Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 1
112 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
94. TBL. 86. ÁRG.
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Kosningaósigur CDU í Sachsen-Anhalt
Alvarleg gagn-
rýni á Kohl frá
flokksbræðrum
HELMUT Kohl, kanzlari Þýzkalands, vísaði í gær á bug vangaveltum
um að hann myndi hætta við að sækjast eftir endurkjöri eftir að flokk-
ur hans, Kristilegir demókratar (CDU), þurfti að þola einhvern mesta
kosningaósigurinn í sögu sinni, í kosningum til þings sambandslands-
ins Sachsen-Anhalt í austurhluta landsins um helgina.
LÖGREGLUMAÐUR tekur ómjúkum höndum á verkfallsverði við Árósahöfn, sem tók þátt í að hindra að bíl-
ar kæmust um borð ( ferju á fyrsta degi verkfalls um 450 þúsund danskra launamanna í gær.
Danir búa sig undir
langvinnt verkfall
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
„EF ÞÚ ætlar að fá mjólk verðurðu
að mæta fyrir opnun,“ sagði starfs-
stúlka í kjörbúð á Austurbrú í gær,
reynslunni ríkari eftir að rúmlega
hundrað manns beið við búðardyrn-
ar, þegar opnað var klukkan níu í
gærmorgun. Hið fáránlega er að það
er til nóg af vörum, en hömstr-
unaræði Dana hefur vakið marga til
umhugsunar um hvað sé eiginlega á
seyði.
Verkfallið setti svip sinn á borgar-
lífið í Kaupmannahöfn og þjóðlífið
víðar. Aðeins um helmingur strætis-
vagna borgarinnar hélt uppi ferðum
og undarlegar gloppur voru í úrvali
kjörbúðanna. A sjúkrahúsum var
starfsfólkið beðið að fai-a sparlega
með hreint lín, því þvottar falla víða
niður. Það reiknar enginn með að
verkfallið standi skemur en fram í
miðja næstu viku, og er giskað á að
þá verði ástandið orðið svo slæmt að
stjórn Poul Nyrup Rasmussen geti
vísað til neyðarástands og sett
bráðabirgðalög.
„Þetta er alveg brjálað,“ varð búð-
armanni nokkrum í kjörbúð á Aust-
urbrú að orði, er hann var að lýsa því
hvernig fólk þyrpist að þessa dagana
til að versla og við þessu reyna kaup-
menn að bregðast. Á grænmetis-
markaði Kaupmannahafnar, þaðan
Fólk fer hamför-
um í hamstri
sem afgreitt er í búðir, eru á venju-
legum mánudegi keyrð út 10 tonn af
kartöflum, en í gær dugði ekki
minna en 62 tonn til að anna eftir-
spurn.
Helsta hörgulvaran er þó ger. Vís-
ast mun mikið af því fara til spillis,
ekki síst ef margir hafa keypt eins
og kona nokkur, sem rætt var við, en
hún hafði keypt 75 50 gramma ger-
pakka. Það dugir gróflega áætlað í
150 brauð, sem ætla má að dugi með-
alfjölskyldu í um fimm mánuði, svo á
þeim bæ var greinilega búist við
langvinnu verkfalli. Mjólk sást óvíða,
því fæstir hafa áttað sig á að mjólk-
urbúin verða ekki fyrir barðinu á
verkfallinu. Flutningar eru annars
eitt þeirra sviða, er verkföllin ná til.
Því er ekki keyrt út bensín, svo flest-
ar bensínstöðvar munu verða bensín-
lausar er líður á vikuna. Bens-
ínskortur mun hafa víðtæk áhrif
jafnt á fjölskyldur sem fréttaöflun
sjónvarpsstöðva, er ekki munu geta
keyrt út til að afla frétta.
Af öðrum sviðum má nefna að
blöðin koma ekki út vegna verkfalls
prentara. Ferjur í einkaeign sigla
ekki. Um Kastrup-flugvöll fóru í gær
aðeins tuttugu prósent af venjulegu
utanlandsflugi og mun það enn
minnka næstu daga. Flestir leigubíl-
ar hverfa af götunum nema þeir sem
eigandi keyrir sjálfur. Starfsmenn
sjúkrabíla eru í verkfalli, en bílunum
er haldið gangandi á undanþágum.
Hreingemingar á sjúkrahúsum og í
skólum leggjast niður en sjúkrahús-
in fá að hluta undanþágu. Sorp er
ekki sótt, flestar verksmiðjur eru
lokaðar og byggingarframkvæmdir
liggja niðri.
Undanþágur
treglega veittar
Flest veitinga- og kaffihús eru op-
in, en gætu átt erfitt með að afla
birgða. Mörgum hótelum verður lok-
að. Haugar umsókna um undanþág-
ur liggja fyrir, en verkalýðsfélögin
afgreiða þær treglega. Ekki eru þær
heldur ókeypis því hver umsókn
kostar rúmar þrjátíu þúsund íslensk-
ar og fyrir starf unnið á undanþágu
þarf að borga tvöfaldan taxta.
Það stefnir því allt í að Danir fái
upplifun ársins ef ekki áratugarins,
því það eru fæstir vanir því að sjá
strætisvagna- og leigubflalausar göt-
ur, svo og búðarhillur sem minna á
Austur-Evrópu fyrir fall múrsins.
Kanzlarinn leitaðist á frétta-
mannafundi í gær við að gera sem
minnst úr ósigri helgarinnar, en við
úrslit kosninganna í Sachsen-Anhalt
vakti mesta athygli að hægriöfga-
flokkur, Þýzka þjóðarbandalagið
(DVU) hlaut mjög óvænt nærri 13%
atkvæða.
CDU tapaði rúmum 12 prósentu-
stigum frá því síðast var kosið til
þings Sachsen-Anhalt fyrir fjómm
ámm; fékk nú 22% í stað rúmlega
34% áður. Jafnaðarmannaflokkurinn
(SPD), sem hafði verið við stjórnvöl-
inn í héraðinu undanfarið kjörtíma-
bil í minnihlutastjómarsamstarfi við
Græningja, bætti lítillega við fylgi
sitt, en Græningjar féllu út af þingi.
Reinhard Höppner, forsætisráð-
herra og héraðsleiðtogi SPD, sagð-
ist í gær fýrst leita til CDU um
stjórnarsamstarf.
PDS, arftakaflokkur austur-þýzka
kommúnistaflokksins SED, festi sig
í sessi með tæp 20% atkvæða.
Meiri háttar áfall
Stjórnmálaskýrendur túlkuðu
þessi úrslit sem meiri háttar áfall
fyrir stjórnina í Bonn og töldu þau
spilla möguleikum Kohls á að ná
endurkjöri til að gegna kanzlara-
embættinu í fjögur ár til viðbótar við
þau 16 sem hann á þegar að baki.
Fimm mánuðir era nú til kosninga
til Sambandsþingsins. Kohl lýsti því
jrfir í gær að hann hefði enn „alla
möguleika á sigri“.
Þótt gagnrýni úr röðum eigin
flokksmanna Kohls hafi verið hörð
gekk hún þó ekki svo langt að þess
væri krafizt að hann segði af sér
flokksformennsku, sem hann hefur
gegnt undanfarinn aldarfjórðung.
Heiner Geifiler, varaformaður þing-
flokks CDU, sagði í gær að hann
hefði hvatt flokkinn til að flýta áætl-
unum um hvað tæki við eftir að Kohl
hætti. GeiBler sagði Kohl einan bera
ábyrgðina á því hvernig fór í Sach-
sen-Anhalt.
■ Ásakanir ganga/25
KOHL kanzlari á fréttamanna-
fundi í Bonn í gær.
Færeyingar stefna
dönsku stjórninni
Heima-
stjórn-
arlögin
brotin?
Þórshöfn. Morgunblaðið.
FÆREYSKA landstjómin lagði í
gær fram stefnu á hendur danska
ríkinu og Den Danske Bank vegna
taps Færeyinga á yfirtöku Færeyja-
banka árið 1993. Færeyingar krefj-
ast 1,519 milljarða danskra kr. í bæt-
ur, um 15,8 milljarða ísl. kr. en hætt
var við að stefna Fjárfestingasjóðn-
um. Hins vegar sakar landstjórnin
dönsk yfirvöld um að hafa brotið
færeysku heimastjórnarlögin en það
kann að neyða danska dómstóla til
að taka fyrir hvaða reglur gildi í
ríkjasambandi Færeyja og Dan-
merkur, að því er segir í Jylkinds-
Posten.
Samið við Fjárfestingasjóðinn
Landstjórnin tilkynnti í gær að
gerður hefði verið samningur við
Fjárfestingasjóðinn sem felur í sér
að Færeyingar áskilji sér rétt til að
stefna sjóðnum allt að hálfu ári eftir
að lokadómur fellm- í málinu.
í færeysku heimastjórnarlögunum
frá 1948 segir að landstjórnin eigi
kröfu á að hafa áhrif á allar ákvarð-
anir er varði færeyska hagsmuni.
Þessa grein laganna telur land-
stjórnin að dönsk stjómvöld hafi
þverbrotið.
Þá er Mogens Lykketoft, fjár-
málaráðherra Dana, sakaður um að
hafa leitt færeysku landstjómina á
villigötur er hann fullyrti að Fjár-
málaeftirlitið og seðlabankinn hefðu
fallist á saminginn um yfirtökuna en
það var ekki rétt.
Grikkir óttast að átök Serba og Kosovo-Albana geti breiðst út á Balkanskaga
Líkja Kosovo við handsprengju
Þessalonikíu, Pristina, Lúxemborg. Reuters.
GRISKI varnarmálaráðherrann, Akis Tso-
hatzopoulos, sagði í gær að mikil hætta væri á því
að átökin í Kosovo-héraði í Serbíu breiddust út til
nálægra ríkja, ef Serbar og Albanir í Kosovo
yrðu ekki beittir auknum þrýstingi til að semja
um frið.
„Kosovo er eins og handsprengja og ef við
drögum pinnann lengra út, springur hún,“ sagði
Tsohatzopoulos í gær. Sagði hann að fá yrði
Serba og Kosovo-AIbani til að setjast að samn-
ingaborði með einhverjum ráðum. Albanir hafa
ekki viljað funda með Serbum og Serbar höfnuðu
erlendum afskiptum af deilunni í þjóðaratkvæða-
greiðslu í síðustu viku.
Landamæri ekki færð til
Tsohatzopoulos sagði að ekki kæmi til greina
að landamæri á Balkanskaga yrðu færð til en Al-
banir í Kosovo hafa krafist sjálfstæðis. Grikkir
eiga landamæri að Albaníu og hefur oft verið óró-
legt á þeim.
Þá sagði ráðherrann að Fatos Nano, forsætis-
ráðherra Albaníu, hefði fullyrt að albönsk stjórn-
völd styddu ekki Frelsishreyfingu Kosovo, sem
átt hefur í átökum við serbnesk stjórnvöld.
Spenna hefur aukist mjög í héraðinu eftir að
júgóslavneski herinn fór að beita sér í auknum
mæli gegn Albönum. I gær féllu þrír Albanir í
átökum við herinn en þetta er í þriðja sinn sem til
átaka kemur á fimm dögum.
Þá lýsti Robin Cook, utanríkisráðherra Bret-
lands, sem fer með forystu í Evrópusambandinu,
því yfir að sambandið myndi ekki draga úr þrýst-
ingi á Serba að kalla herlið sitt frá Kosovo. í því
sambandi kæmi til greina að auka viðskipta-
þvinganir gegn Serbum.