Morgunblaðið - 09.04.1998, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
Heilbrigðisráðherra vill að haustþingið
afgreiði gagnagrunnsfrumvarpið
Unnið verði við
frumvarpið í sumar
INGIBJÖRG Pálmadóttir heilbrigð-
isráðherra segist telja rétt að unnið
verði að málum í tengslum við
I J T 1
£
Morgunblaðið/Baldur Sveinsson
FARÞEGAÞOTA Air Canada á
Keflavíkurflugvelli.
Lent í Keflavík
vegna veikinda
FARÞEGAÞOTA frá kanadfska
flugfélaginu Air Canada lenti á
Keflavíkurflugvelli í gær vegna
veikinda Kanadamanns um borð.
Maðurinn var fluttur á Heilsustofn-
un Suðurnesja en hann var kominn
aftur um borð í vélina að klukku-
stund liðinni og hélt hún áfram
ferð sinni. Vélin var á Ieið frá
London til Vancouver í Kanada.
Að sögn varðstjóra slökkviliðsins
í Keflavík eru farnir um eitt hund-
rað sjúkraflutningar á ári um al-
þjóðlega flugvöllinn í Keflavík.
gagnagrunn á heilbrigðissviði í sum-
ar þannig að málið geti hlotið af-
greiðslu á haustþingi.
„Ég tel mikilvægt að þetta flókna
og mikilvæga frumvarp fái góða um-
fjöllun og fagna þeirri miklu umræðu
sem er þegar hafin um frumvarpið.
Ég hef ekki mælt fyrir því í þinginu
en fæ tækifæri til þess eftir páska.
Þá fer málið til meðferðar í heil-
brigðis- og trygginganefnd og ég tel
að við eigum að nota sumarið til að
ljúka umræðu um þetta mál og taka
það strax upp aftur á haustþingi og
ljúka því þá.“
Ráðherra sagði rétt sem haft var
eftir Davíð Oddssyni forsætisráð-
herra í blaðinu í gær að enn væri
hægt að afgreiða frumvarpið á þessu
þingi. „En ég ítreka að ég tel mikil-
vægt að fá vandaða umfjöllun um
málið og meðferð þess taki sem
skemmstan tíma. Með því að vinna
að því í sumar getum við afgreitt það
á haustþingi. Nú er hins vegar lítið
eftir af þinginu og mörg stórmál sem
liggur fyrir að afgreiða,“ sagði ráð-
herra.
Ingibjörg játti því að hún teldi að
heilbrigðis- og trygginganefnd ætti
að vinna að málinu í þinghléi í sum-
ar, afla umsagna og búa málið
þannig út að þingið gæti tekið til við
afgreiðslu þess þegar þing kæmi
saman í haust.
Morgunblaðið/Þorkell
Rauðmagi á borðin
EINN af vorboðunum er rauð-
maginn. Allt er gert upp á gaml-
an máta, trillukarlarnir sækja
sinn feng og selja hann milliliða-
laust og spriklandi ferskan. Við
Strandgötuna í Hafnarfirði hafði
einn þessara heiðursmanna lagt
niður sín söluborð og bauð þar til
sölu nýjan rauðmaga. Víst er að
margir hafa fengið vatn í munn-
inn við það eitt að sjá kræsing-
arnar.
Enginn
hrossaút-
flutningur
fyrr en í maí
HITASÓTT í hrossum er nú á und-
anhaldi á höfuðborgarsvæðinu en
breiðist út í Rangárvallasýslu og í
Borgarfirði sunnan Skarðsheiðar. I
frétt frá yfirdýralækni segir að
Ijóst sé að ekki verði um útflutning
á hestum að ræða til landa Evrópu-
sambandsins fyrr en í fyrsta lagi í
maí.
í frétt frá Halldóri Runólfssyni
yfirdýralækni segir að vegna fjölda
fyrirspurna sem borist hafi vegna
hugsanlegs útflutnings hrossa frá
ósýktum svæðum hafi málið verið
lagt fyrir fund dýralæknanefndar
Evrópusambandsins í fyrradag.
Þar hafi verið ákveðið að óska
eftir því við íslensk yfirvöld að leyfa
ekki útflutning hesta fram til næsta
fundar nefndarinnar í byrjun næsta
mánaðar í þeirri von að þá væn
staða málsins varðandi orsök veik-
innar orðin skýrari. Var tekið fram
að yfirdýralækni yrði boðin seta á
þeim fundi en honum hafði ekki
verið heimilað að sitja fundinn í
fyrradag eins og óskað hafði verið
eftir.
I næstu viku verður bandarískum
yfirvöldum einnig gerð grein fyrir
stöðu mála hérlendis og hugsanleg-
ur útflutningur til Bandaríkjanna
ræddur. Þá kemur einnig sænskur
sérfræðingur til landsins til ráðgjaf-
ar íslenskum dýralæknum.
Sérblöð í dag
JBorjjontilsWb
VEDSKDPnAIVINNULÍF
Mikill ihagt i hiuUbréf- urn ÍJim- blcndinu ...
Intersport verslunar- keðjan kemur til íslands
mm Si
to' Peninvabréf , jtfm »i fruff irixtuu
t , ' FSS!3Bar—- sssBi,
JHoreunblobiti
ATVINNU/RAÐ-
OG SMÁAUGLÝSINGAR
; - AfitoMMUXtSNG* !
FUkifneóing
vanUr í IfialUdal
Framkvamdasljóri
leilar itarfamanns
I :
Hafnarbúðir
Ul höIu
Aukinn áhugi hjá BSRB »iU «1- r>iu lliiuu. krrifyrir
fyrirtækjum pgjgs
S5K&S
"f'~-.-ÍTzz^rz
Mmí ifelf!
— fúrBázMrl pgpSSg
Páskar
Þar sem Guðsmóðir birtist
Einar Falur Ingólfsson slóst í för
með pflagrímum/DI
í heljargreipum Kára og Ægis
Sveinn Guðjónsson rifjar upp eitt mann-
skæðasta páskahret í manna minnum/D4
Spánskt fyrir sjónir
Asgeir Sverrisson bregður upp myndum
úr mannlífínu á Suður-Spáni/D8
Þrotlaus vinna - Þúsund draumar
Ragna Sara Jónsdóttir fræddist um hvað
þarf að leggja í góðan ballettdans/D10
Bætist í bræðslupottinn
Urður Gunnarsdóttir ræddi við fulltrúa
nokkurra þeirra hópa sem byggja Bandaríkin/D16
Raddir frá Slóvakíu
Lárus Már Björnsson segir frá
sumardvöl í Slóvakíu/B19
Á hraðbraut lífsins
Guðrún Guðlaugsdóttir ræddi við Gísla Sigurðsson,
sem sumir nefndu Gísla Grímseying/D20
Dumars bæði og Dalai Lama
Arnaldur Indriðason fjallar um páska-
myndir kvikmyndahúsanna/D24
Sáttfúsir fornmenn
Jakob F. Ásgeirsson segir frá Byock
og kenningum hans/D26
Dagar ósýrðu brauðanna
Sigrún Birna Birnisdóttir kynnti
sér páskahald gyðinga í Ísrael/D28
Kristin saga uppeldis
Gunnar Hersveinn ræddi við Loft
Guttormsson sagnfræðing/D30
Ofbeldi í sjónvarpi
Hávar Sigurjónsson kynnti sér áhrif ofbeldis í
sjónvarpi/40
Þegar Halidór Kiljan Laxness og
Ólafur Thors voru sama sinnis
Pétur Pétursson rifjar upp hvernig skáldið og
stjórnmálamaðurinn áttu samleið/F10
Stjórnleysi hjá
Stoke/C1
Masters/C2
Hver er hann,
þessi
Lippi?/C4
Úrslit að
hefjast í
handbolta og
körfubolta/C8
Baðst afsökunar við gröf föður
síns þegar hann tók við Juventus
Krossgáta/D32
Matur og matgerð/D34
Minnisblað lesenda/D38
Fermingar/D39
Messur/D42
Fylgstu með nýjustu fréttum á Fréttavef Morgunblaðsins www.mbl.is