Morgunblaðið - 11.03.1998, Page 44

Morgunblaðið - 11.03.1998, Page 44
44 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 MORGUNBLAÐIÐ + Elskuleg móðir mín, tengdamóðir, amma og langamma, AGNES ÁGÚSTSDÓTTIR frá Patreksfirði, Ljósheimum 2, Reykjavfk, sem lést á heimili sínu fimmtudaginn 5. mars sl., verður jarðsungin frá Áskirkju föstudaginn 13. mars kl. 13.30. Þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á 568 8620. Elín Þorkelsdóttir, Ólafur E. Pétursson, Agnes Ólafsdóttir, Gunnar Sverrir Ásgeirsson, Pétur Ólafsson, Rakel Ólafsdóttir, Jóhannes Ottósson og langömmubörn. + Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, VILHELMÍNA DAGBJÖRT GUÐMUNDSDÓTTIR frá Seli, Ásahreppi, Holtum, andaðist á Sólvangi, Hafnarfirði, aðfaranótt mánudagsins 9. mars. Guðrún Sigurðardóttir, Brynjar Sigurðsson, Erna Ágústsdóttir, Svanhildur Sigurðardóttir, Ólafur Þór Jóhannsson, barnabörn og barnabarnabörn. Móðir okkar, tengdamóðir og amma, SIGRÍÐUR GÍSLADÓTTIR, Kirkjuvegi 37, Keflavík, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn 6. mars sl. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 12. mars kl. 13.30. Fyrir hönd aðstandenda, Erla Jóhannsdóttir, Heimir Jóhannsson, Sigurbjörg Sveinsdóttir, Sævar Jóhannsson, Guðbjörg Kristinsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskuieg móðir min, tengdamóðir og amma, ELÍSABET VILBORG HALLDÓRSDÓTTIR, sem lést miðvikudaginn 4. mars sl., verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju föstudaginn 13. mars kl. 14.00. Þeim, sem vilja minnast hinnar látnu, er bent á Krabbameinsfélagið. Kristjana Vilborg Jónatansdóttir, og barnabörn. + Ástkær eiginmaður minn, WILL HARRISON KÁRI PERRY, Ásbúð 106, Garðabæ, andaðist á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þriðjudag- inn 10. mars. Hulda Óskarsdóttir Perry. + Fóstursystir okkar, SIGRÍÐUR BJARNADÓTTIR frá fsafirði, áður til heimilis á Hverfisgötu 117, er lést á Sólvangi mánudaginn 2. mars, verður jarðsungin frá Fossvogs- kapellu á morgun, fimmtudaginn 12. mars, kl. 13.30. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hennar, er bent á Félag krabbameinssjúkra barna. Kolbrún Sigurðardóttir, Hörður Hjartarson og fjölskyldur. Anand náði besta endasprettinum SKAK Linares, Spáni, 22. feli.-9. mars OFURMÓT SJÖ KEPPENDA Indverjinn Vyswanathan Anand sigr- aði á ofurmótinu í Linares á Spáni sem lauk á mánudagskvöld. 18. Reykjavíkurskákmótið hefst í dag. ÖLLUM skákunum í síðustu um- ferð lauk með jafntefli. Anand tefldi við Kramnik með svörtu og hélt jafntefli án nokkurra erfiðleika. Frammistaða Indverjans síðustu þrjá mánuðina er stórglæsileg. Fyrst sló hann út sex öfluga stór- meistara til að komast í FIDE- heimsmeistaraeinvígið við Karpov. Örþreyttum tókst honum að halda í við Karpov úthvíldan fram í bráða- bana. Hann sigraði svo á Hoogovensmótinu í janúar langt á undan Karpov og leikur nú sama leikinn við stigahæsta skákmann heims, Gary Kasparov. Af þessum árangri að dæma er Anand orðinn harðari af sér en áður og örugglega í hópi þriggja snjöllustu skákmanna heims, á þvi er enginn vafi. Hvort hann er sá allra besti, það kemur væntanlega í ljós á næstu misserum. Kasparov byrjaði vel með því að vinna Anand, en mátti svo sætta sig við það að gera allar aðrar skákir sínar jafntefli. Döpur niðurstaða fyrir svo mikinn baráttumann. Á meðan Kasparov stendur utan FIDE þarf hann að sanna styrk- leika sinn á hverju einasta móti. Nýjustu fréttir herma að mikil óvissa sé nú um framkvæmd „heimsmeistaraeinvíg- is“ hans við Anand eða Kramnik í haust. Ind- verjinn mun ekki sér- lega ginnkeyptur fyrir því að ganga á bak orða sinna við FIDE. Áður en hann mætti Karpov undirritaði hann yfirlýsingu um að hann myndi ekki tefla um „heimsmeistaratit- il“ á öðrum vettvangi. Þá hefur Anand lengi blöskrað ofríld Ka- sparovs í skákheimin- Anand Þröstur Þórhallsson um. Lítum á glæsilegan sigm- Anands úr tólftu umferð. Hann fær góða stöðu út úr byrjuninni og lýkur skákinni með hróksfóm: Hvítt: Vasílí ívantsjúk Svart: Vyswanathan Anand Sikileyjarvörn 1. e4 - c5 2. Rf3 - d6 3. d4 - cxd4 4. Rxd4 - Rf6 5. Rc3 - Rc6 6. Bg5 - e6 7. Dd2 - Be7 8. 0-0-0 - 0-0 9. f3 - Rxd4 10. Dxd4 - a6 11. h4 - b5 12. Kbl - Dc7 13. h5 - h6 14. Bh4 - Bb7 15. Re2 - Hac8 16. Dd2 - Hfd8 17. Hel - e5 18. Bxf6 - Bxf6 19. Rc3 - Bg5 20. Ddl - Da5 21. Rd5 - Bxd5 22. exd5 SJÁ STÖÐUMYND 22. - Hxc2!! 23. Kxc2 - Dxa2 24. f4 - Hc8+ 25. Kd2 - Bxf4+ 26. Ke2 - Dxb2+ 27. Kf3 - Hcl og ívantsjúk gafst upp. Keppendur á Reykjavíkurskákmótinu Átjánda Reykjavíkurskákmótið var sett í gær í félagsheimili TR, Faxafeni 12. Mótið er mjög öflugt, en þó engin ástæða til svartsýni fyr- + Sambýlismaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JÓNAS KRISTJÁNSSON, fyrrv. starfsmaður Hitaveitu Reykjavíkur, Álftamýri 2, lést á Landakotsspítala manudaginn 9. mars síðastliðinn. Ingibjörg Guðmundsdóttir, María Kristín Jónasdóttir, Trausti Hólm Jónasson, Örn Ármann Jónasson, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. + AÐALBJÖRG VILFRÍÐUR KARLSDÓTTIR frá Dvergasteini á Húsavík, sem andaðist á heimili sínu, Álfaskeiði 96 í Hafnarfirði, þriðjudaginn 3. mars, verður jarðsungin frá Þjóðkirkjunni í Hafnarfirði föstu- daginn 13. mars kl. 13.30. Ólafur Halldórsson, Lilja Ólafsdóttir, Guðmundur Jónsson, Dagrún Steinunn Ólafsdóttir, Karl Ólafsson, Helga Steingerður Sigurbjörnsdóttir og barnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúö og hlýhug við andlát og útför móður minnar, tengdamóður og ömmu, MARIANNE METZNER fædd MOSER. Maríanna E. Franzdóttir, Stefán Már Ingólfsson, Helga María Stefánsdóttir. Skila- frestur minning- argreina EIGI minningargrein að birt- ast á útfarardegi (eða í sunnu- dagsblaði ef útför er á mánu- degi), er skilafrestur sem hér segir: í sunnudags- og þriðju- dagsblað þarf grein að berast fjrrir hádegi á föstudag. I mið- vikudags-, fímmtudags-, föstu- dags- og laugardagsblað þarf greinin að berast fyrir hádegi tveimur virkum dögum fyrir birtingardag. Berist grein eftir að skilafrestur er útrunninn eða eftir að útför hefur farið fram, er ekki unnt að lofa ákveðnum birtingardegi. Sérfræöingar í l)lómaskreytiiij»um við öil tækifæri Skóla\örðiistíg 12. á horni Bergstaðastrætis. sími 551 9090

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.