Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 25
Pólitísk óvissa í Þýskalandi eftir kosningarnar til þings sambandslandsins Sachsen-Anhalt
Ásakanir ganga á víxl vegna
aukins fylgis öfgaflokka
Leiðtogar jafnaðarmanna og kristilegra
demókrata kenna hvor öðrum um aukið
fylgi öfgasinnaðra flokka á hægri jafnt sem
vinstri væng þýska flokkakerfísins. Rósa
Guðrun Erlingsddttir, fréttaritari Morgun-
blaðsins, fylgdist með kosningunum og við-
brögðum þýskra stjórnmálamanna.
ÚRSLITA kosningahelgarinnar í
Sachsen-Anhalt í Þýskalandi var
beðið með mikilli eftirvæntingu
vegna stórsigurs Jafnaðarmanna-
flokksins (SPD) í kosningunum í
Neðra-Saxlandi þann fyrsta mars
sl. Tilnefning Gerhard Schröders
sem kanslaraefni SPD fylgdi í kjöl-
farið og hefur hún stóraukið fylgi
SPD í skoðanakönnunum. Eins hafa
kosningar til landsþinga á þessu ári
meira pólitískt vægi en endranær
vegna yfirvofandi þingkosninga 27.
september.
SPD og Græningjar hafa sett sér
það sameiginlega markmið að binda
enda á 16 ára valdatíð Helmut
Kohls kanslara og þar með sam-
steypustjórn CDU, flokks kanslar-
ans, og Frjálslynda demókrata-
flokksins (FDP). Eins hefur Helmut
Kohl mátt sæta mikilli gagnrýni úr
eigin röðum en áður tryggir flokks-
bræður hans hafa opinberlega bent
á mikilvægi mannabreytinga í for-
ystu flokksins til að knýja fram sig-
ur í kosningunum í haust. Wolfang
Scháuble, formaður þingflokks
CDU sem talinn er líklegastur sem
eftirmaður Kohl, og Theo Waigel,
fjármálaráðherra og formaður
bæverska systurflokksins CSU,
hafa dregið fram ágreining flokk-
anna með persónulegum ásökunum
í fjölmiðlum.
Ósamstaða kristilegra
demókrata
Fyrir helgi gaf þingflokkur
CDU/CSU út þá yfirlýsingu að beð-
ið yrði með allar meiriháttar
ákvarðanir þar til úrslit kosning:
anna í Sachsen-Anhalt væru kunn. í
dag, þriðjudag, fundar þingflokkur-
inn að nýju og telja fréttaskýrendur
ekki ólíklegt að krafíst verði afsagn-
ar Helmut Kohls. Ófáir þingmenn
kristilegra demókrata hafa viður-
kennt opinberlega að ef CDU tapaði
miklu fylgi í Sachsen-Anhalt þyrfti
að snúa blaðinu við og hefja kosn-
ingabaráttuna með nýtt kanslara-
efni í broddi fylkingar.
Eins og í kosningunum í Neðra-
Saxlandi í mars sl. er SPD sigur-
vegari kosninganna með 35,9% at-
kvæða. Flokkurinn náði þó ekki
hreinum meirihluta eins og fjöl-
margar skoðanakannanir höfðu gef-
ið til kynna og bætti stöðu sína að-
eins um 1,9 prósentustig. CDU fékk
einungis 21,9% atkvæða í sinn hlut
og er það 12,5% minna fylgi en í
kosningunum árið 1994. Fylgistap
CDU er hið mesta til fjölda ára og
er Helmut Kohl gerður perónulega
ábyrgur fyrir hrakförúm flokksins í
austurhluta Þýskalands þar sem
hann hafi ekki staðið við öll þau lof-
orð sem hann gaf þjóðinni í kjölfar
sameiningar iandsins.
Jafnt Græningjar sem flokkur
frjálsra demókrata náðu ekki 5 pró-
sentamarkinu og náðu þar með ekki
kjöri. PDS, arftakaflokkur SED,
hins gamla kommúnistaflokks Aust-
ur-Þýskalands, hlaut 19,4% at-
kvæða sem festir hann í sessi sem
þriðja sterkasta flokk nýju sam-
bandslandanna í austri.
Þó svo að túlka megi úrslitin svo
að SPD sé sigurvegari kosninganna
er staðan æði flókin þar sem Græn-
ingjar, fyrrverandi samstarfsflokk-
ur SPD, eru horfnir af sjónarsvið-
inu. Minnihlutastjórn SPD og
Græningja var háð stuðningi PDS
þar sem litið var svo á að það hefði
verið skárri kostur en að mynda
samsteypustjórn SPD og kristi-
legra demókrata.
SPD hefur sætt mikilli gagnrýni
fyrir samvinnu sína við PDS í Sach-
sen-Anhalt. Tengslin við fortíðina
og SED geri að verkum að PDS sé
ekki pólitískt marktækur flokkur. Á
hinn bóginn er ekki hægt að horfa
fram hjá miklu og sívaxandi fylgi
flokksins sem túlka má sem skýr
skilaboð um það að þriðjungur kjós-
enda fyrrverandi Austur-Þýska-
lands er óánægður með gömlu vest-
ur-þýsku flokkanna.
Samstarf við CDU?
Talið er líklegt að Reinhard
Höppner, forsætisráðherra landsins
og formaður flokksdeildar SPD í
Sachsen-Anhalt, muni reyna að ná
samningum við CDU um meiri-
hlutastjórn þar sem aðrir flokkar
koma varla til greina. Samsteypu-
stjórn CDU og SPD kæmi báðum
flokkum illa í Ijósi væntanlegra
þingkosninga því báðir hafa lýst yfir
andstöðu við slíka lausn á landsvisu.
Myndun samsteypustjórnar SPD
og CDU telja stjórnmálaskýrendur
besta kostinn í slæmri stöðu þó fáir
telji stjórnina hæfa til að leysa úr
pólitískum vanda sambandslands-
ins. Sachsen-Anhalt stendur á
barmi gjaldþrots og hefur komið
efnahagslega einna verst út úr sam-
einingu Þýskalands. Á vissum land-
svæðum mælist allfc upp í 50% at-
vinnuleysi. í þéttbýli og stærri
borgum má búast við að þriðji hver
vinnufær maður sé án atvinnu og á
framfæri hins opinbera.
Uppgangur öfgasinna
Enginn flokkur hafði sérstakt til-
efni til að fagna þegar úrslitin lágu
fyrir. 12,9% fylgi DVU, öfgasinnaðs
hægi’iflokks, skyggði á allt annað.
Fyrir stjórnmálamenn og almenn-
ing er uppgangur flokksins mikið
áfall. Þegar 27% kjósenda undir 31
árs aldri og þriðjungur atvinnu-
lausra ákveða að kjósa slíkan flokk
er aðeins hægt að túlka það sem
harða gagnrýni á stóru flokkana.
Almenningur í fyrrverandi Austur-
Þýskalandi fínnst hann hafa verið
svikinn með innfluttum lausnum
vestur-þýskra stjórnmálamanna. I
stað efnahagslegs uppgangs býr
meirihluti fólks við fjárhagslegt
óöryggi og atvinnuleysi sem kemur
í veg fyrir að það að njóti hins nýja
„frelsis".
I síðustu kosningum var PDS
flokkur óánægðra Austur-Þjóð-
verja. Flokkurinn hefur þurft að að
fínna sér stað mitt á milli stjórnar-
andstöðunnar og stjórnarflokkanna
því hvergi er hann velkominn. Hinir
flokkarnir geta hins vegar ekki
horft alfarið framhjá flokki er hefur
20% fylgi.
DVU getur hins vegar varla talist
stjórnmálaflokkur þar sem skráðir
meðlimir hans eru aðeins um 100
einstaklingar. Á meðan á kosninga-
baráttunni stóð hafði flokkurinn
Reuters
REINHARD Höppner, forsætisráðherra
Sachsen-Anhalt, fagnar sigri í kosningun-
uni á sunnudag.
ekki kosningaskrifstofu, aðeins
ófullkomna stefnuskrá, kosninga-
fundir voru leynilegir og leiðtogar
flokksins neituðu öllum óskum fjöl-
miðla um viðtöl. Ósmekkleg kosn-
ingaherferð sem byggðist svo til
einvörðungu á útlend-
ingahatri kostaði flokk-
inn þrjár milljónir
þýskra marka, sem er
um helmingi meira en
t.d. SPD eða CDU eyddu
í þessum kosningum.
Formaður flokksins,
Gerhard Frey, milljóna-
mæringur og útgefandi
öfgasinnaðra tímarita,
gi-eiddi allan kostnað úr
eigin vasa.
Leiðtogar CDU segja
þessa þróun vera afleið-
ingu stjórnarhátta SPD í
Saehsen-Anhalt og sam-
starfí þeirra við PDS.
SPD og Græningjar
kenna pólitík CDU/CSU
á landsvísu um aukið
fylgi DVU, og benda leið-
togar flokkanna sérstak-
lega á aðgerða- og úr-
ræðaleysi ríkisstjórnar-
innar í Bonn andspænis
hinu mikla atvinnuleysi í
austurhluta landsins.
Það þarf að sjálfsögðu að
taka úrslit kosninganna
alvarlega því þessi póli-
tíska þróun hjálpar ekki
efnahagslegum uppgangi í austur-
hlutanum. Erlendir fjárfestar eru
nú þegar byrjaðir að hafna tilboðum
í Thúringen, Brandenburg og Sach-
sen-Anhalt vegna uppgangs nýnas-
ista á þessum svæðum.
Kosningar í
Sachsen-Anhalt
Kjósendur í sambandslandinu
Sachsen-Anhalt í austurhluta
Þýzkalands sneru í kosningum á
sunnudag baki við Kristilegum
demókrötum, flokki Helmuts
Kohls kanzlara, en sigurvegarar
kosninganna voru jafnaðarmenn
og hægriöfgaflokkurinn Deutsche
Volksunion (DVU).
' ú
L'? 1
,rV
V -'-"V
-
i i ®. '
.sSachsén^ Berlín
Anhalt....,i|
/. V
VVS K,á L AN D
V v-, r- V-W”
v
V- 'lí
“ . 1, 4 ipr-V
V-U J l Eingöngé flokkar meö
\ yfir 5% atkvæöa fá
y þingmenn kjörna.
35,9%
URSLIT
SPD Jafnaöarmannaflokkurinn
c
CDU Kristilegir demókralar
< ) 22,0%
PDS Lýðræðissósíalistar
< > 20,0%
DVU Þýzka þ]óðarbandalagið
< >12,9%
FDP Frjálsir demókratar
< ) 4,2%
Græningjar
03’2%
& § &
Þráðlausi
H§ðA
PHILIPS Aloris
PHIUPS
hvergi ódýrara
■ 900 Mhz.
’ Þyngd simtóls 170 g.
1 Dregur allt að 100 metra innanhúss,
■ Dregur allt að 300 metra utanhúss.
1 (slenskur leiðarvisir.
Staðgrertt:
14.900,-
PHILIPS Xalio
Þrjár gerðir:
Xalio 6200
• Stafrænn sími
• Þyngd símtóls 170 g.
• Dregur 100 metra innanhúss.
• Dregur 300 metra utanhúss.
• Ekkert suð, kristaltær hljómur.
• íslenskur leiðarvísir.
Xalio 6600
með stafrænum sfmsvara
• Stafrænn sími.
• Handfrjálst símtól.
• 20 númera nafnavalsminni.
• Möguleiki á 5 aukasímtólum.
• íslenskur leiðarvísir.
Staðgreitt: 19.900,-
Staðgreitt: 26.900,“
Hljómsýn - Akranesi
Tölvutæki - Akureyri
Xalio 6400
• Eins og 6200 + handfrjálst
símtól.
k900,-
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SÍMI 5691500
www.ht.is
Umboðsmenn um land allt
Xalio 6850
handfrjálst aukasímtól
• Hleðslutæki fylgir með.
Staðgreitt: 14.900,-
Heimskringlan - Rvík
Póllinn - ísafirði
& &