Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 20
20 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
Hagnaður hjá KS í
stað taprekstrar
UM 8,6 milljóna króna hagnaður
varð af rekstri Kaupfélags Skag-
fírðinga á síðasta ári á móti liðlega
163 milljóna króna tapi árið áður.
Munurinn skýrist af því að 11 millj-
óna kr. hagnaður varð af Fiskiðj-
unni Skagfirðingi hf. í stað yfir 200
milljóna kr. taps árið áður.
Rekstrartekjur KS voru 2.465
milljónir kr. og höfðu aukist um
10% milli ára. Rekstrargjöld voru
2.423,7 milljónir. Hagnaður af
reglulegri starfsemi eftir skatta
varð 2,5 milljónir kr. Hagnaður af
sölu eigna nam 7,9 milljónum og
hlutdeild í tapi eignatengdra fyrir-
tækja var 1,9 milljónir kr. þannig
að hagnaður ársins varð 8,6 millj-
ónir kr. Eigið fé KS var í árslok
1.130 milljónir og var eiginfjárhlut-
fall tæplega 50%.
Á nýafstöðnum aðalfundi Kaup-
félags Skagfirðinga gerði Þórólfur
Gíslason kaupfélagsstjóri breyting-
Viðsnúningur
í rekstri
Fiskiðjunnar
Skagfírðings
ar á afkomu dótturfélags KS, Fisk-
iðjunnar Skagfirðings hf., að um-
talsefni. Fyrírtækið skilaði nú 11
milljóna kr. hagnaði á móti rúm-
lega 200 milljóna kr. halla árið áð-
ur. Fiskiðjan hefur gengið í gegn-
um mikla endurskipulagningu á
síðustu tveimur árum. Þórólfur
sagði að stjómendur fyrirtækisins
hafi sett sér það markmið að rekst-
urinn næði jafnvægi á árinu 1997
og það hafi gengið eftir. „Stjóm-
endur settu langtímamarkmið ofar
stundarvinsældum og mörkuðu fé-
laginu rekstrarlegan starfsgmnd-
völl. Þrátt fyrir mikið gjöminga-
veður tókst að sigla fyrirtækinu
óbrotnu gegnum brimskaflinn.
Engar veiðiheimildir vom seldar,
þvert á móti hefur fyrirtækið nú
verið að kaupa varanlegar heimild-
ir,“ sagði Þórólfur. Hann sagði
einnig að KS ætti vemlega fjár-
muni bundna í hlutafé í sjávarút-
vegi sem ekki skiluðu arðgreiðslu
inn á rekstrarreikning með beinum
hætti en margt benti til að með
bættum rekstri gæti þar orðið
breyting á næstu áram.
Stofna viðskiptastofu
Fram kom hjá kaupfélagsstjór-
anum að á síðustu áram hafi KS
verið skapaðir möguleikar til þátt-
töku í verslun og viðskiptum á
landsvísu. Til að auka það og skapa
ný tækifæri hafi verið undirbúið og
ákveðið að stofna Viðskiptastofu
KS, þar sem þrír starfsmenn
mynda rekstrareiningu til að að-
stoða deildir KS við innflutning og
öflun viðskiptasambanda. Við-
skiptastofan tekur til starfa 1. maí.
Frá sama tíma hefur Ómar B. Stef-
ánsson, fyrram vörahússtjóri, ver-
ið ráðinn markaðsstjóri fyrir versl-
unarstarfsemi og framleiðsluein-
ingar KS.
KS ráðgerir að fjárfesta í mjólk:
ursamlaginu fyrir 40 milljónir kr. I
haust verður sett þar upp osta-
pressa og auk þess sem keypt eru
tæki til vinnslu á mozzarella-osti.
Með þessu er búið að fjárfesta í
samlaginu fyrir 150-200 milljónir
kr. á sjö áram. „Okkar áhersla er
að með þessari fjárfestingu verði
samlagið eitt allra hagkvæmasta
mjólkursamlag landsins í rekstri.
Án teljandi fjárfestinga getum við
aukið framleiðslu um 5-8 milljónir
lítra. Skagfirskum bændum er þess
vegna óhætt að stækka bú sín
verulega á næstu áram,“ sagði
Þórólfur.
Fram kom hjá kaupfélagsstjór-
anum að fyrir forgöngu Félags
sauðfjárbænda í Skagafirði hafi
verið rætt um hagkvæmni þess að
hafa aðeins eitt sláturhús í hérað-
inu en niðurstaða væri ekki fengin.
Þá kom fram að í athugun væri að
fóðurstöð félagsins sæi svæðinu frá
Húnavatnssýslu í vestri að Tjör-
nesi í austri fyrir loðdýrafóðri. Á
síðasta ári var lokið byggingu
nýrrar fóðurversksmiðju í Vall-
hólmi. Heildarkostnaður var um 80
milljónir kr. Fram kom hjá Þórólfi
að framleiðsla og sala hefði farið
vel af stað. Þá er kaupfélagið aðili
að félagi um virkjun við Villinga-
nes.
BM FLUTNINGAR
Nýsímcmúmer
Nú hafa tekið gildi ný símanúmer hjá BM Flutningum
i AÐALNÚMER
Einnig bætist við beint
innval í eftirtaldar deildir:
FUUGSVIÐ 569 8010
SJÓSVIÐ 569 8020
FJÁRMÁLASVIÐ 5698030
VDM/FRÍSVÆÐI 569 8040
VÖRUAFGREIÐSLA 5698045
HRAÐSENDINGAR 5698050
TOLLASVIÐ 569 8060
IBM TRANSPORT LTD./^&N
BM FLUTNINGAR EHF. viES
- Alhliða flutningsmiðlun
Holtabakka v/Holtaveg, 104 Reykjavfk, sfmi 569 8000
Kaupfélag Skagfirðinga
Úr reikningum ársins 1997
fíekstrarreikningur Miiijónir króna 1997 1996 Breyting
Rekstrartekjur Rekstrargjöld 2.465,1 2.423,7 2.239,6 2.212,1 +10,1% +9,6%
Rekstrarhagnaður án fjármagnsliða Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) Eignarskattur 41,4 (26,1) (12,7) 27,5 (17,3) (11,2) +50,6% +51,2% +13,2%
Hagnaður af reglul. starís. eftir skatta Hagnaður afsöiueigna Hlutdeild í afkomu eiqnatengdra fyrirí. 2,6 7,9 (1,9) (1,0) 21.5 (184,1) ■63,2%
Hagnaður (tap) ársins 8,6 (163,6) -
Efnahagsreikningur 3i.desemben 1997 1996 Breyting
| Eignir: |
Fastafjármunir 1.490,3 1.346,6 +10,7%
Veltufjármunir 785,6 775,6 +1,3%
Eignir samtals 2.275,9 2.122,2 +7,2%
| Skuidir og eigið fé: \
Eigið fá 1.130,2 1.100,7 +2,7%
Langtímaskuldir 303,8 231,4 +31,3%
Innlánsdeild 434,9 416,4 +4,4%
Skammtímaskuldir 407,0 373,7 +8,9%
Skuldir og eigið fá samtals 2.275,9 2.122,2 +7,2%
Sjóðstreymi 1997 1996 Breyting
Veltufé frá rekstri Milljónir króna 106,6 100,5 +6,1%
Yfirlitsnámskeið
um lagareglur sem
gilda um Netið
HINN 28. og 29. apríl nk. mun
Endurmenntunarstofnun Há-
skóla íslands í samstarfi við
Lögfræðingafélag íslands
gangast fyrir síðdegisnámskeiði
um þau lög sem gilda um Netið.
Námskeiðið er m.a. ætlað hug-
búnaðarfólki og lögfræðingum
og opið öllum sem áhuga hafa.
Markmið þess er að kynna regl-
ur sem gilda í tengslum við
Netið. Farið verður í þá grann-
tækni sem liggur að baki Net-
inu og nauðsynleg er til að
skilja leikreglur þess. Megin-
reglur þeirra réttarsviða sem
varða Netið verða útskýrðar og
farið verður í hvernig þeim er
beitt um Netið.
Ótal spurningar
Með tilkomu þess hafa
sprottið ótal spumingar: Gilda
engin lög um Netið? Er al-
menningi heimilt að nýta sér
allt efni á Netinu, þ.e. hlaða því
á tölvur sínar, prenta það út og
vista? Hver hefur forgang til
netfangs? Hefur vöramerkja-
réttur áhrif í þeim efnum? Geta
menn dreift klámi og öðra ólög-
legu efni í gegnum erlenda
þjónustuaðila? Hvenær hefur
stofnast til samnings á Netinu?
Lögum hvaða lands ber að beita
um ágreiningsefni í tengslum
við Netið? Hvernig mun lög-
gjafinn bregðast við? Á nám-
skeiðinu verður leitast við að
svara ofangreindum spurning-
um m.t.d. gildandi laga. Þá
verður og litið til þróunar á al-
þjóðavettvangi. Helstu efnis-
þættir verða; almennt um Net-
ið, réttur til netfanga, samn-
ingsgerð og greiðslur, skattaá-
lagning vegna viðskipta, tján-
ingarfrelsi og refsiverð hátt-
semi, höfundarréttur.
Umsjónarmenn og aðalfyrir-
lesarar verða þau Jónína S. Lár-
usdóttir hdl. og Ragnar Aðal-
steinsson hrl., en gestafyrirlest-
ur flytur Helgi Jónsson, for-
stöðumaður INTIS. Upplýsing-
ar og skráning í símum 525 4923
og 525 4924, myndsína 525 4080
og tölvupósti endurm@rhi.-hi.is
Háskóli íslands Endurmenntunarstofnun
Markaðs- og útflutningsfræði
- eins árs nám með starfi - hefst í ágúst 1998
Þátttaka í náminu:
Nám í markaðs- og útflutningsfræðum er fyrir þá, sem ná vilja betri árangri í starfi
við sölu og markaðssetningu vöru og þjónustu, hvort sem er á heimamarkaði eða
erlendis. Þeir einir geta tekið þátt í náminu, sem uppfylla öll eftirtalin skilyrði; hafa
lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi, hafa tveggja ára starfsreynslu í atvinnu-
lífinu, geta skilið og lesið ensku og talað hana þokkalega.
Kennarar:
Umsjónarmenn og um leið aðalkennarar námskeiða verða þeir Kristján Jóhannsson
lektor, Magnús Pálsson markaðsráðgjafi hjá Markmiði, Jóhann Magnússon
rekstrarráðgjafi hjá Stuðli ehf., Halldór S. Magnússon forstöðumaður hjá Islands-
banka, Jón Þórisson fórstöðumaður söludeildar (slandsbanka, Ólafur Asgeirsson
íslandsbanka, Ágúst Einarsson alþingismaður, Ingjaldur Hannibalsson prófessor og
Hafsteinn Már Einarsson rannsóknastjóri hjá Gallup.
Námsgreinar:
Rekstrarhagfræði. Stjórnun og stefnumörkun. Markaðsfræði og markaðsathuganir.
Sölustjórnun og sölutækni. Flutningafræði. Fjármál milliríkjaviðskipta. Utanríkis-
verslun, hagræn landafræði og áhrif menningar á viðskiptavenjur.
Stjórn námsins:
Stjórn Endurmenntunarstofnunar hefur skipað eftirtalda einstaklinga í stjórn námsins:
Ingjald Hannibalsson prófessor, Jón Ásbergsson framkvæmdastjóra Útflutningsráðs,
Margréti S. Björnsdóttur endurmenntunarstjóra HÍ, Þórð Sverrisson rekstrarhagfræð-
ing og markaðsráðgjafa úr stjórn ÍMARK og Helga Gestsson deildarstjóra í Tækni-
skóla íslands.
Kennslutími, kennslufyrirkomulag og verð:
Kennslustundir verða um 260 klst. auk fornáms í stærðfræði. Námið hefst í ágúst
1998, stendur í eitt ár og er kennslutími kl. 16:00-20:00 einu sinni í viku, alls 16 klst. á
mánuði. Auk þess er kennt ýmist á föstudögum kl. 14:00-18:00 eða á laugardögum
kl. 9:00-13:00 (samtals þrisvar í mánuði), alls 12 klst. á mánuði.
Þátttökugjald fyrir námið er 150.000 kr.
Umsóknarfrestur er til 6. maí 1998.
Nánari upplýsingar um námið, ásamt umsóknareyðublöðum fást hjá :
Endurmenntunarstofnun Háskóla íslands
Tæknigarði, Dunhaga 5, 107 Reykjavík
Sími: 525 4923 Bréfasími: 525 4080 Netfang: endurm@rhi.hi.is