Morgunblaðið - 10.03.1998, Page 6
6 ÞRIÐJubAÖUR 10. MÁRZ 1998
MORGUNBLADIÐ
FRÉTTIR
Dagpeningar vegna lækninga erlendis
ilL.
Bankaeftirlit Seðlabanka íslands
Sömu reglur og um dag-
peninga ríkisstarfsmanna
GREIÐSLUR til sjúklinga og fylgd-
armanna vegna lækninga erlendis
nema nú 332 þús. krónum á mánuði
en eftir þrjá mánuði lækkar upphæð-
in um fjórðung niður í 249 þús. krón-
ur ámánuði.
í viðtali í sunnudagsblaði Morgun-
blaðsins kom fram hjá Sigurbjörgu
Ólafsdóttur, móður Torfa Lárusar
sem hefur dvalið lengur en þrjá
mánuði til lækninga í Boston í
Bandaríkjunum, að eftir þrjá mánuði
lækkuðu dagpeningar Trygginga-
stofnunar um 100 þús. á mánuði.
Sagði hún þetta einkennilega ráð-
stöfun því ekki batnaði fjárhagur
fjölskyldunnar eftir langa dvöl er-
lendis.
Lækka um fjórðung
Kiistján Guðjónsson, deildarstjóri
sjúkratryggingadeildar hjá Trygg-
ingastofnun ríkisins, sagði að í regl-
um Tryggingaráðs um ferðastyrk
sjúklinga í utanlandsferðum kæmi
fram að greiðsla dagpeninga færi
eftir sömu reglum og gilda um þjálf-
un, nám og eftirlitsstörf ríkisstarfs-
manna á ferðalögum erlendis og er
það ferðakostnaðarnefnd fjármála-
ráðuneytisins, sem sett hefur þessar
reglurnar.
I reglum ferðakostnaðarnefndar
frá því í júní 1997 segir: „Fari dvöl
erlendis fram úr þremui- mánuðum
skulu dagpeningar lækka um fjórð-
ung þann tíma sem dvalið er lengra
en þrjá mánuði.“ Sagði Kristján að
sennilega væri hugsunin að baki
lækkunar sú að fylgdarmenn væru
orðnir hagvanir og búnir að koma
sér fyrir á ódýrari hátt í stað þess að
búa á dýrum hótelum.
Sjaldan kvartað
„Það er sjaldan sem kvartað hefur
verið undan dagpeningum,“ sagði
hann. „Það er annað foreldrið, sem
fær dagpeninga og það er talið nóg
enda verður oft að sjá um systkin
sem skilín eru eftir heima.“ Auk þess
sem fylgdarmaður fær dagpeninga
eru greiddir dagpeningai- til sjúk-
lingsins ef hann dvelur utan sjúkra-
hússins í einhver tíma. Ef dvalið er
lengur en einn mánuð erlendis eru
heimiluð skipti á fylgdarmanni og er
fargjaldið greitt fyrir þann sem tek-
ur við.
Sagði Kristján að árið árið 1996
hafi Tryggingastofnun greitt sam-
tals 62 millj. vegna dagpeninga og
fargjalda fyrir sjúklinga og fylgdar-
menn. Upplýsingar um kostnað fyrir
árið 1997 liggja ekki fyrir. „Sjúkra-
húskostnaður og fai’gjöld eru greidd
að fullu,“ sagði hann. „Þetta er
sennilega hvergi betra en á íslandi
og hvergi greitt meira.“
Ekki ástæða til aðgerða
Sérblað Le Monde um Norðurlönd
EINN veiðimanna dorgveiðikeppninnar að störfum.
Rússi sigraði
í dorgveiði
RÚSSINN Boris Artenaiev sigr-
aði örugglega á íslandsmóti
Dorgveiðifélags íslands sem
haldið var síðastliðinn laugardag
á Reynisvatni. Keppendur höfðu
fjóra klukkutíma til að ná sér í
eins mikinn afla og þeir mögu-
leika gátu og á þessum stutta
tíma náði Artenaiev, sem er
starfsmaður rússneska sendi-
ráðsins í Reykjavík, sér í 20 fiska
sem alls vógu 17 kíló.
Keppt var í tveimur fiokkum,
yngri og eldri flokki, og voru
veitt verðlaun í hvorum fiokki
fyrir stærsta fiskinn, flestu físk-
ana auk sérstakra verðlauna til
þess sem veiddi minnsta fisk
keppninnar. Keppendur voru á
öllum aldri, að sögn Björns G.
Sigurðssonar, formanns Dorg-
veiðifélags Islands, og mun sá
yngsti hafa verið 4 ára en sá elsti
79 ára.
Dorgveiðifélagið lánar bæði
beitu og stöng til dorgveiði á
BORIS Artenaiev vann íslands-
meistaratitilinn 1998 í dorgveiði.
Reynisvatni, auk þess sem það
borar gat í ísinn fyrir veiði-
menn.
A
Arekstur í
hálku á
Gullinbrú
LOKA varð Gullinbrú í hátt í
klukkutíma um kvöldmatar-
leytið á sunnudag vegna
áreksturs tveggja bifreiða.
Mikil hálka var þegar
óhappið átti sér stað og eru
bílamir mikið skemmdir.
Fimm vora fluttir á slysadeild
en að sögn læknis þar fóra
þeir allir til síns heima á
sunnudagskvöld.
vegna sýndarviðskipta
BANKAEFTIRLIT Seðlabanka ís-
lands hefur komist að þeirri niður-
stöðu að ekki sé ástæða til aðgerða
vegna viðskipta sem áttu sér stað
með hlutabréf í nokkram félögum
síðpstu daga ársins 1997.
í tilkynningu frá Seðlabankanum
kemur fram að Verðbréfaþing hafi
ákveðið að vísa nokkrum málum til
bankaeftirlits Seðlabanka íslands
til frekari athugunar. Eftirlitið hefði
kannað ítarlega viðskipti með hluta-
bréf nokkurra félaga sem fram
hefðu farið í lok síðasta árs og hefði
athugunin beinst að því kanna hvort
um hefði verið að ræða sýndarvið-
skipti með hlutabréf umræddra fé-
laga. Athuguninni sé nú lokið og sé
niðurstaðan að ekki sé talin ástæða
til frekari aðgerða vegna þessara
viðskipta.
Þórður Ólafsson, foi’stöðumaður
bankaeftirlits Seðlabanka íslands,
sagði að þrátt fyrir þessa niður-
stöðu hefðu viðbrögð Verðbréfa-
þings á sínum tíma verið fyllilega
eðlileg og réttmæt. Hann vildi ekki
upplýsa hvað athugunin hefði tekið
til margra fyi'irtækja né um hvaða
fyrirtæki væri að ræða.
Samherji hf. á Akureyri er eitt
þeirra fyrirtækja sem athugunin
tók til. Þorsteinn Már Baldvinsson,
framkvæmdastjóri Samherja hf.,
sagði aðspurður að þessi niðurstaða
væri bara í samræmi við það sem
hann hefði átt von á. Sér þætti mið-
ur að þetta mál hefði komið upp.
Það væri alveg ljóst að þetta mál
hefði skaðað fyrirtækið. Það sem
eftir stæði hins vegar í sínum huga
væri að forstjóri Verðbréfaþings
hefði skaðað sig með því að vísa
málinu til bankaeftirlitsins.
Aðspurður hvort einhver eftirmál
yrðu af hálfu fyrirtækisins vegna
þessa sagði Þorsteinn Már svo ekki
vera.
Nýkomið ítalskt fleece
Gæðaefni
Litir: Rautt, dökkblátt, svart, gult,
hermannagrænt og beinhvítt.
Smásöluverð 1.195 kr. metrinn.
bgUÖ-búðirnar
Islenskir hestar
á forsíðu
París. Morgunblaðið.
HESTAR og fuglar eru fulltrúar
Islands í sérblaði franska dag-
blaðsins Le Monde um Norðurlönd
sem kom út á laugardaginn. Ein
opna er helguð hveiju landi, með
myndarlegri grein á hvorri síðu og
svo hagnýtum upplýsingum, eins
og því, hvað ísland varðar, að best
sé að koma þar frá miðjum júní
fram til ágústloka. Ljósmynd
Ragnars Axelssonar, af íslenskum
hestum á leið yfir á, prýðir forsfðu
þessa sérblaðs og önnur mynd
Ragnars, af skúmi á flugi, er inni í
blaðinu. Þar er líka ljósmynd af
kindum sem smalað er af fjalli.
íslenski hesturinn er sagður
táknrænn fyrir „konungdæmi víð-
lendisins". Lítill og sterkbyggður,
ratvís og áreiðanlegur. Talað er
um fimm gangtegundir, sem varð-
veist hafi vegna þess að kynblönd-
un hafi engin orðið frá landnáms-
tíð. Þannig sé hesturinn „beinn af-
komandi víkinga". Þessu líkir
greinarhöfundurinn Patrick
Francés við tungumálið; fólkið tali
mál náskylt miðaldaíslensku og
geti enn lesið fornsögurnar.
í grein um fugla á íslandi segir
að þeir séu landsmönnum kærir,
sérstaklega þegar dúnninn seljist
fyrir háar upphæðir, eins og af
æðarfugli. Þessi grein geymir
ýmsan fróðleik um sögu og nátt-
úru landsins, sagt er frá Vest-
mannaeyjum og lundanum þar, frá
lóunni sem boði vorið og frá lands-
lagi sem taki breytingum öld af
öld vegna eldgosa. Talað er um
hringveginn og byijað neðan
Vatnajökuls, svo er haldið norður
að Öskju og Mývatni og sagt frá 15
andategundum á vatninu.
Greinarhöfundurinn Jean-Pierre
Reymond vekur á einum stað at-
hygli á því að íslendingar leggi sér
ekki endurnar til munns, kannski
vegna þess að önd í appelsínusósu
jafngildi ijúpu á frönskum jóla-
borðum. Svo bætir hann við að
landsmenn skilji eftir hrognasekk
hörpudisks, sömuleiðis eftirsótt
góðmeti f Frakklandi, forðist að
borða fisk sem þeim þykir ljótur,
eins og skötusel, en telji svartfugl-
skæfu og lundabringur lostæti.
Loks er á opnunni lítil klausa
um næturlíf í Reykjavík, „paradís
nátthrafna“. Sagt er að Banda-
rfkjamenn sem vita hvað klukkan
slær þekki þetta leyndarmál,
tfmaritið Newsweek hafi til dæm-
is nýlega talið Reykjavík meðal
æsilegustu borga. Lesendum
Monde er sagt að helgarnar séu
bestar í þessu sambandi, óvenju-
mörg vertshús séu á litlu svæði í
miðborginni og ógjörningur að
taka einhver útúr því breytingar
séu örar. Eini gallinn sé að öllu sé
lokað klukkan þrjú, en þá þyki
mörgum, að minnsta kosti heima-
mönnum, nóttin ung.