Morgunblaðið - 10.03.1998, Blaðsíða 68
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1
ÞRIÐJUDAGUR 10. MARZ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Förg’un olíugeyma af
vamarsvæðinu
Ekki
^ eytt eins
og samið
var um
KOMIÐ hefur í ljós að um það bil
helmingi af alls 16 olíutönkum, sem
fjarlægðir hafa verið af vamar-
svæðinu í Keflavík skv. sérstöku
samkomulagi á milli vamarliðsins
og íslenskra aðalverktaka hf., var
aldrei fargað eins og gert var ráð
fynr í samkomulaginu.
Islenskir aðalverktakar sáu um
tankamir vom fluttir út af vall-
arsvæðinu. Tankarnir vora hreins-
aðir og því næst sendir til undir-
verktaka, sem tók að sér að skera
þá niður og átti að annast eyðingu
þeirra. Nú hefur hins vegar komið á
daginn að um helmingi tankanna
var ekki eytt heldur fóra þeir eða
hlutar úr þeim til ýmissa nota. Ekki
liggur fyrir hvar þeir era allir niður
komnir. Munu sumir hafa verið
soðnir saman aftur skv. upplýsing-
um blaðsins og era í notkun.
^ Ekki er talin stafa mengunar-
f'~^hætta af tönkunum þar sem þeir
vora allir hreinsaðir rækilega þegar
þeir vora fjarlægðir.
Skv. heimildum blaðsins er þetta
mál litið nokkuð alvarlegum augum
innan íslenska stjórnkerfisins, og
talið slæmt fyrir samskipti vamar-
liðsins og íslenskra aðalverktaka,
sem era ábyrgir gagnvart vamar-
liðinu vegna þessa, þótt forráða-
menn fyrirtækisins hafí verið í góðri
trú um að tönkunum hafi verið farg-
að eins og til stóð.
Standa fyrir dyrum viðræður
milli Islenskra aðalverktaka og
vamarliðsins um þessi mál í næstu
viku. Ekki munu vera uppi neinar
gransemdir um misferli eða lögbrot
- i' málinu.
--------------
Fengu loðnu
á Meðallands-
bugt
PRJÚ loðnuskip voru í gær að veið-
um á Meðallandsbugt og höfðu tvö
þeirra fengið góðan afla síðdegis,
en hið þriðja var að koma á mið-
in.Þessi veiði er miklu austar en
verið hefur undanfarna daga, en
um helgina veiddist loðnan við
Vestmannaeyjar.
' _ Það vora bræðurnir Sigurjón og
ísak Valdemarssynir á Beiti NK og
Guðrúnu Þorkelsdóttur SU sem
voru að fá loðnu á Meðallandsbugt-
inni. Börkur NK var að bætast í
hópinn, þegar Morgunblaðið ræddi
við Sigurjón á Beiti.
Björgunarmenn komu Dalvfkingunum til hjálpar kl. 01.15 í nótt
Mennirnir fímm heilir á
húfí en mjög þrekaðir
BJÖRGUNARMENN komust að fimmmenningunum frá Dalvík
um klukkan 01.15 í nótt og voru mennirnir sæmilega haldnir, en
orðnir mjög þrekaðir og einnig björgunarmenn sem lengi höfðu
verið á ferðinni við erfiðar aðstæður. Mennirnir höfðu haldið
kyrru fyrir í snjóhúsi í um 1200 metra hæð norðan við Nýjabæjar-
fjall í um 34 klukkustundir. Enn var skafrenningur og hvasst á
þessum slóðum. Fyrirhugað var að senda þyrlu Landhelgisgæsl-
unnar af stað í nótt til að freista þess að sækja mennina. Hópurinn
sem fyrst kom að Dalvíkingunum var á sex vélsleðum, en skammt
undan var snjóbíll og átta vélsleðar með honum og einnig voru sjö
göngumenn á skíðum á leiðinni upp úr Hraunárdal og áttu þeir
einnig skammt ófarið á staðinn.
Erfið ganga til byggða
Átta manna hópur á vélsleðum
frá Dalvík hafði ætlað niður í Eyja-
fjörðinn austanverðan á sunnudag
en sneri við og varð að ráði að fara
frekar út með Eyjafirði að vestan
enda var þá gott veður. Eftir há-
degi á sunnudag skall á þá hið
versta veður, grimmdarfrost og
skafrenningur og sleðamir átta bil-
uðu svo til allir á sömu stundu.
Voru mennimir þá staddir á fjalls-
brúnunum nokkru vestan við
Hraunárdal og létu þar fyrir ber-
ast á sunnudagsnótt.
með norður í flugvél Landhelgis-
gæslunnar. Hluti af þeim hóp lagði
einnig af stað á snjóbíl og síðan
vélsleðum í átt að staðnum um
Vaskárdal í Öxnadal. í þeim hópi
var einn þremenninganna sem í
gærmorgun gengu til byggða.
■ Björgunarstörf/14-16
Morgunblaðið/Kristján
ÞREMENNINGARNIR Kristbjörn Amgrímsson, Stefán Gunnarsson og
Marinó Ólason gengu til byggða í gærmorgun, en fimm félagar þeirra
héldu kyrm fyrir í snjóhúsi í 34 klukkustundir norðan við Nýjabæjar-
fjall í um 1.200 metra hæð þar til hjálp barst klukkan rúmlega 01 í nótt.
Mennimir átta bjuggu um sig í
snjóhúsi í fyrrinótt en þrír komust
síðan niður að bænum Stóradal í
Eyjafirði laust eftir hádegi í gær
og létu vita um ferðir hópsins. Þre-
menningamir sem gengu til
byggða voru hraktir og kaldir og
sögðu gönguna til byggða hafa ver-
ið gífurlega erfiða og einn þeirra
sagðist ekki hafa haft orku til að
fara lengra. Hópurinn háfði ekki
mikið af mat meðferðis.
Veðrið hamlaði björgun með
þyrlu en hún hafði leitað mannanna
meðan veður leyfði frá birtingu og
fram yfir hádegi. Beið hún síðan
átekta á Akureyrarflugvelli. Þrem-
ur hópum björgunarsveitarmanna
var síðdegis í gær stefnt að Nýja-
bæjarfjalli, einum úr Öxnadal, öðr-
um frá Laugafelli og þeim þriðja
írá Djúpadal. Þaðan lögðu björg-
unarmenn fyrst upp á vélsleðum en
urðu frá að hverfa vegna veðurs og
snjóleysis.
Um kvöldmat lögðu um 20 menn
upp fótgangandi úr Djúpadal og
síðar bættust við menn úr björgun-
arsveitum syðra sem flogið var
Morgunblaðið/RAX
FOKKER-flugvél Landhelgisgæslunnar lenti á Akureyrarflugveili laust eftir klukkan 21 í gær með 30 skíða-
menn úr björgunarsveitum á höfuðborgarsvæðinu til aðstoðar.
Jákvætt innlegg til lausnar
■ Loðnufiystingu/23
------........
tír hættu eftir
hnífsstungu
KONA var úrskurðuð í gæsluvarð-
hald síðastliðinn laugardag granuð
um að hafa stungið mann um fimm-
tugt í brjóstið í húsi í Kópavoginum
3. mars síðastliðinn.
Maðurinn er úr lífshættu. Lög-
reglan í Kópavogi hefur árásarmál-
til rannsóknar. Rannsóknin er
langt á veg komin, að sögn lögreglu.
SAMTÖK sjómanna hafa fallist á til-
lögur nefndar sjávarútvegsróðherra
um verðmyndun á fiski og telja þær
vera jákvætt innlegg til lausnar á
deilu sinni og útvegsmanna. Þor-
steinn Pálsson sjávarútvegsráðherra
segir þessa niðurstöðu mjög mikil-
væga, þar sem þar með sé mikilvæg-
asta ágreiningsefnið í kjaradeilunni
komið í ákveðinn farveg.
Samtök sjómanna kynntu sjávar-
útvegsráðherra afstöðu sína á fundi í
gærmorgun. Eftir hádegið var stutt-
ur fundur í kjaradeilunni hjá ríkis-
sáttasemjara. Nýr fundur hefur verið
boðaður eftir hádegið í dag og er al-
mennt búist við að viðræður um önn-
ur atriði í kjaradeilu sjómanna og út-
vegsmanna fari þá í fullan gang, en
verkfall sjómanna hefst á nýjan leik
15. mars næstkomandi hafi samning-
ar ekki tekist fyrir þann tíma.
Sævar Gunnarsson, formaður Sjó-
mannasambands íslands, sagði að
þetta væri sameiginleg niðurstaða
allra sjómannasamtakanna. Deilan
um verðmyndun á fiski væri frá að
því tilskildu að kjarasamningur næð-
ist. Mörg mál væru óleyst sem þyrfti
að leysa áður en hægt væri að aflýsa
verkfalli.
Kristján Ragnarsson, formaður
Landssambands íslenskra útvegs-
manna, sagðist fagna því að samtök
sjómanna hefðu loks komist að nið-
urstöðu. Það hefði tekið þá langan
tíma. Þó ekki væri allt að skapi út-
vegsmanna sem í þessum tillögum
fælist, væri ætlunin að setja þær
með lögum og þar með yrðu útvegs-
menn að láta þær yfir sig ganga. Það
væru hins vegar mörg atriði eftir í
þessum viðræðum um nýja kjara-
samninga sem þyrfti að leysa til þess
að ekki kæmi til verkfalls.
„Það þurfa allir að gefa eitthvað
eftir til þess að þetta megi komast
saman og við viljum gera allt sem í
okkar valdi stendur til þess að leysa
deiluna,“ sagði Kristján.
Guðjón Arnar Kristjánsson, for-
maður Farmanna- og fískimanna-
sambandsins sagði að þó verðmynd-
unin hefði verið efst á baugi i samn-
ingaviðræðunum til þessa hefðu
menn einnig rætt ýmis önnur atriði.
Vanir samningamenn ættu að vera
farnir að sjá í hverju farvegurinn
gæti legið. Áuðvitað þyi’ftu báðir að-
ilar að slaka eitthvað til, „en að því
gefnu að menn fari í slíka vinnu af
fullum heilindum er ekkert því til
fyrirstöðu að ljúka kjarasamningi á
þremur sólarhringum eða eitthvað
þar um bil,“ sagði Guðjón Arnar enn-
fremur.
■ Mikilvægasta/35