Morgunblaðið - 11.03.1998, Side 58

Morgunblaðið - 11.03.1998, Side 58
58 MIÐVIKUDAGUR 11. MARZ 1998 #------------------------- MORGUNBLAÐIÐ FÓLK í FRÉTTUM „Tekur tíma að koma sér áfram“ I janúarhefti franska tímaritsins Photo var birt mynd sem Baldur Bragason ljósmynd- ari tók. Rakel Þorbergsdóttir sló á þráðinn til New York þar sem hann er búsettur. „ÞETTA er í annað skiptið á þrem- ur árum sem ég sendi mynd í keppnina og í bæði skiptin voru þær valdar til birtingar. Það eru í kring- um 40 þúsund myndir sendar inn en ég vissi að þeir myndu setja hana í flokk sem heitir „Charme“. Eg tók myndina síðasta vor bara fyrir sjálf- an mig og gat þá notað hana í þess- um .tilgangi. Síðast sendi ég mynd af Elmu Lísu Gunnarsdóttur sem var tekin heima á íslandi," sagði --vBaldur en að þessu sinni var fyrir- sætan bandarísk og heitir J.C. „Hún er 182 sentimetrar á hæð og þykir eiginlega of stór til að vera fyrirsæta. Auk þess er vaxtarlag hennar aðeins of kvenlegt eða mjúkt. Hún er leikkona og kom í stúdíóið með vinkonum sínum sem ég var að mynda. Þær vissu að ég hafði unnið fyrir Playboy og spurðu hvort ég væri ekki til í að mynda hana nakta. Myndimar komu mjög vel út og þetta er gullfalleg stelpa." Baldur segir myndabirtinguna í Photo ekkert hafa að segja fyrir feril sinn sem ljósmyndara. „Maður hefur bara gaman af þessu og ég get vísað í blaðið sem eitt af þeim sem hafa birt myndir eftir mig. Það er allt og sumt.“ Hann hefur búið í New York í rúm tvö ár og starfar nú sjálfstætt sem ljósmyndari. Hann leigir að- stöðu í stúdíói sem heitir „Pier 59“ Rafrænn mMMm M tjutométvn S9S #### DMST liimaor ■ HUfi fyrfJhun* OrSMIÐIR IH©¥Eft. BORC © Þessi fyrirtæki veita öllum sem greiða með VISA kreditkorti rafrænan afslátt Fjöldi annarra fyrirtækja veitir einnig afslátt FRIÐINDAKLUBBURINN www.fridindi.is • www.visa.is FRANSKA tímaritið Photo. BALDUR Bragason starfar sem ljósmyndari f New York. Morgunblaðið/Baldur Bragason ▲ MYNDIN sem birtist í janúarhefti franska tíma- ritsins Photo. A ÞESSA mynd tók Baldur ný- lega og er hún dæmi um það sem hann er að gera um þessar mundir. M AÐ sögn Baldurs er mikil- vægt að brjóta odd af oflæti sínu og taka þá vinnu sem býðst. en dagsleigan er um 70 þúsund krónur. „Það eru toppljósmyndarar sem koma og leigja stúdíó yfir dag- inn og menn nota þetta bara þegar þeir eru að mynda fyrir viðskipta- vini. Innifaldar eru allar græjur sem maður þarf að nota og þetta sparar manni kostnaðinn við að reka sjálfur stúdíó.“ Gífurleg samkeppni „Ég lærði ljósmyndun í Brooks í Santa Barbara í Kalíforníu en þurfti að hætta vegna peningaleysis og fór þá að vinna sem aðstoðarljósmynd- ari hjá Playboy í Los Angeles. Ég vann á Morgunpóstinum heima á Islandi, fór tii Italíu að vinna sem aðstoðarljósmyndari og því næst til Flórída. Að lokum fór ég til New York þar sem ég var í 6 mánuði að vinna sem aðstoðarljósmyndari. Þá vann ég meðal annars fyrir tímarit- in Vogue, Vanity Fair og Harper’s Bazaar og lærði mjög mikið á því. I fyrrasumar klippti ég svo á nafla- strenginn og fór að vinna sjálfstætt. Núna er ég kominn með umboðs- mann hér í New York og þá loksins eru hlutirnir farnir að gerast." Um 10 þúsund ljósmyndarar starfa í New York og samkeppnin er því mikil. Baldur segist hafa það ágætt um þessar mundir en þegar hann kom til borgarinnar var hann með 39 dollara í vasanum. Að hans sögn er vænlegra að vinna sjálf- stætt heldur en hjá tímaritum eða fyrirtækjum. Þáttur umboðsmanns- ins skiptir þar miklu máli en þegar Baldur kom fyrst til New York með myndamöppu frá íslandi var honum samstundis vísað á dyr af umboðs- manni sem fannst myndir af fræga fólkinu á Islandi ekki tilkomumikl- ar. „Það tekur tíma að komast eitt- hvert áfram og það er fyrst núna að ég er farinn að uppskera eitthvað. Maður þarf að brjóta odd af oflæti sínu og taka þá vinnu sem býðst. Það gengur ekki að sitja heima og bíða eftir því að einhver komi og geri mann frægan. Það gerist ekki. Það eru mörg þúsund ljósmyndara jafngóð eða betri en maður sjálfur og því spurningin að vera á réttum stað á réttum tíma og þekkja rétta fólkið. Það sem er mest spennandi hjá mér þessa dagana er að ég er að mynda fyrir Interview Magazine. Ég myndaði til dæmis fyrir skömmu Shannon Briggs sem er hnefaleikakappi í þungavigt og barði meðal annars á George For- eman. Það er stóra tækifærið mitt núna,“ sagði Baldur ánægður í heimsborginni New York. ♦ ; ■ t t t Þreytt(ur) á gömlu þungu bílskúrshurðinni? Nú er rétti tíminn til að panta nýja, létta, einangraða stálhurð frá Raynor LJ 1 □ ÍJPctf. VERKVER Smiijuvegi 4b, Kópavogi ® 567 6620 Raynor bílskúrshurðaopnarar Verðdæmi: Fulningahurð 229 x 244 cm kr« 61 •490/". Innifalið í verði eru brautir og þéttífútar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.