Morgunblaðið - 28.04.1998, Qupperneq 15

Morgunblaðið - 28.04.1998, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 15 AKUREYRI Morgunblaðið/Kristján ÓLAFUR ívarsson tæknimaður og Arnar Guðmundsson sölumaður við eina af prjónavélum Glófa. Glófí tók þátt í vöruþróunarverkefni Utivistarsokkar fyrir börn Starfslaun listamanns menningarsjóðs Akureyrarbæjar Dröfn Friðfínnsdóttir valin Morgunblaðið/Kristján DROFN Friðfinnsdóttir hlýtur starfslaun listamanns Akureyrarbæjar. GLÓFI ehf. á Akureyri hefur lokið vel heppnaðri þátttöku í Vöruþróun ‘97, átaki til atvinnusköpunar og efndi af því tilefni til kynningar á starfsemi sinni. Prjónastofan Glófi var stofnuð í apríl árið 1982, en stofnendur og eigendur eru Eðvarð Jónsson, Mar- grét Jónsdóttir og fjolskyldur þeirra. Fyrstu árin var áhérsla lögð á framleiðslu ullarvettlinga, en ull- arvörur af ýmsu tagi, húfur, vett- lingar og sokkar eru helstu fram- leiðsluvörur fyrirtækisins nú. Síðustu ár hafa Varma útivistar- sokkar verið stór þáttur í fram- leiðslunni og er fyrirtækið með sterkustu markaðsstöðu íslenskra fyrirtækja á því sviði. Helstu mark- aðir eru innanlands en talsvert er flutt út, Framleiðsla gengur samkvæmt áætlun Logi Arnar Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Glófa, sagði að sam- starfsverkefnið með Iðntæknistofn- un hefði hafist á liðnu ári og er það fyrsta verkefnið af þessu tagi sem starfsfólk fyrirtækisins tekur þátt í. Verkefnið fólst í þróun á útivistar- sokkum fyrir börn og hófst fram- leiðslan nýlega og gengur hún sam- kvæmt áætlun. Samhliða þessu verkefni var allt framleiðsluferlið endurskoðað, vinnuaðstaða endur- bætt, nýjum línum bætt við og um- búðum breytt. DRÖFN Friðfinnsdóttir hlýtur starfslaun listamanns menningar- sjóðs Akureyrar en hún flutti þriggja ára gömul til Akureyrar og er meðal þeirra akureyrsku mynd- listamanna sem stunda list sína á heimaslóð. Dröfn stundaði myndlistanám í Handíða- og myndlistaskólanum í Reykjavík, Myndlistaskólanum á Akureyri og Listaháskólanum í Lat- hi í Finnlandi. Hún er afkastamikill grafíklistamaður og hefur nær ár- lega síðasta áratug haldið einkasýn- ingar og tekið þátt í fjölda samsýn- inga, bæði hér á landi og eins víða um heim. Henni hefur verið boðið að taka þátt í sýningum á Ítalíu og Japan nú í sumar og einnig í Slóveníu. „Ég er afskaplega ánægð með að hljóta þessa viðurkenningu og hún breytir auðvitað miklu fyrir mig. Ég mun nú alfarið snúa mér að listsköpun næsta árið og þau verkefni sem tengjast mínu starfí munu víkja þann tíma. Ég stefni að því að þiggja þossi boð sem ég hef fengið um að sýna á Ítalíu og Japan í sum- ar og halda svo ótrauð áfram,“ sagði Dröfn. Hún hefur hlotið margvíslegar viðurkenningar fyrir verk sín, m.a. heiðursviðurkenningu frá alþjóð- legu tréristusýningunni 1995, en hún er haldin þriðja hvert ár og hef- ur sú viðurkenning opnað henni leiðir inn á ýmsar sýningar í útlönd- um. Dröfn hefur verið starfsmaður Akureyrarbæjar síðustu ár, unnið við að skipuleggja tómstundastarf með unglingum í félagsmiðstöðvum en undanfarið hefur hún starfað við uppbyggingu í tómstundamiðstöð- inni Punktinum. Fjórir heiðraðir Menningarmálanefnd Akureyrar hefur síðustu ár einnig heiðrað nokkra valinkunna samborgara sem komnir eru á virðulegan aldur og eiga að baki langt og ötult starf að menningarmálum í bænum, eins og Finnur Birgisson formaður nefnd- arinnar komst að orði. Þeir sem heiðraðir voru að þessu sinni voru Hannes Arason fyrir tónlistarstörf, Þyri Eydal einnig fyrir störf að tón- listarmálum og systurnar Ragnhild- ur og Þórhildur Steingrímsdætur. Ragnhildur hefur mikið starfað við leiklist og Þórhildur að ýmsum menningar- og líknarmálum. Svanhildur í fyrsta sæti SVANHILDUR Árnadóttir, bæj- arfulltrúi á Dalvík, skipar fyrsta sæti á lista sjálfstæðismanna og óháðra kjósenda við sveitarstjórn- arkosningar í sameinuðu sveitar- félagi á Dalvík, Svarfaðardal og Árskógsströnd. í 2. sæti er Kristján Snorrason, Jónas Pétursson er í 3. sæti, Frið- rik Gígja í 4. sæti, Sigfríð Ósk Valdimarsdóttir í 5. sæti, Amgrím- ur Baldursson í 6. sæti, Dórothea Jóhannsdóttir í 7. sæti, Þorsteinn Skaftason í 8., Eva Björg Guð- mundsdóttir í 9. og í 10. sæti er Sigurður Jörgen Óskarsson. Fréttir 'ölskylduna VERÐ FRA 1.369.000 KR. Aukasendingin af Hyundai Elantra er komin! Vegna hagstæðra samninga er þessi aukasending nú á ótrúlega góóu verði; kostar aóeins 1.369.000 kr.! Þessi fíni fjölskyIdubf 11 fæst bæði sjálfskiptur og beinskiptur. Gríptu gott tækifærí til að komast áfram. <B> HYunom — til framtíðar Ármúla 13 Sími 575 1220 Skiptiborð 575 1200 Fax 568 3818
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.