Morgunblaðið - 10.03.1998, Qupperneq 46
46 ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, uppeldisfaðir og afi,
KRISTINN ÓLAFSSON,
Holti,
Grindavfk,
andaðist á Landspítalanum sunnudaginn
8. mars.
Ásdís Vigfúsdóttir,
Þorvaldur Jón Kristinsson, Ellen Maja Tryggvadóttir,
Ragnar Heiðar Kristinsson, Ragnheiður Katrín Thorarensen,
Ólafur Kristinsson, Þorbjörg Inga Jónsdóttir,
Hulda Björk Ingibergsdóttir,
Kristín Sigríður Þorvaldsdóttir, Kristinn Richardsson
og afabörn.
Ástkær sambýliskona mín, móðir okkar og
tengdamóðir,
INGUNN ÓLÖF ÓLAFSDÓTTIR,
Hátúni 10B,
Reykjavík,
lést á heimili sínu sunnudaginn 8. mars.
Jarðsungið verður frá Fossvogskirkju föstu-
daginn 13. mars kl. 13.30.
Einar Sigurðsson,
Sigríður Ingunn Bragadóttir,
Auður Bragadóttir,
Sigurgeir Bragason, Sigrún Elva Kristinsdóttir,
Bragi Bragason.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
KRISTJÁN GUÐMUNDSSON
verslunarstjóri,
Ásholti 2,
Reykjavík,
lést á Vífilsstaðaspítala laugardaginn 7. mars.
Jarðarförin auglýst síðar.
Ástríður Ingvarsdóttir,
Ingibjörg Kristjánsdóttir, Sveinn Fjeldsted,
Ragnheiður Kristjánsdóttir, Már Jóhannsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og bróðir,
AÐALSTEINN BERNHARÐSSON,
Hafnartrúni 4,
Siglufirði,
lést á Landspítalanum sunnudaginn 8. mars.
Guðbjörg Sjöfn Eggertsdóttir,
Sofffa Aðalsteinsdóttir,
Sigrfður Vala, Gunnar Frans Brynjarsson,
barnabörn og systkini.
+
Hjartkær eiginmaður minn og faðir okkar,
PÁLL MAGNÚSSON,
Hvassafelli,
Austur-Eyjafjöllum,
lést á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnudaginn
8. mars.
Vilborg Sigurjónsdóttir
og börn.
+
Elskuleg móðir okkar,
GUÐMUNDA VIGFÚSDÓTTIR,
andaðist á elli- og hjúkrunarheimilinu Grund
sunnudaginn 8. mars.
Jaróarförin auglýst síðar.
'0
Arnfríður Hermannsdóttir,
Fjóla Hermannsdóttir.
Afmælis-
og minn-
ingar-
greinar
MIKILL fjöldi minningar-
greina birtist daglega í Morg-
unblaðinu. Til leiðbeiningar
fyrir greinahöfunda skal eft-
irfarandi tekið fram um lengd
greina, frágang og skilatíma:
Lengd greina
Um hvem einstakling birt-
ist ein uppistöðugrein af hæfi-
legri lengd á útfarardegi, en
aðrar minningargreinar um
sama einstakling takmarkast
við eina örk, A-4, miðað við
meðallínubil og hæfilega h'nu-
lengd, - eða 2200 slög (um 25
dálksentimetrar í blaðinu).
Tilvitnanir í sálma eða ljóð
takmarkast við eitt til þrjú er-
indi.
Formáli
Æskilegt er að minningar-
greinum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, er fædd-
ur, hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka,
og böm, skólagöngu og störf
og loks hvaðan útfór hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram
í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í greinunum
sjálfum.
Undirskrift
Greinarhöfundar eru beðnir
að hafa skímarnöfn sín en
ekki stuttnefni undir greinun-
um.
Frágangur
og móttaka
Mikil áherzla er lögð á að
handrit séu vel frá gengin, vél-
rituð eða tölvusett. Sé handrit
tölvusett er æskilegt að disk-
lingur fylgi útprentuninni. Það
eykur öryggi í textamenferð
og kemur í veg fyrir tvíverkn-
að. Þá er ennfremur unnt að
senda greinar í símbréfi - 569
1115 - og í tölvupósti (minn-
ing@mbl.is). Vinsamlegast
sendið greinina inni í bréfinu,
ekki sem viðhengi.
Skilafrestur
Eigi minningargrein að
birtast á útfarardegi (eða í
sunnudagsblaði ef útför er á
mánudegi), er skilafrestur
sem hér segir: í sunnudags-
og þriðjudagsblað þarf grein
að berast fyrir hádegi á föstu-
dag. í miðvikudags-, fimmtu-
dags-, föstudags- og laugar-
dagsblað þarf greinin að ber-
ast fyrir hádegi tveimur virk-
um dögum fyrir birtingardag.
Berist grein eftir að skila-
frestur er útrunninn eða eftir
að útfór hefur farið fram, er
ekki unnt að lofa ákveðnum
birtingardegi.
PALMI
FRIÐRIKSSON
+ Pálmi Friðriks-
son fæddist á
Svaðastöðum í
Skagafirði 21. des-
ember 1943. Hann
lést í Sjúkrahúsi
Skagfirðinga 8. janú-
ar sfðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Sauðárkrókskirkju
17. janúar.
Ljúfur drengur,
sem gott var að kynn-
ast, er genginn. Það
var vor í lofti og hlýr
andblær strauk kinn
unga mannsins, þegar hann steig
inn í bílinn sinn á hlaðinu á Svaða-
stöðum. Hann var nítján ára,
hraustur og duglegur. Hafði alist
upp í hinu gamla en þægilega
sveitasamfélagi svo sem margir
forfeður hans frá ómunatíð. Lífið
brosti við og tækifærin biðu; aðeins
þurfti að velja og hafna. Hann
hafði nú í vetur lokið vélstjóraprófi
og stundað í vor sjó frá Grindavík.
Flest benti til þess að æskuárin
væru að baki og alvara lífsins tæki
við.
Þar sem hann ók niður Brotholt-
ið varð honum hugsað til stúlkunn-
ar ungu sem beið hans. Hún var til-
búin að takast á við lífið og tilver-
una með honum. Hann jók aðeins
við bensíngjöfina og ók léttur í
lundu niður Brotholtið. Ungi mað-
urinn, sem hér ók úr hlaði, var
æskuvinur minn og frændi, Pálmi
Friðriksson á Svaðastöðum. Sonur
hjónanna þar, Ástu Hansen og
Friðriks Pálmasonar. Við kynnt-
umst nokkuð sem ungir drengir en
meira eftir að Pálmi fór að fara að
heiman. Eg sá fljótt að þama fór
mannsefni svo sem hann átti kyn
til. Okkar leiðir lágu saman á ver-
tíð í Vestmannaeyjum og síðan í
Grindavík. Þá leigðum við saman
herbergi á Akureyri, þegar Pálmi
var þar við nám í vélstjóm. Allt
okkar samstarf var á einn veg, lip-
urt, ánægjulegt og gefandi. Pálmi
var alltaf kátur og glaður og fyndi
hann að eitthvað amaði að manni
reyndi hann að grafast fyrir um
vandamálið, ræða það og greiða úr
því, væri það mögulegt.
Vel man ég þær stundir, þegar
hann kom til mín og vildi lífga upp
á tilveruna hjá mér. Þá lagði hann
gjarnan höndina á öxl mér og hóf
að syngja hið gullfallega lag eftir
Pétur Sigurðsson við ljóðið „Ætti
ég hörpu hljómaþýða“, eftir afa
hans Friðrik Hansen. Sérstaka
áherslu lagði hann á annað erindið
sem hljóðar svo:
Lífið allt má léttar falla,
ljósið vaka’ í hugsun minni,
ef ég má þig aðeins kalla
yndið mitt í fjarlægðinni.
Hlýjan og góðvildin streymdi til
mín og lífið brosti aftur við. Svona
var Pálmi. Ég held að honum hafi
liðið best á þeim stundum, þegar
honum auðnaðist að hjálpa öðmm
og styðja svo sem hann mátti.
Þessar stundir í lífi hans urðu líka
margar.
Pálmi
myndarlegm-. Honum
var létt um hreyfíngar
og skarpur var hann
til verka og verkfræð-
ingur af Guðs náð.
Hann sá álltaf einföld-
ustu og auðveldustu
lausnirnar á hverju
viðfangsefni. Hann var
greindur vel og ágæt-
ur námsmaður. Bjart-
sýni var honum í blóð
borin og sá hann alltaf
leið út úr hveijum
vanda. Hann var frá-
bær félagi og vinur,
sem flutti með sér
gleði og góðvild hvar sem hann fór.
Það mætti segja um Pálma eins
og Armann heitinn Dalmannsson
sagði um látinn vin sinn:
Kringum hann var löngum líf og Qör,
léku á vörum spumingar og svör.
Stráka og jafhvel stelpur að sér dró,
strákurinn sem inn’ í honum bjó.
Það var sumarið 1996 sem Pálmi
greindist með krabbamein í lunga.
Hann tók þeirri frétt með miklu
æðruleysi og karlmennsku og var
lengst af í engum vafa um að hann
og lífið mundu sigra. En enginn má
sköpum renna. Útför Pálma fór
fram frá Sauðárkrókskirkju laug-
ardaginn 17. janúar sl. Honum
fylgdu síðasta spölinn á milli fimm
og sex hundruð manns. Slíkar voru
vinsældir hans.
Stúlkan unga sem beið hans,
þegar hann ók niður Brotholtið,
var Svala Jónsdóttir frá Molastöð-
um í Fljótum. Þau hafa síðan staðið
hlið við hlið og stutt hvort annað í
blíðu og stríðu. Það var Pálma mik-
ið gæfa að kvænast svo góðri konu.
Saman hafa þau byggt sér fallegt
heimili að Háuhlíð 6 á Sauðárkróki
og komið upp fjórum myndarleg-
um og vel gerðum börnum.
Vinur minn. Þú hefur gengið
þína lífsgöngu hér á jörð og hverf-
ur nú til nýrra heimkynna og ann-
aiTa starfa. Ég veit að þar mun þér
vegna vel. Ég þakka þér samfylgd-
ina og fölskvalausa vináttu sem
aldrei bar skugga á. Við sem eftir
sitjum erum fátækari en um leið
ríkari að hafa átt þig að vini og
förunaut. Aldraður faðir syrgir nú
annan son sinn og systir sinn ann-
an bróður og bið ég Guð að leiða
þau og styrkja. A þau hefur mikið
verið lagt. Og Svala mín, Guð
styrki þig og bömin ykkar á þess-
um vegamótum. Megi andblær
vorsins strjúka þér um kinn.
Góður frændi er genginn, sem
gott er að minnast.
Sigtryggur Jón Björnsson
frá Framnesi.
Crfisdrykkjur
'VcWngahú/ið
GRPi-mn
Sími 555-4477
Erfidrykkjur
u Sími 562 0200
LXXXXXIXXIIXl