Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
VARÐSKIP Landhelgisgæslunnar draga flotkvína, sem vegur um 8.000 tonn, í átt að landi á sunnudag. Varðskipin vega hins vegar 910 og 1.214 tonn hvort.
Yfir 500
lítrar af
landa
fundust
LÖGREGLA í Reykjavík lagði
hald á um 526 lítra af Ianda og á
fjórða hundrað h'tra af gambra í
lagerhúsnæði verslunar í austur-
hluta Reykjavíkur á fimmtu-
dagskvöld. Þrír menn hafa verið
yfirheyrðir vegna málsins sem
er enn í rannsókn og má búast
við frekari yfirheyrslum grun-
aðra samkvæmt upplýsingum
lögreglu.
Haldið var í fyrstu að um enn
meira magn væri að ræða, sök-
um stærðar ílátanna, en við nán-
ari eftirgrennslan tæknideildar
lögreglu kom í ljós að borð var
lægra í ílátunum en við fyrstu
sýn. Endanlegar játningar liggja
ekki fyrir samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglu en nokkuð ljóst
þykir hverjir stóðu að fram-
leiðslunni í bruggverksmiðjunni.
Þá voru bifreiðar stöðvaðar
aðfaranótt laugardags og
sunnudags vegna gruns um
landasölu. Teknir voru alls ríf-
lega 40 lítrar af landa. Sam-
kvæmt upplýsingum frá lög-
reglu hyggst hún hafa vakandi
auga með landasölum á næst-
unni, enda lýkur samræmdum
prófum í grunnskólum í dag og í
mörgum öðrum skólum fer
prófum að ljúka.
Bruggað undir Jökli
Þá gerði lögregla húsleit á
fimm stöðum í Snæfellsbæ síð-
degis á laugardag og fann á
tveimur stöðum samtals 75 lítra
af eimuðu áfengi og 60 lítra af
gambra.
Einn maður viðurkenndi að
eiga bruggið sem var gert upp-
tækt ásamt tækjum og tólum til
framleiðslunnar. Málið, sem hef-
ur verið í undirbúningi um tals-
verða hríð samkvæmt upplýsing-
um frá lögreglu, er talið upplýst.
Flotkvíin á leið
til hafnar
FLOTKVÍ Velsmiðju Orms og Víg-
lundar er nú á leið til hafnar eftir að
hana hafði rekið stjórnlaust til vest-
urs frá Reykjanesi í tæpa viku. Tvö
varðskip Landhelgisgæslunnar eru
með kvína í togi og draga hana
hægt og sígandi að landi, en kvíin
var komin um 300 sjómílur vestsuð-
vestur af Reykjanesi þegar náðist
að stöðva rek hennar.
Austanátt er enn ríkjandi á þess-
um slóðum og voru fímm vindstig
þar í gær. Reiknað er með að komið
verði með flotkvína til hafnar í
Hafnarfirði á miðvikudag eða
fimmtudag, en varðskipin voru síð-
degis í gær stödd innan við 200 sjó-
mílur vestsuðvestur af Reykjanesi
og gengu 2-5 sjómflur á klukku-
stund með kvína í togi.
Beðnir að leggja ekki
veiðarfæri á leið kvíarinnar
Landhelgisgæslan hefur beint
þeim tilmælum til línu- og netabáta
að þeir leggi ekki veiðarfæri sín
eina sjómílu frá leið þeirri er komið
verður til hafnar með kvína, frá há-
degi í dag og til hádegis fimmtudag-
inn 30. aprfl. Leiðin er 63°45N-
26°30V, 64°00N-25°00V, 64°10N-5
sjómflur norður af Garðskaga og
64°04,3N-022°09,2.
Hætta á veiðarfæratjóni er miMl
þar sem 650 metra langur 7 tomma
vír hangir neðan úr kvínni.
Verkfallið í Danmörku bitnar á Flugleiðum,
Eimskipafélaginu og Samskipum
400 símtöl vegna
verkfallsins
fyrsta
VERKFALLIÐ í Danmörku hefur
raskað samgöngum þannig að hvorM
er hægt að fljúga þangað né sMpa
upp varningi og hefur því áhrif á
starfsemi íslensku íyrirtækjanna
Flugleiða, EimsMpafélags íslands
og SamsMpa.
Þar sem flug lá niðri í Danmörku
fóru kraftar starfsfólks Flugleiða
þar í að hjálpa farþegum að komast
leiðar sinnar á annan hátt og var
þeim einkum beint til Stokkhólms
eða Hamborgar.
„Við höfum afgreitt um 400 símtöl
frá farþegum vegna verkfallsins í
dag, svp álagið hefur verið mikið,“
sagði Ársæll Harðarson, svæðis-
stjóri Flugleiða í Kaupmannahöfn.
„Félagið greiðir ekM kostnað, sem
farþegar hafa af því að verða að fara
til Hamborgar eða annað til að ná
vélum félagsins.“
Þórður Sverrisson, framkvæmda-
stjóri flutningasviðs Eimskipafélags
íslands, sagði að verkfallið hefði þau
áhrif á flutninga á vegum félagsins
að hvorM yrði hægt að hafa viðkomu
í Árósum né Kaupmannahöfn í þess-
dagmn
ari viku að minnsta kosti. Þess vegna
voru allar vörur til Jótlands losaðar í
Hamborg í Þýskalandi í gær og síðar
í vikunni yrði vörum til Sjálands
sMpað í land í Helsingborg.
Baldur Guðnason, framkvæmda-
stjóri flutningasviðs SamsMpa, sagði
að samkvæmt áætlun ætti flutninga-
skip á vegum félagsins að koma til
Danmerkur á fimmtudag. Nú væri
verið að skoða hvernig tryggja
mætti flutninga frá Danmörku í
gegnum aðrar hafnir, en það yrði
ekM einfalt. Ekki yrði vandamál að
afgreiða þá vöru, sem væri á leiðinni
til Danmerkur. Henni yrði skipað á
land í Bremerhaven og hún flutt með
bifreiðum á viðkomandi stað.
Bjarni Sigtryggsson, sendiráðsrit-
ari í íslenska sendfráðinu í Dan-
mörku, sagði að álag hefði ekki auk-
ist miMð í sendiráðinu í Kaupmanna-
höfn utan hvað sótt hefði verið um
tæpan tug vegabréfa. Þar hefði verið
á ferðinni fólk, sem gæti ferðast
vegabréfalaust milli landanna, en
þyrfti vegabréf ætlaði það að fara um
þriðja land utan Norðurlandanna.
Þjófar gripnir með
þýfí í stolnum bíl
TVEIR menn voru handteknir í
Hlíðahverfi eftir skamma eftirför
lögreglu um klukkan 16 í gær, en
þeir óku um á Saab-bifreið sem
hafði verið stolið í Breiðholti á
föstudag.
Eftir ábendingu leigubflstjóra
komst lögregla á snoðir um bílinn
og hafði fljótlega uppi á honum og
tókst að stöðva för þeirra sem í
honum voru, þótt þeir væru nokk-
uð tregir til að nema staðar. í bíln-
um fannst ætlað þýfi. Mennirnir
voru færðir í fangageymslur lög-
reglu þar sem þeirra beið yfir-
heyrsla.
Morgunblaðið/Ingvar
Sérblöð í dag
Sumarhús
#|| 11 B ► EFTIRSPURN eft-
Si ■ ■ ■ Sa ir sumarhúsum er eðli
málsins samkvæmt mest á vorin. í fasteignablaði
Morgunblaðsins í dag er fjallað um sumarhúsa-
markaðinn, en að sögn fasteignasala hefur hann
farið vel af stað. Fjallað er um helztu sumarhúsa-
svæðin og um nokkur sumarhús, sem eru til sölu.
Eins og áður eru bústaðir í uppsveitum Árnes-
sýslu hvað eftirsóttastir en Hvalfj arðargöngin
valda því, að áhugi á sumarhúsum í Borgarfírði
fer nú ört vaxandi
fRnStmUahih
Fylgstu
með
nýjustu
fréttum