Morgunblaðið - 11.03.1998, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 11.03.1998, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 23 ERLENT Suharto forseti form- lega endurkjörinn Jakarta. Reuters. Reuters Stúdentar mótmæla MUSLÍMSKIR stúdentar við Jakartaháskóla klappa ræðumanni lof í lófa á mótmælafundi í gær. Matvæli hafa hækkað mjög í verði og héldu háskólastúdentar friðsamlega kröfufundi víðsvegar um Indónesíu þar sem þeir mótmæltu endurkjöri Suhartos. Undanfaraa daga hafa stúdentar haldið fjöida funda þar sem þeir hafa skorað á yf- irvöld að takast á við efnahagsvandann. Hefja vitnaleiðslur um orsakir kúariðu London. Reuters. SUHARTO, forseti Indónesíu, til- kynnti formlega í gær á fundi Þjóð- arráðgjafarsamkomunnar að hann hefði útnefnt Jusuf Habibie, rann- sóknar- og tæknimálaráðherra, til embættis varaforseta. Suharto var formlega endurkjörinn forseti til fimm ára í sjöunda sinn á fundi sam- komunnar í gær. Haft var eftir forsetanum í gær að þjóðin „þurfi á Habibie að halda til þess að undirbúa [sig] fyi'ir komandi iðnvæðingu." Ljóst varð í síðasta mánuði að Habibie yrði valinn vara- forseti, en hann var einn í framboði. Hann verður formlega kjörinn af samkomunni í dag. Greint var frá því í gær að indónesísk stjómvöld myndu senda fulltrúa sína til Washington til við- ræðna við fulltrúa Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins (IMF) og Bandaríkjastjóm- ar um efnahagskreppuna í Indónesíu. IMF og Bandaríkin hafa átt í deilum við Indónesíu vegna fyr- irhugaðrar efnahagsaðstoðar til landsins gegn því að gerðar verði efnahagslega umbætur sem vekja eiga traust fjárfesta, er haldið hafa að sér höndum vegna 75% rýrnunar indónesísku rúpíunnar frá því í júlí. Hafa Bandarikjamenn og IMF haldið því fram að Indónesar hafi ekki sýnt í verki að þeir vilji ganga að skilyrðum fyrir efnahagsaðstoðinni og hefur deilan enn frekar veikt stöðu mpíunnar og efnahags landsins. A mánudag samþykkti Þjóðarráð- gjafarsamkoman að Suharto skyldu veitt „sérstök völd“ er geri honum kleift að bregðast við neyðarástandi. Ekki var gerð grein fyrir því hvert svið umræddra valda er. Fjölskyldu- meðlimir Suhartos fógnuðu endur- kjöri hans í gær. Tíu þeirra eiga sæti í Þjóðarráðgjafarsamkomunni og sagði sonur forsetans, Bambang Tri- hatmodjo, að forsetinn ætti fyrir höndum að takast á við einhvern mesta vanda sem hann hefði staðið frammi fyrir þau 32 ár sem hann hefur verið við völd. Kvaðst Trihat- modjo vona að Suharto nyti stuðn- ings allrar þjóðarinnar á næstu fimm áram, sem yrðu honum erfið. En þeir Indónesar sem Reuters ræddi við í gær virtust kæra sig koll- ótta um forsetann eða voru vonsviknir. Sögðu margir að tími væri kominn til þess að Suharto viki sæti fyrir öðram. OPINBER rannsókn, eða öllu held- ur vitnaleiðslur, á orsökum kúariðu hófst í Bretlandi á mánudag. Er allt eins við því búist að hún standi yfir í hálft annað ár og muni kosta 10 milljónir punda, jafnvirði 1,2 millj- arða króna. Vegna rannsóknarinnar er áætlað að fyrir nefndina, sem lýtur forystu Sir Nicholas Phillips, eins æðsta dómara landsins, verði kallaðir mörghundrað núverandi og fyrrver- andi ráðherrar, opinberir embættis- menn, vísindamenn og bændur. Til- SAMÞYKKI íbúar London í almennri atkvæðagreiðslu 7. maí nk. að stofnað verði til embættis borgar- stjóra í borginni kann svo að fara að kosið verði ári seinna milli leikkonunnar Glendu Jackson og rithöfundarins Jeffrey Archer, ef marka má blaða- fregnir. I Independent í gær var því haldið fram að æðstu leiðtogar Verka- mannaflokksins styddu að Jackson, sem er 62 ára, yrði teflt fram en það hefði í fór með sér að hún yrði að hætta starfi aðstoðarráðherra í sam- gönguráðuneytinu. Á laugardag skýrði Times frá því að Archer, sem er 57 ára, hefði stofn- að sveit manna til að hjálpa sér að gangurinn er að komast að því hvers vegna það tók yfirvöld svo langan tíma að átta sig á hættum kúariðunnar og bregðast við henni. Leiðtogar Verkamannaílokksins hafa skellt skuldinni á íhaldsflokk- inn, segja stjórn hans hafa sett óvandaðar reglur um dýrafóðrun sem hafi gert það að verkum að veikin gat skotið rótum seint á síð- asta áratug og hafa mistekist að gera ráðstafanir nógu snemma til þess að stemma stigu við útbreiðslu hennar. öðlast útnefningu sem borgarstjóra- efni íhaldsflokks- ins. Stjórn Margar- et Thatcher lagði stórborgarstjórn London (GLA) af árið 1981, en nái áform ríkisstjórn- arinnar um endur- reisn hennar fram að ganga yrði borgarstjórinn kosinn beinni kosn- ingu, en slíkt á sér engin fordæmi í Bretlandi. Þessi áform era hluti af áætlun stjómarinnar um uppstokkun stjóm- skipunar Bretlands. Innanríkisráð- herrann Jack Straw greindi frá því að þjóðaratkvæðagreiðsla um grund- vallarbreytingu á fyrirkomulagi kosninga til neðri deildar þingsins yrði öragglega haldin fyrir lok þessa kjörtímabils. Keppa Jackson og Archer um borgarstjórastól? London. Reuters. Glenda Jackson Prescott kann að sæta rannsókn Segist vera fórnarlamb hefndarsam- særis fyrrverandi flokksfélaga London. The Daily Telegraph. Reuters. JOHN Prescott, aðstoð- arforsætisráðherra Breta, þarf væntanlega að sæta sérstakri þing- rannsókn vegna ásak- ana um að hann hafi lát- ið hjá líða að telja fram tæplega 28.000 pund, jafnvirði þriggja millj- óna króna, framlag sem hann þáði árið 1996. Bú- ist er við að hann sleppi með áminningu. Ráð- herrann heldur því fram að hann sé fórnarlamb hefndarsamsæris fyrr- verandi samflokks- manna sinna í Hull. Prescott þáði fjár- magnið frá sérstökum styrktarsjóði sem kenndur er við Joseph Rown- tree, stofnanda samnefndrar súkkulaðiverksmiðju. Prescott kveðst ekkert óhreint hafa í poka- horninu og ekkert óeðlilegt væri við að þiggja féð. Þingmenn Ihalds- flokksins halda því hins vegar fram, að smám saman sé að koma í ljós, að Verkamannaflokkurinn boði eitt en aðhafist annað. I kosningabar- áttunni í fyrra gagnrýndi flokkurinn pólitískar fjárgjafir og vildi að þær yrðu allar gefnar upp, en Prescott segir það enga þörf í sínu tilviki. Sir Norman Fowler, sem fer með umhverfismál í skuggaráðuneyti Ihaldsflokksins, segir að einfaldast væri að Prescott skýrði þinginu sjálfur frá málinu hið fyrsta ef hann vildi fá það út úr heiminum. Styrkurinn var veittur til rekst- urs skrifstofu Prescotts í heima- kjördæmi hans og athygli vekur, að Prescott hefur fulla vitneskju um hvaðan styrkurinn kom og upphæð hans, en samkvæmt reglum um svonefnda „blinda styrktarsjóði" eiga þiggjendur ekki að vita hverjir í þá greiða. Hús á hálfa milljón Þá beinist athyglin einnig að Prescott vegna umsvifa fyrir- tækis sonar hans í Hull, sem keypti 20 tví- lyft tvíbýhshús af borg- arsjóði fyrir 5.000 pund hvert, eða hálfa milljón króna. Hafa þau við- skipti sætt harðri gagnrýni íbúa og bæjarráðsmanna minnihlutans, en John Prescott yngri segir föður sinn hafa verið dreginn ranglega inn í þá deilu því hann hafi ekki haft hugmynd um þessi húsakaup. Prescott aðstoðarforsætisráð- herra segir ásakanir um fjármála- spillingu og meint brask sonar síns líklega eiga upptök hjá fyrrverandi flokksfélögum í Hull, sem hafi gengið svo langt að brjótast inn hjá honum og jafnvel stela öskutunnum 1 von um að geta þar fundið eitthvað á hann. Sem fulltrúi í framkvæmda- stjórn Verkamannaflokksins átti Prescott aðild að þeirri ákvörðun að stöðva starfsemi flokksfélagsins í Hull meðan flokksrannsókn færi fram á ásökunum um óviðurkvæmi- legt framferði leiðtoganna og lög- reglurannsókn á meintu fjármála- misferli og barnaníði þeirra. „Ef til ætla vilja einhverjir ná sér niðri á mér vegna þessa,“ sagði Prescott. Prescott Sound ofMusic fi i eftir Rogers og Hammerstein ífyrsta sinn á Islandi hjá Leikfélagi Akureyrar. • Flug með flugvallarskatti, fram og til baka • Einn miði d Söngvaseið (Sound ofMusic) • Gisting á Hótel Akureyri eina nótt með morgunverði í tveggja manna herbergi • Gjugg í borg/bæ, afsláttarhefti Tilboðid gildir frá 6. mars til 15. mat 1998 Skilmálar: Greiðsla við bókurt. Ldgmarksdvöl er eitt nótt. Miðarfást ekki endurgreiddir nerna veður hamli flugi. Bókanir og upplýsingar um flug t stma 570 3030, fax 570 3001 www.airiceland.is 3 Kvöldvcrður á Fiðlaranunt fyrir sýningu á 2.000 kr. Miðnætursnarl eftir sýningu á 1.250 kr. Hótel Akureyrí Fíðlarinn á þakinu FLUGFÉLAG Í5LAND5 ínnifalið í leíkJttísgjitggi
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.