Morgunblaðið - 28.04.1998, Síða 16

Morgunblaðið - 28.04.1998, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Framkvæmdastjóri FSA um neyðaráætlun Fyrirmæli um áætlun í samræmi við ijárlög NEYÐARÁÆTLUN, sem for- svarsmenn Fjórðungssjúkrahúss- ins á Akureyri gerðu og kynntu fyr- ir nokkru, er hluti af heildaráætlun- argerð vegna reksturs sjúkrahúss- ins ás þessu ári. „Við fengum fyrir- mæli um að gera áætlun í samræmi við samþykkt fjárlög þar sem ekki væri vitað hvort né hvaða stofnanir fengju úthlutað úr sérstökvun „pottum“, sagði Halldór Jónsson, framkvæmdastjóri FSA, en Ingi- björg Pálmadóttir heilbrigðisráð- herra gagnrýndi við utandag- skrárumræður á Alþingi í liðinni viku að verið væri að kynna neyðar- áætlun á sama tíma og verið væri að vinna að lausn fjárhagsvanda sjúkrahússins með ráðuneytinu. Halldór sagði að forsvarsmönn- um sjúkrahússins hefði fundist þeir bera skylda til að upplýsa starfs- menn um gang mála, en á fundi í janúar hefði almennt verið rætt um horfur og lögð áhersla á aðhald í rekstri. Enn lægi ekki fyrir hversu mikið fé sjúkrahúsið fengi. „Sjón- armið okkar var að þeim mun fyrr sem gripið yrði til aðgerða þeim mun mildari yrðu þær. Eftir því sem lengra líður á árið verður erf- iðara að láta hlutina ganga eftir,“ sagði Halldór. Ráðuneyti ekki haldið utan við málið Hann sagði að aldrei hefði staðið til að halda ráðuneytinu utan við málið og gögn hefðu verið send þangað áður en starfsemisáætlun ársins var kynnt í fjölmiðlum. „Það lá fyrir að fjórveitingar dygðu ekki til að halda úti sörau starfsemi og verið hefur, Við leituðum leiða í áætlanagerð okkar til að ná fram hagræðingu og sparnaði eins og hægt var án skerðingar á starfsemi og eins settum við upp áætlun sem gerði róð fyrir meiri skerðingu á starfsemi en áður, svokallaða neyð- aráætlun," sagði Halldór. Hann sagði alltaf Ijóst og að þannig hafi málið rækilega verið kynnt til hennar yrði ekki gripið nema því aðeins að engir peningar fengjust, en menn vonast til og telja sig eiga möguleika á að fá fé úr svonefnd- um 500 milljón króna pottum til að ófram verði rekin öflug starfsemi á FSA og möguleikar gefist til enn frekari aukningar á þjónustu. Fjárveitingar til sjúkrahússins hafa aukist á undanförnum árum og sagði Halldór það undirstrika þann vilja sem væri fyrir þvi að efla og styrkja starfsemi FSA, DALVÍKURSKDLI Opið hús hjá Rala á Möðru- Grunnskólakennarar Lausar eru til umsóknar kennarastöður við Dalvíkurskóla. Kennslugreinar: íslenska á unglingastigi, handavinna, mynd- list, heimilisfræði og almenn bekkjarkennsla. f skólanum eru um 280 nemendur í 1. —10. bekk. Við auglýsum eftir metnaðarfullu og áhugasömu fólki sem vill vinna með okkur að þróunar— og uppbyggingarstarfi. Starfsfólki skólans gefst kostur á að sækja námskeið innanlands og utan. ( skólanum ríkir góður starfsandi, starfsaðstaða er góð og vel er tekið á móti nýju starfsfólki. Bekkjarstærðir eru að meðaltali 17 nemendur. Upplýsingar um stöðurnar, húsnæði og fl. gefur skólastjóri í síma 466 1380 (81) og í síma 466 1162. Flugukast námskeið verður haldið í fþróttahöllinni á Akureyri 4., 5. og 6. maí klukkan 20:30 til 22:30 öll kvöldin ef næg þátttaka fæst. — Kennarar verða: • Heimir Jóhannsson • Júlíus Björnsson • Ragnar Hauksson. Vinsamlega skráið þátttöku ykkar hjá Einari Long eða Jóni Lárussyni í Veiðihorninu Lónsbakka fyrir 30. apríl. J Þátttökugjald er kr: 500,- fyrir kvöldið Veiðihornið leggur mönnum til stengur og tilheyrandi sé þess óskað. völlum RANNSÓKNARSTOFNUN land- búnaðarins, Rala, verður með opið hús á Möðruvöllum á morgun, mið- vikudaginn 29. apríl, frá kl. 13-17. Þar gefst bændum og öðrum áhugasömum kostur á að kynna sér starfsemi stofnunarinnar. Kynningin verður í höndum bú- stjóra og sérfræðinga og munu þeir segja frá þeim rannsóknum sem unnið er að og sýna aðstöðuna. Gestir geta farið fyrst í tilrauna- fjósið og séð þar fóðurtilraunir með nautgripi, bæði mjólkurkýr og kálfa af mismunandi kúakynjum. Einnig geta gestir skoðað mis- munandi básamilligerðir sem verið er að prófa í fjósinu. í jarðræktar- húsinu verður gerð grein fyrir rannsóknum á plöntum og smádýr- um í jarðvegi. Aksjóim Þriðjudagur 28. apríl 21.00 |►Grunnskólinn á Ak ureyri Umræðuþáttur um skólamál. Bifreiðastjórar Hafið bílabænina í bílnum og orð hennar hugfost þegar þið akið. DfOit;nn Guð, voit mer vernd þlna, og lát mig minnast ábyrgft»r mtnnar ct ðci ek bessan hífreið Fæst í Kirkjuhúsinu Laugavegi 31, Jötu, Hátúni 2, Reykjavík, Hljómveri og Shellstöðinni v/Hörgárbraut, Akureyri, Litla húsinu, Strandgötu 13B, Akureyri. Verð kr. 200. Orð dagsins, Akureyri Morgunblaðið/Kristján SIGURBERGUR Konráðsson, framkvæmdasljóri Arnarfells, sem átti lægsta tilboðið, skrifar undir fundargerð eftir að tilboðin voru opnuð í húsnæði Vegagerðarinnar á Akureyri í gær. Við hlið hans situr Guð- mundur Hjálmarsson sem átti næstlægsta tilboðið í verkið. Tilboð opnuð í lagningu Borgarbrautar Arnarfell átti lægsta tilboðið ARNARFELL ehf, á átti lægsta til- boð í framkvæmdir við Hlíðarfjalls- veg um Borgarbraut á Akureyri en tilboðin voru opnuð í gær. Arnarfell bauðst til að vinna verkið fyrir rúm- ar 125 milljónir króna, sem er tæp 76% af kostnaðaráætlun, sem hljóð- aði upp á rúmar 165,3 milljónir króna. Alls bárust fimm tilboð í verkið, sem er það stærsta sem boðið verð- ur út á Norðurlandi á árinu og eru fjögur tilboðanna innan kostnaðará- ætlunar. G. Hjálmarsson ehf. á Akureyri átti næstlægsta tilboðið og hljóðar það upp á rúma 151 millj- ón króna, eða 91,41% af kostnaðará- ætlun. Héraðsverk ehf. á Egilsstöðum bauð 152,6 milljénir króna í verkið, sem er 92,29% af kostnaðaráætlun, G.V. gröfur ehf. og Möl og sandur hf. á Akureyri buðu sameiginlega rúmar 164,8 milljónir króna, eða 93,66% af kostnaðaráætlun og ístak hf. í Reykjavflc bauðst til að vinna verkið fyrir rúmar 199,7 milljónir króna, eða 120,78% af kostnaðará- ætlun. Borgarbraut þjóðvegur Borgarbraut er þjóðvegur en það eru Vegagerðin og Akureyrarbær sem stóðu að útboðinu. Langmesti kostnaðurinn við verkið fellur á rík- ið en það mun koma í hlut bæjarins að greiða kostnað við göngustíga og fleira. Samkvæmt útboðsgögnum skal verkinu að fullu lokið 1. ágúst á næsta ári. í verkinu fellst m.a. lagning 1,5 km vegarkafla milli Glerárgötu og Hlíðarbrautar, ásamt undirgöngum undir Borgarbraut, brúm á Glerá og rofvömum. Morgunblaðið/Kristján B ókamarkaðurinn í Skemmunni HINN árlegi Bókamarkaður Fé- lags fslenskra bókaútgefenda var opnaður formlega í fþrótta- skemmunni á Akureyri sumar- daginn fyrsta og stendur til sunnudagsins 3. maí. Á boðstól- um eru yfir tíu þúsund bókatitl- ar, ferðabækur, barnabækur handbækur, ættfræðirit, Ijóð, kynlífsbækur, spennusögur, ævi- sögur, myndabækur, íslendinga- sögur og margt fleira. Bóka- markaðurinn er opinn alla daga frá kl. 10-19. Starfsfólk bókasafna á Norður- landi átti þess kost að heimsækja markaðinn sl. miðvikudag og á myndinni eru þær Oddný, Guðrún, Sigrún og Ragnhildur frá Amts- bókasafninu, að skoða úrvalið. Verslunarhúsnæði Af sérstökum ástæðum er til leigu verslunarhúsnæði í miðbæ Akureyrar, stærð 73 m2 á jarðhæð. Húsnæðið er laust nú þegar. Nánari upplýsingar í síma 462 3072 eða 897 0265 (farsími).

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.