Morgunblaðið - 11.03.1998, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998
MORGUNB LAÐIÐ
FRÉTTIR
KANNTU brauð að baka?
Jafningja-
fræðslan hlýtur
fjárstyrk
LANDSBANKI íslands og Vátrygg-
ingafélag Islands hafa undirritað
samning um fjárstyrk til Jafningja-
fræðslu Félags framhaldsskóla-
nema. Með samningnum verða VÍS
og LI aðalstyrktaraðilar Jafningja-
fræðslunnar næstu þrjú árin.
Samningurinn, sem var undirrit-
aður í Hinu húsinu síðastliðinn
laugardag, var gerður í tilefni af
tveggja ára afmæli Jafningja-
fræðslunnar og Flakk-ferða. Þess-
ara tímamóta var einnig minnst
með ýmsum uppákomum, svo sem
snjóþoturalli í Artúnsbrekku og
veggmyndakeppni í Hinu húsinu.
Morgunblaðið/Golli
AXEL Gíslason, forsljóri VÍS, Hildur Sverrisdóttir, framkvæmda-
stjóri jafningjafræðslunnar, og Halldór Guðbjarnarson bankastjóri
undirrituðu samninginn.
2X100 W.RMS surround. • Stafrænl útvarp með FM / AM / LW 40 st. mlnnl
m/RDS. • Þriggja diska spilarí • Forstilltur tónjafnari m/5 mlnnum • Tlmastllllr
f vakjari • Tvöfalt segulband • FJarstýring • 8” Bassa hátalari
■\<+. B&JBílÚÉLzjim
□QLBY SURROUND
2X25 W.RMS framht. - 2X10 W.RMS miðjuht. - 2X10 W.RWS bakht. • Stafrænt
útvarp með FM / AM / LW 40 st. mlnni m/RDS. • Þrlggja dlska spilari • Forstilltur
tónjafnari m/5 minnum • Heima bíó • Tímastillir + vekjarl • Tvöfalt segulband
_____________•FÍarStýrln9V
BRÆÐURNIR
DJ ORMSSON HF
UMBOÐSMENN
Reykjavfk Byagt og Búiö. Vesturland: Málningarbjónustan, Akranesi. Kf. Borgfiröinga,
,i. Guoni Hallgrímsson, Grundarfiröi. Vestfirðlr: Gei ‘ n..
Hallgrímsson, Grundarfiröi. Vestflrftir: Geirseyjarbúöin, Patreksfiröi
Rafverk, Bolungarvlk. Straumur, (safiröi. NorAurland: Kf. V-Hún.. Hvammstanaa, Kf. Húnvetninga, Blönduósi.
verslunin Hegri, Sauöárkróki. Hljómver, Akureyri. Kf. Þingeyinga. Húsavik. Austuriand: Kf. Héraösbúa, Egilsstööum.
. -nn nor.n Verslunin Vlk, Neskaupstaö. Vélsmiöian Höfn. SuAurland: Arvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Brimnes,
Lágmúla 8 • Sími 533 2800 Vestmannaeyjum. Reykjanes: Ljósboginn, Keflavlk. Rafborg, Grindavik.
I
Glötum við golfstraumnum?
Sitjum á
suðupottinum
Árný Erla Sveinbjörnsdóttir
GLOTUM við golf-
straumnum? var yf-
irskrift fyrirlesturs
sem Amý Erla Svein-
bjömsdóttir jarðfræðingur
flutti í Háskólabíói síðast-
liðinn laugardag. Fyrir-
lesturinn var annar í röð
nokkurra fyrirlestra sem
Sjávarútvegsstofnun Há-
skóla íslands stendur íyrir
um þessar mundir í tilefni
af ári hafsins.
- Glötum við golf-
s traumnum?
„Eg vil hvorki neita né
játa þessari spurningu
heldur nálgast ég hana út-
frá niðurstöðum sem
fengnar em frá ískjörnum
úr Grænlandsjökli. Þau
gögn sýna að miklar sveifl-
ur hafa átt sér stað í veður-
fari á liðnum árþúsundum.
Þessar sveiflur voru sérstak-
lega miklar á síðasta jökulskeiði
en það hófst fyrir 100.000 ámm
og endaði fyrir 11.000 áram. Það
er líka greinilegt samband milli
rykmagns í ísnum og hitafars.
Mikið ryk er í ísnum þegar kalt
er og hefur það verið skýrt með
því að helkuldi jökulskeiðsins
hafí einkennst af miklum storm-
um og ryki í lofti.
Umrædd gögn sýna líka að hita-
sveiflumar hafí gerst mjög
hratt og hraðar en menn höfðu
áður gert sér grein fyrir.“
Árný Erla segir að síðasta
jökulskeiði hafi lokið á nokkmm
áratugum, sennilega innan við
mannsævi.
- Hvaða afleiðingar hafði það
í för með sér?
„Þá hlýnaði á Grænlandi um
einar 20 gráður og veðurfarið
breyttist mjög hratt. Til dæmis
jókst ákoma á jökulinn gífurlega
á einungis þremur áram. Þetta
em geysilega öflugar og djúpar
veðurfarssveiflur en það er at-
hyglisvert að þær em alls ekki
einangraðar við Grænland held-
ur sjást þær líka í öðram gögn-
um og sérstaklega í djúphafs-
kjörnum sem hafa verið boraðir
í hafsbotninn.“
Árný bendh' á að djúphaf-
skjarnarnir segi líka geysi-
merkilega veðurfarssögu. „Þeir
sýna þessar sömu veðurfars-
sveiflur og í Grænlandi og þær
sjást ekki einungis í kjörnum úr
Norður-Atlantshafi heldur sjást
merki um þessar sömu sveiflur
suður í höfum.“
- Hverjar eru orsakirnar fyr-
ir þessum öru sveiflum?
„Þeirra er helst leitað í mis-
munandi hafstraumakerfí jarð-
arinnar. Hafstraumakerfin geta
verið mismunandi frá einum
tíma til annars og þar með veð-
urfarið sem þeir
stjórna."
Árný Erla segir að
menn líti sérstaklega
til Golfstraumsins því
gögnin benda til að
orsakabreytinganna sé að leita
hér á norðurslóðum en hafi svo
áhrif um allan heim.
„Við hér á Islandi sitjum á
suðupottinum ef svo má að orði
komast. Það er djúpsjávar-
myndun sem á sér stað fyrir
norðan Island sem er svona
mikilvæg. Ef hún stoppar ein-
hverra hluta vegna þá hættir
Golfstraumurinn að berast hing-
að norður eftfr og helkuldi jök-
ulskeiðs tekur við.“
- Hvernig röskum við þessu
ferli?
►Árný Erla Sveinbjömsdóttir
er fædd í Reykjavík árið 1953.
Hún lauk BS-prófi í jarðfræði
frá Háskóla íslands árið 1978
og doktorsprófí frá Bretlandi
árið 1983.
Árný Erla starfaði við jarð-
fræðirannsóknir hjá Orku-
stofnun til ársins 1986 og hef-
ur upp frá því starfað á Raun-
visindastofnun Háskóla ís-
lands.
Eiginmaður hennar er Öss-
ur Skarphéðinsson þingmaður
og ritstjóri og eiga þau eina
dóttur.
„Þessar sveiflur sem við sjá-
um í ískjörnunum em af nátt-
úrulegum toga og hafa ekki
gerst vegna áhrifa mannsins."
Ámý Erla bendir á að fylgni
sé milli hitafars og magn koltví-
oxíðs í ísnum. „Það er greinilegt
samspil þar á milli en á síðustu
öld hefui' jafnvægið raskast.
Magnið af koltvíoxíði og öðmm
gróðurhúsalofttegundum eykst
stöðugt." Árný Erla segir að
þeir sem era að rannsaka gróð-
urhúsalofttegundir og áhrif
þeirra hafi spáð því að hitastig á
jörðinni aukist um l°-3° á næstu
öld.
„Við vitum ekki hvaða áhrif
það hefur en vitum þó að veðra-
kerfið er óstöðugt. Við höfum
vísbendingar um óstöðugt veð-
urfar á síðasta hlýskeiði sem var
hlýrra en okkar eigið hlýskeið
og sterkar vísbendingar um að
því hafi lokið snögglega í miklu
kuldakasti.
Eins höfum við gögn um
kuldakast fyrii- um 8.000 árum
það er innan okkar eigin hlý-
skeiðs. Þá kólnaði um einar 3°-
6° mjög snögglega og
var kalt í um 200 ár.
Það kuldakast var
ekki einangrað við
Grænland heldur
sést það í kjömum á
Norður-Atlantshafi sem þýðh’
að það náði víða.“
Ái-ný Erla bendir á að merki
sjáist um óstöðugt veðurfar
bæði á jökulskeiðum og hlý-
skeiðum. „Veðurfarslíkön spá
því að ef við hækkum hitastigið
á jörðinni verulega geti það leitt
til þess að hafstraumakerfin
raskist eða breytist. Eins og við
sjáum á sögunni hefur það
gerst. Golfstraumurinn er okkar
lífæð úr suðurhöfum og ef hann
kæmi ekki hingað væri óbyggi-
legt hér á landi.“
„ísland óbyggi
legt án golf-
straumsins“