Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 48
48 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
RAGNHILDUR RÚN
GUNNARSDÓTTIR
+ Ragnhildur Rún Gunnars-
dóttir fæddist á Húsavík 28.
september 1994. Hún lést á
Landspítalanum 16. apríl síðast-
iiðinn og fór útfor hennar fram
frá Grundarljarðarkirkju 23.
aprfl.
Þeir sem guðirnir elska deyja
ungir, sár eru þessi sannindi fyrir
okkur sem eftir lifum.
Síðustu dagar hafa verið mjög
erfiðir, ég trúi því varla enn að hún
Ragnhildur Rún okkar sé farin.
Hún sem átti allt lífið framundan.
Þegar ég hugsa um þessa hræði-
legu staðreynd þá vakna margar
minningar. Mikið var erfitt þegar
við þurftum að teygja á og gera æf-
ingar, sem þér þóttu margar svo
sárar. Eitt gátum við þó huggað
okkur við, þetta þurfti fyrir liða-
mótin þín.
Alltaf var þó stutt í brosið og
gleðina sem mér er svo annt um.
Þér fannst svo gaman þegar við
ákváðum að mála og þá var líka í
bókstaflegri merkingu málað, því
oftast vorum við aðalmálverkið á
eftir.
Líka er mér mjög minnisstæður
dagurinn þegar við bjuggum til
karamellubúðinginn og notuðum
hann svo til að mála stóra spegilinn
í æfingaherberginu með höndun-
um, þú varst svo dugleg að teygja
þig og ná settu marki. Þér fannst
líka svo gaman þegar við vorum úti
að leika okkur. Þá voru rólan,
vegasaltið og rennibrautin alltaf
vinsælust.
Mikið þakka ég þér fyrir allt,
ástin mín. Minningin er eitthvað
sem enginn getur tekið frá okkur
og þú munt ávallt eiga stað í mínu
hjarta.
Ég sendi foreldrum, bróður og
ættingjum mínar innilegustu sam-
úðarkveðjur.
Megi algóður guð styrkja ykkur
og styðja í sorg ykkar.
Kveðja,
Guðrún Sólveig Ríkarðsdóttir.
Elsku Ragnhildur Rún, ég minn-
ist þess er við hittum þig í fyrsta
sinn, ekki sólarhrings gamla, og þú
svo falleg. Við áttum eftir að hitt-
ast aftur. í millitíðinni varst þú á
spítala svo veik en svo sterk og
ákveðin, enda fór svo að þú fórst
heim á Grundarfjörð með mömmu
og pabba. Þú áttir alltaf til bros og
hlátur, þannig mun ég minnast þín.
Guð geymi þig, elsku Ragnhiidur
Rún.
Hvert örstutt spor var auðnuspor með þér.
Hvert andartak er tafðir þú hjá mér
var sólskinsstund og sæludraumur hár
og sáttmáli við guð um þúsund ár.
Hvað jafnast á við andardráttinn þinn.
Hve öll sú gleði er fyr naut hugur minn
er orðin hljómlaus utangátta og tóm
hjá undrinu að heyra þennan róm.
Hjá undri því, að líta Htinn fót
í litlum skóm, og vita að heimsins grjót
svo hart og sárt er honum fjarri enn
og heimsins ráð sem brugga vondir menn.
Já, vita eitthvað anda hér á jörð
er ofar standi minni þakkargjörð
í stundareUífð eina sumamótt.
0 alheimsljós, ó mynd sem hverfur skjótt.
(Halldór Laxness.)
Elsku Hrafnhildur, Hanni og
Jónas Elís. Megi Guð gefa ykkur
styrk í þessari miklu sorg.
Dröfn og fjölskylda.
t
Faðir okkar,
PÉTUR HALLDÓRSSON,
Bólstaðarhlíð 41,
Reykjavík,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Skjóli sunnu-
daginn 26. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Margrét Pétursdóttir, Róbert Pétursson,
Halldór Pétursson.
t
Eiginkona min, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma,
SIGRÍÐUR M. KÉRÚLF,
sem andaðist á Sjúkrahúsinu á Egilsstöðum 23. þ.m. verður jarðsungin
frá Egilsstaðakirkju laugardaginn 2. maí nk. kl. 14.00.
Jarósett verður I Þingmúlakirkjugarði.
Einar Pétursson,
Erla Sólveig Einarsdóttir, Karl N. Guðbjartsson,
Guðrún Einarsdóttir, Pétur Guðvarðarson,
Ingibjörg Einarsdóttir, Hreinn Guðvarðarson,
Örn Sigurður Einarsson, Matthildur Þ. Gunnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
t
Innilegar þakkir færum við öllum, þeim sem
sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og
útför ástkærrar móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
MARÍU JÚLÍÖNU KJARTANSDÓTTUR,
Vesturgötu 14,
Keflavík.
Sigurður Arason, Ágústína Albertsdóttir,
Þorgerður Aradóttir, Örn Bergsteinsson,
Daníel Arason, Ingibjörg Óskarsdóttir,
Anna Aradóttir, Halldór Marteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+ Guðmundur
Guðmundsson
fæddist í Bolungar-
vík 22. nóvember
1908. Hann lést í
hjúkrunarheimilinu
Sunnuhlíð 20. aprfl
síðastliðinn. For-
eldrar hans voi-u
Guðmundur Sveins-
son, trésmiður, frá
Gerðum í Garði, f.
24.4. 1879, d. 31.4.
1957, og kona hans,
Guðfinna Magnús-
dóttir frá Lambhaga
í Skilmannahreppi,
f. 12.10. 1868, d. 14.12. 1958.
Guðmundur kvæntist 8. júní
1935 Sigríði Einarsdóttur frá
Grund, Eyrarbakka, f. 18.9.
1906, d. 25.9. 1990. Þau bjuggu
fyrst í Hafnarfirði, en hafa búið
í Kópavogi frá 1942. Sonur
þeirra er Samúel, f. 1935,
kvæntur Ástu Guðmundsdóttur
frá Siglufirði. Sonur þeirra er
Afi minn. Nú hefur þú kvatt okk-
ur og farið til móts við gamla ást-
vini. Ég mun aldrei gleyma stund-
um okkar saman sem voru allar
góðar. Hvort sem ég minnist þess
þegar ég beið eftir að þú kæmir
heim úr vinnunni til að við gætum
farið að slá garðinn eða að fóndra
eitthvað niðri í kjallara eða þeirra
stunda sem við áttum saman uppi í
bústað, úti á vatni að veiða, sigla
með spýtubáta í ánni, spila á spil
við kertaljós eða að mála „kofann“.
Það voru aldrei nein vandamál hjá
þér þegar litli strákurinn átti í hlut
og allt var látið eftir honum. Þú
varst alltaf hress og kátur og söngl-
aðir yfirleitt lagstúf fyrir munni þér
og þrátt fyrir veikindi þín hættir þú
ekki að ganga um sönglandi og
Einar Þór og á
hann eina dóttur,
Tönju Dögg.
Guðmundur lærði
málaraiðn hjá Ós-
valdi Knudsen og
tók sveinspróf 1935.
Hann starfaði síðan
við iðnina, um tíma
sjálfstætt, en frá
1951 starfaði hann
við málun hjá Raf-
magnsveitu Reykja-
víkur uns hann
hætti störfum vegna
aldurs 1979.
Guðmundur var
annar tveggja aðalstofnenda
Ungmennafélagsins Breiðabliks
í Kópavogi og heiðursfélagi
þess. Þá starfaði hann f fjölda
ára með Leikfélagi Kópavogs og
var einn af stofnendum skátafé-
lagsins Hraunbúa í Hafnarfirði.
Utför Guðmundar fer fram
frá Kópavogskirkju í dag og
hefst athöfnin klukkan 15.
halda uppi húmornum hjá þér og
viðstöddum. Sögurnar sem þú
kunnir voru óteljandi og ég gat set-
ið tímunum saman og hlustað á
þær. Sögurnar um fólkið sem kom
jafnvel langt að í heimsókn til ykk-
ar að sækja vatn í brunninn í garð-
inum ykkar. Um dýrin sem þið átt-
uð og er þá helst að telja sögurnar
um Níels og leikfélagið. Þú varst
brunnur af fróðleik enda búinn að
upplifa margt og sjá miklar breyt-
ingar og framfarir. Nú ert þú sem
sagt horfinn af sjónarsviðinu en þú
munt aldrei gleymast. Ég minnist
þín líka oft í Tönju Dögg því hún á
skemmtilegan svip sem hún setur
stundum upp og minnir á þig.
Tanja Dögg fékk þvi miður aldrei
að sjá þig, en vertu viss um að hún
fær að heyra sögurnar þínar og
sögur af þér. Hún segir hæ, hæ og
veifar. Ég kveð þig með söknuði en
stolti í brjósti fyrir að hafa fengið
að þekkja þig.
Einar Þór.
Guðmundur frændi, móðurbróðir
minn, er látinn, aldinn og eflaust
hvíldinni feginn. Hann var hálfbróð-
ir móður minnar, samfeðra. Þau
kynntust þegar hún var á bams-
aldri, hann ungur maður sendur til
róðra vestur á Snæfellsnes. Þar
hitti hann föður sinn og ömmu mína
sem bjuggu með börnum sínum við
óbljúg kjör í verstöð undir Jökli.
Með þeim systkinum tókst vinátta
sem aldrei bar skugga á.
Minning frænda er órjúfanlega
tengd Sigríði, konunni sem hann
svo augljóslega elskaði og virti. Þau
hjónin voru mjög ólík en það kom
ekki í veg fyrir að þau væru sam-
rýnd og samhent í öllu sínu lífi.
Lífsfyllingu fundu þau í áhugamál-
um sínum, Leikfélagi Kópavogs,
uppbyggingu íþróttafélags, laxveið-
um og í samveru með fjölmörgum
vinum og ættingjum hvort sem var
á Kópavogsbrautinni eða í sumar-
bústað þeirra hjóna. Áhugamál sín,
fjölskyldu og vini ræktuðu þau af
sömu alúð og garðinn sinn á Kópa-
vogsbrautinni sem í minningunni
hefur á sér ævintýraljóma á öllum
árstímum.
Elska og virðing voru sterkustu
persónueinkenni frænda sem hann
tjáði í öllu sínu atferli. Hann var
besti frændinn, glaður, rólyndur og
gefandi í umgengni sinni við menn
og náttúru. Hann kenndi mér að
fara á skautum, veiða og bera virð-
ingu fyrir laxinum, umhverfi mínu
og öllu sem lifír. Hann hafði enda-
lausa þolinmæði í samtölum við
bamið, alltaf fræðandi og skemmti-
legur.
Móðir mín Anna Guðmundsdóttir
átti ætíð athvarf hjá Guðmundi
frænda og Siggu þegar erfiðleikar
og veikindi steðjuðu að. A þeim
stundum var frændi henni um-
hyggjusamur og elskulegur bróðir,
fyrir það er ég þakklát. Vináttu og
samveru þeirra hjóna og Samúels
sonar þeirra við okkur fjölskylduna
í Drápuhlíð 47 tók ég sem bam og
unglingur sem sjálfsagðan hlut en
skil í dag að voru verðmæti sem sí-
fellt erfiðara verður að eignast og
rækta.
Nú þegar ég kveð frænda minn
elskulegastan er mér efst í huga
hvemig hann var í hátt, í umgengni
við menn, málleysingja og umhverfi
sitt. Það er dýrmætasta minningin
og jafnframt dýrmæt fyrirmynd
sem ég óska að við sem nutum nær-
vera hans fáum nýtt okkur til eftir-
breytni.
Við andlát hans er mín sterkasta
tilfinning þakklæti en jafnframt
söknuður og sorg sem við upplifum
jafnan við fráfall ástvina. Nú er
einskis frekar hægt að spyrja,
ósögð orð og athafnir frosin í tíma.
Það sem við getum gert er að draga
lærdóm af lífi þeirra okkur til far-
sældar.
Góðar minningar era allt sem við
eigum þegar veraldlegu brölti okk-
ar lýkur og hvað er lífið annað en
söfnun góðra endurminninga. Við
getum geymt þær í hjarta okkar,
tekið þær fram í huga okkar og ylj-
að okkur við þær þegar erfiðleikar
sækja okkur heim.
Fyrir mína hönd og Sigríðar
Ólafar systur minnar sendi ég
Samma og Ástu, Einari og fjöl-
skyldum þeirra okkar innilegustu
samúðarkveðjur.
Anna Margrét Árnadóttir.
• Fleiri minningargreinar um
Guðmund Guðmundsson biða
birtingar og munu birtast ( blaðinu
næstu daga.
r 3lówat>MðilV >
öarðsKom
k v/ T'ossvoqskiukjwgarið a
5ími: 554 0500
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir og afi,
ÞORSTEINN ÞORSTEINSSON,
Sléttahrauni 32,
Hafnarfirði,
sem lést 22. apríl sl., verður jarðsunginn frá
Garðakirkju miðvikudaginn 29. apríl kl. 13.30.
Þeim, sem vildu minnast hans, er vinsam-
legast bent á að láta Hjúkrunarþjónustu Karitas njóta þess.
Svanhildur Þorbjarnardóttir,
Jens Þorsteinsson, Hrafnhildur Þórisdóttir,
Unnur Lóa Þorsteinsdóttir, Elías Vairaktaridis,
Birna Arinbjarnardóttir, Júlíus Pálsson,
Edda Arinbjarnardóttir, Grétar Guðnason
og barnabörn.
t
Ástkær eiginkona mín, dóttir, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og systir,
GUÐRÚN FRÍMANNSDÓTTIR
píanókennari,
Lálandi 22,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Fossvogskirkju í dag,
þriðjudaginn 28. apríl, kl. 13.30.
Ferdinand Alfreðsson,
Margrét Stefánsdóttir,
Frímann Ari Ferdinandsson, Sigurveig Ágústsdóttir,
Helga Margrét Ferdinandsdóttir,
Kristinn Alfreð Ferdinandsson,
Guðrún Ósk Frimannsdóttir,
Hanna Frímannsdóttir,
Höskuldur Frímannsson.
Lokað
Vegna jarðarfarar GUÐRÚNAR FRÍMANNSDÓTTUR, píanókenn-
ara, fellur öll kennsla niður í Tónmenntaskóla Reykjavíkur í dag,
þriðjudaginn 28. apríl, frá kl. 13.00—16.00.
Skólastjóri.
GUÐMUNDUR
GUÐMUNDSSON