Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 54
54 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
Smáfólk
50 TME FAMILV 60E5 INTO THE MALL, ANP l'MLEFTALONE IN THE CAR... HERE'5 THE WORLD FAM0U5 3I6-RI6 OPERATOR TOOLIN6 HI5 UlAf TOUIARD OMAHA..
gygl|f
1
ONE MINDTE HERE
WHILE U)E TAKE THE
MAP OUT OF THE
6L0V/E COMPARTMENT..
ONE MINU'TE HERE
WHILE WETRYTOOET
THE MAPBACK INTO
THE6L0VEC0MPARTMENT..
Svo fjölskyldan fer inn í Kr- Hér er hinn heimsfrægi
ingluna og ég er skilinn eft- ökuþtír að leggja af stað
ir einn / bflnum ... austur yfir fjall...
Eitt andartak á meðan við Eitt andartak á meðan við
tökum vegakortið út úr reynum að koma vegakort-
hanskahtílfínu ... inu aftur / hanskahtílfíð ...
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1 103 Reykjav/k • S/mi 569 1100 • S/mbréf 569 1329
Til Auðar og Svans
Frá Þórdísi Björnsdóttur:
ÉG las grein ykkar til ritstjóra Morg-
unblaðsins í blaðinu, miðvikudaginn
1. apríl sl. og vona svo sannarlega að
skrif ykkar hafí verið grín í tilefni
dagsins þar sem
þið hótuðuð að
segja upp áskrift
vegna nektar-
mynda sem birtust
í blaðinu 22. mars
sl. En ef ekki vona
ég að þið séuð enn
áskrifendur því óg
vil benda ykkur á
að umræddar
myndir voru af
stærðinni ca 1x2,5
sm og því varla sjáanlegar. Jafníramt
sé ég ekkert athugavert við birtingu
erótískra mynda í blaði sem þessu -
kynlíf og erótík koma á einhvern hátt
fýrir í öllum tegundum fjölmiðla enda
eru hvort tveggja náttúruleg og falleg
fyrirbæri sem við eigum að njóta og
vera þakklát fyrir.
Morgunblaðið birtir stundum
myndir af illa útleiknum fómarlömb-
um ofbeldisverka og/eða stríðsmönn-
um með skotvopn ogþetta virðist
börnum ykkar ftjálst að skoða án
ykkar afskipta. Hins vegar teljið þið
það misbjóða „eðlilegri blygðunar-
kennd þeirra og sakleysi“ að sjá
myndir af fallegum og heilbrigðum
nöktum líkömum (væri skárra að
myndirnar sýndu nakin lík í fjölda-
gröf!) Ég leyfi mér að halda því fram
að þetta viðhorf og slík afneitun stuðli
einungis að kynferðislegri bælingu
barnanna í framtíðinni. Haldið þið
virkilega að þau verði heilbrigðari
einstaklingar í ft’amtíðinni ef þið selj-
ið sjónvarpið, segið upp áskrift að
Morgunblaðinu og takið þau úr skóla
vegna þess að þar er kynfræðsla?
Kynlíf er okkur öllum nauðsynlegt og
gott kynlíf byggist að miklu leyti á
fræðslu. Því verða foreldrar auðvitað
að taka þátt í að fræða bömin sín um
þetta málefni í stað þess að vera með
einhvem feluleik og láta sem þetta sé
forboðinn hlutur því að börnin læra jú
það sem fyrir þeim er haft.
En að lokum, Auður og Svanur, ef
þið kærið ykkur um að svara þessari
grein minni og færa frekari rök fyrir
máli ykkar þá þætti mér vænt um að
þið stíluðuð svarið á þrítuga systur
mína, sem býr í Grafarvogi, því að
þetta er henni hjartans mál.
Virðingarfyllst að auki,
ÞÓRDÍS BJÖRNSDÓTTIR,
Brekkuseli 25, Reykjavík.
Þtírd/s
Björnsdtíttlr
Vorboði á Þing'völlum
Frá Jóni Baldri Þorbjörnssyni:
UM páskana sóttu okkur heim nokk-
ur hundruð Irar á vegum Samvinnu-
ferða-Landsýnar. Það er vel að þessi
frændþjóð okkar í suðri skuli vera
farin að sýna íslandi og íslendingum
aukinn áhuga og írar hafa alla burði
til þess að verða okkur mikilvæg
ferðaþjóð þegar fram líða stundir.
Föstudaginn langa var ég sem
leiðsögumaður fenginn til að fylgja
80 manns úr þessum hópi í skemmti-
legri hálfsdagsferð, þar sem m.a. var
komið við á Þingvöllum. Þar sem
enginn úr hópi leiðsögumanna vildi
láta hjá líða að sýna svæðið á viðeig-
andi hátt, og sýna þjóðarstolti okkar
með því viðeigandi virðingu, er geng-
ið með fólkinu ofan af Hakinu og nið-
ur að Lögbergi. Nú gerðist það, sem
allajafna gerist tímabundið á hverju
vori þegar gengið er eftir Almanna-
gjá, að fólkið sökk í forina á göngu-
stígnum. Ekki vegna þess að frostið
sé að fara úr jarðveginum - það er
náttúrulögmál - heldur fyrst og
fremst vegna þess að ekki hefur ver-
ið borið frostfrítt efni (t.d. bruni) í
stíginn niður gjána.
Auðvitað er það ekki nema
ánægjulegt að erlendir ferðamenn
hafi heim með sér minjagripi eftir
ánægjulega ferð til íslands. En ég er
ekki viss um að ánægja íranna hafi
verið óblandin yfir þessum árstíða-
bundnu minjagripum úr Almanna-
gjá, kleprum á spariskóm og drullu-
slettum á buxnaskálmum. Sennilega
hafa þeir lent í holræsakerfinu í stað
hillunnar þegar heim var komið.
„Moralen" í sögunni er: Gott væri
ef þeir einstaklingar sem skipa Þing-
vallanefnd gerðu sér far um að skoða
svæðið ekki eingöngu á sólríkum sum-
ardögum heldur allt árið um kring.
JÓN BALDUR ÞORBJÖRNSSON,
Fögrubrekku við Vatnsenda,
Kópavogi.
Gagnagrunnur eður ei
Frá Þórólfí Antonssyni:
VINDUR blæs um íslenskt þjóðfé-
lag. Kári. Sumum finnst hann þýður
hnjúkaþeyr en öðrum bylur hinn
versti. Gagnagrunnur með heilsu-
farsupplýsingum. Loksins þegar sér
glitta í stóra, nýja urt í efnahagsflór-
unni, byggjandi á þekkingu og
mannauði en ekki eiturspúandi og
landsökkvandi, þá bregðast margir
hart í mót. Slík breyting á atvinnu-
stefnunni ætti ein sér að vera heilsu-
farsbætandi. fslenskir læknar og
hjúkrunarfólk á að sjálfsögðu að láta
slík mál til sín taka. Svo einkennilega
vill þó til að þrátt fyrir að mjög mörg
atriði vel rökstudd séu með málinu
eru fáir úr þeim stéttum sem hafa
tekið undir þau hvað þá haldið á lofti.
Hvað kemur til? En þeir stagast
mjög á þeim tveimur þáttum (per-
sónuleyndinni og einkaleyfinu) sem
eru helst talin gegn málinu og fyrr-
talda atriðið gjarnan illa rökum sett.
í þessum orðum hugsuðum en þá
óblaðsettum kom Mbl. (8/4 ‘98) með
frétt til mín frá Stokkhólmi, Reuters.
Um árabil hafði fyrirmyndarheil-
brigðiskerfið sænska níðst á tugþús-
undum geðveikum, flogaveikum og
treggáfuðum „skjólstæðingum" sín-
um með ýmsu móti. Láust þá niður í
huga mér, er eitthvað slíkt falið í ís-
lenskum sjúki-askrám sem ekki þolir
dagsljós? Hví láta íslenskir læknar
svo dólgslega, þeir eru jú margir
sænskmenntaðir? Vonandi er þetta
vindhögg eitt. En óneitanlega væri
það aðhald fyrir okkar umfangs-
mesta og viðkvæmasta samfélags-
kerfi að það þyrfti að standast skoð-
un samtíma og seinni tíma.
ÞÓRÓLFUR ANTONSSON,
Barónsstíg 59, Reykjavík.
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt tii að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
til birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.