Morgunblaðið - 11.03.1998, Blaðsíða 64
Drögum næsl
HAPPDRÆTTI
HÁSKÓLA ÍSLANDS
ISLANDSFLUG
gerlr fleirum fært aö fljúga
570 8090
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMl 5691100, SÍMBRÉF 5691181
PÓSTHÓLF 3040, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRl: KA UPVANGSSTRÆTI1
MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998
VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK
Morgunblaðið/RAX
HÉR stíga fyrstu Dalvíkingarnir, Hlini og Hörður, út úr snjóbílnum á Öxnadalsheiði áður en þeir voru fluttir með jeppum björgunarmanna til Akur-
eyrar. Við hiið Hlina er Guðmundur Ingvason úr Björgunarsveit Slysavarnaféiagsins á Dalvík.
Dalvfkingarnir fímm komu til byggða um hádegi í gær
Segja bj örgimarmennina
vera hreinar hetiur
FIMM björgunarsveitarmenn frá Dalvík komust
loks til byggða laust fyrir hádegi í gær eftir að
hafa dvalið í snjóbyrgi í um 1.200 metra hæð við
Þorbjarnartungur í hálfan annan sólarhring.
„Þetta eru hörkunaglar,“ sagði Smári Sigurðsson
í/-—-■ sem ásamt félögum sínum kom fyrstur að snjó-
byrginu.
Smári sagði þá hafa verið kalda, en ekkert stór-
vægilegt amað að þeim og þeir hefðu gert það sem
réttast var í stöðunni, koma sér í skjól og grafa sig
í fönn.
Missti ekki vonina
vang um kl. 5.15 og hélt með fimmmenningana
áleiðis til byggða.
„Það var frábært að sjá björgunarmennina,“
sagði Birkir Bragason, einn fimmmenninganna
eftir læknisskoðun á Fjórðungssjúkrahúsinu á
Akureyri, og sagði hann björgunarmennina vera
hreinar hetjur. Bað hann fyrir miklar þakkir til
þeirra allra. Birkir og félagar voru vel á sig komn-
ir þrátt fyrir langa vist í snjóbyrginu. Sagði Birkh-
þá þreytta en tíminn hefði ekki verið lengi að líða
og menn hefðu stappað stálinu hver í annan. Hann
sagði þá aldrei hafa misst trúna á að þeir yrðu
sóttir, þeir hefðu verið vissir um að félagar þeirra
þrír sem höfðu haldið gangandi til byggða í birt-
ingu á mánudagsmorgni, kæmust á leiðarenda og
að hjálp bærist.
í hópi fímmmenninganna voru tveir bræður, en
sá þriðji sem var með í för hafði farið með jeppa
niður úr Laugafelli. Gunnar Gunnarsson faðir
þeirra sagðist aldrei hafa misst vonina og alltaf trú-
að því að þeir myndu skila sér. Hann sagði jafn-
framt að bið eftir fréttum af sonum sínum hefði
verið erfið, en björgunarsveitir unnið frábært starf.
Nærri 70 björgunarsveitarmenn tóku þátt í að-
gerðunum, auk nokkurra tuga annarra sem voru í
biðstöðu og störfuðu í stjómstöð leitarinnar í að-
setri Flugbjörgunarsveitar Akureyrar. Flugvél
Flugmálastjórnar sveimaði yfir staðnum alla að-
faranótt þriðjudags til að unnt væri að koma á
fjarskiptasambandi milli hópa björgunarmann-
anna og við stjórnstöðina.
■ Reyndustu/6
■ Frábært/32
Umfangsmiklar leitar- og björgunaraðgerðir
höfðu þá staðið yfir allt frá sunnudagskvöldi og
náðu fyrstu leitarmenn til Dalvíkinganna kl. 1.15
aðfaranótt þriðjudags. Snjóbfll var kominn á vett-
Fjármálaráðuneytið
Sala fast-
eigna
boðin út?
í FJÁRMÁLARÁÐUNEYTINU er
nú til athugunar að bjóða út á al-
mennum markaði umsjón með sölu
og kaupum fasteigna rfldsins.
Akveðið hefur verið í tengslum við
umfangsmiklar breytingar sem
ákveðnar hafa verið á skipulagi ráðu-
neytisins að færa umsýslu þessara
mála út úr ráðuneytinu fyrir 1. maí
nk. Hefur einnig verið rætt um að
fela Ríkiskaupum þessa umsjón en
skv. upplýsingum Magnúsar Péturs-
sonar ráðuneytisstjóra kemur vel til
greina að bjóða þetta út og fela
einkaaðilum umsjón með kaupum og
sölu fasteigna.
Formlegt samstarf
við aðila utan ráðuneytis
Meðal breytinga sem unnið er að í
ráðúneytinu er að komið verði form-
lega á fót sérstakri efnahagsnefnd
fjármálaráðherra, sem verði sam-
starfsvettvangur þriggja ráðuneyta,
Seðlabanka og Þjóðhagsstofnunar.
Samstarf við Alþingi verður styrkt
með stofnun ríkisfjármálanefndar og
efnt verður til formlegs samstarfs
við hagsmunaaðila um málefni sem
varða starfsskilyrði atvinnulífsins.
Hefur fjármálaráðherra ákveðið að
leita til þessara aðila um að koma á
fót samstarfsnefnd atvinnulífs og
fjármálaráðherra.
■ Samstarf/6
---------------
Veikur sjó-
maður sóttur
á haf út
TF-LÍF, þyrla Landhelgisgæslunn-
ar, var send af stað um kl. 23 í gær-
kvöldi til að sækja veikan sjómann
um borð í togara sem staddur var
um 100 sjómílur vestur af Látra-
bjargi. Skömmu eftir að þyrlan var
lögð af stað kom í ljós bilun og var
henni snúið við til Reykjavíkur. Var
TF-SIF þá send eftir manninum um
miðnættið. Ottast var að sjómaður-
inn væri alvarlega veikur og lágu
ekki fyrir nákvæmar upplýsingar um
ástand mannsins í gærkvöldi.
Samstarfssamningur um orkuver við Villinganes
Afla á heimildar til að
reisa 30-40 MW virkjun
FORSVARSMENN Rafmagns-
veitna ríkisins og eignarhaldsfélags-
ins Norðlensk orka ehf. undirrituðu í
gær á Sauðárkróki samstarfssamn-
ing í því skyni að vinna að undirbún-
ingi þess að reisa og reka 30-40 MW
raforkuver í Héraðsvötnum við Vill-
inganes og tengd mannvirki. Ætla
samningsaðilar í framhaldi af þessu
- að óska eftir því við iðnaðarráðherra
að hann beiti sér fyrir því að samn-
ingsaðilar fái virkjanaheimild fyrir
Villinganesvirkjun, en sú heimild er
nú í höndum Landsvirkjunar.
„Markmiðið með þessum samningi
hjá Rafmagnsveitum ríkisins er að
ná hagkvæmri orkuöflun fyrir sína
viðskiptavini til þess að ná lægra raf-
'^•orkuverði og styrkja eigin orkuöflun
*fyrirtækisins,“ segir Kristján Jóns-
son, forstjóri RARIK. Hann segir að
ef virkjunarheimild fáist hafi fyrir-
tækið áhuga á að koma virkjuninni í
gagnið sem fyrst, en það ráðist
einnig af þörfum markaðarins.
Kostnaður áætlaður
4-5 milljarðar
Stefna samningsaðilar að því að
stofna hlutafélag um virkjunina og
er gert ráð fyrir að eignarhald þess
skiptist þannig að RÁRIK eigi að
lágmarki 75% en Norðlensk orka allt
að 25%. Er áætlaður heildarkostnað-
ur við framkvæmdirnar á bilinu fjór-
ir til fímm milljarðar króna.
Náðst hefur samstaða meðal
heimamanna í Skagafirði um að
standa að undirbúningi virkjunar-
innar í samstarfí við RARIK. Að
Norðlenskri orku standa annars veg-
ar Rafveita Sauðárkróks, sem er í
eigu Sauðárkróksbæjar og hins veg-
ar eignarhaldsfélagið Skagfirsk orka
ehf. sem samanstendur af Akra-
hreppi, Lýtingsstaðahreppi og
Kaupfélagi Skagafjarðai-. Er mark-
miðið með stofnun Norðlenskrar
orku að tryggja íbúum Skagafjarðar
og Sauðárkróks sem hagstæðast
orkuverð.
Ætla samningsaðilar að hafa sam-
vinnu um að vinna að framgangi
málsins í samvinnu við stjórnvöld og
Alþingi í því skyni að nauðsynlegar
lagaheimildir um virkjanaréttindi
nái fram að ganga.
Krístján segist vonast til að afstaða
stjómvalda til virkjunaráformanna
sé jákvæð.
Morgunblaðið/Jón Páll Ásgeirsson
Mikil loðnuveiði
MIKIL loðnuveiði hefur verið und-
anfarna daga, þegar veður hefur
leyft. Loðnan er á hraðri göngu
vestur með landinu og hefur síðustu
daga veiðzt mest við Vestmannaeyj-
ar og vestur frá þeim að Þjórsárós-
um. Loðnan er komin mjög nálægt
hi-ygningu og hefur loðnufrystingu
fyrir Japan verið hætt, en hrogna-
vinnsla er að hefjast.
Á vertíðinni hafa þrír stærstu
framleiðendurnir samtals fryst um
18.600 tonn af loðnu á Japansmark-
að, en alls voru flutt út um 21.554
tonn af frosinni loðnu til Japans á
síðustu vertíð. Verðmæti Japans-
loðnunnar nú má áætla um 1,1 millj-
arð króna.
Það er Heimaey VE sem er á
landleið með fullfermi á myndinni
hér að ofan og er hún rétt utan Vík-
ur í Mýrdal.
■ Verðmæti/Dl