Morgunblaðið - 11.03.1998, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 15
Viðbrögð bæjarbúa við
Aksjón jákvæð
AKSJÓN, bæjarsjónvarp á Akur-
eyri, hóf starfsemi um mánaða-
mótin október nóvember síðastlið-
inn. Viðbrögð bæjarbúa hafa að
sögn Gísla Gunnlaugssonar, sem
ásamt Páli Sólnes rekur stöðina,
verið afar góð og jákvæð. „Fólk
vill greinilega sjá meira af efni úr
heimabyggðinni og þai- er af nógu
að taka,“ sagði Gísli. Samkvæmt
áhorfskönnun sem gerð var í des-
embermánuði kom í ljós að um
40% bæjarbúa horfðu eitthvað á
útsendingar sjónvarpsstöðvarinn-
ar í þeirri viku sem hún var gerð.
Aksjón sendir út bæjarstjórnar-
fundi sem eru annan hvern þriðju-
dag og hefst útsending kl. 21 um
kvöldið. „Ahorfendur hafa lýst yfir
ánægju sinni með þessar útsend-
ingar og vilja fylgjast með bæjar-
málefnum á þennan hátt. Það kom
mér reyndar sjálfum á óvart
hvernig bæjarstjórnarfundir eru,
þeir eru mun skemmtilegri en ég
átti von á,“ sagði Gísli. „Fólki þyk-
ir forvitnilegt að sjá hvemig þessir
fundir fara fram, hvar og hvemig
ákvarðanimar em teknar."
A miðvikudags-, fimmtudags- og
fóstudagskvöldum kl. 21 er sent út
fjölbreytt efni úr bæjarlífinu, en að
því loknu bíómynd, en eigendur
stöðvarinnar hafa lagt sig fram um
að sýna vandaðar kvikmyndir og
era þær fengnar frá Háskólabíói.
A laugardögum kl. 17 er sendur út
þátturinn Helgarpotturinn í sam-
vinnu við Dag og er hann endur-
sýndur kl. 17 á sunnudögum og 21
og góð
á mánudagskvöldum.
Utsendingar bæjarsjónvarpsins
nást einungis á Akureyri, en Gísli
sagði að fjórar rásir væm í Eyja-
firði, Ríkisútvarpið hefði þrjár
þeima og Stöð 2 eina. „Við fengum
bara að skáskjóta okkur yfir bæinn
og þurfum að vera í ákveðnum
skugga fyrir sveitunum í kring til
að trafla ekki Ríkisútvarpið þar,
þess vegna náum við bara hér rétt
yfir bæinn,“ sagði Gísli. Aksjón
stefnir þó að því í framtíðinni að
bæta sendikerfið og útsendingar-
tíðni sína.
Tveir era í föstu starfi hjá Ak-
sjón, þeir Gísli og Páll, en um tíu
manns koma með einum eða öðram
hætti að starfsemi bæjarsjónvarps-
ins.
Morgunblaðið/Kristján
BÆJARMÁLAFÉLAG Akureyrarlistans var formlega stofnað á laug-
ardag og framboðslisti kynntur, en myndin er tekin á fundinum.
Bæjarmálafélag Akureyrarlistans stofnað
Asgeir Magnús-
son í fyrsta sæti
Leikfélag Húsavíkur
Æfir Þrek
o g tár
FÉLAGAR í Leikfélagi Húsavíkur
vinna að því að setja upp leiki-itið
„Þrek og tár“ eftir Ólaf Hauk Símon-
arson í leikstjórn Sigrúnar Valbergs-
dóttur, en frumsýning verður 21.
mars næstkomandi.
Leikarar í sýningunni eru 18 auk 5
manna hljómsveitar en einnig starfa
fjölmargir aðrir við undirbúning sýn-
ingarinnar, við hönnun og smíði leik-
myndar, lýsingu og ýmsa tækni-
vinnu, búningasaum, leikskrárgerð
og fleira.
Æfingar hófust 2. febrúar og er
æft öll virk kvöld og á laugardögum í
Samkomuhúsinu. Að þessu sinni læt-
ur leikfélagið sér ekki nægja gamla
Samkomuhúsið undir starfsemina
því hljómsveitin æfir í „Uggahúsinu"
sem er gamalt fiskvinnsluhús niður
við höfn og nú hljóma ljúfir tónar
tónlistar sjöunda áratugarins yfir
Húsavíkurhöfn.
Þrek og tár er þriðja leikrit Ólafs
Hauks sem Leikfélag Húsavíkur
sýnir, en hin tvö voru Astin sigrar og
var það sýnt árið 1985 í leikstjóm
Þórhalls Sigurðssonar og Gaura-
gangur sem sýndur var árið 1995 í
leikstjórn Sigrúnar Valbergsdóttur.
Morgunblaðið/Gunnlaugur Búi Ólafsson
ÞORSTEINN Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, og Arnór
Karlsson kaupmaður við afhendingu gjafarinnar.
Háskólanum berst höfðingleg gjöf
Ibúð og verslun-
arhús að andvirði
um 30 milljónir
ARNÓR Karlsson, kaupmaður á
Akureyri, afhenti Háskólanum á
Akureyri tvær fasteignir við athöfn
í háskólanum í gær. Um er að ræða
íbúð í raðhúsi við Furalund og
verslunarhúsnæði í Sunnuhlíð á
Akureyri. Að auki ánafnaði Amór
háskólanum öllu innbúi sínu í Furu-
lundi, þar á meðal 30 málverkum.
Gjafirnar era bundnar því skil-
yrði að andvirði eignanna verði not-
að til stofnunar gjafasjóðs til upp-
byggingar rannsóknarstarfi á Vé-
geirsstöðum í Fnjóskadal, en Arnór
og ættingjar hans hafa áður gefið
háskólanum jörðina að gjöf.
Tilgangur gjafasjóðsins á að nást
með því að veita úr honum fé til
skógræktar- og rannsókna- og ráð-
stefnustarfsemi á Végeirsstöðum,
til uppbyggingar rannsóknarstarfs
á vegum Háskólans á Akureyri og
til annarra verkefna sem sjóðs-
stjórn telur brýnust á hverjum
tíma. Sjóðurinn tekur jafnframt við
framlögum frá öðrum gefendum til
hvers konar framfaramála sem há-
skólinn stendur fyrir.
Þessi gjöf er stærsta gjöf sem
einstaklingur hefur fram til þessa
afhent háskólanum og lýsir miklum
velvilja í garð háskólans og þeirrar
uppbyggingarstarfsemi sem þar fer
fram, að sögn Þorsteins Gunnars-
sonar, rektors Háskólans á Akur-
eyri, sem kann Amóri bestu þakkir
fyrir höfðingsskap hans.
,Að baki þessari gjöf býr mikil
velvild til háskólans sem við erum
þakklát fyrir. Með þessari gjöf opn-
ast möguleikar á byggja upp að-
stöðu á Végeirsstöðum sem koma
mun háskólanum og starfsemi á
hans vegum að góðum noturn,"
sagði Þorsteinn, en hann benti
einnig á að á þessum eina degi hefði
einn einstaklingur gefið háskólan-
um 30 milljónir króna, en til saman-
burðar væri allt framkvæmdafé
hans um 20 milljónir króna. „Af
þessum samanburði sést best
hversu rausnarleg gjöf Arnórs er,“
sagði Þorsteinn.
Gjöfina gefur Amór í minningu
foreldra sinna, Karitas Sigurðar-
dóttur og Karls Kr. Amgrímssonar,
systldna sinna og velunnara Vé-
geirsstaða um árin.
BÆJARMÁLAFÉLAG Akureyr-
arlistans, lista jafnaðarstefnu, fé-
lagshyggju og kvenfrelsis var
formlega stofnað á fundi í Alþýðu-
húsinu á Akureyri á laugardag.
Framboðslisti Akureyrarlistans
var kynntur á fundinum en efsta
sæti listans skipar Ásgeir Magn-
ússon, Oktavía Jóhannsdóttir er í
öðra sæti, Þröstur Ásmundsson í
þriðja sæti, Sigríður Stefánsdóttir
í fjórða sæti, Jón Ingi Cæsarsson
er í fimmta sæti, Kristín Sigfús-
dóttir er í sjötta sæti, Matthildur
Sigurjónsdóttir í sjöunda sæti,
Kristján Halldórsson, í áttunda
sæti, Guðrún J. Magnúsdóttir í ní-
Aksjóim
Miðvikudagur 11. mars
20.00 Þ-Sjónvarpskringlan - Ak-
ureyri
21.00 ^Leikfélag Akureyrar Bæjar-
sjónvarpið lítur inn á frumsýningu
LA á Söngvaseið í nýuppgerðu Sam-
komuhúsinu.
IIYIin 21-10 ►Níubíó-Mar-
nl I nU tröðin (Armed & Innocent)
Ellefu ára strákur drepur tvo þekkta
glæpamenn sem ráðast inn á heimili
hans. Þriðji innbrotsþjófurinn kemst
undan og situr um fjölskylduna. Að-
alhlutverk: Gerald McRaney ogKafe
Jackson. 1994. Myndin er bönnuð
börnum.
23.00 ^Dagskrárlok
unda, Björn Guðmundsson í tí-
unda sæti og Hilmir Helgason í
því ellefta.
Framundan er vinna við mál-
efnaskrá listans og verður hann
kynntur þegar þeirri vinnu er lok-
ið.
Vakninga-
samkomur
VAKNINGASAMKOMUR
verða haldnar á Hjálpræðis-
hernum á Akureyri í kvöld,
miðvikudagskvöld, og fimmtu-
dagskvöld og einnig á sunnu-
dag-
Miriam Oskarsdóttir, flokk-
stjóri Hjálpræðishersins í
Reykjavík, mun syngja og pré-
dika og ungt fólk mun taka
þátt í samkomunum, en þær
hefjast kl. 20.30 í kvöld og ann-
aðkvöld og kl. 17 á sunnudag.
Allir era velkomnir meðan hús-
rúm leyfir.
Föstumessa
FÖSTUMESSA verður í Akur-
eyrarkirkju í kvöld, miðviku-
dagskvöld kl. 20.30. Sungið
verður úr Passíusálmunum,
lesið úr píslarsögu Jseú og flutt
litanía.
KÆRU AKUREYRINGAR
EINSTAKLINGAR OG FYRIRTÆKI
Ráðgarður hf. hefur opnað útibú að Skipagötu 16,
3. hæð, Akureyri (Pedrohúsinu).
Okkur vantar einstaklinga á skrá, endilega lítið við og skráið ykkur.
Ráðgarður hf. býður jafnframt upp á: Starfsmannaráðgjöf,
alhliða rekstrarráðgjöf, markaðsráðgjöf, þjónusturáðgjöf,
ráðgjöf í gæðastjórnun, stefnumótun og fleira.
Verið velkomin.
Opnunartími frá 9:00 - 12:30 og 13:00 - 15:30.
RÁÐGARÐUR hf
STJÓRNUNAR- OG REKSTRARRÁÐGJÖF