Morgunblaðið - 11.03.1998, Qupperneq 4
4 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Flugbjörgunarsveitin fór tvær ferðir að sækja leiðangnrsmenn
Frakkarnir illa fyrir kallaðir
Morgunblaðið/Kristinn
ÞRIR leiðangursmanna, Alexandre Santiago, Geirharður Zinotti og Hen-
ique Denche. Á myndina vantar Hermann Baldursson lögreglumann.
LIÐSMENN Flugbjörgunar-
sveitarinnar sóttu aðfaranótt
mánudags franskan lögreglu-
mann, Henique Denche, að
Hlöðufelli en hann kenndi sér þá
meins vegna bakmeiðsla sem
hann hafði orðið fyrir nokkrum
vikum áður í bílslysi í heima-
landi sínu. Á mánudagsmorgun
barst sveitinni siðan annað er-
indi frá leiðangursmönnum og
hafði þá hinn Frakkanna, Alex-
andre Santiago, fengið skæða
flensu. Var hann því sóttur
ásamt tveimur íslendingum,
Hermanni Þór Baldurssyni lög-
reglumanni og Geirharði Zinotti
framhaldsskólakennara, sem
ákváðu að tímabært væri að slá
ferðalagið af.
Lauk svaðilförinni því nokkru
fyrr en ætlað var því hópurinn
lagði upp á laugardag og hafði
einungis gengið um 30 kíló-
metra á leið sinni yfir hálendi fs-
lands. Höfðu þeir hugsað sér að
ljúka ferðinni á Fáskrúðsfirði.
Hópurinn var vel búinn og
höfðu meðferðis svokallað Ar-
gos-staðsetningartæki sem
skipti sköpum, enda var Flug-
björgunarsveitarmönnum ávallt
kunnugt um staðsetningu þeirra
og ásigkomulag. Frakkarnir eru
jafnframt tryggðir fyrir þeim
kostnaði sem af hlaust.
Onnur tilraunin til að
ganga þvert yfir Island
Santiago og Denche sögðust í
samtali við Morgunblaðið nú
hafa fengið staðfestingu á því
að ísland væri erfitt land yfir-
ferðar. Þeir eru báðir lögreglu-
menn í Grenoble en samtök lög-
reglumanna þar hafa á undan-
förnum árum ferðast víða um
heim, Santiago gekk til dæmis
yfír Lappland þvert og endi-
langt fyrir nokkrum árum.
I fyrravetur voru þeir félagar
síðan hér á ferð í fyrstu tilraun
sinni til að ganga þvert yfir ís-
land. Þeir lentu þá líka í erfið-
leikum, eftir að hafa gengið frá
Þingvöllum og alla leið að
Tungnafellsjökli, því sqjóþrúgur
þeirra brotnuðu og þyrla Land-
helgisgæslunnar þurfti að sælga
þá.
Santiago sagðist trúa því að
um forlög væri að ræða. Aug-
ijóst væri að æðri máttarvöld
vildu ekki að þeir hefðu sigur
yfir fslenskri náttúru enda
hefðu þau tekið I taumana í
bæði skiptin. „í fyrra skiptið
voru það tækin sem biluðu en í
þetta sinn var það mannskapur-
inn sem sýndi af sér linkind,"
sagði hann og var ekki viss um
að hann gerði aðra tilraun enda
væri varasamt að storka forlög-
ununi.
Eldur í bát
í Sandgerð-
ishöfn
ELDUR kom upp í Hafbjörgu GK
58 í Sandgerðishöfn snemma í gær-
morgun. Samkvæmt upplýsingum
frá rannsóknarlögreglu í Keflavík
kviknaði í út frá strompröri frá kab-
yssu.
Að sögn Júníusar Guðnasonar,
varaslökkviliðsstjóra í Sandgerði,
var slökkvistarfí lokið um áttaleytið
en um kl. tíu var aftur farið að rjúka
úr bátnum og kom slökkvilið þá aftur
á vettvang. „Það gaus upp aftur milli
þilja, bak við járnplötur á vegg við
kabyssuna," segir hann. Vel gekk að
slökkva eldinn í annan'i atrennu en
töluvert var þá brunnið í lúkarnum,
að sögn Júníusar.
Framleiðsluráð landbún-
aðarins verði lagt niður
í SKÝRSLU starfshóps um samþættingu rann-
sókna, leiðbeininga og fagmenntunar í landbún-
aði er lagt til að Framleiðsluráð landbúnaðarins,
auk ýmissa annarra stofnana, verði lagt niður í
núverandi mynd. Skýrsla þessi er nú rædd á
Búnaðarþingi.
Starfshópurinn, sem Guðmundur Bjamason
landbúnaðarráðherra skipaði, leggur í skýrslunni
til að ný ríkisstofnun, svonefnd Búnaðarstofa, taki
í sinn verkahring ýmis verkefni sem nú heyra
undir margar stofnanir.
Stofnanirnar sem um ræðir, auk Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins, eru: Embætti yfirdýralækn-
is, veiðimálastjóra, yfii'kjötmats, aðfangaeftirlits,
auk stjómsýsluverkefna frá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins og Bændasamtökum Islands.
Alþingi hefur síðasta orðið
Ari Teitsson, formaður Bændasamtaka ís-
lands, sagði í samtali við Morgunblaðið að gjarn-
an mætti einfalda stjórnsýslufyrirkomulag land-
búnaðarmála enda hefði landbúnaðurinn verið að
dragast saman. Hann væri kominn í færri og
stærri einingar sem gerði það að verkum að létt-
ara væri að hafa yfirsýn yfir hann. Því væri ekk-
ert óraunhæft að ræða um sameiningu nokkurra
stofnana á þessu stigi. „Hitt er svo annað mál að
oft bregðast nú embættin og stofnanirnar svona
frekar við til varnar heldur en hitt.“ Aðspurður
um hvenær þessi breyting ætti að koma til fram-
kvæmda sagði Ari enga ákvörðun liggja fyrir í
málinu enda bíður landbúnaðarráðherra nú
stjómsýsluúttektar á þeim stofnunum sem um
ræðir áður en nokkuð er aðhafst í málinu. „Þetta
er svona á fmmstigi enda var skýrslan bara lögð
fram í desember. Síðan þá hefur þetta verið að
gerjast, menn hafa verið að ræða sín á milli hvað
sé best að gera í stöðunni."
Ari benti á að mörg þessara embætta sem rætt
væri um að steypa saman ættu sér stoð í lögum
og að það yrði því að vera Alþingi sem á endan-
um tæki allar ákvarðanir og ætti síðasta orðið.
Tvær flugvélar rák-
ust saman í aðflugi
TVÆR eins hreyfils einkaflugvélar
snertust þar sem þær vom á loka-
stefnu fyrir lendingu á flugvellinum
á Tungubökkum í Mosfellsbæ á
laugardag. Flugmennirnir sluppu
með skrekkinn en önnur vélin er
nokkuð skemmd. Málið er í rann-
sókn hjá rannsóknamefnd flugslysa.
Flugvélarnar TF-KLM, sem er af
gerðinni Cessna 172, og TF-TWO,
Cessna 150, vom báðar að æfa lend-
ingu á vellinum þegar óhappið átti
sér stað. Vélamar vom á meira en
100 km hraða í um 150 feta hæð og
vom á lokastefnu þegar TF-KLM
fór fram úr TF-TWO og snerti bakið
á henni með hjólunum. Flugmönn-
unum tókst báðum að lenda heilu og
höldnu en nokkrar skemmdir urðu á
TF-TWO.
Engin flugumferðarstjórn er á
flugvellinum á Tungubökkum frekar
en á mörgum öðrum smærri flug-
völlum, en flugmenn tilkynna um
ferðir sínar á ákveðinni fjarskipta-
tíðni. Að sögn Skúla Jóns Sigurðar-
sonar, formanns rannsóknarnefndar
flugslysa, er ekki Ijóst hvað fór úr-
skeiðis en málið er í rannsókn hjá
nefndinni. „Það er ljóst að hvomgur
flugmannanna sá til ferða hins, þetta
gerðist og við þökkum bara forsjón-
inni fyrir að ekki fór verr,“ segir
hann.
Laugavegi 18 • Sími S15 2500 • Sfðumúla 7 • Sfmi 510 2500
Þriðja prcntlin komin
„[Guðjón] liefur dregið saman
mikinn fróðleik... og scgir
söguna ó cinföldu og skýru máli
... Ijósmyndir eru skipulcga
notaðar til að auka við cfni
tcxtans... uppsctning öll og
umbrot er til fvrirmyndar.
Það cr óhæít að inæla cindrcgið
mcð jicssari bók.“
GuimundurHeidarFrimmruion, Moipmblaiið
Sverrir Hermannsson, bankastjóri Landsbankans
Oskar eftir úttekt
Ríkisendurskoðunar
SVERRIR Hermannsson,
bankastjóri Landsbanka íslands
hf., sendi í gær frá sér svohljóð-
andi tilkynningu:
„Vegna þeirrar umræðu sem
orðið hefur síðustu daga um
meint kaup Landsbanka Islands
á veiðileyfum af leigutaka
Hrútafjarðarár hef ég ákveðið
að óska eftir að Ríkisendurskoð-
un geri úttekt á þessum málum
og skili, ef stofnunin telur efni til
þess, skýrslu um málið til banka-
ráðs Landsbanka íslands hf. Ég
minni á að Ríkisendurskoðun er
jafnframt endurskoðandi bank-
ans.
Ég tek fram að þessi ósk er
ekki síst sett fram í ljósi um-
mæla formanns bankaráðs
Landsbanka íslands hf. á opin-
berum vettvangi. Ég tel eðli-
legra að umræður um þessi mál
fari fram á grundvelli trúverð-
ugra upplýsinga, heldur en get-
sagna.“
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
S
Oveður
í aðsigi
Egilsstaðir. Morgunblaðið.
FÓLK sem hafði dvalið sl. helgi í
námunda við Snæfell og var á heim-
leið slapp rétt undan óveðrinu sem
skall á síðdegis á sunnudag. Fólkið
gisti í skála við Kollumúlavatn á
Lónsöræfum og bjó sig til heimferð-
ar fyrripart sunnudags. Aðrir
ferðalangar, sem voru í sunnudags-
bíltúr og voru í samfloti á fimm bfl-
um þurftu að dvelja næturlangt í
Snæfellsskála. Hiuti þeirra var illa
búinn til hálendisferða, hafði hvorki
með sér mat né svefnpoka, og voru
bflar þeirra vanbúnir. Þeir komust
svo til byggða fyrripart mánudags.