Morgunblaðið - 11.03.1998, Síða 2
I
• I —'| ' k
2 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kjaradeila sjómanna og útgerðarmanna
Ekki tekist að fínna
samkomulagsfíöt
hefði gefist tækifæri til að ræða i
gær.
Þórir sagði að viðræðumar hefðu
gengið erfiðlega og ekki hefði tekist
að finna samkomulagsfleti að svo
komnu.
Aðspurður um fyrirkomulag við-
ræðnanna sagði hann að farið hefði
verið yfir efnisatriði kjaradeilunnar
í vinnuhópum. Rætt hefði verið
sameiginlega við Sjómannasam-
band íslands og Farmanna- og
fiskimannasambandið annars vegar
og við Vélstjórafélag íslands hins
vegar.
VIÐRÆÐUR samtaka sjómanna
og útvegsmanna um nýjan kjara-
samning gengu erfiðlega í gær og
miðaði ekki í samkomulagsátt.
Rúmlega sex klukkustunda samn-
ingafundi var slitið á sjöunda tíman-
um í gærkveldi og nýr boðaður
klukkan 14 í dag, þar sem haldið
verður áfram þar sem frá var horf-
ið, en ekki tókst að fara yfir öll efn-
isatriði deilunnar á samningafund-
inum í gær.
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
sagði að átt hefðu sér stað viðræður
í nokkrum vinnuhópum um efnisat-
Nýr fundur
boðaður
kl. 14 í dag
riði deilunnar „en þær viðræður
voru mjög erfiðar og án árangurs,"
sagði Þórir.
Rætt í tvennu lagi
Hann sagði að ekki hefði náðst að
fara yfir öll efnisatriði deilunnar á
fundinum í gær og á fundinum í dag
yrðu þau atriði tekin fyrir sem ekki
Morgunblaðið/Ásdís
Vetrarbolti
FÓTBOLTA er hægt að spila allt
árið um kring að því er myndin gef-
ur til kynna. Snjókoman virtist að
minnsta kosti ekki aftra leikgleði
þessara ungu manna sem spiluðu
fótbolta á Tjörninni síðdegis í gær.
Mikið hefur snjóað á höfuðborgar-
svæðinu undanfarið en óvíst er að
allir taki snjónum jafn vel og þessir
drengir.
Snjóflóðaæfíng haldin
í Neskaupstað
Morgunblaðið/Kristján
Lögreglu-
rannsókn
á urðun
HEILBRIGÐISFULLTRÚI Hafn-
arfjarðar hefur óskað eftir lögreglu-
rannsókn vegna urðunar úrgangs í
Straumsvík sem myndaðist við nið-
urrif húsa á Keflavíkurflugvelli.
Beiðni um lögreglurannsókn
barst fýrst rannsóknadeild lögregl-
unnar í Hafnarfirði. Ríkislögreglu-
stjóraembættið staðfesti í gær að
borist hefði beiðni um rannsókn á
þessu máli fyrir síðustu helgi.
Rannsóknin er hafin og er hún í
höndum efnahagsbrotadeildar Rík-
islögreglustjóraembættisins.
--------------------
Lenti á
snjóruðn-
ingstæki
ÞRENNT var flutt til skoðunar á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eftir
að fólksbíll lenti framan á snjóruðn-
ingstæki við Vogastapa á Reykja-
nesbraut skömmu fyrir klukkan tíu
í gærmorgun.
Að skoðun lokinni var annar far-
þeganna, ungur drengur, fluttur á
Landspítalann þar sem gera átti á
honum aðgerð.
Mikil hálka var á veginum þegar
óhappið varð og missti ökumaður-
inn stjórn á bílnum með þeim afleið-
ingum að hann lenti á snjóruðnings-
tækinu sem kom úr gagnstæðri átt.
LÖG UM innflutning dýra virðast
ekki eiga við um innflutning á sjáv-
ardýrum og samkvæmt því þarf
ekki leyfi til að flytja háhyrninginn
Keiko til Islands. Samkvæmt túlkun
Jóns Steinars Gunnlaugssonar
hæstaréttarlögmanns, sem sent
hefur Guðmundi Bjarnasyni land-
búnaðarráðherra bréf um málið í
umboði Frelsið Willy Keiko-stofn-
unarinnar, bæri fremur að styðjast
við lög um dýrasjúkdóma og varnir
gegn þeim við afgreiðslu umsóknar
um að fá að flytja háhyrninginn
Keiko í sjávarkví á Austfjörðum.
„Það þarf ekkert leyfi,“ sagði Jón
Steinar í gær. „Að því er varðar
dýrahald í landinu þarf ekki sér-
stakt leyfi til að hafa dýr og það
gildir ekkert sérstakt um þetta dýr.
Lögin um innflutning dýra eiga ekki
við í þessu tilfelli."
Tekur aðeins til lagardýra í
fersku vatni
I fyrmefndum lögum, sem sett
voru 1990, er lagt almennt bann við
innflutningi dýra, en tekið fram að
landbúnaðarráðherra geti veitt und-
anþágu frá því. Um undanþágu gildi
þó nokkuð strangar reglur. Til
SNJÓFLÓÐAÆFING var haldin
í Neskaupstað í gærkvöld. Al-
mannavamir stóðu fyrir æfingunni
en Björgunarsveitin Gerpir í Nes-
kaupstað og Hundabjörgunarsveit
Slysavamafélags Islands tóku
einnig þátt. Að auki voru slökkvilið
og lögregla staðarins kölluð út og
taldi Guðmundur Bjarnason bæj-
dæmis þurfi yfirdýralæknir að
mæla með innflutningi auk þess
sem uppfylla þurfi ýmsar kröfur,
sem gerðar séu í lögunum.
„Lög nr. 54/1990 um innflutning
dýra eiga hér ekki við vegna skil-
greiningar á orðinu „dýr“ í 1. gr.
laganna," skrifar Jón Steinar í bréf-
inu. „Dýr“ eru í lögunum skilgreind
sem „öll lifandi landdýr, bæði
hryggdýr, hryggleysingjar og lag-
ardýr sem lifa að hluta eða öllu leyti
í fersku vatni“. Af þessari skýringu
leiðir að lagardýr, sem að öllu leyti
lifa í sjó, teljist undanþegin reglum
laganna um innflutning dýra.
Síðan beinir hann sjónum að lög-
arstjóri Neskaupstaðar að hátt í 80
manns hefðu komið að æfingunni.
Sviðsett snjóflóð var látið falla
við svokallað Háhlíðarhorn í Odds-
skarði. Engin byggð er á svæðinu
en sviðsett var leit að fólki. Æfing-
in hófst um klukkan 21 og stóð
fram eftir kvöldi.
unum um dýrasjúkdóma og varnir
gegn þeim: „Lög nr. 25/1993 áskilja
í sjálfum sér ekki leyfi íslenskra
stjórnvalda til að mega flytja dýrið
að landi hér. Þau gera hins vegar
ráð fyrir afskiptum þeirra ef gi’unur
vaknar um að dýr sé haldið smit-
sjúkdómi, sbr. 5. gr. laganna. Er yf-
irstjórn stjórnsýslu skv. lögunum í
höndum landbúnaðarráðherra og
nýtur hann í því efni aðstoðar yfir-
dýralæknis."
Bréf Jóns Steinars var sent 24.
febrúar, en 2. mars áttu fulltrúar
Keiko-stofnunarinnar fund með Da-
víð Oddssyni forsætisráðherra og
Guðmundi Bjamasyni þar sem lögð
Snúran klár
ÞAÐ er ekki hægt að segja að þeir
sem sjá um þvotta á akureyrskum
heimilum hafi fengið mikinn þurrk
að undanförnu, enda hafa frost-
hörkur verið ríkjandi norðan
heiða. Snjórinn hefur m.a. hlaðist
á snúrurnar eins og sjá má heima
hjá Fanneyju, sem var að hjálpa
pabba sínum að beija hann af.
Ekki fylgdi hins vegar sögunni
hvort það væri mamma eða pabbi
sem ætlaði að standa í þvottum.
var fram umsókn um að flytja há-
hyrninginn til Islands.
Engin viðbrögð við bréfi
Jón Steinar sagði að engin form-
leg viðbrögð hefðu borist við þessu
bréfi. „Ég held að allir séu sammála
um að þetta sé rétt,“ sagði Jón
Steinar. „Það er ekki gert ráð fyrir
því að þurfi sérstök leyfi til að hafa
dýr með höndum hér á landi. Fyrir-
komulag laganna er að sé ástæða til
að ætla að dýr sé haldið smitsjúk-
dómi er gert ráð fyrir að yfirvöld
geti gripið inn í. Yfirvöld eiga vita-
skuld rétt á að fylgjast með því
hvort um slíka sjúkdóma geti verið
að ræða.“
Keiko veiddist undan Austfjörð-
um og hefur verið undir manna
höndum í 18 ár. Fyrir rúmum
tveimur árum var hann fluttur úr
skemmtigarði í Mexíkó í sædýra-
safnið í Newport í Oregon með það
fyrir augum að hefja undirbúning
að því að sleppa honum lausum. Hjá
Keiko-stofnuninni hafa menn hug á
því að flytja háhyrninginn hingað í
haust og setja hann í flotkví á Aust-
fjörðum. Hefur Eskifjörður oftast
verið nefndur í því sambandi.
Húsbruni á
Kjalarnesi
ELDUR kom upp í fokheldu timb-
urhúsi á Kjalamesi í gær laust eft-
ir klukkan 16. Húsið stóð í björtu
báli þegar Slökkvilið Kjalamess
kom á staðinn svo erfitt reyndist að
slökkva eldinn. Þegar Slökkviliðið í
Reykjavík kom tO aðstoðar var
húsið brunnið að stærstum hluta.
Þak hússins féll niður og er húsið
mikið skemmt að sögn aðalvarð-
stjóra Slökkviliðs Reykjavíkur.
Eldsupptök era ókunn en rann-
sóknarlögreglan hefur tekið málið
til rannsóknar.
Eldur í vinnuskúr
Lítilsháttar eldur kom upp í
vinnuskúr við Brúnastaði í Grafar-
vogi rétt fyrir klukkan 18 í gær.
Slökkvistarf gekk greiðlega en
skúrinn skemmdist þónokkuð.
Eldsupptök era ókunn og engan
sakaði.
JRcrcimlJlabib
BLAÐINU í dag íylgir blaðauki um
menntun sem veitir innsýn í fjöl-
breytt nám á íslandi. Blaðaukinn er
gefinn út í tengslum við námskynn-
ingu sem haldin verður í Háskóla
Islands á sunnudaginn kemur.
auglýsingablað frá Ki-inglunni.
Jón Steinar Gunnlaugsson hæstaréttarlögmaður um flutning Keikos
Telur ekki
þurfa sér-
stakt leyfí
j
i
i
I
)