Morgunblaðið - 11.03.1998, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 31
LISTIR
Gítartónleikar á Vopnafirði,
Raufarhöfn og Húsavík
SÍMON H. ívarsson gítarleikari
heldur tónleika á Austur- og Norð-
austurlandi. Fyrstu tónleikarnir
verða fímmtudaginn 12. mars kl.
20.30 í félagsheimilinu Miklagarði á
Vopnafirði. Þeir eru á vegum verk-
efnisins: Menning um landið. Á tón-
leikunum koma einnig fram nem-
endur úr Tónlistarskóla Vopna-
fjarðar.
Föstudaginn 13. mars leikur Sím-
on í Raufarhafnarkirkju kl. 21 og
eru tónleikarnir haldnir á vegum
Tónlistarskóla Raufarhafnar. Á tón-
leikunum kemur harmoníkuleikar-
inn Jóhann frá Ormarslóni fram og
leikur með Símoni.
Þriðju tónleikarnir verða í Safn-
aðarheimili Húsavíkur sunnudaginn
15. mars kl. 15. Áður en Símon leik-
ur mun valinn hópur gítarnemenda
í tónlistarskóla Húsavíkur leika.
Tónleikarnir eru á vegum Tónlistar-
skóla Húsavíkur.
Á efnisskránni eru annars vegar
verk eftir spænsku tónskáldin J.
Rodrigo, J. Turina og I. Albeniz og
hins vegar eftir íslenska tónskáldið
Gunnar Reyni Sveinsson. Þá spilar
Símon lög frá Suður-Ameríku, eftir
L. Brouwer, A. Lauro, R. Borges og
J. Morel.
Símon H. ívarsson hóf gítarnám
við Tónskála Sigursveins D. Krist-
inssonar hjá Gunnari H. Jónssyni.
Vorið 1975 lauk hann fullnaðarprófi
frá skólanum en þá um haustið hóf
hann nám við Hochschule fiir Musik
und darstellende Kunst í Vínarborg
hjá próf. Karl Scheit. Þaðan lauk
hann einleikaraprófi vorið 1980.
Símon starfaði síðan sem gítarleik-
ari við Tónlistarskólann í Luzern í
Sviss, en hefur sl. 13 ár kennt á gít-
ar við Tónskóla Sigursveins D.
Kristinssonar. Hann kennir auk
þess kennslufræði og kammertón-
list við sama skóla. Símon hefur sótt
námskeið, m.a. til Spánar, Ítalíu,
Sviss og Austurríkis. Hann hefur
einnig sérhæft sig í flamenco-tónlist
og farið sérstakar námsferðir til
Spánar í þeim tilgangi.
Símon hefur farið í margar tón-
leikaferðir, bæði hér heima og er-
lendis. Hann hefm- margsinnis kom-
ið fram í útvarpi og sjónvarpi og
hefur stjórnað útvarpsþáttum um
gítar og gítartónlist og hlotið náms-
styrk frá ítalska ríkinu.
Tónleikarnir eru haldnir í sam-
starfi við Félag íslenskra tónlistar-
manna.
Frumraun
Gunnars í
Y ínaróperunni
GUNNAR Guð-
bjömsson tenór-
söngvari söng hlut-
verk Tamínós í
Töfraflautu Mozarts
í Ríkisóperanni í Vín
sl. mánudagskvöld.
Gunnar var kallað-
ur til í forfóllum ann-
ars til að syngja hlut-
verk Tamínós, en það
hefur hann sungið
víða, m.a. í Berlín.
Rödd Gunnars er
sögð hafa notið sín
mjög vel í Vínaróper-
unni og í sýningarlok
var honum vel fagn-
að af óperagestum
og samstarfsfólki. Ymis verkefni
bíða Gunnars á næstu mánuðum
en á næsta ári fer hann væntan-
lega á fastan samning við Ríkisóp-
erana í Berlín til þriggja ára.
Naumur tími til stefnu
Aðspurður kvaðst Gunnar hafa
haft nauman tíma til stefnu, ekki
haft tíma til að æfa, enda hringt
til hans til Danmerkur þar sem
hann var staddur síðdegis á
fóstudag. Allt hefði gengið vel,
hann kunni hlutverkið, hefði
sungið það áður í Berlín og víðar.
„Það var ferskt í mér,“ sagði
Gunnar, „og ég var ánægður með
að syngja það.“ Hann sagði að
samtölin væra breytileg eftir óp-
erahúsum, en það hefði ekki
reynst sér neitt
vandamál. Allir
hefðu verið mjög
sáttir við söng hans
og það lofaði góðu.
Spurður um fram-
hald sagði hann að
það yrði líklega.
Verið væri að tala
við umboðsmann
sinn vegna þess. „Ég
býst við að framhald
verði, það era ýmsar
dyr að opnast fyrir
mér, nú er ég að
syngja bæði í Berlín
og Munchen. Ekkert
ólíklegt að Vín bæt-
ist við.“
Gunnar var spurður um tengsl
sín við Daniel Barenboim, list-
rænan stjórnanda Berlínaróper-
unnar, og sagði hann að Baren-
boim hefði tekið sig undir sinn
vemdarvæng, mikið samstarf og
samvinna væri á döfmni milli
þeirra. Gunnar lýsti erilsömum
ferðalögum sínum vegna söngs-
ins og var spurður um hvort
þetta væri ekki erfitt. Hann svar-
aði að hann neitaði því ekki að
liðin vika hefði verið annasöm og
nóg væri framundan. Hvíld væri
takmörkuð, stundum ekki nema
nokkrir klukkutímar.
„En þetta er það eina sem ég
get hugsað mér að vinna við, sér-
staklega þegar gengur svona
vel,“ sagði Gunnar Guðbjörnsson.
Gunnar
Guðbjörnsson
KARLAKÓRINN Heimir í Skagafirði.
Karlakórinn Heimir
í tónleikaferð
KARLAKÓRINN Heimir í
Skagafirði heldur í tónleika-
ferð dagana 12.-14. mars.
Fyrstu tónleikarnir verða í
Reykholtskirkju fimmtudaginn
12. mars kl. 21. Föstudaginn
13. mars verða tónleikar kl. 21
á Laugalandi í Holtum í
Rangárvallasýslu. Laugar-
daginn 14. mars heldur
kórinn tónleika í Reykjavík
og verða þeir í Langholtskirkju
kl. 16.30.
Á dagskrá verða lög eftir
innlenda og erlenda höfunda og
má þar nefna Jón Björnsson,
Pétur Sigurðsson, Björgvin Þ.
Valdimarsson, Geirmund Val-
týsson, Hörð G. Ólafsson, Jean
Sibelius, Richard Wagner, Sig-
mund Romberg og fleiri. Söng-
stjóri er Stefán R. Gíslason.
Undirleikarar eru Thomas Hig-
gerson og Jón St. Gíslason. Ein-
söng, tvísöng og þrísöng með
kórnum syngja Einar Halldórs-
son og Álftagerðisbræðurnir
Gísli, Óskar, Pétur og Sigfús
Péturssynir.
Karlakórinn Heimir sér um
létta skemmtidagskrá á Broad-
way, Hótel Islandi, laugardag-
inn 14. mars.
Forsala aðgöngumiða á tón-
leikana í Langholtskirkju er hjá
Eymundsson og Pennanum.
Opin kórænng
í Kringlunni
KÓR Langholtskirkju ásamt
Gradualekór Langholtskirkju
býður almenningi til opinnar
kóræfingar í Kringlunni kl. 17 í
dag, miðvikudaginn 11. mars, á 2.
hæð, á móts við Hagkaup.
Undir stjórn Jóns Stefánsson-
ar kórstjóra verður áhorfendum
gefinn kostur á að fylgjast með
hefðbundinni æfmgu í undirbún-
ingi kórsins fyrir tónleika. Um
þessar mundir æfir kórinn
Mattheusarpassíuna eftir J.S.
Bach, sem flutt verður á þrenn-
um tónleikum í dymbilvikunni, 9.,
10. og 11. apríl.
Áhorfendur fylgjast með upp-
hitun en því næst verður einn
kafli Mattheusarpassíunnar æfð-
ur og kórstjórinn mun fræða
áheyrendur um gang æfingarinn-
ar eftir því sem þörf krefur.
Hinn 11. mars árið 1829 lét
Mendelsohn endurframflytja
passíuna sem hafði þá ásamt nær
öllum verkum Bachs legið í
gleymskunnar dái í nærfellt heila
öld.
Nærri tvö hundruð manns taka
þátt í flutningi verksins, níutíu
manna Kór Langholtskirkju,
fimmtíu kórfélagar í Gradualekór
Langholtskirkju, fjörutíu liðs-
menn Kammersveitar kirkjunnar
og sex einsöngvarar eru í upp-
færslunni: Ólöf Kolbrún Harðar-
dóttir, Rannveig Fríða Braga-
dóttir, Stephen Brown, Michael
Goldthorpe, Bergþór Pálsson og
Eiríkur Hreinn Helgason.
MÉGANE OPERA
- gefur rétta tóninn í umferðinni
Staóalbúnaóur í Mégane Opera:
Fullkomið hljómflutningskerfi með geislaspilara,
6 hátölurum og fjarstýringu í stýrinu.
Samlitir stuðarar Álfelgur Rafdrifnar rúður
Vökva- og veltistýri > Fjarstýrðar samlæsingar
Litað gler * Þjófavöm * Tölvustýrður
oliuhæðarmælir Öryggisbeltastrekkjarar
með dempara
komdd og
KIVNSLUAKTU
RLNAULT MÉGAMI OÍERA
MEGANE 0PERA - HLJ0MLEIKAH0LL A HJ0LUM
v A
iNAULT
B&L • Ármúla 13 • sími 575 1200 • söludeild 575 1220 • fax 568 3818 • netfang bl@bl.is