Morgunblaðið - 09.04.1998, Blaðsíða 6
6 FIMMTUDAGUR 9. APRÍL 1998
FRÉTTIR
Akbraut Gullinbrúar tvöfölduð í sumar
Dregið verður úr óþæg-
indum íbúa eftir föngum
Morgunblaðið/Ásdís
GRAFARVOGSBUAR kynna sér hvernig staðið verður að breikkun
Gullinbrúar í sumar. Tvöföldun akbrautar lýkur í haust og ný brú
verður smíðuð næsta vetur.
BORGARVERKFRÆÐINGUR
efndi til opins fundar með Grafar-
vogsbúum á þriðjudag til að kynna
fyrirkomulag á framkvæmdatíma
við breikkun Gullinbrúar og frum-
matsskýrslu vegna umhverfismats.
Að sögn Stefáns Hermannssonar
borgarverkfræðings var fundurinn
haldinn til að komast í samband við
næstu nágranna við framkvæmdina
og gera þeim grein fyrir tímasetn-
ingum og ýmsum praktískum atrið-
um í sambandi við hana.
Umhverfismat á framkvæmdinni
er enn í opinberri kynningu og má
gera athugasemdir til 15. apríl nk.
Matið er hægt að kynna sér hjá
Borgarskipulagi, hjá Skipulags-
stofnun og á Foldasafni í Fjörgyn.
Framkvæmdin felst í breikkun
Gullinbrúar með nýrri akbraut vest-
an við núverandi veg frá Stórhöfða
og vestur fyrir Hallsveg og með
nýrri brú vestan núverandi brúar.
Stefán segir að vegna þeirra
krafna sem gerðar eru til vemdar
lífríkis og náttúru verði ekki hægt
að byrja á brúarsmíðinni sjálfri fyrr
en í október en útboðsgögn verði til-
búin í maí. Hins vegar segist hann
telja að með framkvæmdunum í
sumar verði núverandi umferðartaf-
ir úr sögunni.
Hljóðmanir hækkaðar og
gluggum breytt
Annar þáttur umhverfismats er
hljóðvist við íbúðarhúsnæði í ná-
grenni framkvæmdarinnar. Stefán
segir að hljóðmanir verði hækkaðar
og hljóðtálmum bætt ofan á þær á
nokkrum stöðum. Hann segir að
þeir staðir verði nánar útfærðir í
samráði við íbúa á hverjum stað.
Auk þess segir hann að gera þurfi
breytingar á gluggum á efri hæðum
nokkurra húsa þar sem hávaði verði
óþægilega mikill.
í tvær til þrjár vikur í ágúst með-
an gatnamótum Gullinbrúar og
Fjallkonuvegar verður breytt verð-
ur umferð hleypt framhjá hring-
torginu um Lokinhamra og um
hjárein af Gullinbrú inn á Fjall-
konuveg og er sú útfærsla sýnd á
meðfylgjandi korti.
Ofbauð lokun Goethe-stofnunar í Reykjavík
Bjóða íslendingi til
Þýzkalandsdvalar
RITSTJÓRI dagblaðsins Landes-
zeitung, sem er stærsta fréttablað
norður-þýzka sambandslandsins
Schleswig-Holstein, gefið út í Ki-
el, hefur ritað Morgunblaðinu
bréf, þar sem hann lýsir hneyksl-
an sinni á lokun Goethe-stofnun-
arinnar í Reykjavík, sem hann
frétti af í gegnum umfjöllun þýzka
sjónvarpsins um hana.
í bréfinu segist ritstjórinn,
Christian Hauck, að hann og eig-
inkona hans hafi ákveðið að leggja
sitt af mörkum til að styðja við
menningartengsl íslands og
Pýzkalands með því að bjóða ung-
um íslendingi að kynnast Þýzka-
landi með því að þiggja ársdvöl á
heimili þeirra hjóna.
„Mér ofbauð þessi della, að
stofnuninni skyldi lokað til að
spara 350.000 mörk,“ sagði Hauck
í samtali við Morgunblaðið. „Það
er nú einu sinni svo, að við erum
ekki vinsælasta þjóð Evrópu, og
þess vegna tel ég að við ættum að
leggja sérstaka áherzlu á að við-
halda góðu sambandi við þær
þjóðir sem eru opnastar fyrir vin-
samlegum samskiptum við okk-
ur,“ sagði Hauck, en af kynnum
sínum af íslendingum við Kielar-
háskóla að dæma telur hann þá al-
mennt vinveittari Þjóðverjum en
t.d. Dani eða Norðmenn.
Þar sem eiginkona Haucks er
finnsk hafa þau hjón haft finnskar
au-pair-stúlkur hjá sér. Við þess-
ar fréttir frá íslandi datt þeim í
hug að breyta til og gefa ungum
íslendingi kost á að dvelja hjá
þeim og líta tíl með tveimur böm-
um þeirra. „í boði er eigin íbúð,
góðir vasapeningar, nálægð við
stórborgimar Kiel og Hamborg,
fjölbreyttir möguleikar á íþrótta-
iðkun og þátttaka í þýzkunám-
skeiðum,“ segir í bréfi þeirra.
Gullinbrú
Breytingar á umferð um gatnamót
Gullinbrúar og Fjallkonuvegar
vegna framkvæmda
við gatnamótin
ARNAR Jensson, aðstoðaiyfirlög-
regluþjónn hjá efnahagsbrotadeild
Rannsókarlögreglustjóra, segir að
grunsemdir hafi styrkst um að til-
tekin málverk af þeim sem kærð
hafi verið til embættisins séu fólsuð.
Embættinu barst fyrir skömmu
kæra vegna tveggja mynda sem
eignaðar eru danska listmálaranum
Asger Jom, eins stofnenda Cobra-
listamannahópsins sem Svavar
Guðnason var hluti af. Alls hafa því
verið kærð 27 málverk til embættis-
ins vegna gruns um meinta fólsun.
Rannsókn nær lokum
Arnar segir að ekki hafi verið
tekin ákvörðun um útgáfu ákæru en
hins vegar sé Ijóst að það styttist í
að rannsókn ákveðinna þátta máls-
ins ljúki. „Rannsóknin er á frum-
stigi varðandi margar þessara
mynda en rannsókn varðandi sumar
þeirra er komin lengra og þar sem
fram hefur farið ítarleg tæknirann-
sókn og rannsókn á ýmsum öðrum
hliðum málsins, hefur granur um
fölsun styrkst," segir Amar.
Kæran var lögð fram á föstudag í
seinustu viku. „Oskað er eftir opin-
berri rannsókn á meintum fölsunum
þessara verka og eins og það felur í
sér jafnframt, að reynt verði að
komast að því hver hafi gerst sekur
um fólsun og fjársvik í tengslum við
Grunur um
falsanir
hefur styrkst
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
MYNDIRNAR tvær sem kærurnar beinast að.
þetta enda fjársvik að selja gallaða
vöra á háu verði,“ segir Amar.
Embætti rannsóknarlögreglu-
stjóra gerði þrjár húsleitir um miðj-
an nóvember síðastliðinn vegna
rannsóknar sinnar á meintum mál-
verkafölsunum og í kjölfar þess var
einn maður handtekinn, í fyrri hluta
desembermánaðar, og hann yfir-
heyrður vegna málsins.
Rétt rúmt ár er síðan fyrstu kærur
bárust vegna gruns um meinta fólsun
og var um þrjú verk að ræða, en síð-
an hafa 24 verk bæst við eins og áður
sagði. Amar segir að það hafi haft
áhrif á rannsókn málsins að mál sem
þessi era mjög sjaldgæf hérlendis og
ekki til staðar hefð fyrir rannsóknar-
aðferðum í tengslum við þau.
Einstök rannsókn
„Þessi rannsókn er alveg einstök
sem lögreglurannsókn," segir Arn-
ar. „Erlendis era rannsóknir vegna
þessara mála líka sjaldgæfar og
hver með sínu sniði, þannig að erfitt
er að koma málinu í sama farveg og
venjuleg afgreiðslumál hafa. Það er
þó kannski ekki aðalmálið þegar lit-
ið er á tímann sem rannsóknin hef-
ur tekið, heldur að hvert rannsókn-
arskref sem hefur verið tekið er
mjög tímafrekt, þar á meðal tækni-
rannsóknir og að afla gagna erlend-
is frá, staðfesta skýringar o.s.frv.“
MORGUNBLAÐIÐ
Strandamenn
undrandi á
flutningi
sýslumanna
STJÓRN Fjórðungssambands
Vestfirðinga hefur sent Þor-
steini Pálssyni dómsmálaráð-
herra bréf þar sem lýst er yfir
furðu á þeim hugmyndum að
flytja sýslumanninn á Hólma-
vík tíl Akraness og sýslumann-
inn þar til Hólmavíkur.
Stjórn Fjórðungssambands-
ins sendi afrit af bréfinu til fjöl-
miðla. Þar segir: „í dag hefur
mátt heyra fréttir um tilfærsl-
ur milli sýslumannsembætt-
anna á Ströndum og Akranesi.
Svo virðist sem dómsmálaráð-
heraa sé búinn að ákveða að
flytja sýslumanninn frá Hólma-
vík til Akraness og sýslumann-
inn þaðan til Hólmavíkur. Sú
ákvörðun er undarleg í ljósi
þess að dómsmálaráðherra hef-
ur veitt sýslumanninum á
Akranesi áminningu vegna
starfa sinna. Með þessu er ekki
verið að leggja mat á störf við-
komandi sýslumanns. Fjórð-
ungssamband Vestfirðinga,
sem er samband sveitarfélaga
á Vestfjörðum, vill koma því á
framfæri við dómsmálaráð-
herra að Vestfirðir era ekki
annars flokks svæði sem hent-
ar til að fiytja inn á embættis-
menn sem að mati ráðherra
hafa ekki staðið sig nægilega
vel í starfi.“
Fangelsis-
dómur fyrir
nytjastuld
TUTTUGU og tveggja ára gam-
all Reykvíkingur vai’ í gær
dæmdur í fjögurra og hálfs
mánaða fangelsi fyrir að hafa
rofið reynslulausn og hafa tekið
í heimildarleysi bifreið fi-á húsi í
Kópavogi í október í fyrra og
ekið henni þaðan, án ökuréttar,
til Reykjavíkur og aftur til baka.
Maðurinn hefur sex sinnum
sætt refsingu á áranum 1993 til
1997 vegna m.a. þjófnaðar,
nytjastuldar, tílraunar til ráns
og fíkniefnabrots, fjórum sinn-
um verið dæmdur og tvisvar
gengist undir sátt. Segir í dóm-
inum að sakaferillinn bendi til
einbeitts brotavilja.
Finnur Torfi Hjörleifsson
kvað upp dóminn.
Sýknaður
af ákæru um
líkamsárás
TUTTUGU og fjögurra ára
gamall Garðbæingur var sýkn-
aður í Héraðsdómi Reykjavík-
ur í gær af ákæra um að hafa í
apríl í fyrra veist að jafnaldra
sínum í Austurstræti og veitt
honum hnefahögg. Óþekktir fé-
lagar ákærða hafi síðan fylgt
árásinni eftir með höggum og
spörkum með þeim afleiðingum
að blóðæxli myndaðist í heila-
stofni árásarþolans og sex
tennur brotnuðu, auk annarra
áverka.
I niðurstöðum dómsins segfr
meðal annars að í vottorði
læknis komi fram að blóðæxlið
í heilastofni sem getið var í
ákæru hafi verið til staðar í
mörg ár. Með öllu sé ósannað
að þeir áverkar sem í ákæru
greinir hafi verið af völdum
ákærða þó svo að hann hafi við-
urkennt að hafa slegið kærand-
ann í andlitið.
Með tilliti til framburðar
vitna var lýsing ákærða á upp-
töku átakanna lögð til grund-
vallar í málinu.
Dóminn kvað upp Ingibjörg
Benediktsdóttir héraðsdómari.