Morgunblaðið - 10.03.1998, Page 62
62 ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK I' FRÉTTUM
Morgunblaðið/Mats Wibe Lund
„ÞESSI mynd er tekin árið 1990 og er frá Hattveri sem er sunnan við Landmannalaugar. Þetta er gríðarlega skemmtilegt svæði.“
„ÚTSÝNI yfir Morsárjökul. Það
sést enginn munur á því hvort
maður tekur myndir í flugvél
eða þyrlu. Eini munurinn við
tökur er að í þyrlu hefur maður
miklu opnara svæði.“
T
„ÞESSI mynd er
tekin í Ketildöl-
um í Arnarfírði.
Þetta er mjög fal-
legt mótíf. Eg er
Norðmaður og
hélt að dalirnir
hétu í höfuðið á
einhverjum Katli
en ekki vegna
ketilslögunar
sinnar."
SPORTHÖLLIN
SÍMAR 554 3040 OG 895 0795
Einar Vilhjálmsson SÍMI 896 7080
LÍKAMSRÆKTARSTÖÐ
FYRIR ALLA
BETRI LÍFSTÍLL - BÆTT HEILSA
BIKINY - VORNÁMSKEIÐ
6 vikna fitubrennslunámskeið með fullkomnu
aðhaldi, mælingu og vigtun. Matarlistar og
fyrirlestrar. Ljósatímar innifaldir.
VIÐ BJÓÐUM UPP Á
EINKAÞJÁLFUN.
Þjálfarar Einar Vilhjálmsson og Ragna Backman.
nýjung
Einkaþjónusta
fyrir félög og hópa á laugardögum eftir kl. 16.00.
Þið ráðið ferðinni í fullkominni líkamsræktarstöð
þar sem boðið er upp á gufubað,
heitavatnsnuddpott, nudd og nálarstungu.
Danskennslu ef óskað er. Þekking fagfólks í
næringarfræðum og bakmeinum o.fl.
Að loknu heilsuefli er boðið upp á
hlaðborð og léttar veitingar.
Þinn er staðurinn frá kl. 16.00 og frameftir kvöldi
ef óskað er.
Nitromax og Sportshake
ásamt alhliða bætiefnum.
Uppl. gefur Einar Vilhjálmsson
Viðskiptavinir athugið breyttan opnunartíma
á sunnudögum verður opið frá kl. 13-16.
SPORTHÖLL.IN
SMIÐJUVEGI 1, KÓPAVOGI.
Úr myndaalbúmi Ijósmyndara
Leggur
áherslu á trú-
verðugleika
MATS Wibe Lund er landskunnur Ijósmyndari
sem á áratuga feril að baki. Hann átti lengi vel
eigin flugve'I og hefur tekið mikið af landslags-
myndum úr Iofti. Að hans sögn eru átthagamynd-
ir sívinsælar og enginn skortur á myndefni. Mats
hefur í mörg ár verið með stúdíó og vinnuað-
stöðu við Laugaveg og þar eru nokkrar af lands-
lagsmyndum hans til sýnis.
„Ég lærði ljósmyndun í Þýskalandi og Frakk-
landi á sínum tíma. Ég flutti til íslands fyrir fullt
og allt árið 1966 en þá hafði ég komið hingað um
25 sinnum. Árið 1970 byijaði ég með portrett-
myndatökur og var við það í 12-14 ár og hafði
mjög gaman af. Þegar ég hætti því sneri ég mér
alfarið að loftljósmyndun og landslagsmyndatöku
á jörðu niðri. Eg átti lengi vel eigin flugvél og
það var atvinnutæki sem varð að nýta.“
Mats segist leggja mikið upp úr því að mynd-
irnar hans séu trúverðugar. Af þeim sökum setur
hann myndirnar ekki í tölvu til að fegra þær eða
breyta. „Mér finnst að ljósmyndarar sem nota
tölvur með þessum hætti eigi að merkja myndirn-
ar á viðeigandi hátt. Fólk á að fá að vita hvort
myndirnar hafa verið meðhöndlaðar eða ekki.“
„ÞESSI mynd er tekin að kvöldlagi á Hvestusandi í
Arnarfirði. Mér finnst svo gaman að ferðast þarna
um og það er ekki komið sumar nema maður kom-
ist vestur. Þetta mótíf er aldrei eins, frá einu útfalli
til þess næsta. Munstrið í sandinum stýrist af
vindáttinni hveiju sinni.“
Eftir áralangan feril og mikil ferðalög um
landið segist Mats hafa kynnst mörgu góðu fólki.
„Það eru margir sem kunna vel að meta myndir
sem ég hef tekið af átthögum þeirra. Það er ekk-
ert sem veitir mér meiri gleði en að hitta fólk í
hjartastað með fallegri mynd af bænum þeirra
eða sveit.“
„ÞETTA er tekið á Hrafntinnuskeri og sést í átt til Vest-
mannaeyja sem er reyndar í skýjaþykkni þarna. Þetta er
mjög fallegt mótíf.“
„Gleði að
hitta fólk
í hjarta-
stað með
fallegri
mynd“