Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 55
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 55
BREF TIL BLAÐSINS
Sjúkrasag'a Islendinga til sölu
Björn Jakobsson
Frá Birni Jakobssyni:
YMSAR uppákomur á starfsferli
núverandi heilbrigðisráðherra hefðu
einar sér gefið ástæðu til að ráð-
herra segði af sér. Nú virðist svo
sannarlega að
mælirinn sé full-
ur. Með frum-
varpi því sem ráð-
herra leggur íyrir
Alþingi um heilsu-
farslegan gagna-
grunn Islendinga,
þar sem mann-
réttindi og per-
sónuréttur ein-
staklinga eru freklega brotin - hlýt-
ur það að verða krafa almennings að
ráðherrann segi tafarlaust af sér.
Verði frumvarp þetta samþykkt á
Aiþingi, hlýtur það að kalla á máls-
höfðun einstaklinga og hópa gegn
íslenska ríkinu.
Furðulegt má reyndar telja ef
ríkisstjórn og þingflokkar hennar
samþykkja að leggja frumvarpið
fram, eins og til þess er stofnað.
Það er líkast því að einkafyrirtæki,
sem ekki er vitað hver verður eig-
andi að, og einstaklingur, sem þvi
stjórnar hafi vafið heilbrigðisráð-
herra um fmgur sér við samningu
frumvarpsins.
Ekki þarf að fara í grafgötur með
hver er tilgangurinn með stofnun
„íslenskrar erfðagreiningar, eign-
arhaldsfélags“. Framkvæmdastjór-
inn sjálfur lýsti því í heyranda
hljóði, á fjölmennum fundi læknafé-
lags Landspítalans, með eftirfar-
andi yfirlýsingu.
„Grundvallarhugmyndin á bak
við frumvarpið, er eingöngu sú, að
þær upplýsingar sem hér liggja, og
má búa til úr verðmæti (peninga)
verði komið í verðmæti (peninga).
Ekkert annað.“
Þetta var yfirlýsing fram-
kvæmdastjórans. Skýring innan
sviga greinarhöf.
Það liggur sem sagt ljóst fyrir að
tilgangurinn með fyrirtækinu og
frumvarpinu er fjárplógsstarfsemi -
„Bisness" af grófustu gerð, en ekki
vísindastarfsemi eða virðing fyrir
manneskjunni, lifandi eða látinni.
„mér er ekki
Sama hverju
é^klæ5ist...“
AÐEINS
NATTÚRULEG
EFNI
UNO DANMARK fataverslun
Vesturgötu 10A • Sími: 561 0404
Samkvæmt frumvarpinu á Alþingi
að gefa þessu fyrirtæki, sem enginn
veit hver verður raunverulegur eig-
andi að, einkaleyfi til tólf ára á
gagnagrunni yfir heOsufarslegan
feril allra íslendinga, ættfærslu og
persónulega hagi sem þessu tengj-
ast. Síðan eiga stofnanir íslenska
ríkisins að kaupa upplýsingarnar til
baka frá fyrirtækinu - upplýsingar,
sem því hafa verið afhentar frá ís-
lensku heilbrigðisþjónustunni og
læknum fyrir ekki neitt. Síðan færi
að sjálfsögðu aðalsalan á sjúkrasögu
íslendinga fram erlendis. Hver fær
svo peningana, „verðmætin", sem
sölustjórinn kallar. Því hefir að
sjálfsögðu ekki verið svarað.
Þetta greinarkom er skrifað á
Ítalíu, þar sem greinarhöfundur
dvelur nú um stundarsakir. Þegar ég
sá Morgunblaðið hér frá 4. apríl þar
sem fjallað er rækilega um þetta mál
- þá verður maður þakklátur fyrir að
til skuli vera enn á íslandi fjölmiðill,
sem hefir mátt og áhrif til að taka
kröftuglega á slíkum málum, sem
varða hvem einasta einn íslending,
látinn jafnt sem borinn eða óborinn.
Hér á Italíu er það á almanna vit-
orði að hin alþjóðlega mafía sækir
nú fast bæði leynt og ljóst að koma
illa fengnum fjármunum sínum af
eiturlyfjasölu yfir í löglega skráð
fyrirtæki í upplýsinga- og tölvugeir-
anum. Sérstaklega fyrirtækjum
sem á einhvern hátt tengjast póli-
tískri eða opinberri vemd. Með því
vinna þeir margt í senn - verða
eignaraðilar, fá þekkingu og aðgang
að tæknihliðinni í nútíma upplýs-
ingastarfsemi og ná sambandi við
pólitíska aðila í opinbera kerfinu.
Ekki er ósennilegt að íslensk
erfðagreining Inc. gæti orðið álit-
legur fjárfestingakostur hjá þessum
aðilum, ef fyrirtækið fengi umbeðið
einkaleyfi og fyrirtækið yrði skráð á
alþjóðlegum hlutabréfamarkaði.
Þetta er aðvöran.
Ef nota á fámenni íslensku þjóð-
arinnar og sjúkrasögu hennar sem
rannsóknarverkefni - þá væri það
betur gert á vegum alþjóðastofn-
ana, þar sem öll mannréttindi, bæði
lifandi og látinna væra virt að fullu.
Einkafyrirtæki, sem enginn veit
raunveruleg deili á og sækir um
einkaleyfi til slíkra rannsókna í
hagsmunaskyni, á að sjálfsögðu
ekki að koma til greina.
BJÖRN JAKOBSSON,
fyrrverandi framkvæmdastjóri.
GfTIP
Plöstunarvélar
Skírteinis- og skjalaplast á
hagstæðasta verði.
Óbrigðul skjalavernd.
Otto B. Arnar ehf.
Ármúla 29, Reykjavík,
sími 588 4699, fex 588 4696
Allianz (Ö)
Sparitr\gging Allianz
Slysatrygging - líftrygging - fjárfesting
Allianz slysatrygging
endurgreiðir iðgjöld ásamt vöxtum
Verðir þú fyrir alvarlegu slysi, þarft þú meira en ást og umhyggju.
- Þú þarft einnig fjárhagslegt öryggi.
Allianz tryggir þér:
• örorkubætur aílt að 60 milljónir króna
• lífeyri til æviloka
• dagpeninga frá fyrsta degí
• Allianz yfirtekur greiðslur á iðgjaldi
• endurgreiðslu á iðgjaldi, ásamt tryggðum vöxtum
• írygging frá fæðingu til níræðis aldurs
Dæmi:
Fimmtugur karlmaður kaupir UPR Spariíryggingu hjé Allianz.
Eftir að hafa greitt 4.788 kr. á ménuði I tíu ár greiðir Allianz r 773.560 kr* jeínve: uv '
ekkert hafi komið fyrir. Hann verður hins vegar fyrir slysi 53 érs og er úrskurðaður 70'--. ör,r'<i.
Samkvæmt samningi fær hann greitt út 2.886.400 kr. strax og að auki 120.000 kr. ménaðarlega
til æviloka. Allianz viðheldur samningi hans eftír slysið út sarrr.ingstímabiiið og greiðir honurn
aö lokum, eins og um var samið, 773.560 kr. Þegar pess; einstakúrgur nær 75 éra aídri hefur
Allianz greitt honum alls 35.339.960 kr.
Allianz - örugg trygging 4 5
Hafðu sarnband . c þjónustufulltrúa í síma 588 30 60 oz eitaðu .sp Spar mz? ngu Allianz