Morgunblaðið - 11.03.1998, Síða 57
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998
FÓLK í FRÉTTUM
pliíirgjwM&Mli
-kjarni málsins!
DAMIAN Harris, forstjóri Skint.
HLJÓMSVEITIN Space Raiders er ein af mörgum
sem er á samningi við Skint.
Kraftmikil hiphop-
skotin danstónlist
Skint hefur haslað sér völl fyrir
gerð tónlistar sem menn kalla Big
Beat, kraftmikla hiphop-skotna
danstónlist, og náð góðum árangri
með Fatboy Slim, Bentley Rhyt-
hm Ace, sem eru reyndar komnir
á áðra útgáfu í dag, Lo-Fidelity
Allstars og safnplöturöð sem fyr-
irtækið kallar Brassic Beats.
Skammt er síðan þriðja Brassic
Beats-safnið kom út, það fyrsta
sem Sony dreifir, og Damian
Föt fyrir
Oskarinn
►ÓSKARSVERÐLAUNIN
eftirsótt u verða afhent í lok
mánaðarins með tilheyrandi
glæsileika og viðhöfn. Fatnað-
ur þeirra útvöldu sem þangað
eru boðnir skiptir miklu máli
og keppast heístu fatahönnuð-
ir heimsins um að fá tækifæri
til að klæða stjörnumar.
Af því tilefni var sórstök
kynning á „Óskars-fatnaði“ í
Los Angeles í vikunni. Fyrir- _
sæturnar eru í „demantskjól“
frá Christian Dior, svörtum
kjól frá Marc Bouwer og
rauðum kjól frá Martine Sit-
bon. Að sjálfsögðu bera þær
viðeigandi skartgripi sem
kosta á bilinu 100 til 600 milij-
ónir ki’óna.
safnarar fái eitthvað fyrir sinn
snúð, en það verða þá að vera lög
sem eru það góð að þau kalli á út-
gáfu.“
Harris segist ekki eiga neitt
uppáhald meðal þeirra sem hann
MEÐAL merkustu útgáfna í
Bretlandi er Skint-útgáfan, sem
reyndar var kjörin útgáfa ársins á
síðasta ári þar í landi. Þeir eru
varla margir sem þekkja til útgáf-
unnar hér á landi, kannast þó
væntanlega við suma þá tónlistar-
menn sem fyrirtækið hefur á sín-
um snærum, til að mynda stuð-
boltann Fatboy Slim og Bentley
Rhythm Ace, sem heimsótt hafa
Island. Skammt er síðan Skint tók
skref í stækkunarátt, samdi við
útgáfurisa um samstarf á heims-
visu, en forstjóri, stofnandi og
þúsundþjalasmiður Skint er Da-
mian Harris.
Damian Harris segist hafa
starfað við ýmislegt tengt tónlist,
þar á meðal unnið í plötubúð lengi,
verið plötusnúður, rekið skemmti-
staði og skrifað um tónlist. „Mér
fannst ég vita hvað fólk vildi heyra
og það má segja að það hafi verið
eðlileg þróun þegar ég fór að gefa
út,“ segir Harris, en hann stofnaði
Skint-útgáfuna í samstarfi við fyr-
irtæki sem hann vann hjá, Loa-
ded. „Framan af var ég í
öllu, uppgötvaði hljóm-
sveitir, hannaði umslög,
pantaði framleiðsluna og
dreifði svo plötunum.
Mest gaman fannst mér,
og þykir reyndar enn,
þegar einhver kemur með frábært
lag, því ég verð svo spenntur að
leyfa öðrum að heyra það. Því
miður er fyiirtækið orðið það
stórt að ég hef ekki eins mikinn
tíma til að hlusta á tónlist og ég
vildi, en ég á mikið gott í vændum,
því við erum að fara að gefa út það
góðar plötur á árinu að ég á eftir
að hafa nóg til að hlusta á.“
Skammt er síðan Skint gerði
samning við Sony-risann um út-
gáfu og dreifingu á afurðum fyrir-
tækisins um heim allan. Harris
segir að samningurinn losi fyrii’-
tækið við óteljandi vandamál sem
fylgi því að vera lítill og þurfa að
semja við gnía smáfyrirtækja um
heim allan um útgáfu og einnig
skili það peningum inn í fyrirtæk-
ið. „Við höfum haldið fast í hverja
krónu fram að þessu til að þenjast
ekki út fyrir það sem við ráðum
við, og Sony-samningurinn gerir
okkur kleift að taka skrefið í átt
að því að verða alvöru plötufyrir-
tæki, ekki bara fjórir vinir sem
hittast reglulega í bílskúr. Við
höldum fullu sjálfstæði, því Sony
mun ekkert skipta sér af því sem
við erum að gera, við skilum bara
af okkur plötum reglulega sem
Sony sér um að dreifa utan Bret-
lands.“
Alvöru útgáfa
Skint heitir útgáfa í Bretlandi sem náði
þeim árangri að vera valin útgáfa ársins
á síðasta ári. Forstjóri útgáfunnar,
Damian Harris, segir þó að það sé ekki
fyrr en nú sem hún er að verða alvöru
útgáfa en ekki bara fjórir vinir sem
hittast reglulega í bílskúr.
Borðar og
lyftir glasi
með tónlistar-
mönnunum
Harris segist velja lög á safnskíf-
urnar sjálfur. „Ég er algjör harð-
stjóri," segir hann alvarlegur en
hlær síðan við. „Reyndar er ég
ekki harðstjóri og þótt einhver
þurfi að taka af skarið á endanum
byggist allt sem við gerum á sam-
komulagi og einfóldum reglum.
Þannig var valið á plöt-
una með það fyrir aug-
um að hver hljómsveit
eða listamaður ætti eitt
lag, en líka leggjum við
áherslu á að hafa sem
mest af óútgefnum lög-
um á plötunni eða lögum sem ekki
hafa komið út nema á tólftommu.
Við byrjuðum reyndar á því að
gefa út Brassic Beats-skífurnar
vegna þess að við gáfum svo mikið
út á tólftommum sem aldrei kom
út á diskum. Ég held að það skipti
líka mjög miklu máli að hafa eitt-
hvað af óútgefnum lögum til að
Miðvikudaginn 11. mars, Hygea, Kringlunni.
Miðvikudaginn 11. mars, Hygea, Laugavegi.
Fimmtudaginn 12. mars, Stella, Bankastræti.
Fimmtudaginn 12. mars, Hygea, Laugavegi.
Föstudaginn 13. mars, Snyrtivöruverslunin Glæsibæ
Föstudaginn 13. mars, Hygea, Austurstræti.
gefur út, en bætir við að hann
gæti ekki gefið út tónlist með
neinum sem honum líkaði ekki við
persónulega. „Ég eyði eins mikl-
um tíma og ég get með tónlistar-
mönnunum, fæ mér í glas með
þeim, fer á tónleika eða út að
borða. Gefur því augaleið að miklu
skiptir að mér líki við viðkom-
andi,“ segir hann og hlær við.
Eins og getið er gerði EMI
samning við Bentley Rhythm Ace
og Harris segir að það hafi haft
sitt að segja um að hann ákvað að
semja við Sony. „Fyrir vikið er ég
með meira handa á milli og get
gert betur við tónlistarmennina,
sem kjósa reynda yfirleitt frekar
að vera á mála hjá okkur en að
semja við stórfyrirtæki vegna
þess að við skijum betur hvað þeir
eru að pæla og getum sinnt þeim
betur en ef þeir væru á samningi
hjá einhverjum risanum með
hundruð listamanna á sínum
snærum."
Kynning á nýju
vorlitunum frá
CKristian D íor
verður í eftirtöldum versiunum:
sum
Eftir Nicky Silver
'ekjandi gamanleikur
á Litla sviSinu
13/3, 20/3 og 28/3.
iW Í I IKH1.U, **
UriKlAMKUl yg
BORGARIEIKHÚSIÐ