Morgunblaðið - 03.03.1998, Blaðsíða 60
60 ÞRIÐJUDAGUR 3. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
KIRKJUSTARF
í DAG
Safnaðarstarf
Áskirkja. Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 10-14. Léttur hádegis-
verður.
Dómkirkjan. Kl. 13.30-16
mömmufundur í safnaðarh., Lækj-
argötu 14a. Kl. 16.30 samverustund
fyrir böm 11-12 ára.
Bústaðakirkja. Æskulýðsstarf fyr-
ir 10-12 ára kl. 17.
Grensáskirkja. Kyrrðarstund kl.
12. Orgelleikur, ritningarlestur,
altarisganga, íyrirbænir. Léttur
málsverður í safnaðarheimilinu á
eftir.
Hallgrímskirkja. Fyrirbænaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir sjúk-
um. Orgelleikur og lestur Passíu-
sálma kl. 12.
Háteigskirkja. Starf fyrir 10-12
ára börn kl. 17 í safnaðarheimilinu.
Kvenfélag Háteigssóknar heldur
félagsfund í kvöld kl. 20.30 í safn-
aðarheimilinu. Hildur Einarsdóttir
blaðamaður og rithöfundur heim-
sækir kvenfélagskonur. Kaffísala.
Allar konur velkomnar.
Langholtskirkja.Ungbamamorg-
unn kl. 10-12. Opið hús. Æskulýðs-
fundur kl. 19.30. Kvenfélag Lang-
holtskirkju: 45 ára afmælisfundur í
kvöld kl. 20 í safnaðarheimilinu.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunn-
ar boðið á fundinn. Veisluhlaðborð,
helgistund. Félagar taki með sér
gesti.
Laugarneskirkja. Lofgjörðar- og
bænastund kl. 21. Umsjón Þorvald-
ur Halldórsson.
Neskirkja. Foreldramorgunn á
morgun kl. 10-12. Svefn - svefn-
venjur barna.
Oháði söfnuðurinn. Föstumessa
kl. 20.30. Guðrún Áslaug Einars-
dóttir guðfræðinemi prédikar.
Krampaldinskaffí og biblíulestur
út frá 20. Passíusálmi í safnaðar-
heimili að lokinni guðsþjónustu.
Seltjarnarneskirkja. For-
eldramorgunn kl. 10-12
Árbæjarkirkja. Foreldramorgunn
í safnaðarheimilinu í dag kl. 10-12.
Breiðholtskirkja. Bænaguðsþjón-
usta með altarisgöngu kl. 18.30.
Bænaefnum má koma til sóknar-
prests í viðtalstímum hans.
Fella- og hólakirkja. Starf fyrir
9- 10 ára kl. 17.
Digraneskirkja. Starf aldraðra í
dag frá kl. 11.
Grafarvogskirkja. Eldri borgarar.
Opið hús kl. 13.30. Föndrað, spilað,
sungið. Kaffi. Æskulýðsfélag,
yngri deild, fyrir 8. bekk kl. 20-22.
KFUM, drengir 10-12 ára kl.
17.30-18.30.
Hjallakirkja. Bæna- og kyrrðar-
stund kl. 18.
Kópavogskirkja. Mæðramorgunn í
safnaðarheimilinu Borgum í dag kl.
10- 12.
Fríkirkjan í Hafnarfirði. Opið hús
fyrir 8-10 ára böm kl. 17-18.30 í
safnaðarheimilinu Linnetstíg 6.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús í
Vonarhöfn í safnaðarh. Strand-
bergi fyrir 10-12 ára kl. 17-18.30.
Bessastaðakirkja. Bæna- og kyrrð-
arstund kl. 17.30. Hægt er að koma
bænaefnum til presta og djákna
safnaðarins.
Vídalínskirkja. Fundur í æsku-
lýðsfélaginu, yngri deild kl. 19.30,
eldri deild kl. 21.
Víðistaðakirkja. Aftansöngur og
íyrirbænir kl. 18.30.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía.
Samvera fyrir eldri borgara í dag
kl. 15. Allir velkomnir.
Borgarneskirkja. Helgistund
þriðjudaga kl. 18.30. Mömmumorg-
unn í safnaðarhúsi, Bröttugötu 6,
kl. 10-12.
Grindavíkurkirkja. Foreldramorg-
unn kl. 10. TTT starf kl. 18-19 fyrir
10-12 ára. Unglingastarf kl. 20.30
fyrir 8. 9. og 10. bekk.
Keflavíkurkirkja. Kirkjan opin
14-16. Starfsfólk kirkjunnar í
Kirkjulundi 14-16. Hugvekja í
Hvammi. Kirkjan opin kl. 16-18.
Starfsfólk kirkjunnar verður á
sama tíma í Kirkjulundi.
Landakirkja. Kirkjuprakkarar
(7-9 ára) kl. 16. Eldri deild KFUM
& K fundar í húsi félaganna kl.
20.30.
Lágafellskirkja. Kyrrðar- og
bænastund verður í Lágafells-
kirkju í dag kl. 18.
Morgunblaðið/Arnór
FRÁ íslandsmóti kvenna í sveitakeppni, sem fram fór um helgina.
Það er hin aldna heiðurskona frú Soffía Guðmundsdóttir frá Akur-
eyri sem situr við stjórnvölinn en samspilari hennar er Stefanía Sig-
urbjörnsdóttir. Andstæðingar þeirra eru Hjördís Siguijónsdóttir og
Jacqui McGreal.
BRIDS
Umsjón Ariiór G. Ragnars.von
íslandsmót kvenna og
yngri spilara
íslandsmót kvenna og yngri spil-
ara í sveitakeppni var spilað um
helgina. Sveit Erlu Sigurjónsdótt-
ur sigraði eftir hörkukeppni við
sveit Þriggja Frakka en lokatölur
urðu sem hér segir:
Sveit Erlu 204
Sveit Þriggja Frakka 200
Sveit Sparisjóðs Kópavogs 177
Sveit Huldu Hjálmarsdóttur
174 Með Erlu spiluðu Dröfn
Guðmundsdóttir, Bryndís Þor-
steinsdóttir og Guðrún Jóhannes-
dóttir.
íslandsmót yngri spilara (fæddir
1973 og síðar) var einnig spilað um
helgina en þar var einnig hörku-
keppni.
Úrslit urðu þessi:
Sveit Hlyns Magnússonar 193
Sveit Arons Þorfínnssonar 188
Sveit Birkis Jónssonar 181
Sveit Frímanns Stefánssonar 167
í sveit Hlyns spiluðu ásamt
honum Tryggvi Ingason, Ragnar
Torfí Jónasson og Ómar Olgeirs-
son.
Tólf sveitir tóku þátt í kvenna-
flokknum en 6 í unglingaflokki.
Bridsfélag Kópavogs
Þegar ein umferð er eftir í aðal-
sveitakeppni félagsins er staðan á
toppnum nokkuð ljós þótt einum
leik hafi verið frestað.
Þróun 196
Birgir Örn Steingrímsson 188
Sigurður Sigurjónsson 185
Vinir 163 í síðustu umferð-
inni spila meðal annars sveitir
Birgis Arnar og Sigurðar, Þróun
og Kópar, Vinir og Guðmundur
Pálsson.
SKÁK
IJnisjón Margcir
Pétursson
STAÐAN kom upp á minn-
ingarmótinu um Petrov í
Sánkti Pétursborg í Rúss-
landi í febrúar.
Konstantín Asejev (2.565)
var með hvítt og átti leik
gegn Sergei Soloyjov
(2.450) 35. Hxg8+ -
Kxg8 36. Hxh6 - Dg7
37. f6 - Dg4 (Nú finn-
ur hvítur laglegt mát í
fimmta leik) 38.
Hh8+! - Kxh8 39.
Dh6+ - Kg8 40. Bh7+
- Kh8 41. Bg6+ og
svartur gafst upp því
hann frestar ekki mát-
inu nema í tvo leiM til
viðbótar.
Sex skákmenn urðu
jafnir og efstir á mót-
inu með sex og hálfan
vinning af níu mögu-
legum, þeir Júrí Jakovitsj,
Sergei Jónov, Alexander
Volsjín, Vladímir Búrmakín,
Alexander Vaulin og V. Bot-
sjkarev. Þeir fimm fyrsttöldu
bera allir stórmeistaratitil,
en sá síðastnefndi er stiga-
laus og hefur því verið að
heyja frumraun sína á svo
öflugu móti. Þetta sýnir vel
hversu mikla gnótt öflugra
skákmanna er að finna í
löndum fyrrum Sovétríkja.
HVITUR leikur og vinnur.
Hlutavelta
EYRÚN, Stella og Ingunn héldu tombólu til styrktar
Hjálparsjóði Rauða kross íslands. Þær söfnuðu 2.112
krónum.
VINKONURNAR Helena Mara Valemir, Hulda Margrét
Kristjánsdóttir, Martha Sif Jónsdóttir og Ásta Erla Jak-
obsdóttir héldu tombólu til styrktar Rauða krossi íslands
og söfnuðu þær 5.851 krónu.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15
frá mánudeg'i til föstudags
Fuglarnir
við Tjörnina
ER verið að svelta fugl-
ana við Tjörnina? Varla
fara svanirnir og end-
urnar undir ísinn til
þess að afla sér matar
og varla er nokkm-t æti
fyrir fuglana á Tjörninni
á meðan Tjörnin er ísi
lögð. Hver á að sjá til
þess að fuglarnir lifi vet-
urinn af? Tjörnin er
ekkert án fuglanna.
Fuglavinur.
Þakkir til Toyota-
umboðsins
EG vil þakka sérstak-
lega góða þjónustu hjá
Toyota-umboðinu. Eg
keypti nýjan bíl þar 1
febrúar síðastliðnum og
var mjög ánægð með
þjónustuna. Gamli bfll-
inn minn gekk uppí
kaupin á nýja bílnum og
var han metinn á staðn-
um strax og ákveðið
verð á hann. Eg valdi
litinn á nýja bílinn og
hann var tilbúinn eftir
þrjá daga. Sölumaður-
inn sem heitir Dagur
gekk frá öllu fljótt og
örugglega og allt stóðst
eins og stafur á bók.
Bíllinn kominn á götuna
og tilbúinn eins og um
var samið. Þarna var
boðið upp á kaffi meðan
gamli bíllinn var skoð-
aður og allt gekk fljótt
og örugglega. Sérstak-
lega góð þjónusta hjá
Toyota, til hamingju
með ykkar starfsmenn.
Bestu þakkir.
Ánægður
viðskiptamaður.
Tapað/fundið
Loðhúfa
SVÖRT kvenmannsloð-
húfa fannst nýlega í
Fellsmúla. Eigandinn
getur vitjað húfunnar í
s: 553 5364.
HÖGNI HREKKVÍSI
Víkverji skrifar...
UM FÁTT hefur verið meira
rætt á meðal fólks um liðna
helgi heldur en verðstríðið á raf-
tækjamarkaðnum, sem hófst með
opnun hins nýja stórmarkaðar Elkó
í Kópavogi. Talsmenn þeirra fyrir-
tækja, sem fyrir eru og hafa ýmist
selt sjónvarpstæki, ísskápa, eldhús-
tæki eða önnur heimilistæki, hafa
verið önnum kafnir við að útskýra,
hvernig hin nýja verzlun fari að því
að bjóða svo lágt verð. Þetta séu
opnunartilboð. Þeir séu að selja vör-
ur undir kostnaðarverði og það
muni ekki standa lengi, þjónustan
við notendur almennt muni versna
o.s.frv.
Allar þessar röksemdir þekkja
neytendur frá fyrri tíð. Lengi var
matvöruverð svo hátt, að fólki
blöskraði þegar það bar verð hér
saman við verð í öðrum löndum. Nú
hefur töluverð breyting orðið á því,
þótt hún geti orðið enn meiri og
augljósari, þegar sú einokun, sem
enn er fyrir hendi, fyrst og fremst í
sölu landbúnaðarafurða, verður
endanlega rofin.
Á síðasta árí varð hrun í trygg-
ingariðgjöldum á bflum. Enginn
getur haft það af Árna Sigfússyni,
oddvita sjálfstæðismanna í borgar-
stjórn Reykjavíkur og formanni Fé-
lags ísl. bifreiðaeigenda, að hann á
mestan þátt í því. Tryggingafélögin,
sem fyrir eru hafa að vísu verið iðin
við að útskýra fyrir viðskiptavinum
sínum, að þessi dýrð geti ekki staðið
lengi en það á eftir að koma í ljós.
Póstur og sími hefur haft lítið
fýrir því að útskýra há símgjöld á
milli landa á undanförnum árum,
sem hafa náttúrlega verið svívirði-
legt okur og eru raunar enn.
Bandarískt fyrirtæki, sem rekur
starfsemi á íslandi leggur áherzlu
á, að símtöl við starfsmenn hér á
landi eigi að jafnaði upptök sín í
Bandaríkjunum vegna þess, að
þannig kosta þau ekki nema lítinn
hluta þess, sem þau kosta, ef hringt
er héðan. Allt í einu var tilkynnt
fyrir nokkrum dögum að Póstur og
sími mundi lækka símgjöld af
GSM-símum. Hvers vegna? Vegna
þess, að erlent símafélag er að
hefja starfsemi hér á næstu mánuð-
um.
xxx
RÁTT fyrir allar þær skýring-
ar, sem raftækjasalar hafa
komið með síðustu daga er alveg
ljóst, að verðlag á þessum tækjum
mun lækka til frambúðar, þótt það
verði kannski ekki jafnlágt og það
hefur verið þessa fýrstu daga, sem
Elkó starfar. Hvaða sögu segir það?
Að kaupendur þessara tækja hafi
verið látnir borga óhóflega hátt
verð á undanförnum árum? Hvaða
sögu segir verðhrunið á bflatrygg-
ingum? Að tryggjendur hafí verið
látnir borga óhófleg iðgjöld á und-
anfömum árum?
Það er nærtækt að ætla, að ein-
angrun landsins og skortur á virkri
samkeppni í marga áratugi hafi átt
veralegan þátt í því að lífskjör hafí
verið lakari hér en í mörgum nálæg-
um löndum vegna þess, að verðlag
hafi verið óhóflega hátt.
x x x
HVENÆR verður næsta áhlaup
gert á vígi einokunar og fá-
keppni? Hvar verður það gert?
Fataverzlun? Flugsamgöngum?
Skipaflutningum? Bankastarfsemi?
Olíu- og benzínsölu?
Erlendir kaupsýslumenn, sem
hingað koma furða sig á mikilli yf-
irbyggingu í íslenzkum fyrirtækj-
um. Það hefur kannski tekizt að
halda henni uppi í skjóli fákeppni
og óhóflegs verðlags. Allavega er
ljóst, að neytendur hljóta að spyrja
margra spurninga, þegar þeir sjá
allt í einu slíkt verðfall og orðið
hefur um þessa helgi á tækjum,
sem nú orðið eru nauðsynleg á
hverju heimili.