Morgunblaðið - 11.03.1998, Qupperneq 12
12 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Uttekt á því hvar þrávirk
lífræn efni er að fínna
LÖGÐ hefur verið fram á Alþingi
þingsályktunartillaga þess efnis að
Aiþingi álykti að fela umhverfis-
ráðherTa að gera úttekt á því hvar
PCB og önnur þrávirk lífræn efni
er að finna hér á landi og í hve
miklu magni. Jafnframt skuli ráð-
herra gera tillögu um eyðingu
þeiri-a efna sem geta reynst skað-
leg lífríkinu. Flutningsmenn tillög-
unnar eru Kristján Pálsson, ])ing-
maður Sjálfstæðisflokks, Össur
Skarphéðinsson, þingflokki jafnað-
armanna, og Arni M. Mathiesen,
þingmaður Sjálfstæðisflokks.
I greinargerð tillögunnar segir
að þrávirk lífræn efni, svonefnd
klórkolefnissambönd séu einhver
eitruðustu efni sem þekkist í nátt-
úrunni, en eitt þekktasta efnið inn-
an klórkolefnissambandanna sé
PCB. Það efni hafí verið notað til
ýmissa hluta hér á landi, til dæmis
á rafeinangrara, allt þar til notkun
þess var bönnuð árið 1988. „Ástæð-
an fyrir því að PCB var bannað er
uppsöfnunaráhrif þess í lífríkinu og
langur viðverutími sem getur haft
ALÞINGI
áhrif á ónæmiskerfi líkamans, vald-
ið ófrjósemi og aukið líkur á
krabbameini,“ segir í greinargerð.
Skeldýr við strendur
landsins menguð
„Þó nokkurt magn var flutt inn
af þessum efnum á árunum fyrir
1988, en ekki er vitað með vissu
hve mikið. Ekki er heldur vitað
hvar þessum efnum var fargað né í
hve miklu magni, enda ekkert op-
inbert eftirlit með því hvernig ein-
staklingar og fyrirtæki, önnur en
opinberir aðilar, eyddu því sem var
í notkun þegar bannið tók gildi.
Utanríkisráðherra til
Bosmu-Hersegóvínu
HALLDOR Asgrímsson utanríkis-
ráðherra heldur í óopinbera heim-
sókn til Bosmu-Hersegóvínu í dag.
Króatísk yfirvöld taka á móti utan-
ríkisráðherra á ílugvellinum í Za-
greb.
A morgun fer utanríkisráðherra
til Banja Luka og á fund með
Dodik, forsætisráðherra heima-
stjórnar Serbneska lýðveldisins
með aðsetur í Banja Luka. Einnig
fer utanríkisráðherra í skoðunar-
ferðir um borgina og herbúðirnar
þar. Seinna um daginn á utanríkis-
ráðherra fund með íslensku heilsu-
gæsluveitinni á staðnum og snæðir
kvöldverð með henni.
A föstudag á utanríkisráðherra
fund með Husein Zivalj, varautan-
ríkisráðherra Bosníu-Hersegóvínu
í Sarajevo, og verður Aziz Ha-
dzimuratovié, aðstoðarutanríkis-
ráðherra Bosníu-Hersegóvínu sem
fer með málefni varðandi endur-
uppbyggingu innan Bosníu, við-
staddur fundinn.
Þá hittir hann Bozo Ljubic heil-
brigðisráðherra landsins og á síð-
ar um daginn fund með Rory C.
O’Sullivan, fulltrúa Alþjóðabank-
ans í Sarajevo. Þá heimsækir ut-
anríkisráðherra Kosevo sjúkra-
húsið og hittir starfsfólk sem
ákveðið er að fari til Islands í
þjálfun. Heimsókninni lýkur á
laugardag.
Helst er talið að þessu hafi verið
fargað á sorphaugum nálægt þétt-
býlisstöðum.“
I greinargerð tillögunnar kemur
ennfremur fram að ýmsar mæling-
ar á magni þrávirkra lífrænna efna
í dýrum hafi farið fram á síðustu
árum af hálfu m.a. Rannsóknastofu
í lyfjafræði á Álftanesi. Þær mæl-
ingar hafi sýnt að magn þessara
efna í æðarfugli á Álftanesi sé
heldur meira en mælist í æðarfugli
á Svalbarða og tífalt meira en
mælist í æðarfugli í Kanada. „Þeg-
ar rjúpnastofninn er hins vegar
skoðaður er PCB-magn minnst hér
á Islandi miðað við rjúpnastofninn
á Svalbarða og í Kanada. Munur-
inn á fæðuvali þessara fuglateg-
unda liggur í því að æðarfuglinn lif-
ir að mestu á skeldýrum úr fjöru-
borðinu en rjúpan lifir einkum á
fræjum og lyngi. Þetta bendir ótví-
rætt til þess að skeldýr við strend-
ur landsins séu menguð af þrávirk-
um lífrænum efnum þótt ekki sé
um hættulega mengun að ræða enn
sem komið er.“
Samræmd
samgöngu-
áætlun
ALÞINGI hefur samþykkt
ályktun þess efnis að sam-
gönguráðherra verði falið að
skipa nefnd til að kanna hvort
samræma megi gerð áætlana
um uppbyggingu samgöngu-
mannvirkja í eina samræmda
samgönguáætlun og gera í
framhaldi af því tillögur um
nauðsynlegar breytingar á
lögum og reglum.
Við umfjöllun um tillöguna í
samgöngunefnd bárust um-
sagnir frá Vegagerðinni, Sam-
bandi íslenskra sveitarfélaga
og Siglingastofnun Islands og
mæltu þessir aðilar með sam-
þykkt tillögunnar.
Sjónvarp á ekki
að vera barnfóstra
ÞÓRHILDUR Líndal, umboðsmaður barna, og barnalæknarnir Katrín
Davíðsdóttir, Jón R. Kristinsson og Ólafur Gísli Jónsson sem stóðu að
bæklingnum ásamt Ingibjörgu Georgsdóttur.
MIKILVÆGT er að foreldrar séu
til staðar þegar ung böm horfa á
sjónvarp og að þeir velji það efni
sem horft er á. Þetta kemur fram í
bæklingnum Hvað er til ráða -
Ahrif ofbeldis í sjónvarpi á börn
sem umboðsmaður barna og Félag
íslenskra barnalækna kynntu í gær.
Þórhildur Líndal, umboðsmaður
bama, segist hafa leitað eftir sam-
vinnu Félags íslenskra barnalækna
um þetta verkefni fyrir næstum
ári. „Við viljum minna foreldra á
ábyrgð sína og leggjum áherslu á
að þeir horfi á sjónvarpið með
börnum sínum og velji efni á með-
an þau eru ung. Ung börn upplifa
hlutina oft á annan hátt en full-
orðnir. Það er því mikilvægt að
vera til staðar þegar þau era að
byrja að upplifa hluti í gegn um
sjónvarp og átta sig á þeim,“ segir
hún. „Böm geta lært margt í gegn
um sjónvarp en það á ekki að nota
það sem barnfóstra."
Bæklingum dreift
til foreldra
Bæklingnum verður dreift til
foreldra sem koma með börn sín í
þriggja og hálfs árs skoðun.
Þannig verður tryggt að hann nái
inn á hvert heimili ungra barna.
Einnig kemur hann til með að
liggja frammi á bamadeildum og
heilsugæslustöðvum.
Auk Þórhildar hafa þau Olafur
Gísli Jónsson, formaður Félags ís-
lenskra barnalækna, og barna-
læknarnir Katrín Davíðsdóttir, Jón
R. Kristinsson og Ingibjörg Ge-
orgsdóttir unnið bæklinginn en
Bamavemdarsjóður íslands
styrkti útgáfu hans.
Morgunblaðið/Ásdís
PÁLL Pétursson félagsmálaráðherra í ræðustól.
Fyrstu umræðu um húsnæðisfrumvarp lokið
Umræðan tók þrjá daga
FYRSTU umræðu um frumvarp
félagsmálaráðherra til húsnæðis-
mála lauk á Alþingi í gær, en það
var þriðji dagurinn sem frumvarpið
var til umræðu. Nokkrir þingmenn
stjómarandstöðu fóra fram á það
við félagsmálaráðherra að hann
drægi framvarpið til baka og legði
það fram að nýju næsta haust,
þannig að þeir aðilar sem fram-
varpið snerti gætu fengið tíma til
að fjalla ítarlegar um það í sumar.
Félagsmálaráðherra, Páll Pét-
ursson, tók ekki undir þær óskir,
en kvaðst vera að bíða eftir því að
fá athugasemdir um fmmvarpið
frá ASÍ, BSRB og öðram samtök-
um, þar á meðal samþykkt frá hús-
næðisnefndum sveitarfélaga. Hann
sagði að stefnan í framvarpinu
væri klár, en gætu menn bent hon-
um á eitthvað sem betur mætti
fara væri hann alveg tilbúinn að
skoða það.
Alþingi
Dagskrá
ÞINGFUNDUR Alþingis hefst kl.
13.30 í dag. Fyrst verða eftirfar-
andi fyrirspumir til ráðherra:
1. Til dómsmálaráðherra: Starfs-
svið tölvunefndar.
2. Til dómsmálaráðherra: Ráðn-
ing fíkniefnalögreglumanna.
3. Til dómsmálaráðherra: Frest-
un á yfirfærslu málefna fatlaðra til
sveitarfélaga.
4. Til sjávarútvegsráðherra: Ut-
boð á hafrannsóknaskipi.
5. Til sjávarútvegsráðherra:
Heimkoma háhymingsins Keikós.
6. Til sjávarútvegsráðhema: Til-
boð í smíði rannsóknaskips fyrir
Hafrannsóknastofnun.
7. Til iðnaðarráðhema: Smíði á
varðskipi.
8. Til viðskiptaráðherra: Stað-
setning Fjárfestingarbanka og Ný-
sköpunarsjóðs.
9. Til menntamálaráðherra:
Listaverkakaup Listasafns Is-
lands.
Eftir atkvæðagreiðslu um nokk-
ur þingmál verða eftirfarandi mál á
dagskrá:
1. Almenn hegningarlög. 1. umr.
2. Almenn hegningarlög. 1. umr.
3. Lögreglulög. 1. umr.
Ártúnsskóli leigir tölvur
Tilboði tekið
frá Tæknivali
FRÆÐSLURÁÐ Reykjavíkur hef-
ur samþykkt að veita Ártúnsskóla
heimild til að taka tilboði Tækni-
vals hf. í Reykjavík um leigu og
viðhald á tölvum fyrir skólann. Ár-
túnsskóli mun í samvinnu við for-
eldrafélag skólans leigja allt að
tuttugu tölvur frá Tæknivali og
borga af þeim leigu. Jafnframt er
gerður þjónustusamningur þar
sem Tæknival skuldbindur sig til
að sinna allri þjónustu á tölvunum,
viðhaldi þar með talið.
Ellert Borgar Þorvaldsson,
skólastjóri í Ártúnsskóla, sagði hér
álitlegan kost á ferðinni enda gengi
þessi tækjakostur svo hratt úr sér
og varla væri hagstætt að reyna í
sífellu að fylgja tölvuþróun eftir og
kaupa í sífellu nýjar og nýjar tölv-
ur. Að sögn Ellerts er samningur-
inn við Tæknival til þriggja ára og
samkvæmt honum skuldbindur
Tæknival sig til að skipta út tölvum
eftir 2 ár ef þess gerist þörf vegna
bilana eða annars þess háttar.
Sigrún Magnúsdóttir, formaður
Fræðsluráðs Reykjavíkurborgar,
segir hér á ferðinni spennandi
samanburðarverkefni og að mark-
miðið sé að skoða hvort þetta form
geti reynst betur en það kerfi sem
nú er við lýði hjá Reykjavíkurborg
sem felst í því að bjóða út öll tölvu-
kaup fyrir skólana í Reykjavík.
Sigrún Magnúsdóttir sagði að
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur hefði
borið saman kostnað þessa
reynsluverkefnis við hefðbundinn
rekstur og komist að þeirri niður-
stöðu að meðaltalskostnaður á
nemanda yrði ívið ódýrari, 5.603
krónur í stað 5.668 króna áður.
Munurinn á reikningsdæmunum
væri hins vegar svo lítill að engan
veginn væri hægt að sjá nú hvern-
ig málin þróuðust í raun og veru.
Hún bætti því við að ef til vill
myndi fyrirtækið sem um ræddi í
þessu tilfelli leggja á sig meiri
vinnu en ella við að halda tölvun-
um í lagi. Það væri a.m.k. von
Fræðsluráðsins, enda næðist
þannig fram bæði sparnaður og
hagræðing.
Ekki var farið í útboð vegna
verkefnisins að þessu sinni, að
sögn Sigrúnar, enda taldi Fræðslu-
ráð eðlilegt að fyrirtækið sem
framkvæði hafði ætti skilið að
njóta ávaxtanna. Vitaskuld yrðu
hins vegar haldin útboð í framtíð-
inni ef í ljós kæmi að þessi rekstr-
arkostur reyndist fýsilegur.