Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 28.04.1998, Blaðsíða 28
28 ÞRIÐJUDAGUR 28. APRÍL 1998 LISTIR MORGUNBLAÐIÐ Aðalsteinn Asberg kjörinn formaður RSI AÐALSTEINN Ás- berg Sigurðsson var kjörinn formaður Rit- höfundasambands Is- lands (RSÍ) til næstu tveggja ára á aðalfundi sambandsins síðastlið- inn laugardag. Tekur hann við af Ingibjörgu Haraldsdóttur. Kosið var á milli tveggja manna, Aðalsteins, sem fékk 131 atkvæði, og Hjartar Pálssonar, sitj- andi meðstjórnanda, sem fékk 88 atkvæði. Núverandi stjórn RSÍ skipa, auk Aðal- steins, Olafur Haukur Símonarson varaformaður, Guðjón Friðriksson meðstjómandi, Hjörtur Pálsson meðstjómandi, Kristín Steinsdóttir meðstjómandi og Steinunn Jóhannesdóttir varamað- ur. Vilborg Dagbjartsdóttir skáld var kjörin heiðursfélagi Rithöfunda- sambands Islands. Aðalsteinn kveðst ákaflega ánægður með kosninguna - hann hafi fengið ótvírætt meiri- hlutaumboð til að stýra félaginu. En hvað er honum efst í huga á þessum tímamótum? „Það sem mér er efst í huga er að geta haldið áfram því ágæta starfi sem unnið hefur verið hjá Rithöf- undasambandi íslands á undanfómum áram og jafnframt að horfa fram veginn og vinna að ýms- um nýjungum sem sí- fellt eru á döfinni hjá höfundasamtökum sem þessum. Það em stöðugt að koma upp ný mál enda er höfundaréttur að verða æ flóknari. Þá getur maður ekki látið hjá líða að minnast á nýja öld í þessu samhengi en ég kem til með að leiða sambandið inn í hana.“ Af öðram spennandi verkefnum sem framundan era nefnir Aðal- steinn Gunnarshús, sem Rithöfunda- sambandið fékk lyklavöld að á liðnu ári. „Við eram að móta stefnuna í notkun á því húsi en það býður upp á ýmsa möguleika. Fyrst og fremst viljum við sjá það sem lifandi mið- stöð íyrir rithöfunda, sem þegar er orðið, en auðvitað er hægt að gera miklu meira þar en við gátum áður í okkar gamla skí’ifstofuhúsnæði.“ Þá segir Aðalsteinn brýnt að halda áfram þátttöku í útrás ís- lenskra bókmennta á komandi miss- erum. Ljóst sé að útflutningur á þeirri grein menningarinnar færist stöðugt í vöxt og það hljóti að vera hluti af starfi RSI að stuðla að því að sú þróun haldi áfram. Ennfremur segir nýkjörinn for- maður að spennandi verði að takast á við að endurnýja samninga við út- gefendur hér á landi og hugsa al- mennt um hag höfunda. „Það verð- ur í mörg horn að líta og vonandi á mér eftir að takast að starfa vel fyr- ir íslenska rithöfunda." Aðalsteinn Ásberg Signrðsson Uthlutað úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins Á SUMARDAGINN fyrsta var úthlutað í 33. sinn úr Menningarsjóði Þjóðieikhússins, en hann var stofnaður á sumardaginn fyrsta árið 1950, vígsludegi Þjóðleikhússins. Styrkjunum er einkum ætlað að greiða götu listafólks sem vill afla sér aukinnar menntunar eða kynna sér leiklist á erlendum vettvangi. I úthlutunarnefnd silja nú Stefán Baldursson Þjóðleikhússtjóri, Baldur Thorlacius, fyrrv. ráðuneytisstjóri, og Jóhann Sigurðarson leikari. Styrki úr Menningarsjóði Þjóðleikhússins hlutu að þessu sinni leikararnir Gunnar Eyjólfsson, Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir, Halldóra Björnsdóttir og Örn Árnason, en sumardaginn fyrsta frumsýndi Örn einleikinn Gamansama harmleikinn. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Kraftur á kostnað mýktar TðlVLIST Islenzka óperan EINSÖNGSTÓNLEIKAR íslenzk og ítölsk sönglög, óperaaríur og dúettar. Auður Gunnarsdótth- sópran og Jón Rúnar Arason tenór; Gerrit Schuil, píanó. íslenzku óper- unni, laugardaginn 25. apríl kl. 17. ÞAÐ var múgur og margmenni í ís- lenzku óperunni á Styrktarfélags- tónleikunum á laugardaginn var, og lék nærri áþreifanleg forvitni um andrúmsloftið í garð hinna ofan- greindu ungu söngvara, sem bæði munu stödd í upphafi starfsferils á erlendri grundu. Var ekki sízt kraft- mikill þjóðlagasöngur Jóns Rúnars undir bera lofti á knattspyrnulands- leikjum í fyrra mörgum í fersku minni, þó að hvoragt söngvaranna hefði áður barið hlust undirritaðs. Að venju skiptu söngvararnir dag- skránni á milli sín og sungu að auki nokkra dúetta í seinni hálfieik. Reið Jón Rúnar á vaðið með Fenesta che lucive (óþekktur höf.) og söng í fyrri hluta Lungi dal caro bene (Sarti), Vecchia zimarra (úr La Boh'eme e. Puccini) og íjögur íslenzk lög, tvö eftir Kaldalóns (Ég lít í anda og Stormar), Lindina e. Eyþór Stefáns- son og Fuglinn í fjöranni e. Jón Þór- arinsson. Auður söng Piangero la sorte mia (úr Júlíusi Sesar e. Hándel), Che fiero momento (úr Orfeifi og Evridís e. Gluck) og Fjór- ar vísur op. 11 eftir Wolf-Ferrari. Eftir hlé söng Auður Io son l’umile ancella (úr Adriana Lecouvr- eur e. Cilea) og Rómönsu (úr La Wally e. Catalani). Saman sungu þau Næturljóð úr Don Pasquale Don- izettis og Parigi, o cara úr La travi- ata Verdis að undangenginni aríu Al- fredos úr sömu ópera, De’ miei bollenti spiriti, í meðfórum Jóns Rúnars. í lokin voru sungin atriði úr 1. þætti La Boh'eme, dúettinn Non son in vena, Che gelida manina, Mi chiamano Mimi og dúettinn 0 soave fanciulla. Meðal þess sem mesta athygli vakti í fyrri hluta tónleikanna hjá Auði var Gluck-arían („Þessi ógn- vænlega andrá“) og fjórar ástarvísur Wolf-Ferraris, þar sem sérstaklega hin síðasta og jafnframt glettnasta, 0 si che non sape vo sospirara („0 já, ég kunni ekki að andvarpa"), fletti óvænt ofan af kómísku túlkun- artalenti. Röddin var falleg og tækn- in mjög góð, þó að kóloratúran í Hándel væri svolítið stirð (enda fyrsta atriði hennar) og textatjáning- in framan af fremur hlutlaus. Toppamir í annars jafnri frammi- stöðu Jóns Rúnars vora kveðjuaría Collines til „gamla frakkans" (La Boh' eme) - að vísu ívið of sorgmædd (með tilheyrandi ítölsku kjökri) fyrir dauðan hlut, nema þá háðið hafi verið sett á oddinn, og íslenzku lögin, eink- um Storrriar, þar sem stórt raddsvið söngvarans og öfundsverð fylling á neðra sviði naut sín út í æsar. Glæsi- leg hljómfylling Jóns var reyndar til staðar þegar frá byrjun. Hann er fá- gætt dæmi um kraftmikinn og hljóm- fagran íslenzkan „spintó“-óperatenór sem mundi njóta sín í jafnvel verstu fáanlegu akústík, en kannski síður í fíngerðari ljóðasöng. Um slíkar radd- ir er grimmt setið ytra, og lítið hirt um hættuna á því að þær brenni út á skömmum tíma, enda vakti smávegis vottur af hæsi á veikustu nótum Jóns ugg um að svo geti farið, ef hann hef- ur ekki varann á. Hin glampandi „gjallarhorns“-ein- kenni raddarinnar stóðu stundum æskilegri mýkt fyrir þrifum, eins og fram kom í dúettunum eftir hlé, þar sem Jóni, þrátt fyrir auðsýnda sam- starfsviðleitni, hætti til að yfirgnæfa mótsöngvara sinn. Að öðru leyti heppnaðist samsöngur þeirra Auðar mjög vel og vakti mikla hrifningu. Auður opnaði aðeins betur fyrir til- finningastreyminu í aríu „ambáttar- innar“ í Cilea, enda textinn meðal hins burðugra sem gerist í óperu- kveðskap, og glæsOeg óþvinguð hæð hennar fékk að geisla í Rómönsu Wallýar eftir Catalani. Aría Alfredos og sæludúett þeirra Víolettu úr La Travíata vöktu og verðskuldaðar undirtektir. Þó var hámarkið eftir, atriðin úr 1. þætti La Boh'eme þeg- ar ástir takast með Rodolfo og Mímí, þar sem flest ætlaði um koll að keyra úti í sal, enda hvert atriði öðru betra. Aría Rodolfos um köldu höndina var stórglæsilega sungin af Jóni Rúnari, og „Eg er kölluð Mímí“ var litlu síðri í grípandi túlkun Auðar. Undirleikur Gerrits Schuús var, burtséð frá smávegis göslaragangi í forspúum að Gluck og aríu Alfredos, til fyrirmyndar öraggur og oft til- þrifamikill, og hefur hann væntan- lega líka verið betri en enginn við að segja þessum stórefnilegu ungu söngvurum til um eitt og annað, eins og árangurinn af þessum velheppn- uðu tónleikum gaf til kynna. Ríkarður Ö. Pálsson Morgunblaðið/Jon bvavarsson AF sýningu Olafar Nordal í Ingólfsstræti 8. Guð sem páskaegg MYNDLIST Gallerí Ingólfsstræti 8 HÖGGMYNDIR ÓLÖF NORDAL Til 10. maí. Opið fimmtudaga til sunnudags frá kl. 14 til 18. Sýningar- skrá kr. 800. Á HVERJU vori koma páskar og þá borðum við páskaegg. I hugum smáfólksins umlykur dýrðarljómi þessa sérstæðu súkkulaðiathöfn því hún sameinar svo mörg ánægjuleg áreiti; tilhlökkun; velsæld; augna- yndi og bragðlaukakitlur. Betra gæti það varla verið enda eru allar verslunarhiUur sneisafullar af þessu sælgæti í öllum hugsanlegum stærðum og gerðum. Að spyrja börnin um merkingu þessarar ár- legu veislu væri eins og að spyrja vatnið hvers vegna það rennur ofan en ekki upp. Eins og Ólafur Gísla- son ítrekar í ágætri sýningarskrá og hefur eftir Roland Barthes þá er rítúal á borð við páskaeggsátið dæmi um form sem glatað hefur upprunalegri merkingu. Merkingarleit er löstur sem lista- menn gæla gjarnan við í framspeki- legri angurværð sinni. I staðinn fyrir að taka hlutunum eins og þeir era - taka heils hugar þátt í leiknum eins og fölskvalausir leikendur - halda þeir sig til hlés til að spyrja áleitinna spurninga um merkingu þess leiks sem kallast lífið. Fyrir vikið verða þeir áhorfendur að lífinu en ekki þátttakendur, með sama hætti og al- menningur - hinn raunverulegi þátt- takandi í tilverunni - verður síðar að- njótandi listar listamannsins án þess að geta sjálfur skapað list. Listamað- urinn er því ekki annað en misjafn- lega mikilvægur milliliður milli til- verunnar - Guðs, móður náttúru, sköpunarverksins, eða hvers sem við viljum nefna það - og hins almenna listnjótanda. Sökum þess að hann er skilyrtur til að skapa getur hann ekki tekið þátt í tilverunni sjálfur, ekki frekar en Guð almáttugur skap- ari hennar. Ólöf Nordal er afar spennandi listamaður vegna þess að hún leyfir sér að leita merkingar beint í hafsjó klassískrar formfræði, einmitt þar sem leit listamannsins að merkingu hófst í árdaga forngríski’ar menning- ar. En um leið tengir hún leit sína páskaeggsátinu og altarisgöngunni þar sem við etum af líkama Guðs og bergjum af blóði hans. Reyndar er það spurning hvort hún hafi erindi sem erfiði í leit sinni að leyndri merkingu eða hvort erindið snúist í höndum hennar eins og það gerði í höndum Ödipusar forvera hennar, sem gekk svo hart í að leysa gátu til- verannar að hann hvarf endanlega til upprana síns og uppskar ævarandi útskúfun fyrir að hafa haft enda- skipti á sinni eigin þróunarsögu. Én það sem er hrífandi er hve ákveðin hún er í að kryfja formið til að leita þar merkingar, og hve vel henni farnast í þeim ásetningi, einmitt á þessari sýningu. Þá fylgir hún líkamsátinu eftir með vandaðri sýningarskrá sem innber drjúgan fróðleik um list hennai’ frá upphafi vega. En svo smásmyglinni sé svalað þá hefðu tálgaðir viðardiskarnir und- ir súkkulaðigoðinu og hjartanu vissulega mátt missa sín. I staðinn fyrir þennan gervöega skátastö - Guðbergur Bergss. kallar það Fraga-stfiinn - hefði ft-ekar mátt hugsa sér hlutlausa pappadiska úr vistvænum eggjabakkamassa. Slöi lausn hefði þjónað hugmyndinni snöggtum betur. Halldór Björn Runólfsson Náttúruskart MYJVDLIST Stöðlakot SKARTGRIPASMÍÐ GUÐRÚN MARINÓSDÓTTIR SIF ÆGISDÓTTIR Opið miðvikudaga til sunnudaga frá kl. 14.00 til 18.00. Aðgangur ókeypis. Til 3. maí. TALSVERÐ gróska hefur verið í skartgripasmíði undanfarna mánuði, ef marka má nýlegar sýningar. En maður þarf að vera mjög vakandi til að taka eftir þeim, því þær hafa verið dreifðar bæði í tíma og rúmi. Ber- lega kemur í ljós að sárlega vantar vettvang fyrir hönnunargreinar og handverk, ekki aðeins fyrir einstak- linga til að sýna, heldur einnig þar sem hægt er að taka saman yfirlit yf- ir það sem er að gerast, halda sam- sýningar, og kynnast bæði klassískri hönnun og nýjum straumum. Oft hefur verið bent á þetta tómarúm í íslensku menningarlífi, þannig að um það þarf ekki að hafa fleiri orð. Sýningin í Stöðlakoti er að megin- hluta tö afrakstur samvinnu Guðrún- ar Marinósdóttur og Sifjar Ægisdótt- ur. Guðrún hefur unnið í textfi og tek- ið þátt í mörgum sýningum á unda- fómum fímmtán áram, en Sif er tö- tölulega nýútskrifuð úr guösmíðadeöd listiðnaðarskólans í Lahti í Finnlandi. Báðar era þær einnig með eigin verk, en það era þeir munir sem þær unnu i samvinnu sem veHja mesta eftirtekt. Guðrán hefur áður unnið með hross- hár og á þessari sýningu þá notar hún einmitt hrosshár á einkar smekklegan og hugvitsamlegan hátt í armhringi, armbönd og hálsbönd. Hrosshárið er litað skæram litum og ofið saman í áferðarfalleg bönd. Sif hefur síðan bú- ið tíl festingar og sylgjur utan um böndin. Þetta era óvenjulegir munir sem virðast bjóða upp á ýmsa mögu- leika tö ft’ekari útfærslu. Ýmis tilbrigði við náttúraleg form virðist vera algeng í skartgripasmíði um þessar mundir og Sif sækir fyrir- myndir að gripum sínum í hrjóstraga íslenska náttúru. Hún sýnir hringi og nælur, úr silfri mess- ing og eðalsteinum, sem sækja fyrir- myndir til óreglulegra forma hraun- grýtis og tærleika vatns. Guðrún sýnir einnig seríu af verk- um sem hún kallar „Töbrigði við Keili“, sem er sömuleiðis frjálslegt tilbrigði við náttúruform. Verkin eru eins og litlir og loðnir strýtulagaðir hattar úr hrosshái’i og vaxi. Frekar skopleg útsetning á íslenska fjallmó- tívinu. Gunnar J. Árnason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.