Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 49
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 49
1
HESTAR
Morgunblaðið/Valdimar Kristínsson
FEGURÐ og fimi Valíants frá Heggstöðum heillaði áhorfendur í
skautahöllinni á laugardagskvöldið. Ekki er neinum vafa undirorpið
að þeir félagar Valíant og Hafliði verða mjög sigurstranglegir í B-
flokki á landsmótinu í sumar.
VEL var mætt í skautahöllina þótt ekki væri alveg fullskipað.
Istölt í skautahöllinni
Hafliði og Valí-
ant öruggir
sigurvegarar
Eftir forkeppni lá nokkuð ljóst fyrir hvar
sigurinn lenti í frumraun hestamanna 1
skautahöllinni í Laugardal, töltmóti Reið-
sports. Valíant frá Heggstöðum sem
Hafliði Halldórsson sat bar höfuð og herð-
ar yfír aðra hesta sem þarna komu fram
enda áttu þeir hylli áhorfenda óskipta.
Valdimar Kristinsson brá sér í skautahöll-
ina og fylgdist með hvernig færleikunum
gekk að fóta sig á hálu svelli hallarinnar.
KATLA frá Dallandi sem er í fríi frá folaidseignum mætti galvösk til
leiks ásamt Atla Guðmundssyni og komust þau í undanúrslit.
FYRSTU spor hestanna á nýjum
vettvangi gefa góða von um að
framhald geti orðið á samkomum
hestamanna í þessum dúr. Það tók
þá að vísu góða stund að ná jafn-
vægi og öryggi á gangi á svellinu
en undir lokin voru bestu hestamir
farnir ganga í góðum takti þar sem
fímin og fjaðurmagnið naut sín vel.
Margir góðar hestar voru skráðir
til leiks og snjallir knapar einnig.
Ekki var um frjálsa ski’áningu að
ræða heldur útvöldum boðin þátt-
taka því búast hefði mátt við að ein
kvöldstund hefði ekki nægt ef þátt-
taka hefði verið frjáls.
Eftir forkeppni vom eins og áð-
ur kemur fram Hafliði og Valíant í
fyrsta sæti sem í raun varð aldrei
ógnað. Vignir Siggeirsson heims-
meistari í tölti kom næstur með
mjög athyglisverðan hest, Ofsa frá
Viðborðsseli undan Otri frá Sauð-
árkróki og hryssu frá Viðborðsseli,
væntanlega af hornfirskum meiði.
Þarna er heimsmeistarinn kominn
með hest sem lofar góðu og verður
spennandi að fylgjast með honum í
sumar. Auðunn Kristjánsson var
þriðji með Oð frá Brún sem eftir
öllum sólarmerkjum að dæma gæti
orðið enn betri síðar í vor en hann
hefur verið áður. Ragnar Hinriks-
son hafði betur í viðureign við Sig-
urbjöm Bárðarson í undanúrslitum
á Bhkari frá Miðhjáleigu sem er
bráðefnilegur hestur.
Þessir fjórir börðust um efstu
sætin og voru hestamir þá famir
að fóta sig betur á svellinu. Undir
lokin höfðu Hafliði og Valíant betur
gegn Ragnari og Blikari og
tryggðu sér sigursætið. Auðunn og
Óður tryggðu sér fjórða sætið í
einvígi við Vigni og Ofsa sem var
farínn að þreytast undir lokin. I
viðureign Hafliða og Ragnars
skrikaði Blikari fótur á svellinu og
féllu þeir en komust báðir heilir úr
byltunni.
Góð hugmynd að veruleika
Þessi frumraun hestamanna í
skautahöllinni tókst með miklum
ágætum og á Guðlaugur í Reið-
sporti lof skilið fyrir þessa góðu
hugmynd. Áhorfendur voru hátt í
átta hundruð og höfðu góða
skemmtun af. Eins og við var að
búast komu hestamir misjafnlega
út á ísnum. Sumir þeirra fóm í
baklás og vom langt frá því að
sýna sínar bestu hliðar. Knapar
fengu eina klukkustund til að
kynna hestunum aðstæður sem er
líklega of skammur tími. Taktur
hestanna og gangöryggi var með
ýmsu móti en flestir þeirra náðu þó
að sýna góðar glefsur. Einn knap-
inn brá á það ráð að ríða með tvo
píska sem dugði þó ekki til að kom-
ast í úrslit.
Fagurhvítur Feykir
Aðgöngumiðar á samkomuna
giltu einnig sem happdrættismiðar
og voru vinningar tveir, hnakkur
frá Reiðsporti og folatollur undir
Feyki frá Hafsteinsstöðum sem
var teymdur inn með hnakkinn á
bakinu. Var gaman að sjá þennan
fagurhvíta höfðingja sem kominn
er á þrítugsaldur og ber hann vel.
Feyldr hefur skilað mörgum gæð-
ingnum þar sem hæst tróna Kr-
ingla frá Ki-inglumýri og Fáni frá
Hafsteinsstöðum.
En þarna var góður tónn gefinn.
Starfsmönnum skautahallarinnar
leist vel á þessa góðu gesti þótt
þeir skildu eftfr sig taðköggul hér
og þar. Ætla má að framhald verði
á heimsóknum hesta og hesta-
manna í þessa ágætu höll enda gott
mál að hægt sé að nýta slík mann-
virki á sem fjölbreytilegastan
máta.
Hrossa-
ræktin að
ná í skottið
MEÐ nýútkomnu III. hefti af
Hrossaræktinni 1996 hillir undir að
Bændasamtökin nái í skottið á
sjálfum sér í útgáfu þessara rita. I
formála segir Kristinn Hugason
hrossaræktarráðunautur að nú sé
aðeins eftir að gefa út III. hefti
1997 til að skikki sé komið á út;
gáfutíma þessa fróðlega rits. í
þessu riti sem hér um ræðir er
meðal annars annáll yfir það helsta
sem gerðist í ræktunarstarfinu á
árinu, umfjöllun um sýningarhald-
ið, inntökuskilyrði og reglur vegna
sýninga kynbótahrossa. Skýrslur
um einstakai’ sýningar, ársskýrsla
Hólabúsins, örmerking hrossa og
frjósemi íslenska hrossastofnsins.
Hér er að sjálfsögðu um úrelt efni
að ræða en ef til vill mörgum les-
endum kærkominn fróðleikur og
upprifjun eins og Kristinn orðar
það í formála.
Að lokiimi hitasótt
Hrossin við
hestaheilsu
HEILSUFAR hrossa á höfuð-
borgarsvæðinu er almennt gott
að lokinni hitasótt og eru dýra-
læknar sammála um að mjög lítið
hafi borið á eftirmálum vegna
veikinnar. Þó megi finna einn og
einn hest sem sýni linku og
slappleika sem rekja megi til
hitasóttarinnar. Ekki hefði held-
ur borið á neinum veikindum eft-
ir páskana þegar hestamenn
voru mikið á ferðinni í lengri
reiðtúrum og mátt hefði gera ráð
fyrir einhverjum tilfellum.
Sóttin breiðist frekar rólega
út í Mýra- og Borgarfjarðar-
sýslu að sögn Gunnars Arnar
Guðmundssonar héraðsdýra-
læknis. Fikrar sig þetta bæ af
bæ eins og hann orðaði það.
Hjá Rúnari Gíslasyni héraðs-
dýralækni á Snæfellsnesi feng-
ust þær upplýsingar að veikin
breiddist út innan hesthúsa-
hverfisins við Grundarfjörð.
Hún væri væg að öðru leyti en
því að einn hestur hefði orðið
talsvert veikur. Hann sagði að
veikin hefði ekki komið upp hjá
þeim sem sögusagnir sögðu að
hefðu farið gagngert í Borgar-
nes til að sækja veikina. Ekki er
vitað hvernig veikin barst vestur
en Rúnar benti á að Snæfelling-
ar sæktu mikið þjónustu til
Borgarness og því um marga
möguleika að ræða hvað varðar
smit þaðan.
ÐataCard
Plastkortaprentarar fyrir
félaga- og viðskiptakort.
Gæðaprentun í lit
Otto B. Arnar ehf.
Ármdla 29> Reykjavík,
sími 588 4699, fex 588 4696
www.mb il.is