Morgunblaðið - 11.03.1998, Síða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Borgarstjóri um tillögu um byggingu tónlistarhúss við Skúlagötu
Otímabært að taka eina
lóð fram yfír aðra
LÓÐIR Eimskipafélags íslands við Skúlagötu 12-16 eru
rúmir 12 þús. fermetrar.
INGIBJÖRG Sólrún Gísladóttir
borgarstjóri segir að sér lítist ekki
illa á þá hugmynd að kannaðir
verði möguleikar á byggingu tón-
listarhúss við Skúlagötu en sjálf-
stæðismenn í skipulags- og um-
ferðarnefnd hafa lagt fram tillögu
þess efnis, eins og greint var frá í
Morgunblaðinu í gær. Borgar-
stjóri segir hins vegar að ekki sé
tímabært að taka eina lóð fram yf-
ir aðra fyrr en vinnu breskra ráð-
gjafa er lokið um staðsetningu
tónlistarhúss í miðborginni.
Borgarstjóri sagðist gera ráð
fyrir að breski ráðgjafínn Abra-
hams, sem unnið hefur að framtíð-
arskipulagi miðborgarinnar fyrir
borgaryfirvöld, væri með lóðina
við Skúlagötu til athugunar eins
og ýmsar aðrar. „Hann fékk
frjálsar hendur varðandi miðborg-
ina,“ sagði hún. „Það hefur lengi
legið fyrir að Eimskipafélag ís-
lands hefur haft áhuga á að
byggja hótel á þessari lóð. Þeir
hafa hana til þeirra nota þótt
framkvaémdir hafi ekki farið af
stað ennþá þannig að ég reikna
með að þess vegna gæti þessi hug-
mynd verið i takt við það sem ver-
ið er að vinna en mér fínnst ekki
tímabært að taka eina lóð fram yf-
ir aðra fyrr en þessari vinnu er
lokið bæði hjá breska ráðgjafan-
um og hjá samstarfsnefnd borgar-
innar og mennatmálaráðuneytis-
ins, sem er að skoða lóðir við
Hótel Sögu, Öskjuhlíð og í Laug-
ardal. Þegar þeirri skoðun er lokið
er tímabært að velja staðinn."
Sömu rök og við Hótel Sögu
Borgarstjóri sagði að sömu rök
væru fyrir byggingu tónlistarhúss
við Hótel Sögu og fyrir hugmynd
arkitektanna um að byggja tónlist-
arhús í tengslum við fyrirhugað
hótel við Skúlagötu. í tengslum við
hótel mætti ná fram hagkvæmari
rekstri auk þess sem auðveldara
væri að fjármagna verkið. „Þau rök
hafa verið sett fram í greinargerð
sem unnin hefur verið fyrir starfs-
hóp borgarinnar og menntamála-
ráðuneytisins," sagði hún.
Fella niður Vitastíg
Gunnar Jóhann Birgisson, borg-
arfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í
skipulags- og umferðarnefnd, sagði
að á vegum borgarinnar væri verið
að skoða reiti sem kæmu til greina
sem lóðir undir tónlistarhús.
„Astæðan fyrir því að við teljum
könnun arkitektanna, þeirra Guð-
mundar Gunnarssonar og Ingi-
mundar Sveinssonar, áhugaverða
er sú að hér er um að ræða arki-
tekta sem hafa mikla reynslu af
skipulagsmálum," sagði hann.
„Þeir hafa báðir setið í skipulags-
nefnd og báðir eru vanir deiliskipu-
lagshöfundar. Þetta finnst mér
skipta máli. í allri þessari umræðu
sem verið hefur er aldrei talað um
staðsetningu án þess að erlendir
sérfræðingar komi þar að en við
höfum þekkinguna til staðar og
þaulvana skipulagshöfunda sem við
eigum að leita til í auknum mæli.“
Gunnar sagði að sér fyndist að
skoða ætti möguleika á að fella nið-
ur þann hluta af Vitstíg sem sker
lóðimar tvær þannig að tengin yi’ði
góð milli bygginga.
Þolir stórar byggingar
Guðmundur Gunnarsson arki-
tekt bendir á að góð umferðatengsl
eru við lóðirnar við Skúlagötu en
lóðirnar eru rúmir 12 þús. fermetr-
ar. „Þetta er góður staður í mið-
borginni og í nálægð við almenn-
ingssamgöngur,“ sagði hann.
„Svæðið þolir stórar byggingar
vegna þess að þarna eru stórar
byggingar fyrir á næstu lóðum. Við
erum með ýmsar menningabygg-
ingar eins og Borgarleikhúsið og
Þjóðleikhúsið, sem einungis nýtast
fyrir sýningar og æfingar en þær
fara ekki endilega fram á sviðinu
alla daga. Grundvöllurinn fyrir því
að hægt sé að reka svona byggingu
á hagkvæman hátt er samnýting.“
Listi Framsóknar-
flokksins í Mos-
fellsbæ kynntur
Tveir hafa
sagt sig úr
flokknum
GYLFI Guðjónsson ökukenn-
ari og varabæjarfulltrúi
Framsóknarflokksins og
Helgi Sigurðsson dýralæknir
sögðu sig úr Framsóknar-
flokknum í Mosfellsbæ eftir
að listi flokksins til komandi
bæjarstjórnarkosninga var
kynntur á laugardag. Gylfi gaf
kost á sér í þriðja sæti listans
en í tillögu uppstillingarnefnd-
ar er hann hvergi á listanum.
Helgi Sigurðsson sagði sig úr
flokknum honum til stuðnings.
Gylfi sat í þriðja sæti fram-
boðslista flokksins til síðustu
bæjarstjórnarkosninga. Hann
hafði lýst því yfir að ef hann
yrði ekki í þriðja sætinu
myndi hann _ segja sig úr
flokknum. „Akveðnir sam-
starfsörðugleikar hafa verið
til staðar sem gera það að
verkum að ég kæri mig alls
ekki um að starfa þarna inni,“
sagði Gylfi.
„Eg sagði mig úr flokknum
eftir tuttugu ár vegna óá-
nægju með að aðalsprautunni
í Mosfellsbæ var hent út af
listanum," sagði Helgi Sig-
urðsson.
Fimm efstu sætin á lista
Framsóknarflokksins í Mos-
fellsbæ skipa: 1. Þröstur
Karisson bæjarfulltrúi, 2.
Helga Thoroddsen bæjarfull-
trúi, 3. Björgvin Njáll Ingólfs-
son verkfræðingur,
4. Ævar Sigdórsson bifreiða-
stjóri og
5. Halla Karen Kristjánsdóttir
íþróttakennari.
Sameining sveitarfélaga í Skagafírði
Úrskurður Þingvallanefndar vegna beiðni Ásatrúarsafnaðarins
Kosning kærð
til dómstóla
Varanleg mannvirki
ekki reist í Arnarfelli
FRAMKVÆMD kosninga um sam-
einingu sveitarfélaga í Skagafirði
sem fram fóru 15. nóvember síðast-
liðinn hefur verið kærð til Héraðs-
dóms Norðurlands vestra. Telja
kærendur að þeir hnökrar hafi verið
á framkvæmd kosninganna að það
eigi að varða ógildingu þeirra.
I stefnu vegna málsins kemur
fram að stefnendur, sem eru tveir
kjósendur á Sauðárkróki, hafi orðið
varir við það á kjördegi að kosning-
amar fóru ekki fram lögum sam-
kvæmt. Skipti þar mestu að ekki
hafi verið látin fara fram kosning á
Héraðssjúkrahúsinu á Sauðárkróki
„eins og siður hefur verið undanfar-
in ár í öllum kosningum frá árinu
1987 a.m.k., ef frá era taldar sveit-
arstjórnarkosningar 1990. Þegar
kosið var um sameiningu sveitarfé-
laga í Skagafirði árið 1993, var kosið
á sjúki-ahúsinu“.
Félagsmálaráðuneytið úrskurð-
aði kosninguna gilda
Stefnendur kærðu kosninguna
upphaflega 20. nóvember síðastlið-
inn og skipaði sýslumaður nefnd
samkvæmt 37. gr. sveitarstjómar-
laga til að fjalla um kærana. Hafn-
aði hún kröfum stefnenda. Sá úr-
skurður var kærður til félagsmála-
ráðuneytisins sem úrskurðaði kosn-
inguna gilda. Taldi ráðuneytið ekki
skylt að láta fara fram kosningu á
héraðssjúkrahúsinu, „þrátt fyrir að
nær 90 sjúklingar, flestir úr Skaga-
firði, væru þar“, segir í kæranni.
Ennfremur segir að það sé
stjórnsýsluvenja við allar kosningar
á íslandi að láta fara fram sérstaka
utankjörfundaatkvæðagreiðslu. 63.
gr. laga um kosningar nr. 80/1987
og leiðbeiningar um utankjörfunda-
atkvæðagreiðslu á sjúkrahúsum
hnígi öll að því að létta kjósendum
að kjósa utankjörfundar til þess að
sem flestir geti kosið. Greind laga-
ákvæði hafi sérstaklega verið sett
til að tryggja þennan rétt kjósenda,
sem vegna veikinda, aldurs eða fötl-
unar geti ekki kosið á reglulegum
kjördegi í kjördeild sinni eða kjör-
dæmi.
Þá segir: „Stefnendur halda því
fram, að kjörstjóri, sveitarstjómir
og forráðamenn Héraðssjúkrahúss-
ins á Sauðárkróki hafi ekki virt
þennan grannrétt kjósenda, er lágu
á sjúkrahúsinu. Þessi vanræksla á
því að tryggja sjúklingum og vist-
fólki á sjúkrahúsinu þennan gi-unn-
rétt sé þess eðlis, að óhjákvæmilegt
sé að ógilda kosningarnar. Sé í
þessu sambandi bent sérstaklega á,
að aðeins hafi munað tveimur at-
kvæðum í Lýtingsstaðahreppi, en
fjórir sjúklingar voru á Héraðs-
sjúkrahúsinu úr Lýtingsstaða-
hreppi og hafi enginn getað kosið.
Ljóst sé, að það geti ekki verið sjúk-
lingar, sem eigi að hafa framkvæði
um utankjörfundaratkvæðagreiðslu
á sjúkrahúsum, heldur kjörstjóri.
Sé það óþolandi misrétti, að ein-
stakir kjörstjórar geti þannig komið
í veg fyrir, að fólk geti neytt at-
kvæðisréttar síns og hljóti það að
leiða til ógildingar kosninganna.".
ÞINGVALLANEFND hefur synj-
að umsókn Jörmundar Inga Han-
sen allsherjargoða þess efnis að
Asatrúarsöfnuðurinn fái að reisa
varanleg mannvirki á jörðinni Arn-
arfelli.
Arnarfell er í eigu Landbúnaðar-
ráðuneytisins en Jörmundur Ingi
telur sig eiga réttindi á henni. Því
hefur Landbúnaðarráðuneytið hins
vegar hafnað auk þess sem hluti
jarðarinnar er innan þjóðgarðsins á
Þingvöllum og heyrir því undir
Þingvallanefnd.
Að sögn Sigurðar Oddssonar,
framkvæmdastjóra nefndarinnar,
telur nefndin sig ekki getað heimil-
að fasta aðstöðu í Arnarfelli þótt til
geina komi að veita heimild til ein-
stakra viðburða samkvæmt mánað-
arsamkomulagi hverju sinni.
Jörmundur Ingi segist fagna vil-
yrði nefndarinnar fyrir því að hann
geti gert ákveðna hluti í þjóðgarð-
inum eða nágrenni hans þótt hann
fái ekki aðstöðu þar til frambúðar.
Hann muni nú hefjast handa við
undirbúning áætlana sinna fyrir ár-
ið 2000.
Eftirlíking
af fornu þingi
„Ég mun einnig halda áfram að
vinna að framkvæmdum á jörðinni
Hvammsvík í Hvalfirði sem veitu-
stofnun Reykjavíkurborgar hefur
veitt mér aðgang að,“ segir hann.
í Hvammsvík stendur til að
byggður verði sögualdarbær, sem
notaður verði til ábúðar allan ársins
hring auk þess sem hann verði op-
inn skólabörnum og ferðamönnum.
Jörmundur segist hafa fundið mik-
inn áhuga á verkefninu meðal aðila í
ferðaþjónustu og að verið sé að
ganga frá teikningum og safna
hlutafé til framkvæmdanna.
„Hugmyndin var síðan sú að
tengja Hvammsvík og Arnarfell
þannig að menn færa með víkinga-
skipi upp í Hvalfjörð, dveldu þar í
einn til tvo daga og færu síðan ríð-
andi á Þingvöll," segir hann.
Þar sem ekki verður um fasta að-
stöðu í Arnarfelli að ræða getur
Jörmundur hins vegar ekki sett þar
upp sýnishorn af fornu þingi, eins
og hann hafði hugsað sér. „Hug-
mynd mín var sú að byggja eftirlík-
ingu eða endurgerð af fornu þingi,
með 36 búðum og öllu öðru sem
slíku þingi tilheyrir svo, sem þing-
brekku, lögréttu og dómþingi," seg-
ir hann. „Eg hafði hugsað mér að
þetta yrði einhvers konar menning-
arlegur skemmtigarður, þar sem
þingað yrði nokkrum sinnum á
sumri þannig að menn gætu séð
hvernig hlutimir gengu fyrir sig.“
Jörmundur segist ætla að halda
áfram að vinna að því að hrinda
hugmyndum sínum í framkvæmd
þrátt fyrir dræmar undirtektir yfir-
valda.
Stjórnarkjör á Búnaðarþingi
Ari Teitsson endur-
kjörinn formaður
ARI Teitsson var endurkjörinn for-
maður Bændasamtaka Islands
næstu þrjú árin á Búnaðarþingi í
gær. Ari hlaut öll greidd atkvæði,
34 talsins, en fimm skiluðu auðu.
Með Ara í stjórn voru kjörnir til
næstu þriggja ára Þórólfur Sveins-
son Ferjubakka II, Guðmundur
Grétar Guðmundsson Kirkjubóli,
Gunnar Sæmundsson Hrútatungu,
Örn Bergsson Hofi, Hrafnkell
Karlsson Hraum og Hörður Harð-
arson Laxárdal. Guðmundur Grétar
og Gunnar hafa ekki áður setið í
stjórn Búnaðarsamtaka íslands.
í varastjórn samtakanna voru
kjörin Guðmundur Jónsson Reykj-
um, Guðbjartur Gunnarsson Hjarð-
arfelli, Anna Margrét Stefánsdóttir
Hátúni, Jón Gíslason Stóra-Búrfelli,
Aðalsteinn Jónsson Klaustursseli,
Sólrún Ólafsdóttir Kirkjubæjar-
klaustri II og Eggert Pálsson
Kirkjulæk.