Morgunblaðið - 10.03.1998, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998 19
SAMTÖK verslunarinnar - Félag ís-
lenskra stórkaupmanna hyggjast
senda Eftirlitsstofiiun EFTA (ESA) í
Brussel nýja kæru vegna álagningar
vörugjalda hérlendis sem þau telja að
eigi ekki rétt á sér. Þá standa þau
fyrir málarekstri í Héraðsdómi
Reykjavíkur þar sem hið opinbera er
krafið um endurgreiðslu oftekinna
vörugjalda sem nemur álögðum vöru-
gjöldum á 25% heildsöluálag.
Þetta kom fram á aðalfundi Sam-
taka verslunarinnar - FÍS, sem
haldinn var síðastliðinn fóstudag.
Þar fjallaði Jón Asbjörnsson, for-
maður samtakanna, um helstu við-
burði liðins starfsárs í atvinnu- og
viðskiptalífi og staldraði m.a. við ný-
lega ógildingu samkeppnisráðs á
kaupum Myllunnar á Samsölubak-
aríi. Sagði hann að fákeppni og ríkis-
einokun væru á undanhaldi í þjóðfé-
laginu og Samkeppnisstofnun hefði
gefið aðvaranir og fellt ýmsa góða
Bréf í
Compaq
falla í verði
New York. Reuters.
HLUTABRÉF í Compaq, umsvifa-
mesta framleiðanda einkatölva í
heiminum, féllu í verði í gær. Fyrir-
tækið hefur varað við því að það
muni koma slétt út á fyrsta ársfjórð-
ungi, en í Wall Street hafði verið bú-
izt við hagnaði.
Tvö önnur hátæknifyrirtæki, Intel
og Motorola, hafa varað við slakri af-
komu á fyrsta ársfjórðungi og til-
kynning Compac hefur ýtt undir
lækkun bréfa í tæknigeiranum.
Verð hlutabréfa í Compaq lækkaði
um 2,31 dollar í 25,31 í kauphöllinni í
New York. Bréf annarra einkatölvu-
framleiðenda lækkuðu einnig í verði.
Bréf í Dell Computer Corp. lækkuðu
um 4 dollara í 65,25 og bréf í Gateway
2000 lækkuðu um 81 sent í 36,9375.
Nasdaq hlutabréfavísitalan, sem
byggist að miklu leyti á tæknibréf-
um, lækkaði um 4,52 punkta í
1748,97, en Dow Jones visitalan
hækkaði um 28,89 punkta í 8598,28.
Dræm sala í Norður-Ameríku
Compaq sagði í yfirlýsingu á
fóstudag að sala á tölvum til fyrir-
tækja í Norður-Ameríku hefði verið
dræm. Sérfræðingar teja að ein
ástæðan séu vandamálin í Asíu.
Compaq hefur verið eftirlæti fjár-
festa í Wall Street, en nú gætir var-
kárni í garð fyrirtækisins og mála
sem tengjast kaupum þess á Digital
Equipment Corp. fyrir 9,6 milljónir
dollara.
Eftirspurn er engin frá Asíu. Fyr-
irtæki hafa frestað tölvukaupum þar
til Microsoft hefur sölu á nýju stýri-
kerfi síðar á þessu ári og viðgerðir
tæknideildar fyrirtækja á tölvukerf-
um til að bjarga þeim frá hruni árið
2000 kosta stórfé að sögn sérfræð-
inga. Samspil þessara þátta kom
Compaq í opna skjöldu.
Sterkt, auðvelt, fljótlegt
- á frábæru verði
SINDRI
V E R S L U N
BQRGARTUNI 31, SIMI 575 OOOO
Samtök verslunarinnar grípa til aðgerða í vörugjaldsmálinu
Undirbúa málarekstur
hjá ESA í Brussel
úrskurði, en nýleg ógilding á kaup-
samningi tveggja fyrirtækja væri af-
ar langsótt. Of mikil afskipti af við-
skiptalífinu væru því umdeilanleg að
þessu leyti.
Jón vék einnig að smíði fyrirhug-
aðs hafrannsóknaskip sem greitt
verður af útgerðinni. „Kvótakóng-
amir og sjávarútvegsráðuneytið
hafa komið sér saman um sjávarút-
vegsstefnuna, hið umdeilda kvóta-
kerfi sem stutt er af fiskifræðingum
Hafrannsóknastofnunar, sem friðun-
araðgerð meðan aðrir fiskifræðingar
mæla með sóknarstýringu. Er ekki
sjálfstæði þessara vísindamanna
okkar, fiskifræðinganna, skert sem
launþegar sjávarútvegsráðuneytis-
ins og starfandi á fljótandi rannsókn-
arstofu frá kvótaeigendum?"
Afnám vörugjalda er eitt af stóru
málum Samtaka verslunarinnar en
að sögn Jóns skrumskæla þau kostn-
aðarvitund neytenda og hamla auk-
inni verslun erlendra ferðamanna
hérlendis. „Vörugjöldin eru leifar
gamaldags og úreltra fjáröflunar-
leiða ríkisvaldsins sem eru ekki á
nokkum hátt í takt við þá tíma sem
nú fara f hönd, þar sem frjálsræði í
viðskiptum án landamærahindrana
ræður ríkjum og alþjóðavæðing með
alþjóðamarkaðssetningu er boðskap-
ur dagsins. Samtökin undirbúa nú
frekari aðgerðir í vömgjaldsmálinu,
þar á meðal er að senda ESA í
Brassel nýja kæra vegna þessa máls.
Nýlega var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur endurkröfumál á hend-
ur hinu opinbera um endurgreiðslu
oftekinna vöragjalda sem nemur
álögðum vöragjöldum á hið reiknaða
25% heildsöluálag."
Á aðalfundinum lýstu Samtökin
yfii- andstöðu sinni við innheimtu
markaðsgjalds og undran sinni á
innheimtu iðnaðarmálagjalds, sem
rennur til Samtaka iðnaðarins.
„Skattálagning og opinber innheimta
upp á 100 milljónir, sem ganga til
hagsmunasamtaka, ætti að heyra
sögunni til og stenst tæplega samn-
inga okkar um hið evrópska efna-
hagssvæði," segir í ályktun fundar-
ins um málið.
Samtökin fógnuðu niðurstöðu
samkeppnisráðs í greiðslukortamál-
um og sögðu hana samrýmast stefnu
Evrópusamtaka verslunar í málefn-
um greiðslumiðlunar.
3ja ára ábyrgð á tölvu.
'w-. ’ ' ■ W'-f.
Soundblaster samhæft hljóðkort.
233 - 300 MHz Intel Pentium II örgjörvl
með MMX 512KB Cache minni.
3.5” disklingadrif.
15“ 17“ 19“ 21" tölvustýrðir,
hágæða lítaskjáir
Nýjasta tækni (hraðvirkum
Ultra-DMA hörðum diskum
32MB DIMM SDRAM minni (10 ns)
Digital PC 5510
mmm Pentium II
Verð frá: 179.995,-
Þú þarft ekki að sætta þig við
neitt minna en Digital gæði
Hún er komin, tölvan sem slær allar aðrar tölvur út Nú hefur
þú tækifæri til að eignast gæðatölvu þvf við höfum náð mjög
hagstæðum samningum við Digital. Þess vegna getur þú fengið
Digital PC 5510 Pentium II á hálfgerðu Asíuverði. Hún er nýjasta
afkvæmi Digital, ameríska tölvurisans, tæknilega fullkomin með
mikla afkastagetu.
Vegna einstaks gæöaeftirlits og samprófunar er bilanahætta i lágmarki
og svo ábyrgist Digital tölvurnar 13 ár.
Hringdu f okkur eða Ifttu inn á heimasíðuna okkar:
uuu • digital • is ogfáðu tilboð.
DIGITALA ÍSLANDI
Vatnagörðum 14 • síml 533 5050 • fax 533 5060 • http/Zwww.digftal.te