Morgunblaðið - 11.03.1998, Síða 50
MORGUNBLAÐIÐ
%50 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998
Dýraglens
ÉG
JMwgttitMattfe
BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjavík # Sími 569 1100 # Símbréf 569 1329
Aðstaða elsta
íþróttafelags
landsins
Grettir
06 VlÐ ERUM UKA
I i I KVITT/M //
Tommi og Jenni
WHAT YmiS 15 60IN5 ARE YOU /TOBEMV PAINTIN6?! 6REATE5T ^,___I-\W0RK.. ^ 1 ‘M PAINTIN6 A HU6E LAND5CAPE UJITH TU)0 MI6HTV ARMIE5 FACIN6 EACH OTHER ACR055 AN EN0RM0U5 VALLEY BENEATH A UIIPE SKV WITH DARK 5T0RM CL0UP5 6ATHERIN6 IN THE PI5TANCE.. -
WTj kT' dj
IT L00K5 M0RE/THAT5 WHAT
LIKE A PUCK / I CALL IT..
LANDIN6 ON
THE WATER..
Hvað ertu að mála? Þetta Ég er að mála risastért landslag þar sem tveir Þetta líkist meira önd sem er að
mun verða mitt mesta verk . voldugir herir mætast í dal einum miklum und- setjast á vatn ... það er það sem
.. ir vfðáttumiklum himni á hverjum óveðursský ég kalla það ... „Önd að setjast
hrannast upp í fjarska ... á vatn“ ...
Frá Carli J. Eiríkssyni:
GUÐMUNDUR Kr. Gíslason í
stjórn Skotfélags Reykjavíkur ritar
grein í Mbl. 1. mars s.l. um aðstöðu-
leysi félagsins í innanhússgreinum
skotfimi. Guðmundur telur að inni-
greinar félagsins hafi gleymst á und-
anfómum árum meðan félagið stóð í
miklum framkvæmdum á útisvæðinu
í Leirdal. Hann gagnrýnir borgai'yf-
irvöld í Reykjavík fyrir að útvega
ekki félaginu húsnæði fyrir inni-
greinarnar og segir að þolinmæði fé-
lagsmanna sé þrotin.
Mér finnst gagnrýni Guðmundar
ekki réttlát, því að félagið hefur í
marga áratugi notið þeÚTa fríðinda
hjá Reykjavíkurborg að hafa stórt
og glæsilegt æfingasvæði í Leirdal
til afnota, bæði fyrir útigreinar og
innigreinar. í Leirdal eru skothús
sem nota má fyrir innigreinai'nar.
Eftir 1990 virtist allur áhugi fé-
lagsins beinast að haglabyssum. Þeir
félagsmenn sem mest stunduðu inni-
gi-einarnar fóru í önnur félög. Að-
staðan undir stúkunni á Laugardals-
velli var þá of dýr fyrir þá fáu sem
eftir voru.
Fyrrverandi formaður STI hefm'
skrifað um það þegar hann útvegaði
Skotfélagi Reykjavíkur inniaðstöðu
með skotbrautum í Laugardalshöll-
inni 1994. Hann skrifar að þetta hafi
staðið ónotað í marga mánuði og að
Iþróttabandalag Reykjavíkur hafi
sagt húsnæðinu upp vegna þess að
það var ekki notað. Það bendir ekki
til mikils áhuga stjórnar né félags-
manna Skotfélags Reykjavíkur á
innigreinunum.
Síðan gerðist það haustið 1996 að
stjórn Skotfélags Reykjavíkur með
Guðmund Kr. Gíslason innanborðs
neitaði að leyfa þrem keppendum að
keppa fyrir félagið, með þeim afleið-
ingum að þeir máttu ekki keppa í
skotfimi í heilan vetur, hvorki fyiir
Skotfélag Reykjavíkur né fyrir
nokkurt annað félag, vegna rang-
látra félagaskiptareglna Skotsam-
bands Islands. Þetta virkaði eins og
keppnisbann. Þó voru þetta þrír af
færustu keppendum Skotfélags
Reykjavíkur í innigreinum og Is-
landsmethafar nokkrum árum áður
fyrir Skotfélag Reykjavíkur.
Ég er sjálfur innfæddm- Reykvík-
ingur og mér finnst fara betur á því
að þakka borgaryfirvöldum fyrir að-
stöðuna í Leirdal, en að gagnrýna
Iþrótta- og tómstundaráð og Iþrótt-
abandalag Reykjavíkur fyrir aðgerð-
aiieysi og að lýsa því yfir að þeim
beri tafarlaust að útvega enn meiri
aðstöðu.
I Leh'dal er aðstaða á heimsmæli-
kvarða til að æfa flugskífuskotfimi
(haglabyssu) og einnig aðstaða fyrir
riffil- og skammbyssuskotfimi. Þar
er fjölmenn þátttaka í haglabyssu-
greinum sem gefur Skotfélagi
Reykjavíkur góða tekjumöguleika.
Þar æfa margir sem myndu sækja
æfingar hjá Skotveiðifélagi íslands
ef ekki væri hin frábæra aðstaða fé-
lagsins í Leirdal.
CARL J. EIRÍKSSON,
heiðursfélagi í Skotfélagi Reykjavíkm'.
Enn um sparnað í geð-
heilbrigðiskerfinu
Frá Björk Agnarsdóttur:
ENN og aftur skal spara í heil-
brigðiskerfinu og enn og aftur í geð-
geiranum. Er ekki komið nóg af
þvl? Ég er ung kona með geðsjúk-
dóm og ég hef þó
nokkra reynslu af
því að nota geð-
deildir og þá að-
allega móttöku-
deild. Ég hef einu
sinni orðið fyrir
því að lenda inni
á móttökudeild á
spamaðartíma og
var það hreint
hræðilegt. Tvær deildir voru þá lok-
aðar yfir sumartímann og biðlistar
mynduðust af hræðilega sjúku fólki,
sem þurfti að komast inn á deildina,
fólki sem var jafnvel í sjálfsvígshug-
leiðingum. Álag á starfsfólk var gíf-
urlegt og ekki hefði ég viljað vera
einn af þeim sem var að vinna þá.
Vegna yfirfullrar deildar var erfitt
að ná bata á þessum tíma og hefði
verið mjög gott að geta haft deild
eins og deild 28 í Hátúni til að leita
til, en sjálfsagt hefur verið yfirfullt
þar líka. En nú í haust var ég svo
lánsöm að fá að liggja inni á deild 28
í Hátúni og get ég varla lýst því
hversu miklu betra var að njóta að-
hlynningar þar eftir eril og læti
móttökudeildarinnar. Þar ríkti ró
og friður og aðstaðan til að ná sér
fullkomlega fyrir heimkomu mun
betri en á móttökudeildinni. Ég er
hér með ekki að rakka niður mót-
tökudeildir, því enn sem komið er
vantar fleiri slíkar, en ég er sann-
færð um það, að ef við hefðum fleiri
legudeildir eins og í Hátúni, þá
fengjum við geðsjúkir meiri bata og
skjótari. A tímum þar sem aukning
er á þunglyndi, ekki eingöngu á ís-
landi, heldur um heim allan, úr því
að vera í fimmta sæti sjúkdóma í
það að vera í öðru sæti, á eftir
hjartasjúkdómum, þá finnst mér
skrítið að yfirmenn ríkisspítala
skuli skera niður á þeim stað sem
aukning er á sjúklingum. Frekar
ætti að auka þjónustuna, áður en
þessi aukning verður á þunglyndis-
sjúklingum. Vil ég á endanum
þakka öllu því fólki sem hefur starf-
að á þeim deildum sem ég hef legið
inni á fyrir góða aðhlynningu og
stuðning.
BJÖRK AGNARSDÓTTIR,
geðsjúklingur.
Björk
Agnarsdóttir
Allt efni sem birtist f Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt til að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.