Morgunblaðið - 11.03.1998, Síða 55
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 5§C
MYNDBÖND
Sökkva
himinfley
Hraði 2
(Speed 2: Cruise Control)_
Npcnnumynd
‘/2
Framleiðendur: Jan de Bont, Mark
Gordon, Steve Perry, Michael
Peyser. Leikstjóri: Jan de Bont.
Handritshöfundar: Randall
McCormick, Jeff Nathanson. Kvik-
myndataka: Jack N. Green. Tónlist:
Mark Mancina. Aðalhlutverk:
Sandra Bullock, Jason Patrick,
Willem Dafoe, Temuera Morrison.
120 mín. Bandríkin. Skífan 1998. Út-
gáfudagur: 18.febrúar. Myndin er
bönnuð börnum innan 12 ára.
HRAÐi 2 er hinn frumlegi titill á
framhaldinu á hinni stórgóðu
spennumynd „Speed“, sem skaut
leikurunum Sandra Bullock og Ke-
anu Reeves uppá
stjömuhimininn.
Myndin byrjar á
því að kynna
áhorfendum það
sem gerst hefur á
milli fyrri mynd-
arinnar og fram-
haldsins, en Anne
Porter (Sandra
Bullock) ■ er komin með nýjan
kaerasta sem hún heldur að lifí
mjög rólegu lífi miðað við sinn fyrri
sem var í sprengjudeild lögregl-
unnar. En nýi kærastinn, Alex (Ja-
son Patrick) er lögreglumaður og
algjört hörkutól og eftir mikinn
bílaeltingaleik lendir hann nánast í
fanginu á Anne. Hann mildar hana
með því að bjóða henni í siglingu
um Karabíahafið og ætla þau að
skemmta sér ærlege. En einn far-
þeginn, John Geiger (Willem
Dafoe), ætlar að sjá til þess að
skipið komist aldrei aftur í höfn.
Síðasta ár er eftirminnilegt fyrir
allar þær hræðilegu stóru fram-
haldsmyndir sem kvöldu áhorfend-
ur. „Lost World“, „Batman and
Robin“ og síðast en ekki síst Hraði
2, gerðu það að verkum að
Hollywood er alvarlega að athuga
að gera færri myndir sem bera
rómverska tölustafi. Fyrstu 90
mínúturnar af myndinni eiu hreint
út sagt hundleiðinlegar og hrika-
lega illa skrifaðar. Það er reynt að
byggja upp svipað andrúmsloft og
var í fyiTÍ myndinni en það tekst
engan veginn. Einnig eru þau at-
riði sem Jason Patrick talar fingra-
mál við unga mállausa stúlku hjá-
kátleg og koma söguþræðinum
ekkert við nema að teygja lopann,
sem var nógu þunnur íyrir. En
þegar 90 mínútur eru liðnar byrjar
myndin að sökkva enn dýpra og
nær þeim merkilega árangri að
verða skemmtilega léleg. Spennu-
atriðin eru ótrúlega illa unnin og
stundum svo fyndin að maður trúir
varla að kvikmyndagerðarmönnun-
um hafi verið alvara. Einnig sést að
miklum peningum hefur verið eytt
í myndina til þess að hún líti sem
best út og eru hin stóru brelluatriði
á skjánum ein ótrúlegasta peninga-
sóun sem sést hefur. Hið 10 mín-
útna atriði þar sem skipið siglir ró-
lega inní höfnina, í gegnum nokkra
báta, einn veitingastað, hótel og
einbýlishús er botninn á þessu öllu
saman. Ef fólk vill sjá skip sökkva
þá er ráðlegast að sjá „Titanic" í
annað eða þriðja skiptið, því skipið
í Hraða 2 kemst aldrei á flot.
Ottó Geir Borg
- kjarni málsins!
FÓLK í FRETTUM
ÖRVAR segir tvöfalda geisladiskinn sinn með Led Zeppel-
in „tvöfalda himnasendingu fyrir sanna aðdáendur".
Hver er ég?
„ÉG vinn á auglýsinga-
stofunni Goð, menn &
meinvættir. Starfið get-
ur verið mjög _____________________
stressandi og eftir erfið-
an dag er gott að slappa af í sund-
laugum borgarinnar. Ég fer a.m.k.
3 sinnum í sund á viku og eru þá
pottamir og gufubaðið vinsælast.
Líkamsrækt 3-4 sinnum í viku er
I HAVEGUM
Örvar Guðni Arnar-
son, grafískur
hönnuður
nauðsyn til að halda
aukakílóunum í hæstu
kjörþyngd því allar
helgar síðustu mánaða
hafa verið nýttar til
hins ýtrasta í djamm og skemmt-
anir. Áramótaheitið mitt var að
fræðast á nýja árinu, og því hef ég
nýtt hvert tækifæri til að nálgast
bækur um ýmsa listamenn, rétt tii
að vita einhver deili á þeim. Starfið
er þó það sem tekur mestan tíma
og nýti ég m.a. hvert tækifæri til
að skoða auglýsingar ofan í kjöl-
inn,“ segir Örvar
um afþrey-
■ ingarvenjur
sínar utan
vinnunnar.
Apaplánetan
V
„Já, að sjálf-
sögðu hef ég séð
þær,“ er hið eina
sanna svar við
spumingunni
„Hefurðu séð
Apaplánetumynd-
irnar?“ Snilld á
snilld ofan, saga
sem allir verða að
þekkja, hluti af
mannkynssögunni,
kryddið á kjötinu,
sveppirnir í súpunni.“
Tímavélin
eftir Walchfdsoi
„Fyrir mörgum ámm (mjög
mörgum ámm) var mér bent á
bókina og því gerði ég mér ferð í
Bókasafnið í Vestmannaeyjum og
dustaði rykið af þessu fornriti,
skrifuðu í upphafi þessarar aldar.
Þetta er vísindaskáldsaga um upp-
finningamann sem smíðar tímavél
og ferðast með henni um einhver
60.000 ár (minnir mig) fram í tím-
ann. Þar hafa jarðarbúar skipst í
tvær íylkingar, og aðeins önnur
þeirra býr ofan jarðar. A þeim
bókasöfnum sem ég hef lagt leið
mína í hef ég leitað dauðaleit að
bókinni en ekki fundið hana. Bíó-
mynd hefur verið gerð eftir bók-
inni, sem ég hef þó ekki séð.“
BBC Session
með Led Zeppelin
„Tvöfaldur geisladiskur sem ekki
er kominn til landsins en er tvöföld
himnasending fyrir sanna Led
Zeppelin aðdáendur, draumur tón-
listarmannsins en öðrum ætti að
vera alveg sama. Nýútgefin lög,
nýjar útfærslur, góð rödd hjá Ro-
bert Plant, Jimmy Page alltaf jafn
góður, John Paul Jones og John
Bonham spila gífurlega vel satnanf
Diskur sem ég hef spilað sl. tvo
mánuði. Ákveðið þema sem er í
mörgum lögunum gerir hann mjög
skemmtilegan. Ef þú átt ekki
diskinn ert þú ekki aðdáandi, það
get ég a.m.k. sagt.“
Yessongs
Með Yes
„Af hverju þekkir enginn þessa
skrambans hljómsveit? Þeir gerðu
reyndar eitt lag allfrægt sem jafn-
íiramt er leiðinlegasta lagið þeirra
„Owner of a Lonely Heart“. Yes-
menn gera öðruvísi lög, voru á
undan sínum samtíma, sannirj.
listamenn og grínistar, m.a. tókst
gítarleikaranum Steve Howe að
sannfæra Jökul í Trúbroti um að
hann væri einn besti trommuleik-
ari heims, og reyndi Jökull að telja
íslendingum trú um það fyrir
skömmu. Diskurinn er einfaldlega
góður, ekki orð um það meir.“
Kringlunm
BRJALAÐ KRINGLUKAST
11.-14. mars
Jakkar áður kr. 8.990, Nú aðeins kr. 5.990
áður
nú aðeins
Peysur kr. 5.990,
Buxur kr. 5.990,
Bolir kr. 2.490
Bolir kr. 1.990
kr. 1.490
kr. 990
o.fl. o.fl. frábær tilboð.