
milli bænda á 110 til 160 kr. á
mjólkurlítra. Hin síðari ár hafa
mjólkurbúin greitt nær fullt verð
fyrir umframframleiðsluna og fyrir
liggur að best reikni mjólkurbúin
munu geta greitt bændum hærra
verð fyrir mjólkina í formi arð-
greiðslna eða yfíi-verðs á næstu ár-
um. Aukin mjólkurframleiðsla ætti
að gefa búunum möguleika á út-
flutningi fullunninna mjólkuraf-
urða, sem verður að láta reyna á.
Núverandi staða bænda er að
um 1.240 mjólkurframleiðendur
framleiða 102 milljón lítra, sem er
markaðsheimild innanlandsneysl-
unnar, eða að hvert bú framleiðir
að meðaltali um 82 þúsund lítra á
ári. Sauðfjárframleiðslan hefur
dregist saman um 45% á síðustu 20
árum úr um 850 þúsund fjár 1975 í
um 470 þúsund fjár, þar sem kjöt-
framleiðslan var síðasta ár um
7.900 tn en innanlandsneyslan að-
eins um 6.700 tn og hefur minnkað
ái’lega undanfarin ár um 2 til 3%.
Um 2.400 bændur stunda sauðfjár-
framleiðslu þannig að meðal sauð-
fjárbú er með um 195 kindur, en
slíkt bú getur engan veginn staðið
undir útlögðum kostnaði við bú-
reksturinn, hvað þá greitt bóndan-
um laun!
Síðustu 6 ár hafa tekjur bænda
við mjólkui’ft’amleiðslu lækkað um
10% og bænda við sauðfjárfram-
leiðslu lækkað um 46%. Þegar svo er
komið hætta yngri bændur en eldri
bændur þrauka eitthvað áfram, ef
engin önnur úrræði eru til.
Sóknarfæri íslenskra bænda eru
að mínu áliti þau, að best stæðu
bændur landsins myndu auka
framleiðslu sína og byggja upp ný
fjós með allra nýjustu tækni sem
völ er á, með helmings stækkun í
huga og leggja út í að kaupa auk-
inn fullvirðisrétt og að sjálfsögðu
verða þeir að hafa möguleika á að
fá betri kúastofn til landsins, til að
hámarks hagkvæmni við fram-
leiðsluna geti átt sér stað. Sauð-
fjárbændur, sem ætla að reyna að
„Fasta og föstuhald“
- Hafa skal það
er sannara reynist
I Frá Sigurði H. Þorsteinssyni:
f GREIN hen-a Karls Sigurbjöms-
sonar, „Fasta og fostuhald" í Morg-
unblaðinu 24. febr., bls 36, segir svo:
„Orðið kameval er úr spænsku og
merkir að kjötið er kvatt. Öskudagur
dregm- nafn sitt af því að fyrr á tíðum
var fólk signt með ösku við messu
þessa dags, sem tákn iðrunar“.
Þá er þar til að taka að „fyrr á
tíðum var fólk signt með ösku við
messu þessa dags, sem tákn iðrun-
ar“. Þetta er að vísu hárrétt, en var
ekki aðeins „fyrr á tíðum“, heldur
er enn í dag um allan heim.
A öskudag, þann 25. febrúar í ár,
sem og aðra árlega öskudaga, er
það siður um eins milljarðs kaþ-
ólskra manna um allan heim og þá
jafnt á íslandi sem í öðrum löndum,
að mæta til messu, sem og að vera
signdir með öskunni af brenndum
pálmagreinum frá síðasta pálma-
sunnudegi.
„Fyrr á tíðum" var þetta þetta
ekki aðeins tákn um iðrun, heldur í
einlægiá iðrun og er svo enn. Mess-
ur eru lesnar í öllum kaþólskum
kirkjum, þar sem messugestir geta
allir fengið signingu með öskunni,
til að minna sig á föstuna og hug-
leiðingarefni föstunnar. Aukinheld-
ur er þetta oftast sá tími er menn
ganga til árlegra skrifta og gera
upp líf sitt. En í rómversk-kaþólskri
kirkju er þetta nú aðeins hluti dag-
legs kristins lífernis, meira að segja
enn þann dag í dag, jafnt hérlendis,
sem annars staðar.
Því skulum við í þessum efnum
hafa það er sannara reynist.
Ekki hefir mér tekist að finna í
málinu okkar málshátt þann að
„Iðrast í sekk og ösku“. I ýmsum
biblíuþýðingum er talað um að
„ífærast", „færa sig í“, „setjast í“,
„klæðast" og svona má lengi telja.
þetta er aðallega frá Esterarbók, 4-
1 og 4-3.
Það skal þó alls ekki útilokað að
menn og konur hafi einmitt iðrast
er þeir íklæddust sekk og ösku.
SIGURÐUR H. ÞORSTEINSSON,
formaður Safnaðarfélags St. Jósefs-
kirkju og í sóknarnefnd hennar.
byggja afkomu sína á þeirri fram-
leiðslu, verða að leggja óhræddir út
í að fjölga fénu og nýta hálf fjárhús
og laga sig að útflutningi, sem
krefst fersks kjöts í 6 mánuði í það
minnsta á þeim markaði. Bændur
með litlu búin, með mjólkurfram-
leiðslu allt að 100 þúsund lítra árs-
framleiðslu, þurfa að sameina bú í
byggðarhverfum og mynda hluta-
félag um 300-400 þúsund lítra árs-
framleiðslu, 4 til 7 bændur saman,
byggja upp eitt fjós með nýjustu
tækni, þannig að einn geti staðið að
starfi í slíku fjósi, eins og þekkt er
erlendis og leggja mjólkurkvótann
og heyvélar inn í slíkt hlutafélag.
Þessir bændur yrðu að sækja sér
aukastarf í nærliggjandi þéttbýli
eða annars staðar, jafnframt þátt-
töku í rekstri slíks hlutafélags. Við
verðum, þjóðarinnar vegna, að eiga
þessa bændur að, sem eru tilbúnir
að hefja stórsókn til bjargar at-
vinnugreininni, þannig að við nálg-
umst þau vinnubrögð sem best eru
erlendis og síðan verðum við að
eiga þá bjartsýnismenn í afurða-
söluíyrirtækjum, sem leggja á
brattann til að markaðssetja okkar
góðu afurðir erlendis. Islenskir
bændur verða að sækja styrk til
sín sjálfra og eiga þá trú sem fjöll
flytur.
HALLDÓR GUNNARSSON,
Holti, Vestur-Eyjafjallahreppi.
Frá Láru B. Hördal og Jóni Baldri
Þorbjörnssyni:
ARNI Sigfússon og aðdáenda-
klúbbur hans á D-listanum halda
áfram að tönnlast á því að Ingi-
björg Sólrún Gísladóttir borgar-
stjóri og Reykjavíkurlistinn hafi
aukið skattheimtu á Reykvíkinga.
Þetta er þó hið argasta öfugmæli.
Aður en Reykjavíkurlistinn komst
til valda, á tímabili hinna þriggja
borgarstjóra Sjálfstæðisflokksins í
Reykjavík með Árna Sigfússon í
pylsuendanum, voru skuldir
Reykvíkinga auknar um 8 millj-
arða. Þetta er mesta skattheimtu-
aukning sem orðið hefur í höfuð-
borginni á síðari tímum. Til þess að
kostnaður af Ráðhúsi og Periunni,
sem kostuðu næstum því alla þessa
upphæð, lentu ekld strax á
Reykvíkingum (það hefur líklega
þótt óþægilegt) var honum einfald-
lega velt yfir á næstu kjörtímabil
með lántökum og háum vöxtum.
Þetta er sá skattur sem við
Reykvíkingar erum nú að borga og
munum þurfa að borga langt fram
á næstu öld. A þeirri skattheimtu
ber Arni Sigfússon fulla ábyrgð.
Þar að auki var boi-garsjóður
undir stjórn sjálfstæðismanna rek-
inn á stórkostlegum yfirdrætti á
ávísanareikningum í bönkum
landsins. Þetta var gert til þess að
fela hina raunvemlegu skulda-
stöðu, en yfirdráttur er ekki talinn
með hinum hefðbundnu skuldum á
ársreikningum fyrirtækja og sveit-
arfélaga. Gjaldið sem við þurftwm
að borga fyrir þetta ráðslag vora
afar Iágir vextir á veltufé borgar-
sjóðs en hins vegar háir vextir á yf-
irdrættinum. Þetta var eitt af því
fyrsta sem Reykjavíkurlistinn
kippti í lag er hann komst til valda.
Sannleikurinn er sá að Ingibjörg
Sólrán hefur stýrt borginni með
miklu aðhaldi og skynsamlegum
hætti í hvívetna. Hreinsun strand-
lengjunnar og Skólpu borgum við
til dæmis jafnóðum núna, rétt eins
og þegar vatnsveitan kom á sínum
tíma, í stað þess að velta kostnaðin-
um yfir á komandi kynslóðir með
lántökum.
Ekki hefur enn tekist að borga
upp það skuldafen, sem Sjálfstæð-
isflokkurinn kom borgarsjóði í, en
þó hefur tekist að halda í horfinu.
Skuldir hafa ekki aukist þrátt fyrir
miklar framkvæmdir. Það er
Reykjavíkurlistanum til sóma.
LÁRA B. HÖRDAL,
Hjallavegi 68, Reykjavík.
- kjarni málsins!
Jórunn Póra Sigurdardóttir
Jéttist um
Sigrídur Tómasdóttir
léttist um 18 kg
Hópurinn sem
hefur náð
frábærum árangri
á fitubrennslu-
námskeiðum hjá
okkurfer ört
stækkandi!
*r-
Dora Þorlaksdóttlr
léttistum 17 kg
Sigríöur Uifarsdóttir X <
léttistum 18 kg I \
|)ú nærð
línd Snæiand
í um 4 kg
8-vikna fitubrennslu-
námskeið:
• Þjálfun 3-5x í viku
• Fræðslu- og kynningarfundur
• Fitumælingar og vigtun
• Matardagbók
• Uppskriftabókin „Léttlr réttir‘‘
150 frábærar uppskriftir
• Upplýsingabæklingurinn
„í forml til framtíðar"
• Mjög mikið aðhald
• Vinningar dregnir út
í hverri viku
• Fimm heppnar og samvisku- i
samar fá 3ja mán. kort I lok *
námskeiðs
Fitubrennslunámskeiðin okkar hafa hjálpað
mörgum konum að breyta um lífsstíl, tileinka sér
hollari lífshætti og aukna hreyfingu.
Allt þetta leiöir af sér léttara og skemmtilegra llf.
Vertu með, það verður léttara en þú heldur!
Kvöldhópar
Daghópur
Morgunhópur
Framhaldshópur
Barnagæsla
mmmm
Hefst 9. mars.
SKEIFAN 7 108 REYKJAVIK
S. 533-3355
i