Morgunblaðið - 28.04.1998, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 28.04.1998, Qupperneq 8
8 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FLJÓTIR strákar felum okkur, hreinsitæknirinn er að koma. Skátahreyfíngin vill íslenska fánann í öndvegi Morgunblaðið/Halldór SKÁTAR gefa í ár öllum sjö ára grunnskólanemum islenska fánann á lítilli handstöng. Jplrtk ■ 1 Grj óthnullungur lenti á bifreið MÁNAÐARGÖMUL fólksbif- reið er óökufær eftir að grjót- hnullungur spýttist frá vörubíl á Reykjanesbraut í gærmorgun og lentiá grilli hennar, undir bíl- númeri, og sat þar fastur. Steinninn, sem lögreglan áætlar að hafi ekki verið undir einu kílói að þyngd, beygði tvo málmbita og eyðilagði m.a. vatnskassa bifreiðarinnar. Atvikið gerðist laust eftir klukkan átta í gærmorgun. Fólksbifreiðinni var ekið suður Reykjanesbraut og gerðist at- vikið á vegakafla sem liggur frá gatmamótum Nýbýlavegar og Reykjanesbrautar og að bens- ínstöð Skeljungs. Vörubifreið- inni var ekið norður í sömu mund og eru taldar líkur að þegar bílarnir mættust hafi grjótið verið milli dekkja vöru- bifreiðarinnar og skotist út með fyrrgreindum afleiðingum, enda var ekki sjáanlegur farm- ur á bílnum. Lán að ekki fór verr Að sögn lögreglu er talið mildi að ekki fór verr, enda hefði ekki mátt muna miklu að grjótið hafnaði í framrúðu bíls- ins. Lögreglan í Kópavogi skorar á bílstjóra vörubifreiðarinnar að hafa samband við lögreglu og sömuleiðis sjónarvotta eða aðra þá sem búa yfir vitneskju um atvikið. Talið er að um rauðan vörubíl sé að ræða með stóran svartan krana. ÖIl sjö ára börn fá fánaveifu að gjöf ÍSLENSKA fánann í öndvegi er verkefni á vegum skátahreyfing- arinnar á Islandi en tilgangur þess er að upplýsa almenning um sögu íslenska fánans, meðferð hans og hvetja til almennrar notkunar undir slagorðinu flögg- um á fögrum degi. Verkefnið hófst á 50 ára lýð- veldisafmælinu en þá gaf skáta- hreyfingin öllum grunnskóla- börnum fánaveifu, fána á lítilli handstöng til notkunar við sem flest tækifæri. f ár, á 80 ára af- mæli fslenska fánans, gefa skátar öllum sjö ára börnum fánaveifu ásamt bæklingi. I bæklingnum Islenska fánann í öndvegi er að finna fánareglur og sýndir eru fánahnútar. Samspil manns og náttúru í Perlunni Vistvæn tilvera felur í sér fleira en lífrænan mat Guðlaugur Bergmann fTT YNNINGARSÝN- ING undir yfir- Xm.skriftinni Samspil manns og náttúru verður haldin í Perlunni 1.-3. maí næstkomandi. Þar verður saman kominn fjöldi fyrir- tækja sem kynnir eða býður á tilboðsverði vistvænar, umhverfisvænar, lífrænar og náttúruvænar vörur og þjónustu. Skipuleggjandi sýningarinnar er Leiðarljós og þátttakendur eru 35, tíl dæmis Áhugahópur um HÁI, Betra líf, Body Shop, Clean Trend, Dansól, Gróðrastöðin Lambhaga, Hagkaup, Heilsubúðin Hafnarfirði, Heflsuhomið Akureyri, Hrímgull, KB bakaríið, Landnáma/Is- landsflakkarar, Leiðarljós, Lofthreinsikerfi, Lýsi, Magnús Kjaran, Málning, Mjólkur- samsalan, Nuddstofa Reykjavíkur, Oddur Pétursson, Olís, Plastos, Ra- inbow Air, SG hús, Snæfellsássam- félagið, Sorpa, Spor, Umhverfis- vörur, Vallanesbúið, Yggdrasill og fleiri. Á sýningunni verður fluttur fjöldi fyrirlestra sem tengist sam- spili manns og náttúru, til dæmis um náttúruvemd, vistvænar hús- byggingar, græna ferðaþjónustu, náttúrulegra mataræði, lækningu mannsins í heild sinni, lækningar- jurtir íslenskrar náttúru, vistvæn- an hugsunarhátt, h'fræna ræktun, skaðsemi reykinga, ábyrgð okkar á eigin sorpi, tvær leiðir til heil- brigðis, Ríósáttmálann og upp- græðslu landsins. Þá verður reistur friðarstólpi við Perluna og farið í gönguferðir klukkan 14.30 daglega með Erlu Stefánsdóttur sjáanda sem sýnir þátttakendum álfabyggðir í Óskjuhlíð. - Hvers vegna gengst Leiðar- Ijós fyrir þessari sýningu? „Árið 1997 byggðum við hjónin eitt af fjórum vistvænum íbúðar- húsum í Snæfellsássamfélaginu á Hellnum. Við fluttumst hingað ár- ið 1995 og vildum setja upp vist- vænt og sjálfbært samfélag með öðru fólki. Það að vera vistvænn er mun víðtækara en það að nota lífrænan áburð, rækta lífrænt grænmeti eða borða lífrænt rækt- að kjöt, sem margir þekkja. Hugtakið „vistvænt“ nær líka yfir samskipti fólks í samfélögum, menningu, hvernig við komum fram við náttúruna í kringum okk- ur og skiljum við hana. Hugmynd- irnar „sjálfbær" og „vistvæn“ eru í raun nátengdar hver annarri. Því miður virðast ekki jafnmarg- ir átta sig á því. Þegar við fórum að byggja okkar vistvænu hús hér þurftum við að leita fanga og afla upplýsinga um það hvar við gætum fengið það sem þurfti. Við fórum erlendis, meðal annars til Danmerkur og Skotlands, þar sem Findhorn, elsta sjálfbæra samfélagið í heiminum er, og þurftum að þreifa fyrir okkur með allt í sambandi við vistvæna byggð og líffæna ræktun. Athygli vakti að þótt margir hafi áhuga á öllu lífrænu, vistvænu og náttúru- vænu, vita þeir í raun ekld hvar þeir eiga að leita fyrir sér. Islend- ingar hafa skrifað undir fjölda al- þjóðasáttmála, til dæmis þá sem kenndir eru við Ríó og Kyoto, en samt sem áður virðist ekki mikið af upplýsingum til um hlutverk hins almenna borgara. Það verður ekkert vistvænt samfélag til án þátttöku almennings svo við hugs- ► Guðlaugur Bergmann fæddist í Hafnarfirði árið 1938. Hann lauk prófi frá Verslunarskóla Is- lands árið 1958 og hóf sjálfstæð- an atvinnurekstur tveimur árum siðar. Guðlaugur rak um árabil tískuverslanir Karnabæjar ásamt saumastofum og sat með- al annars í stjórnum Gamla mið- bæjarins, Hafskips og Arnar- flugs. Árið 1995 seldi hann allan fyrirtækjarekstur sinn og hús í Reykjavík og flutti ásamt eigin- konu sinni, Guðrúnu G. Berg- mann, að Brekkubæ á Hellnum í Snæfellsbæ til þess að stunda rekstur mannræktarmiðstöðvar. Guðlaugur og Guðrún eiga syn- ina Guðjón og Guðlaug yngri og reka útgáfufyrirtækið Leiðar- ljós ásamt eldri syni sínum. uðum með okkur að setja upp sýn- ingu þar sem safnað yrði saman á einn stað fyrirtækjum sem selja vistvænar vörur og þjónustu. Auðvitað eru ekki allir sem þama verða 100% lífrænir eða vistvænir en verið er að gera til- raunir og fólk vill gera sitt besta.“ - Hvernig fínnst þér framboðið af slíkum vörum hér? „Það er í raun ótrúlega mikið og athyglisvert hversu mörg fyrir- tæki eru með náttúruvænar vörur og þjónustu. Okkur var alls staðar vel tekið þegar við kynntum hug- myndina og það kom okkur veru- lega á óvart hversu opið fólk var. Enda fylltist sýningarplássið mjög fljótlega. íslendingar eru nú einu sinni þannig að þegar þeir byrja á einhverju stendur sko alls ekki á því. Hér er eitt fallegasta land sem til er og fá- mennt, sem betur fer, en við þurfum samt sem áður að passa nátt- úruna, umhverfið og menningu. Það heyrir allt undir vistvæna tilveru.“ - Hverju vonist þið til þess að sýningin muni fá áorkað? ,Að fólk verði meðvitaðra um hið mikla samspil manns og nátt- úru. Við stöndum á þröskuldi mik- illa breytinga sem kalla á ný við- horf og nýjan lífsmáta. Ég tel að orðið hafi almenn vakning hjá fólki og á sýningunni kemur í Ijós hvert það getur leitað og þannig stutt við bakið á fyrirtækjum sem eru að gera sitt til þess að bjóða vistvænar vörur og þjónustu.“ - Er íslenskur almenningur nægilega vel með á nótunum, til dæmis hvað varðar förgun á sorpi ogslíku? „Nei, en ég held að það stafi af skorti á upplýsingum og fræðslu. Svona sýning ætti að geta bætt úr því.“ Miklu skiptir að stórfyrir- tækin séu með
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.