Morgunblaðið - 09.04.1998, Blaðsíða 41

Morgunblaðið - 09.04.1998, Blaðsíða 41
40 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998 41 STOFNAÐ 1913 ÚTGEFANDI FRAMKVÆMDASTJÓRI RITSTJÓRAR Árvakur hf., Reykjavík. Hallgrímur B. Geirsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. PASKAR - SIGURHÁTÍÐ LÍFSINS KROSSINN var ekki endalok Jesú,“ segir Sigurbjörn tf biskup Einarsson í bók sinni Haustdreifum, „heldur nytt upphaf, nýr sáttmáli, nýtt, skapandi máttarverk Guðs, opinberað í upprisunni.“ Þetta eru orð að sönnu. Páskarnir eru sigurhátíð lífsins yfir dauðanum. „Dauðinn dó, en lífið lifir,“ segir í kunnum sálmi. í hverfulleika lífsins getum við leitað halds og trausts í þeirri vissu, að Jesús lét lífið á krossinum fyrir alla menn. Fagnaðarboðskapurinn, sigur lífsins yfir dauðanum, er kjarninn í helgi páskanna. Föstudagurinn langi, píslarganga Krists og krossfesting hans á Golgata eru á hinn bóginn vitnisburðir um breyzkleika mannanna, sem eru hinir sömu í dag og fyrir tvö þúsund árum. Dómarar, sem dæmdu Krist, hermenn, sem pyntuðu hann, og lýður sem heimtaði Barrabas lausan eiga sér hliðstæður með öllum kynslóðum, einnig okkar eigin. Styrjaldir 20. aldarinnar og margs konar hörmungar, sem þjóðir heims hafa leitt hver yfir aðra - sem einstaklingar á líðandi stundu leiða hver yfir annan - bera þessum breyzkleika fjölmörg, átakanleg og sorgleg vitni. Mannlegt eðli er samt við sig þótt ytri aðstæður fólks hafi breytzt til hins betra, einkum á þessari öld tækni og vísinda. En hvarvetna heims um ból má einnig finna hið gagnstæða, kærleikann, sem Kristur boðaði. Kristin kenning hefur með margvíslegum hætti sett mark sitt á samfélög manna, menningu og viðhorf. Þessa sjást merki í löggjöf þjóða, almannatryggingum, heilbrigðisþjónustu og margs konar mannúðarstarfi, m.a. fjölþjóðlegu hjálparstarfi. Kærleiksboðskapur kristninnar segir og til sín í samskiptum fólks, ekki sízt þegar óvæntir atburðir og ytri aðstæður kalla á samstöðu þess og samhjálp. Það þekkjum við Islendingar, sem byggjum harðbýlt land þar sem náttúruhamfarir eru hluti af lífsreynslu kynslóðanna. í þessu sambandi verður heldur ekki komizt hjá því að minna á leit mannsins að tilgangi og fegurð í tilverunni. Þar sem maðurinn rís hvað hæst í þessari fegurðarleit, í listsköpun og -túlkun, bókmenntum, myndverkum og tónlist, verður árangurinn ekki skýrður með líkamlegum þörfum, heldur fyrst og fremst með Guðsneistanum í sálu hans. Sigurbjörn biskup Einarsson segir í Haustdreifum, sem fyrr er vitnað til: „Páskarnir hans [Krists] eru eilífgild yfirlýsing, óhagganlegt sigurorð hans: Eg lifi. Og nú er það sælt að hugsa til þess að mega áfram eiga vitund, líf, tilveru um endalausar aldir, sem þó verða aldrei annað en ein eilíf andrá fullkominnar, ólýsanlegrar lífsnautnar í ríki þeirrar elsku, sem brauzt í gegnum allar víglínur hins illa á páskum. Þá var það stríð unnið, sem markar endanlegan sigur í styrjöldinni, þó að enn sé barizt og myrkrið á flótta sínum máttugt og ægilegt. Það er dæmt. Og þá vil ég ekki láta myrkrið eiga mig, dauðans dæmda myrkur. Ég vil játast lífínu. Það er trú, kristin trú, páskatrú að taka sigur Guðs gildan og láta sigrast af honum, sem hefur lykla dauðans og heljar og lifir um aldir alda.“ Framundan er vorið þegar hækkandi sól vekur gróðurríkið til nýs lífs af vetrarsvefni. Þessi árstíð fellur vel að boðskap páskanna, sigurhátíðar lífsins yfír dauðanum: Kristur, sem er ljós heimsins, sólin í hugarheimi og trúarlífi fólks, leiðir það frá lífi til lífs. Þessi boðskapur hefur fyllt huga skáldsins og þjóðskörungsins Hannesar Hafsteins, fyrsta ráðherra okkar [1904], þegar hann lofar Guð vors lands í eftirfarandi ljóðlínum: Sólunni meiri er sálin, og sálnanna faðir ert þú. Sálirnar saman þú leiðir um sólfegri, leiftrandi brú, brú frá lífi til lífs; til lífs, sem ei mannvitið skilur, lífs, sem þú áttir um eilífð, en ennþá dauðinn oss hylur. Sannlega sú kemur stund, að vér sjáum, skynjum og reynum, endalaus ógrynni dýi'ðar, sem opnast ei dauðlegum neinum. En dauðlegir eru þeir einir, sem ei vilja Drottin sjá, og skortir vit til að vilja, og viljann: sigur að fá. Morgunblaðið árnar lesendum sínum og landsmönnum öllum gleðilegra og slysalausra páska. —-- ••53» 93,5% allra teiknimynda fyrir börn sem sýndar em í bandarísku sjónvarpi hafa að geyma eitt eða fleiri ofbeldisatriði. ein kona. Ungt fólk í sjónvarpi er að- eins þriðjungur af því sem það er í raunveruleikanum og gamalt fólk í sjónvarpi er ekki nema einn fimmti hluti hins raunverulega hlutfalls. Aðrir minnihlutahópar sjást enn minna í sjónvarpinu.“ Minnihlutahóp- arnir eru einnig þeir sem verða verst úti í ofbeldiskenndri veröld sjón- '* 1 varpsins. Athyglisvert er að einstak- lingar úr minnihlutahópum gjalda einnig fyrir beitingu ofbeldis hærra verði. Þannig býi- Gerber til „ofbeld- isgoggunarröð" fyrir minnihlutahópa í sjónvarpi og kemst að eftirfarandi niðurstöðu: a) Konum er refsað harð- ar fyrir beitingu ofbeldis en körlum. b) Því lægra sett sem persóna er í þjóðfélagsstiganum því harðari refs- ingu fær hún fyrir að beita ofbeldi. c) Gamalt fólk geldur fyrir beitingu of- beldis dýrara verði en yngra fólk. d) v> Harðast verða úti konur af öðrum kynþætti en hvitum fyrir að beita of- beldi. Elur á ótta og óöryggi Sá hugmyndaheimur sem birtist börnum og unglingum í veröld sjón- varpsins er samkvæmt þessu ekki einasta brenglaður heldur hreinlega rangur og siðlaus. Og hér erum við kannski komin að kjarna málsins; að ef siðferðilegt og hugmyndafræðilegt uppeldi barnsins er ekki þeim mun traustara þá er hætt við að barnið sogist inn í veröld sjónvarpsins og upplifi veruleikann í sömu afmynd- uðu hlutföllunum og þar birtast. Helgi Gunnlaugsson bendir reyndar á að í umhverfí íslenskra barna sé ýmislegt sem dragi úr afsiðandi áhrif- um sjónvarpsins. „Fyrir utan heimilið má nefna skólana og æskulýðs- og íþróttastarfsemi ýmiss konar. Það eru heldur ekki aðeins börnin sem verða fyrir áhrifum af þessu tagi heldur hinir fullorðnu líka,“ segir Helgi. „Ofbeldisefni í fjölmiðlum get- ur ýtt enn frekar undir þá tilfínningu að ofbeldi sé vaxandi vandi og í kjöl- farið alið á ótta og óöryggi borgar- ‘ anna, jafnvel meira en hinn opinberi veruleiki ofbeldis gefur tilefni til,“ segir Helgi Gunnlaugsson. „í þessu J samhengi hafa bandarískar rann- sóknir sýnt að mikill meirihluti borg- - . aranna álítur að glæpir séu sífellt að J aukast á meðan þess sér ekki stað í opinberum skýrslum. Skýringar á þ,J þessu ósamræmi hafa verið raktar til Jv, fréttamats fjölmiðla sem leggja mikla vj; áherslu á fréttir af afbrotum, sérstak- , lega ofbeldisbrotum. Áhrif fjölmiðla ; felast því hugsanlega meira í þvi að te hafa áhrif á skynjun okkar á ofbeldi í samfélaginu en hafa e.t.v. minni bein áhrif á fjölda ofbeldisverka." Heimildir: Ofbeldi í sjónvai-pi. Hilmar Thor Bjarnason 1996. Ofbeldi og samfélag; fjölmiðlar, hinn fullkomni sökudólgur. Heigi Gunn- laugsson 1998. Violence in TV Drama. George Ger- bner.Nordicom-UNESCO 1.3.1997. Children’s Fright Responses to Tel- evision and Films. Joanne Cantor,Nordicom-UNESCO 1.3.1997. Moving Images - Understanding Cbildren’s Emotional Responses to Screen Violence. David Buckingham, , Nordicom-UNESCO 1.3.1997. Ofbeldi í sj ónvarpi Aukin umræða um neikvæð áhrif ofbeldis í sjónvarpi á börn og unglinga hefur spunnist á undanförnum döfflim í kjölfar skelfilegra atburða sem áttu sér stað í Jonesboro í Arkansas í Bandaríkjunum. Hávar Sigur- jónsson kynnti sér rannsóknir og ræddi við afbrotafræðing og fjölmiðlafræðinff. FÉLAGS- og fjölmiðla- fræðingar hafa um árabil rannsakað áhrif ofbeldis í sjónvarpi og kvikmynd- um á börn og unglinga og komist að fróðlegum niðurstöðum þó aldrei hafí fengist afgerandi svar við þeirri einföldu spurningu hvort of- beldi í sjónvarpi valdi auknu ofbeldi í samfélaginu. Svar fræðimannanna er að í raun sé þetta langt frá því svo einfalt en þegar skelfilegir atburðir gerast er reynt að fmna sökudólg og á undanförnum vikum hefur því bein- línis verið haldið fram að ákveðnar gjörðir, ákveðinna einstaklinga, megi rekja til þess að þeir hafí horft á of- beldi í sjónvarpi. Þeir eru einnig margir sem vilja tengja aukið ofbeldi í samfélaginu við síaukið framboð á ofbeldisefni í myndmiðlunum. „Þessar skýringar þurfa ekki að koma á óvart,“ segir dr. Helgi Gunn- laugsson afbrotafræðingur. „Fjöl- miðlar verða sífellt stærri hluti af lífí okkar og því hefur verið haldið fram að meðalunglingurinn í Bandaríkjun- um hafi eytt meiri tíma fyrir framan sjónvarpið en í venjulegt skólanám. Dæmigerður bandarískur 18 ára ung- lingur hefur orðið vitni að um 30 þús- und morðum í sjónvarpi og kvik- myndum og íslenskir unglingar eru væntanlega litlir eftirbátar jafnaldra sinna bandarískra." Hilmar Thor Bjarnason fjölmiðla- fræðingur segir að um 80% rann- sókna á þessu sviði hafí verið gerðar í Bandaríkjunum. „Það er afar mikil- vægt að hafa þetta í huga, einkum þegar verið er að yfirfæra rann- sóknaniðurstöður eins lands eða sam- félags yfir á annað. Því íylgja oft vandamál. Hafí tekist að sýna fram á að um tengsl milli ofbeldisefnis í fjöl- miðlum og ofbeldis í samfélaginu í einu tilteknu landi sé að ræða, þá er ekki þar með sagt að slíkt gildi um önnur lönd eða samfélög." Helgi Gunnlaugsson tekur í sama streng og bendir á að í sumum ríkjum þriðja heimsins þar sem almenningur hefur engan aðgang að sjónvarpi sé ofbeldi viðvarandi. „Ýmsir fræðimenn hafa komist að þeirri niðurstöðu að áhorf á ofbeldisefni er í raun lítt tengt ofbeldi í samfélaginu (Krutschnitt o.fl 1986). Kanada og Bandaríkin eru gott dæmi, en þessar tvær þjóðir bjóða upp á tiltölulega sambærilegt fram- boð á fjölmiðlaefni, en götuofbeldi er eigi að síður algengara og alvarlegra í Bandaríkjunum en í Kanada. Hvað þá ef við tökum dæmi frá fjarlægum og nauðstöddum ríkjum eins og t.d. Sómalíu. Þar blasir ofbeldið og árás- argirnin hvarvetna við en aðgangur að sjónvarpi er þrátt fyrir það lítill sem enginn. Sama má segja um hvar ofbeldi ber niður innan samfélagins en það er mjög breytilegt og virðist fara eftir einhverju öðru en framboði og áhorfí á ofbeldisefni. Aðrir þættii’ eins og lífsstíll, menning, búseta og þjóðfélagsstaða eru mikilvægir í því samhengi." Schramm-rannsóknin Sumt sjónvarpsefni getur verið skaðlegt sumum börnum undir sum- um kringumstæðum. Fyrir önnur böm við sömu kringumstæður, eða fyrir sömu börnin undir öðrum kringumstæðum getur sjónvarpsefn- ið verið gott og gagnlegt. Fyrir flest börn við flestar kringumstæður er flest sjónvarpsefni sennilega hvoi’ki skaðvænlegt né sérstaklega gott og gagnlegt (Schramm, Lyle, Parker 1960). Þannig hljómaði niðurstaða einnar fyrstu meiriháttar rannsóknarinnar sem gerð var á áhrifum sjónvarps á bandarísk og kanadísk börn í lok sjötta áratugarins. Tilgangur rann- sóknarinnar var ekki endilega að kanna áhrif ofbeldisefnis í sjónvarpi á börn en lítilsháttar var tekið á þeirri spurningu. Niðurstaðan var engan veginn afgerandi heldur nánast opin til túlkunar á hvern þann veg sem menn vildu. Hilmar Bjarnason segir merkilegast við þessa rannsókn að þarna var strax sýnt fram á hversu mikilvægu hlutverki heimilið og heimilisaðstæður gegna í lífi barna og ungmenna. „Samkvæmt niðurstöðum Schramms og félaga er heimilið ein meginuppspretta félagslegra og sið- ferðilegra gilda í þjóðfélaginu. Ef fjölskyldan og þar með foreldrarnir eru samstiga í að veita bömunum ör- uggt og ástúðlegt umhverfí til að al- ast upp í og ef börnin taka virkan þátt í „heilbrigðum" og jákvæðum at- höfnum sem ekki fela í sér setu fyrir framan sjónvarpstæki eru líkurnar á að börnin verði fyrir skaðlegum áhrifum af völdum sjónvarps afar litl- ar,“ segir Hilmar. Aldur ræður viðbrögðunum Fjölmiðlafræðingurinn Joanne Cantor hefur rannsakað óttaviðbrögð barna við efni í sjónvarpi og kvik- myndum og niðurstöður hennar bein- ast í aðalatriðum í sömu átt og þær sem að ofan greinir. Hún bendir þó á að mjög er misjafnt eftir aldri barna hvers konar efni vekur með þeim ótta. Börn á aldrinum 2-7 ára óttast mest útlit þeirra fyrirbæra sem birt- ast á skjánum. Á þessum aldri hræð- ast böm mest grimm, árásargjörn dýr, „ógeðslegar" skepnur eins og slöngur, leðurblökur og köngulær, myndrænar útlistanir á meiðslum og líkamlegum afskræmingum. Breyt- ingar á fólki vekja sérstaklega með þeim ótta, t.d. þegar persóna breytist í vampíru eða einhvers konar skrímsli. Fyrir eldri börn, 8-12 ára, minnkar óttinn við útlit fyrirbæra, þar sem LÆRDÓMURINN sem börn draga af ofbeldisatriðum í sjónvarpi er að ofbeldi er beitt til að ná fram markmiðum hratt og örugglega. hæfileiki þeirra til rökhugsunar hefur aukist, en það sem virðist vekja með þeim mestan ótta er raunveruleiki frásagna, t.d. í fréttum og frétta- tengdu efni og í tilbúnum frásögnum þar sem ýtt er undir tilfinningu þeirra fyrir eigin varnarleysi fyrir of- beldi. Cantor bendir á að líkamleg hughreysting sé besta ráðið við litlu börnin en við eldri börnin er árang- ursríkast að beita skynsamlegum rökum. Hún segir þó einna minnst gagn að því að undirstrika hversu litl- ar líkur eru á að óttalegur atburður gerist í raunveruleikanum. Með því er um leið gefíð í skyn að líkurnar séu samt einhverjar. Ofbeldi í fréttum Annar þekktur fjölmiðlafræðingur David Buckingham hefur bent á að um leið og opinbera umræðan snýst að mestu um hugsanleg eftiröpunará- hrif sjónvarpsofbeldis þá beinist áhyggjur flestra foreldra fremur að tilfinningalegum viðbrögðum barna sinna en áhrifum ofbeldisefnisins á hegðun þeirra. Kenningar sínar byggir Buckingham á mjög ítarlegri rannsókn sem hann gerði fyrir Ut- varpsréttarnefnd Bretlands (Broa- dcasting Standard Council) árin 1994 og 95. Buckingham tekur dýpra í ár- inni en Cantor og segir greinilegt að fréttir af raunverulegu ofbeldi og myndir af slíku hafí margfalt meiri og alvarlegri áhrif á börn en tilbúið of- beldi. Hann kemst þó að þeirri mikil- vægu niðurstöðu að ekkert bendi til þess að börn sem horfi á tilbúið of- beldi í sjónvarpi verði ónæmari fyrir raunverulegu ofbeldi í kringum sig en ella. „Börn sem horfa á mikið af of- beldi í sjónvarpi verða vissulega ónæmari fyrir því, en ekkert bendir til þess að þau verði um leið ónæmari fyrir raunverulegu ofbeldi." Afskræmdur raunveruleiki Bandaríski fjölmiðlafræðingurinn George Gerbner var á sjöunda ára- tugnum fenginn til að gera úttekt á ofbeldi í bandarísku sjónvarpi á veg- um nefndar sem Johnson forseti skipaði til að kanna orsakir ofbeldis í samfélaginu. Eitt af því sem nefndin beindi sjónum sínum að var sjónvarp- ið og áhrif þess. Gerbner komst að þeirri niðurstöðu að um 80% allra þátta hjá ABC, CBS og NBC sjón- varpsstöðvunum í Bandaríkjunum innihéldi a.m.k eitt eða fleiri ofbeldis- atriði. Mesta ofbeldið var að fínna í glæpamyndum (hlutfallið var 96,6%) en næst á eftir komu teiknimyndir fyrir börn, 93,5% allra teiknimynda höfðu að geyma eitt eða fleiri ofbeld- isatriði. Gamanmyndir höfðu fæstar ofbeldissenur eða 66,3%. Gerbner skoðaði einnig þá veröld ofbeldis sem birtist í sjónvarpinu og þær niður- stöður voru býsna athyglisverðar og fara hér á eftir: 1. Ungir ókvæntir karlar og mið- aldra karlmenn eru líklegri til að beita ofbeldi en aðrir. 2. Hvítir menn svo og innfæddir Bandaríkjamenn eru ekki eins of- beldishneigðir og svertingjar og út- lendingar. 3. Ókunnugir eru líklegri en vinir og vandamenn til að beita ofbeldi. 4. Miðaldra karlmenn svo og svert- ingjar eru líklegri til að láta lífið fyrir tilstilli ofbeldis en aðrir. 5. Lögreglumenn eru upp til hópa jafn líklegir til að grípa til ofbeldis og þeir sem standa hinum megin laga og reglna. 6. Þrátt fýrir að fortíðin og nútíðin í sjónvarpsþáttum einkennist af of- beldi, einkennist framtíðin af enn meira ofbeldi. 7. Þrátt fyrir að hægt sé að láta líf- ið fýrir tilstilli ofbeldis, virðast slags- mál ekki valda mönnum teljandi sárs- auka eða óþægindum. 8. Þeir sem verða vitni að beitingu ofbeldis grípa sjaldnast í taumana. 9. Þeir sem beita aðra ofbeldi virð- ast ekki hafa áhyggjur af hugsanlegri refsingu. 10. Hinir svokölluðu „góðu gæjar“ beita iðulega ofbeldi ef tilgangurinn helgar meðalið. „Góðu gæjarnir“ eru jafn miklir ofbeldisseggir og „vondu gæjarnir". Sú veröld sem hér birtist er veru: lega frábrugðin raunveruleikanum. í fyrsta lagi er sjónvarpsveröldin mikl- um mun ofbeldisfyllri en raunveru- leikinn. Annað sem stangast á við raunveruleikann er að samkvæmt öll- um opinberum skýrslum og gögnum eru vinir og vandamenn mun líklegri til að beita ofbeldi en ókunnugir og líkurnar á að verða fyrir ofbeldi innan veggja heimilisins eru margfalt meiri en að verða fyrir því á götum úti. Gerbner er enn í fullu fjöri og í ný- legri grein bendir hann á að í hefð- bundnum barnatíma í bandarísku sjónvarpi séu á milli 20 og 25 ofbeld- isatriði á hverri klukkustund en í barnaefninu er ofbeldið yfirleitt klætt í búning gamansemi; „þannig er auð- veldara að kyngja því,“ segir Ger- bner. „Ofbeldi er lýsing á valdi. Lær- dómurinn sem börn draga af ofbeldis- atriðum í sjónvarpi er að ofbeldi er beitt til að ná fram markmiðum hratt og örugglega." Gerbner bendir einnig á aðrar og ekki síður athyglisverðar niðurstöður af rannsóknum sínum. í veröld sjónvarpsins sé hlutfall kynj- anna og ýmissa minnihlutahópa mjög rangt og misvísandi. „Aðeins ein af hverjum þremur persónum í leiknu efni er kona og af hverjum 7 persón- um sem birtast í fréttum er aðeins
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.