Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 23
Drengur
skýtur
kennara
BANDARÍKJAMENN eru
enn einu sinni slegnir óhug
vegna vopnaburðar og ofbeld-
ishneigðar barna en um helg-
ina frömdu fjögurra og fjórtán
ára drengir morð. Tveir ung-
lingar særðust er Andrew Jer-
ome West dró upp skamm-
byssu og hóf skothríð á skóla-
dansleik í Edinboro í Pennsyl-
vaníuríki sl. fóstudagskvöld.
MikO skelfmg greip um sig á
dansleiknum en West var
handtekinn á staðnum og verð-
ur réttað yfir honum eins og
um fullorðinn mann sé að
ræða.
Á sunnudag skaut fjögurra
ára drengur sex ára leikfélaga
sinn í afmæli þess síðarnefnda í
Greensboro í Norður-Karólínu-
ríki. Voru afmælisgestir að leik
er þeir fundu hlaðna byssu í
handtösku og fóru að leika sér
að henni með fyrrgreindum af-
leiðingum. Ekki hefur enn ver-
ið tekin ákvörðun um hvort
eigandi byssunnar verður sótt-
ur til saka fyrir að skilja hana
eftir á glámbekk.
Barnfóstra
fyrir rétti
LOUISE Sullivan, áströlsk
bamfóstra sem sökuð er um að
hafa orðið völd að andláti sex
mánaða gamals barns í hennar
umsjá í síðustu viku sagðist fyr-
ir dómi í London í gær saklaus
af ákærunni. Mál Sullivan þykir
um margt minna á mál bresku
stúlkunnar Louise Woodward í
fyrrahaust sem kom fyrir rétt í
Bandaríkjunum
Afganir
leita sátta
STRÍÐANDI fylkingar í
Afganistan tOkynntu í gær að
þær hefðu náð samkomulagi
um að hefja friðarviðræður.
Meðal umræðuefna verða
vopnahlé, fangaskipti og stofn-
un nefndar tO að leita sátta.
Eignir Bhutto
frystar
RÉTTUR í Pakistan sam-
þykkti í gær að frysta eignir og
bankainn-
stæður Ben-
azir Bhutto,
fyrrum for-
sætisráðherra
landsins, að
kröfu stjóm-
valda. Bhutto
er sökuð um
að hafa ásamt
eiginmanni
sínum stolið
eigum ríkisins
og tekið við mútum en hún neit-
ar öllum ásökunum.
Stúdentar
mótmæla
INDÓNESÍSKIR her- og lög-
reglumenn beittu táragasi og
dældu gulu litunarefni á um tvö
þúsund námsmenn við stærsta
háskóla viðskiptaborgarinnar
Medan í gær tO að kveða niður
mótmæli gegn Suharto forseta.
Námsmennirair stóðu and-
spænis hundruðum her- og lög-
reglumanna í tvær klukku-
stundir þar til öryggissveitun-
um tókst að hrekja námsmenn-
ina aftur á skólalóðina.
.aiwio'i io'saa"',uii
ERLENT
Lebed sigurstranglegur í héraðsstjórakosningum í Krasnojarsk
Stökkpallur
Lebeds til
Kremlar?
Krasnojarsk. Reuters.
LÍKLEGT er að Alexander Lebed,
rússneski hershöfðinginn fyrrver-
andi, verði kjörinn héraðsstjóri Kra-
snojarsk í Síberíu og fari svo eykur
það sigurlíkur hans í forsetakosning-
unum í Rússlandi árið 2000. Viktor
Tsjernomyrdín, fyrrverandi forsæt-
isráðheira, lýsti því formlega yfir
um helgina að hann hygðist gefa
kost á sér í forsetakosningunum.
Samkvæmt bráðabirgðatölum um
fyrri umferð héraðsstjórakosning-
anna í Krasnojarsk á sunnudag fékk
Lebed 45% atkvæðanna, en helsti
keppinautur hans, Valerí Zubov,
rúm 35%. Kosið verður á milli þeirra
í síðari umferðinni 17. maí.
Zubov naut stuðnings Jeltsíns í
kosningunum og fréttaskýrendur
sögðu að mikið fylgi Lebeds væri
áhyggjuefni fyrir ráðamennina í
Kreml, sem hafa ekki enn tilnefnt
forsetaefni. „Lebed er mjög hættu-
legur fyrir Jeltsín,“ sagði stjóm-
málaskýrandinn Leoníd Radzíkhov í
sjónvarpsviðtali í Moskvu. „Ef
Lebed fer með sigur af hólmi í kosn-
ingunum em mjög miklar líkm- á því
að hann verði öflugur í forsetakosn-
ingunum árið 2000.“
Lebed e> 48 ára, fyirverandi ör-
yggisráðgjafi Jeltsíns, og varð í
þriðja sæti í fyrri umferð forseta-
kosninganna í júní 1996. Hann
hyggst gefa kost á sér að nýju sem
fulltrúi „þriðja aflsins“ - andstæð-
inga Jeltsíns og kommúnista - og tel-
ur að sigurlíkur hans aukist verulega
verði hann kjörinn héraðsstjóri Kra-
snojarsk, sem nær yfir einn sjöunda
hluta alls Rússlands. Nái hann kjöri
fær hann einnig sæti í Sambandsráð-
inu, efri deild þingsins.
Lebed segist ekki ætla að gefa
kost á sér í forsetakosningunum bíði
hann ósigur í Krasnojarsk. Fylgi
hans í fyrri umferð héraðsstjóra-
kosninganna var mun meira en búist
var við og fréttaskýrendur telja
mjög líklegt að hann fari með sigur
af hólmi. „Seinni umferðin verður
mjög erfið fyrir Zubov,“ sagði Sergej
Kim, sjónvarpsfréttamaður í Kra-
snojarsk.
Anstæðingar Lebeds segja að hann
hafi engan áhuga á efnahags- og um-
hverfisvandamálum Krasnojarsk en
hann hét því að rétta efnahag héraðs-
ins við og nota það ekki aðeins sem
stökkpall th Kremlar.
Það hefur lengi staðið Lebed fyi-ir
þrifum að hann hefur ekki notið fjár-
hagslegs stuðnings öflugra íýrir-
tækja og hann vonast nú til þess að
geta tryggt sér stuðning stórfyrir-
tækja í Krasnojarsk, m.a. í ál-, nikk-
el- og efnaiðnaði.
Tsjemomyrdín í framboð
Flokkur Viktors Tsjernomyrdíns,
Heimili okkar Rússland, hélt lands-
fund um helgina og forsætisráðherr-
ann fýrrverandi hélt ræðu þar sem
hann hvatti flokkinn til að styðja for-
setaframboðið. Jeltsín hefiir ekki
lýst yfir afdráttarlausum stuðningi
við framboð Tsjernomyrdíns en for-
setinn sendi skeyti á landsfundinn og
fór lofsamlegum orðum um stuðning
flokksins við markaðsumbætur og
lýðræði.
Tsjemomyrdín var forsætisráð-
.. Reuters
GOMUL kona ræðir við Alexander Lebed, sem fékk mest fylgi í hér-
aðsstjórakosningum í Krasnojarsk í Síberíu á sunnudag.
herra í rúm fimm ár þar til Jeltsín
ákvað að víkja honum frá 23. mars.
Tsjernomyrdín kvaðst bera mikla
virðingu fyrir forsetanum þrátt fyrir
brottvikninguna og ítrekaði stuðning
sinn við eftirmann sinn í forsætisráð-
herraembættinu, Sergej Kíríjenko.
Hann kvaðst þó ekki hika við að
gagnrýna stjóm Kíríjenkos ef henni
yrðu á mistök.
Nýi forsætisráðherrann ræddi í
gær við leiðtoga þingsins um mynd-
un nýrrar stjórnar og sagði að valda-
mestu ráðherrarnir yrðu skipaðir á
morgun, miðvikudag. Hann þyrfti þó
meiri tíma til að ljúka stjómarmynd-
uninni.
Óttaðist stjórnarkreppu
Alexander Kotenkov, fulltrúi
Jeltsíns í Dúmunni, sagði í gær að
forsetinn hefði ákveðið að víkja stjóm
Tsjemomyrdíns frá þar sem hann
hefði óttast að þingið samþykkti til-
lögu um vantraust á stjómina. „Hefði
stjóminni ekki verið vikið frá hefði.
þingið getað samþykkt vantrauststil-
lögu innan viku, sem hefði getað leitt
til stjómarkreppu, ekki aðeins í fimm
vikur, heldur í sjö eða átta mánuði,“
sagði Kotenkov. „Forsetinn varð því
að bregðast skjótt við.“
Hillary
yfírheyrð
Washington. Reuters.
SAKSÓKNARI yfirheyrði
Hillary Clinton, eiginkonu
Bandaríkjaforseta, í hátt á
fimmtu klukkustund í Hvíta
húsinu um sl. helgi vegna lög-
fræðistarfa sem hún sinnti í
tengslum við sviksamlegan
samning um byggingafram-
kvæmdir í Arkansas.
Kenneth Starr, sérstakur
saksóknari er rannsakar meint
misferli forsetans og eiginkonu
hans, stýrði yfirheyrslunni, en
Hillary hefur fullyrt að Starr
gangi erinda hægrisinnaðra
andstæðinga forsetans. Yfir-
heyrslumar nú em sjötta
skipti sem Hillary gefur vitnis-
burð en ekki er gert ráð fyrir
að hún verði aftur spurð spjör-
unum úr. Whitewater-málin
hafa verið tengd við meint hjú-
skaparbrot og meinsæri for-
setans.
Núer réttí timinn
til að kaupa útsæðið
Við seljum allar tegundir af
útsæðiskartöflum í hentugum
umbúðum.
Verið velkomin til okkar!
Vagnhöfða 13-15
112 Reykjavík. Sími 577 4747