Morgunblaðið - 11.03.1998, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 6r
Hverfisgötu, simi 551 9000
TILNEFNINGAR TIL OSKARSVERÐLAUNA
4U...............................
BUL Usta myndin, Besti laflutjóri, besti lelkoil,
besti loikari i oukahiutverki, besta leikkona í oukoklotverkL “
Will Hunting á í miklum vandræöum meö líf sitt en er óvænt
uppgötvaður af skólamönnum í Harvard háskólanum fyrir mikla
stærðfræöisnilli. Óstýrilæti koma honum í koll þar til hann hrttir jafnoka
sinn, prófessorinn McGuire sem leikinn er af Robin Williams.
Spice Girls sýnd um helgar
www.skifan.com
t getur gerst
ÞEIR leikarar sem tilnefndir
eru til Óskarsverðlauna fóru í
myndatöku og ræddu málin í
löngum hádegisverði síðastlið-
inn mánudag. Jack Nicholson
fór úr jakkanum og Kim Basin-
ger var glæsileg í rauðri dragt,
eins og hún væri nýkomin af
tökustað myndarinnar LA Con-
fidential. Curtis Hanson, leik-
sljóri þeirrar myndar, vakti
hlátur þegar hann velti vöngum
yfir möguleikum myndar sinnar
gegn risanum Titanic.
Aðspurður um hvort það væri
fyrirséð að Titanic fengi Óskar-
inn sem besta myndin svaraði
hann: „Það þótti gefið mál á
sínum tíma að skipið kæmist til
New York. Það eru Ijölmargar
góðar myndir í pottinum og allt
getur gerst.“ Sumir voru raun-
ar á því að ísjakar væru
framundan á leið Titanic. „Það
gæti komið bakslag eftir alla þá
umfjöllun sem myndin hefur
fengið,“ sagði einn af frammá-
mönnum Hollywood sem tók
þátt í hádegisverðinum, en eig-
inkona hans var ósammála og
hristi höfuðið.
Hvað sem möguleikum Titan-
ic líður er ljóst að leikkonan
Gloria Stuart getur nánast farið
að rýma arinhilluna heima hjá
sér svo hún komi Óskarnum
fyrir. Þessi 87 ára leikkona,
sem er sögumaður í Titanic,
fékk rífandi lófatak þegar hún
tók við tilnefningunni. Fyrr um
daginn hafði hún sagt Qölmiðl-
um að hún ætlaði ekki að spá
neinu og vildi ekki einu sinni
segja hvort hún vildi vinna.
„Mér er illa við keppni. Ég
myndi gleððjast yfir því ef allur
hópurinn yrði heiðraður," sagði
hún. En hún bætti við: „Er ég
taugaóstyrk? Já.“
Gil Cates, framleiðandi
Óskarsverðlaunahátíðarinnar,
hélt sína árlegu ræðu þar sem
hann hvatti hina tilnefndu til að
hafa þakkarræður sínar stuttar
og ljúfar. Hann sagði að 35 til
45 sekúndur ættu að nægja til
að þakka þeim sem þörf væri á
og bætti við að ekki væri nauð-
synlegt að þakka húsverðinum í
gagnfræðaskóla.
„Ef þið farið yfir 45 sekúndur
mun hljóðneminn hverfa hægt
og hægt af sviðinu," sagði
hann.
ÞÆR leikkonur sem til-
nefndar eru fyrir besta
leikinn í aukahlutverki,
f.v.: Julianne Moore úr
„Boogie Nights", Gloria
Stuart úr Titanic, Minnie
Driver úr „Good Will
Ilunting", Joan Cusack úr
„In & Out“ og Kim Basin-
ger úr „LA ConfídentiaT.
FIMM leikarar eru til-
nefndir fyrir besta leikinn
f aðalhlutverki, f.v. Robert
Duvall úr „LA Confidenti-
al“, Matt Damon úr „Good
Will Ilunting", Jack
Nicholson úr „As Good As
It Gets“, Peter Fonda úr
„Ulee’s Gold“ og Dustin
Hoffman úr „Wag The
Dog“.
HÁC
I.OKSINS
\ ÍSLANDI
Skrifstoflistólar
Til lfamtíðar litið
, vQti EG Skrifstofúbúnaður chf
Armúli 20 Sími 533 5900
BÍLAÞINdlEKLU
N O T A Ð I R Æl B í L A R
LAUGAVEGI 174, SÍMI 569 5660