Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 51
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 51
1
Morgunblaðið/Golli
FRÁ sýningu GKS og Samtaka iðnaðarins sem nú
stendur við Smiðjuveg 2 í Kópavogi.
Hönnun og vöruþróun á
sýningu hjá GKS
GKS við Smiðjuveg 2 í Kópavogi
stendur um þessar mundir fyrir sýn-
ingu á nýsköpun, hönnun og vöru-
þróun í samvinnu við Samtök iðnað-
arins og nýsköpunarkeppni grunn-
skólanema. Þar er m.a. sýnt nýtt
herðatré fyrir börn og fatlaða sem 12
ára grunnskólanemi, Þóra Oskars-
dóttir, hannaði og hlaut fyrstu verð-
laun í keppninni.
Yfirskrift sýningarinnar er Ný-
sköpun í nærmynd - taktu hugmynd
í fóstur. Tilgangur hennar er að gera
iðnhönnun og vöruþróun að umtals-
efni, vekja athygli á þróunarstarfi
innan GKS og kynna hugmyndir sem
fram komu á nýsköpunarkeppni
Leikskólinn á
krossgötum
kennimiða?
DÓRA S. Bjarnason, dósent við
Kennaraháskóla íslands, flytur fyr-
irlestur á vegum Rannsóknarstofn-
unar Kennaraháskólans miðviku-
daginn 29. apríl kl. 16.15. Fyrirlest-
urinn nefnist: Leikskólinn á kross-
götum kennimiða? - Samanburðar-
rannsókn á viðhorfum starfsfólks í
leikskólum Reykjavíkur til sameig-
inlegs uppeldis fatlaðra og ófatlaðra
barna.
í fyrirlestrinum mun Dóra fjalla
um nokkrar niðurstöður úr tveimur
könnunum á viðhorfum starfsfólks
grunnskólanna frá liðnum vetri. í
frétt frá GKS, sem varð til með sam-
runa Gamla kompanísins, Kristjáns
Siggeirssonar og Steinars, stálhús-
gagnagerðar, segir að nýsköpunar-
keppni grunnskólanna hafi notið
mikilla vinsælda og hátt í fjögur þús-
und hugmyndir borist undanfarin ár.
Á sýningunni má m.a. sjá fyrstu
herðatré Þóru í því útliti sem þau
verða framleidd á komandi árum en
Sigriður Heimisdóttir iðnhönnuður
hefur stjórnað vinnu við endanlega
þróun þeirra. Þá er efnt til getraun-
ar á sýningunni sem er opin virka
daga milli klukkan 9 og 18 og kl. 10-
16 á laugardag.
Dagvistar bama í Reykjavík til
starfa sinna á leikskólum, m.a. til
sameiginlegs uppeldis fatlaðra og
ófatlaðra leikskólabarna.
Fyrri könnunin var unnin 1986 en
hin síðari 1996. Við samanburð á
niðurstöðum þessara kannana
vakna ýmsar spurningar um þróun
fagmennsku leikskólakennara á
þessum áratug, og um vinnubrögð
og breytt viðhorf til leikskóla fyrir
alla. Niðurstöður verða ræddar og
túlkaðar með hliðsjón af breyting-
um á áherslum í leikskólafræðum á
þessum áratug.
Fyrirlesturinn verður haldinn í
stofu M-201 í Kennaraháskóla ís-
lands við Stakkahlíð. Öllum er
heimill aðgangur.
Námskeið um
meðferð sorps
ENDURMENNTUNARSTOFNU
N Háskóla íslands gengst fyrir
námskeiði um meðferð sorps. Nám-
skeiðið er einkum ætlað sveitar-
stjómarfólld, kjörnum fulltrúum í
nefndum sveitarfélaga, embættis-
og tæknimönnum en nýtist einnig
stjórnendum fyrirtækja sem hyggja
á úrbætur í þessum málaflokki.
í kynningu á efni námskeiðsins
segir m.a.: „Sorp og meðferð þess
er það svið umhverfismála sem
stendur almenningi og sveitarfélög-
um næst. Viðhorf til sorpmála hafa
tekið miklum breytingum undanfar-
in ár og eru nú farin að endurspegl-
ast í nýjum tæknilegum lausnum og
nýju laga- og reglugerðarumhverfi.
Á komandi misserum eru fyrirsjá-
anlegar enn frekari breytingar í
þessum efnum. Sveitarfélög og fyr-
irtæki munu þurfa að bregðast við
hertum kröfum bæði fi-á almenningi
og pftirlitsaðilum."
Á námskeiðinu verður leitast við
að skýra afstöðu mála hér heima og
á alþjóðavettvangi og hvað sé vænt-
anlegt m.a. með tilliti til tilskipana
ESB. Fyrirlesarar á námskeiðinu
verða þeir Bjöm Guðbrandur Jóns-
son og Hafsteinn Helgason, báðir
hjá verkfræðistofunni Línuhönnun
hf., Ingi Arason frá Gámaþjónust-
unni hf., Sveinn Ásgeirsson hjá Hr-
ingrás hf., Lúðvík Gústafsson hjá
Hollustuvernd ríkisins og Þröstur
Sigurðsson frá Rekstri og ráðgjöf
ehf.
Að loknum fyrirlestrum verður
farið í stutta heimsókn til Sorpu þar
sem þátttakendur kynnast þeim að-
ferðum sem Sorpa beitir við lífræn-
an úrgang, m.a. gassöfnun á urðun-
arstað höfuðborgarsvæðisins í Álfs-
nesi sem Sorpa hefur sett upp.
Upplýsingar og skráning hjá
Endurmenntunarstofnun.
Aðalfundur
Líffræðifélags
Islands
LÍFFRÆÐIFÉLAG íslands held-
ur aðalfund sinn miðvikudaginn 29.
apríl. Fundurinn verður haldinn í
Líffræðistofnun HI, Grensásvegi 12
(stofa G6), klukkan 20.30.
Á dagskrá em venjuleg aðalfund-
arstörf og í lok fundar er boðið upp
50 krakkar í knattþraut
DREGIÐ hefur verið úr réttum
lausnum í HM-ævintýri Coca-Cola
og Morgunblaðsins. Hér á eftir fer
upptalning á þeim 50 krökkum sem
urðu svo heppin að vera dregin út
en þau era beðin að mæta til að
þreyta knattþraut miðvikudaginn
29. apríl.
Þrautin felst í að hlaupa á hlaupa-
braut Laugardalsvallar, leika knatt-
spyrnu á gervigrasinu og fram-
kvæma tækniæfingar.
Þátttakendur þurfa að mæta í
viðeigandi klæðnaði og skóm en all-
ir þátttakendur fá númeraðan bol.
Stelpur eiga að mæta kl 15.45 en
strákar kl 16.45.
Um leið og aðstandendur HM-
ævintýrisins óska þeim góðs gengis
sem taka þátt í þrautinni vilja þeir
þakka þeim fjölmörgu sem tóku
þátt í ævintýrinu.
Andri Sveinsson,
Vallarhúsum 29, R.
Anita Arnþórsdóttir,
Hraunbæ 36, R.
Anna Þorsteinsdóttir,
Áifhólsvegi 123, Kóp.
Ari Logason,
Borgarsandi 2, Hellu.
Arnar Þór Ásgrímsson,
Breiðvangi 26, Hafnarf.
Birgir Jóhannsson,
Birldbergi 30, Hafnarf.
Bjarnveig Birgisdóttir,
Bjarnhólastíg 4, Kóp.
Björg Helgadóttir,
Tunguheiði 6, Kóp.
Daníel Pálmason,
Mánagötu 17, Grindavík.
Einar S. Oddsson,
Tunguvegi 9, Njarðvík.
Elmar Björgvin Skúlason,
Háaleitisbr. 40, R.
Eiríka Lea Elvarsdóttir,
Rjúpufelli 25, R.
Erla Bára Ragnarsdóttir,
Mosarima 49, R.
Eyjólfur Héðinsson,
Skriðuseli 11, R.
Eyrún Haraldsdóttir,
Hrauntúni 33, Vestm.
Finnur Eiríksson,
Furugrund 52, Kóp.
Guðbjörn Einarsson,
Bjargartanga 6, Mos.
Guðlaugur L. Finnbogason,
Maríubakka 8, R.
Guðleif Edda Þórðardóttir,
Bæjargili 34, Garðabæ
Gunnar Jarl Jónsson,
Kambaseli 3, R.
Gunnar Sigurður Valdimarsson,
Grænumýri 14, Ak.
Haukur Jóhannsson,
Hraunbæ 192, R.
Haukur Jónsson,
Fjóluhvammi 10, Hafnarf.
Hildur Einarsdóttir,
Fögrubrekku 18, Kóp.
Hlynur Kárason,
Heiðarbrún 59, Hverag.
Hrafn Guðmundsson,
Suðurgötu 18, R.
Ingibjörg Lára Gunnarsdótth',
Háholti 25, Keflav.
Jóhann Bragi Birgisson,
Garðhúsum 26, R.
Jóhann Guðmundsson,
Bæjargili 32, Garðabæ
Jóhannes Erlingsson,
Túngötu 28, Eyrarb.
Jón Ragnar Ragnarsson,
Lyngrima 12, R.
Jónas Guðmannsson,
Þverási 7, R.
Karólína Helga Símonardóttir,
Móatúni 3, Tálknaf.
Kári Snædal,
Vesturbrún 12, R.
Kristinn Hrafnsson,
Hálsaseli 2, R.
Kristjana S. Sveinsdóttir,
Varmá 2, Hverag.
Kristján Egill Karlsson,
Safamýri 17, R.
Leifur Jóhannesson,
Höfðavegi 24, Vestm.
Marta Sandholt Haraldsdóttir,
Dísarási 15, R.
Ólafur Gauti Olafsson,
Fífurima 18, R.
Ólafur Páll Johnson,
Tjarnarmýri 39, Seltj.
Óli Jóhann Friði-iksson,
Baughúsum 49, R.
Sara Simonardóttir,
Ásvöllum 5, Grindav.
Sigríður Ásta Hiimarsdóttir,
Álfaheiði 42, Kóp.
Sigrún Anna Snorradóttir,
Kjarrmóum 18, Kóp.
Sigrún Helga Pétursdóttir,
Bæjargili 23, Garðabæ
Sigurður H. Höskuldsson,
Sæbólsbraut 28, Kóp.
Vigdís Elfa Jónsdóttir,
Víðigrund 22, Akran.
Þorbjörg Jónsdóttir,
Seljabraut 56, R.
Þórunn Helga Jónsdóttir,
Nesvegi 82, R.
á léttar veitingar. Félagsmenn eru
hvattir til að mæta.
V esturbyggðar-
listinn valinn
ÞEIR sem standa að lista framfara-
sinna í Vesturbyggð, Vesturbyggð-
arlistanum, hafa ákveðið skipan list-
ans við bæjarstjómarkosningarnar
í Vesturbyggð 23. maí nk. Vestur-
byggðarlistinn mun óska eftir lista-
bókstafnum V á kjörseðlinum.
Á listanum era eftirtaldir íbúar
Vesturbyggðar: 1. Guðbrandur Stíg-
ur Ágústsson skólastjóri, Patreks-
firði, 2. Kolbrún Pálsdóttir kaupmað-
ur, Patreksfirði, 3. Elín Anna Jóns-
dóttir bæjarfulltrúi, Patreksfirði, 4.
Nanna Áslaug Jónsdóttir bóndi,
Rauðsdal, Barðaströnd, 5. Óskar
Hörður Gíslason skipstjóri, Patreks-
firði, 6. Gunnar Pétur Héðinsson
verkstjóri, Patreksfirði, 7. Jónas
Hörðdal Jónsson bóndi, Breiðavík, 8.
Valgeir Jóhann Davíðsson bóndi,
Hvammi, Barðaströnd, 9. Valgarður
Lyngdal Jónsson aðstoðarskóla-
stjóri, Patreksfirði, 10. Skúli Har-
aldsson vélstjóri, Patreksfirði, 11.
Sigurður Eiðsson skipstjóri, Pat-
reksfirði, 12. Sigríður Erlingsdóttir,
starfsmaður leikskóla, Patreksfirði,
13. Nanna Lilja Sveinbjömsdóttir
iðnnemi, Patreksfirði, 14. Bjami Sig-
urjónsson bflstjóri, Patreksfirði, 15.
Karólína Guðrún Jónsdóttir húsmóð-
ir, Patreksfirði, 16. Laufey Böðvars-
dótth- umboðsmaður, Patreksfirði,
17. Ólafur Magnússon útgerðarmað-
ur, Patreksfirði, 18. Ari ívarsson
verkamaður, Patreksfirði.
LEIÐRÉTT
Uppskriftin féll niður
í lok pistils Álfheiðar Hönnu
Friðriksdóttur féll niður uppskrift
að bananabrauði. Hún er birt hér og
biðst Morgunblaðið velvirðingar á
mistökunum.
_____________J egg______________
150 qr púðursykur (má vera minno)
_______2 þroskaðir bananar______
250 gr hveifi (helst lífrænt og óbleikt
_______- fæst í Heilsuhúsinu)___
_________V2 tsk. motarsódi______
____________1 tsk. salt_________
1 msk. fljótandi hunang (má sleppa)
Hrærið allt saman, þurrefnin síð-
ast og setjið í vel smurt bökunar-
form. Bakið við 180 gr í 45 mín.
Frábært morgunbrauð með smjöri
eða kotasælu."
Dagbók lögreglunnar
Slysalaust en
talsverður erill
helgina 24. til 27. april 1998
HELGIN var góð að því leyti að
engin alvarleg slys urðu en tals-
verður erill við allskonar minni
mál. Alls var tilkynnt um 14 inri-
brot um helgina. 16 mál vegna ölv-
unar við akstur komu upp um
helgina og 37 mál vegna of hraðs
aksturs.
Rólegt var yfir miðborginni á
fóstudagskvöld, Nato menn sagðir
tfl sóma og engin mál vegna
þeirra. Margt fólk var í miðbæn-
um aðfaranótt sunnudags og meiri
órói í fólkinu en ekkert sérstakt
sem kom upp. Erlendu sjóliðarnir
voru vart sýnilegir þá nótt.
Kona réðst á lögreglu
Hópur manna slóst í miðborg-
inni klukkan að ganga fjögur að-
faranótt laugardags. Ekki var vit-
að hver sló hvern en tveir vora
fluttir á slysadeild í lögreglubif-
reið með áverka á nefi. Kona réðst
á mann í miðborginni aðfaranótt
sunnudags. Meiðsli mannsins
vora minniháttar. Þá var ráðist á
annan mann í miðborginni um
svipað leyti og hlaut sá áverka á
augabrún. Einnig fór par að slást
þama en það var skilið að og mál-
ið afgreitt á staðnum. Fólk neitaði
að greiða fyrir leigubifreið i aust-
urborginni aðfaranótt sunnudags.
Þegar átti að fjarlægja fólkið
réðst kona á lögreglumann og
hlaut hann skurð á höfði.
Maður, sem var að sækja síma
sem tekinn hafði verið sem trygg-
ing fyrir greiðslu á bensínstöð,
greip símann án þess að borga,
hljóp út og ók í burtu. Maðurinn
var handtekinn stuttu síðar.
Tilkynnt var á fóstudagskvöld
um innbrot í sumarbústað við
Suðurlandsveg. Stolið var útvarpi.
Tveimur fánum var stolið frá húsi
Rauða krossins við Listabraut á
föstudagskv'öld. Þeir fundust í
hópi unglinga en enginn þeirra
vildi viðurkenna verknaðinn. Til-
kynnt var um innbrot á gististað á
laugardagsmorgun. Þar hafði ver-
ið stolið 28 tommu sjónvarpi.
Fór í ríkið utan opnunartíma
Þá var farið inn í húsbíl í aust-
urborginni og stolið þaðan m.a.
vaski, gaseldavél, rafmagnssög og
síma. Einnig var farið inn í gám í
Breiðholtshverfi og stolið þaðan
verkfærum að verðmæti um 400
þús. kr. Á laugardagskvöld braut
maður rúðu í verslun ÁTVR og
var kominn inn í anddyri þegar
hann var handtekinn.
Loks var tilkynnt um innbrot í
bfl í austurborginni á sunnudags-
morgun en úr honum var stolið
miklu magni af ýmsum munum.
Sama dag kom í ljós innbrot í
verslun í Múlahverfinu en þaðan
var stolið ýmsum tækjum.
Síðdegis á sunnudag var til-
kynnt um innbrot í geymslu í
vesturborginni en þar var stolið
fatnaði og ýmsum munum sem
vora töluverð verðmæti. Um svip-
að leyti var tilkynnt um þjófnað á
töluverðu af skartgripum úr húsi í
austurborginni.
Maður varð fyrir bfl á Sóleyjar-
götu sídegis á fóstudag. Hann
slasaðist lítið og var fluttur með
sjúkrabfl á slysadeild. Lögreglan
lenti í eltingarleik við ölvaðan
ökumann aðfaranótt laugardags.
Hann var stöðvaður eftir stutta
stund. Okumaður var stöðvaður í
miðborginni aðfaranótt laugar-
dags fyrir smá umferðarlagabrot.
Hann reyndist með útrannið öku-
skírteini og varð því að yfirgefa
bifreiðina en þá komu í ljós mari-
huana og tæki til neyslu þess.
Vora því ökumaðurinn og farþeg-
ar hans fluttir á lögreglustöð.
Þá gekk ölvaður maður utan í
strætisvagn á laugardagsmorgun
en meiðsli hans reyndust minni-
háttar. Árekstur varð á gatnamót-
um Lönguhlíðar og Miklubrautar
á laugardagsmorgun. Annar öku-
maðurinn var fluttur á slysadeild
en meiðsli talin minniháttar.
14 á flæðiskeri stödd
Þrír unglingar vora stöðvaðir
síðdegis á föstudag þar sem þeir
voru á göngu innst við Grafarvog
með 20 bjórflöskur meðferðis.
Bjórinn varð eftir á lögreglustöð-
inni þegar piltarnir fóra til síns
heima.
Þrjú ungmenni voru tekin við
að krota á vegg í Fellsmúla á
föstudagskvöld. Þau voru flutt á
lögreglustöð þangað sem foreldr-
ar sóttu þau. Síðdegis á laugar-
dag gekk 14 manna hópur út í
skerið við Geldinganes en komst
ekki til baka þegar flæddi að.
Lögregla og slökkvilið komu fólk-
inu á þurrt.