Morgunblaðið - 11.03.1998, Page 16
16 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Landakirkja gefur út geisladisk með barnakórnum Litlum lærisveinum
Lög eftir
Helgu
Jónsdóttur
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
SKÓGRÆKT rfldsins undirritar samninga við SKÝRR. F.v.: Sigurður
Þórarinsson, fjármálastjóri SR, Jón Loftsson, skógræktarstjóri, Stefán
Kærnested, framkvæmdastjóri hjá SKÝRR, og Margrét Arnórsdóttir,
aðstoðarframkvæmdastjóri hjá SKÝRR.
Skógrækt ríkis-
ins gerir samn-
ing við SKÝRR
Egilsstöðum - Skógrækt ríkisins er
að endurnýja upplýsingakerfi sín og
hefur gert samning við SKÝRR um
kaup og uppsetningu á Agresso-
upplýsingakerfi. Skógræktin hefur
hingað til eins og aðrar ríkisstofn-
anir notað BÁR, sem er Bókhalds-
og áætlanakerfí ríkisstofnana.
Agresso-kerfið er alþjóðlegt og
skógi-æktin í Noregi hefur haft slíkt
kerfí um skeið. Samningsupphæðin
hljóðar upp á kr. 5 milljónir en með
endurnýjuðum tölvubúnaði er gert
ráð fyrii' að heildarverð verði 6-7
milljónir.
Jón Loftsson skógræktarstjóri
segir þessa endumýjun gera bylt-
ingu í upplýsingamálum skógrækt-
arinnar. Starfsemin hefur verið að
vaxa og en hún byggist nú á eigna-
umsýslu, ferðaþjónustu, upp-
græðslu og afurðasölu. Mikilvægt
sé að geta haldið vel utan um starf-
semina og allar þær áætlanir sem
gerðar eru á vegum Skógræktar
ríkisins, en þær séu margar og
einnig gerðar fyrir skógræktarfélög
víða um land. Jón sagði Agresso-
kerfið vera sérstaklega aðlagað að
þörfum Skógræktar ríkisins.
Stefán Kæmested, framkvæmda-
stjóri sölu- og markaðsdeildar
SKÝRR segir Agresso-kerfið búið
nýjustu tækni í upplýsingamálum
og tengi vel nútíðina við framtíðina.
Hann bendir á þá sérstöðu Skóg-
ræktar ríkisins hvað varðar birgða-
bókhald að þegar birgðii' eldast þarf
að afskrifa þær eftir því sem tíminn
líður hjá flestum fyrirtækjum, en
hjá Skógrækt ríkisins þá vaxa þær
og dafna. Kerfið tengist auðveldlega
öðmm kerfum, t.d. BÁR-kerfi ríkis-
Vestmannaeyjum - Sóknarnefnd
Landakirkju hefur gefið út geisla-
disk með lögum fyrir sunnudaga-
skóla barna en öll lögin og textarn-
ir á diskinum eni samin af Helgu
Jónsdóttur. Lögin eru flutt af
barnakór Landakirkju sem heitir
Litlir lærisveinar og er Helga
stjórnandi kórsins.
Séra Jóna Hrönn Bolladóttir,
sóknarprestur í Eyjum, sagði í
samtali við Morgunblaðið að Helga
hefði lengi samið lög og texta fyrir
kristilegt barnastarf og hefði hún
verið fengin til starfa við sunnu-
dagaskóla Landakirkju fyrir þrem-
ur árum. Eftir að hún kom til
starfa hjá sunnudagaskólanum hafi
lögin hennar strax orðið vinsæl
enda hafi fylgt þeim ákveðinn
ferskleiki í starfinu. Það hafi því
verið stofnaður kór undir stjórn
Heigu, sem í eru börn á aldrinum
8-12 ára, og hafi sífellt verið að
íjölga í kórnum en nú séu í honum
33 börn. Sóknarnefnd Landakirkju
hafi síðan ákveðið, fyrir níu mán-
uðum, að gefa út geisladisk með
lögum Helgu og hafi verið litið á
það sem innlegg Landakirkju í
sunnudagaskólastarf í kirkjum
landsins. Jóna sagði að lengi hefði
vantað nýja og líflega tónlist í
barnastarfið í kirkjunum en lög og
textar Helgu hefðu alveg fyllt það
skarð.
Við upptöku á geisladiskinum
stjórnaði Helga kórnum og æfði
hann fyrir upptökurnar en undir-
leik önnuðust Eyjamennirnir Arnór
Hermannsson, eiginmaður Helgu,
sem lék á gítar, Högni Hilmisson á
bassa, og Stefnir Snorrason á
trommur. Upptökum stjórnaði Sig-
urður Rúnar Jónsson en hann lék
einnig á íjölmörg hljóðfæri í ýms-
um lögum. Séra Jóna Hrönn Bolla-
dóttir annaðist síðan útgáfustjórn á
diskinum.
Séra Jóna Hrönn sagði að lögin á
diskinum hefðu hlotið frábærar
viðtökur. Reyndar hefðu lögin
smám saman verið að berast milli
kirkna landsins á undanförnum
mánuðum og hefðu lífgað upp á
sunnudagaskólastarfið en nú mætti
vænta þess að þau yrðu víðar tekin
upp í starfinu. Hún sagði að lög
Helgu væni grípandi og boðskap-
urinn í textunum væri skýr. Guð-
fræðin í þeim væri einföld og því
væri komið til skila við börnin að
þau væru dýrmæt í augum Guðs.
Hún sagði að Helga hefði langa
reynslu af barnastarfi og hefði því
góðan skilning á hvað hentaði
börnum best. I lögunum væri ekki
mikið um einleik á hljóðfæri heldur
væru erindin frekar sungin oftar
enda elskuðu börn yfirleitt endur-
tekningar. Þau gætu því bæði notið
laganna og sungið með enda væri
það tilgangurinn að allir væru
þátttakendur.
Kvikmyndafélagið Nýjabíó hefur
gert myndband með lögum af disk-
inum sem notað verður til kynning-
ar á honum og var myndbandið
gert með Litlu lærisveinunum í
Eyjum.
Formlegir útgáfutónleikar voru
haldnir í Landakirkju á æskulýðs-
degi þjóðkirkjunnar, og nú er disk-
urinn kominn í sölu en hann verður
seldur í Kirkjuhúsinu á Laugavegi,
Versluninni Japis, hjá KFUM og K
í Reykjavík og hjá Veginum.
Séra Jóna Hrönn sagðist afskap-
lega ánægð með hvernig til hefði
tekist. Hún sagði að í lögunum á
diskinum væri lagt upp úr gleði og
það endurspeglaðist í söng Litlu
lærisveinanna. Ekki væri mest lagt
upp úr fágaðri raddsetningu held-
ur að gleðin skilaði sér í söngnum.
Kórinn gerði mikið að því að
hreyfa sig með söngnum, notað
væri táknmál og hreyfingar, klapp
og ýmis hljóð sem endurspegluðu
gleði barnanna. „Með útgáfu á
þessum diski hefur verið unnið
þarft framtak sem mikill sómi er
að fyrir kirkjuna," sagði Jóna
Hrönn.
Egilsstaðir - Menntamálaráðherra,
Björn Bjarnason, hélt fyrsta fund
af boðuðum raðfundum, sem halda
á víða um land, um skólamál, á
Hótel Héraði, Egilsstöðum, um síð-
ustu helgi. Ráðherra kynnti nýja
skólastefnu undir kjörorðinu „Enn
betri skóli“, en bæklingi þar að lút-
andi hefur verið dreift inn á öll
heimili í landinu. I fylgdarliði ráð-
herra vora sérfræðingar sem allir
sitja í verkefnisstjórn námskrár-
vinnu, og svöruðu þeir fyrirspurn-
um fundarmanna. Þeir vora: Jón-
mundur Guðmarsson verkefnis-
stjóri, Stefán Baldursson skrif-
stofustjóri, Hörður Lárasson,
deildarstjóri framhaldsskóladeild-
ar, og Hrólfur Kjartansson, deild-
arstjóri grunnskóladeildar.
Undirbúningur að nýrri skóla-
stefnu hefur staðið síðan 1996.
Þegar lokið verður að kynna þess-
ar breytingar um allt land verða
ráðnir sérfræðingar til þess að
ganga frá nýrri námskrá. Hún
verður væntanlega tilbúin í sept-
ember nk. og kemur til með að
taka gildi í þrepum á næstu þrem-
ur áram. Lögð er mikil áhersla á
endurmenntun kennara og nýtt
námsefni.
Sjálfstæðir nemendur
með góða fslenskukunnáttu
Ný skólastefna felur í sér að
gera nemendur sjálfstæðari og
sterkari til þess að takast á við lífið
að námi loknu. Valfrelsi verður
aukið í 9. og 10. bekk og tekin upp
ný námsgrein, lífsleikni, sem á að
stuðla að alhliða þroska nemenda
og auka færni til þess að takast á
við síbreytilegt og flókið samfélag
og varast þær hættur sem á vegin-
Morgunblaðið/Anna Ingólfsdóttir
FUNDARGESTIR voru að mestu fagfólk sem kom alls staðar af Héraði.
um verða. Gert er ráð íyrir heild-
stæðari íslenskukennslu og að
kennsla í móðurmáli verði felld inn
í aðrar námsgreinar. Fjölgað verði
kennslustundum í stærðfræði og
náttúrufræði.
Enska verði fyrsta tungumál
og sérþörfum mætt
í nýrri skólastefnu er lögð
áhersla á tungumálakennslu og
gert ráð fyrir því að enskukennsla
hefjist í 5. bekk, en dönskukennsla
ekki fyrr en í 7. bekk. Enskan verði
því fyrsta tungumál og möguleiki
verði fyrir nemendur að velja sér
þriðja tungumál áður en grann-
skóla lýkur. Sérþörfum nemenda
verði mætt og þær metnar með
greiningu, t.d. verði foreldrum 6
ára barna gefinn kostur á að láta
böm sín gangast undir lesblindu-
próf.
Fyrirhugað er að fjölga kennslu-
stundum jafnt og þétt á næstu ár-
um, yfírferð verði hraðari og fram-
úrskarandi nemendum verði gefinn
kostur á því að Ijúka grannskóla-
námi í 9. bekk. Nemdendur í fram-
haldsskóla eiga möguleika á því að
hraða námi sínu og ljúka bóknámi
á þremur áram i stað fjögurra.
Tekin verður upp upplýsingatækni
og notkun tölva verður gerð að
skyldunámi frá 4. bekk. „Öllum
grannskólabörnum er nauðsynlegt
að hafa aðgang að margmiðlunar-
tölvum og Netinu," segir í nýrri
námstefnu. Sett verður í tilrauna-
skyni upplýsinga- og tæknibraut í
framhaldsskóla.
íviorgunDiaoio/öigurgeir jonasson
LILTU lærisveinarnir í Eyjum flytja lög af geisladiskinum á útgáfutónleikunum á sunnudaginn.
Þörungaverksmiðj-
an á Reykhólum
Endurnýj-
un á mjöl-
hluta verk-
smiðjunnar
Miðhúsum - Þörangaverk-
smiðjan tók til starfa 1974.
Hún var ein sinnar tegundar í
heiminum og hefur gengið á
ýmsu i rekstri hennar og er
síðasta ár fyrsta árið sem hún
skilar arði. Það má fullyi'ða að
rekstur verksmiðjunnar var
tilraunastarfsemi og þurfti að
þreifa sig áfram við hvert fót-
mál.
Endurnýjunin
kostar 30 inilljónir kr.
Endurnýjunin sem ráðist
er í nú mun kosta 30 milljónir
og mun bæta aðstöðu starfs-
fólks. I vetur vinna hjá verk-
smiðjunni um 20 manns og á
sumrin bætast í hópinn menn
sem vinna við þangöflun.
Skip Þörungaverksmiðj-
unnar, Karlsey, aflar þarans
og flytur hann ásamt þanginu
sem þangskurðarmenn afla
yfir sumarið heim að verk-
smiðju. Hráefnið sem verk-
smiðjan notar er þang og þari
sem endurnýjar sig sjálft. Þar
með er verksmiðjan sjálfbær
sem kallað er.
Framkvæmdastjóri er
Bjarni Halldórsson, Reykhól-
um. Verksmiðjan er nú í eigu
bandarísks fyrirtækis.
Enn betri skóli - ný
námstefna kynnt